Þjóðviljinn - 17.09.1978, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. september 1978
UODVIUINN
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur
Bergmann. Ritstjóri: Kjartan Olafsson. Fréttastjóri: Einar Karl
Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaöi: Arni Bergmann. Aug-
lýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson. Ritstjórn, afgreiösla, aug-
lýsingar: Siöumúla 6, Simi 81333 Prentun: Blaöaprent hf.
Raunhæft
jafnrétti einnig
fyrir fatlaða
Raunhæft jafnrétfi mannanna er einn aðalhornsteinn
lýðræðisins. Jafnrétti snertir ekki aðeins jaf nrétti gagn-
vart lögunum, heldur er jafnrétti mun meira. Það er
jafn réttur hvers einstaklings til lífsgæða, án tillits til
efnahags, stéttar, þjóðf lokks eða kyns til þess að leita og
njóta lífshamingju. Allir eiga að hafa jafnan rétt til að
þroska hæf ileika sina og hagnýta þá sjálf um sér og þjóð-
félaginu til hagsældar. í þessu er jafnréttishugsjónin
fólgin.
Víða er jaf nréttishugsjón lýðræðisins þverbrotin.
Mikið hef ur skort á til að mynda í íslensku þjóðfélagi að
allir þegnar þess séu jafnir gagnvart lögunum. Enn
meira hefur skort á efnahagslegt jafnrétti. Undanfarin
ár hefur aftur á móti mest borið á baráttu námsfólks
fyrir jafnrétti til náms og jafnréttisbarátta kynjanna
hefur skipað öndvegið siðustu árin. Ef jafnréttis-
baráttan er sett í eðlilegt alþjóðlegt samhengi, þá skortir
enn mikið á að jöfnuður náist. Enn verða þúsundir að
berjast fyrir lágmarks mannréttindum, og enn deyja
þúsundir í baráttunni fyrir jafnrétti fyrir lögunum. í
hinum svonefndu velferðarrikjum hefur jafnréttis-
baráttan fengið víðfeðmara inntak en jafnréttisbarátta
liðinna áratuga.
Þrátt fyrir lagabókstafi um jafnan rétt þegnanna eru
f jölmennir þjóöfélagshópar sviptir réttinum til að hafa
áhrif í þjóðfélaginu og taka þátt í atvinnu- og
menningarlifi samborgaranna. Fjölmennir hópar eru
sviptir þeim mannréttindum sem aðrir þjóðfélags-
þegnar njóta m.a. vegna fötlunar. Rannsóknir sýna að 15
prósent hverrar þjóðar eru að einhverju leyti fatlaðir. I
þeirri tölu eru börn innan þriggja ára aldurs sem eru
fötluð gagnvart umhverfi sínu og eins gamalt og veik-
burða fólk, auk þeirra sem eru fatlaðir af völdum slysa,
veikinda eða fæðingargalla. Samkvæmt þessu eru um 12
þúsund manns i Reykjavík er þurfa að lifa við þá skerð-
ingu mannréttinda sem fötlun fylgir. Hið opinbera hefur
ekki gert mikið til að rétta hlut þessa fólks. Það er
vissulega fagnaðarefni að fatlaðir skuli nú skera upp
herör og efna til útifundar og jafnréttisgöngu á fund
borgarstjórnar á þriðjudag. Sú var tíð að ríkjandi var
það viðhorf að fatlaðir ættu að halda sig innan dyra,
helst á lokuðum stofnunum og þola skert mannréttindi i
kyrrþey. Þessum þjóðfélagshóp var aðeins ætlað hið
„sorglega jafnrétti til dauðans". En fatlaðir hafa nú
reist kröfuna hátt um jafnrétti og tekið málin í sínar
hendur. I jafnréttisbaráttunni hafa fatlaðir gripið til
sömu baráttuaðferða og aðrir undirokaðir hópar hafa
nýtt með góðum árangri í sókn til jafnréttis. Það er
vissulega skylda allra sem stutt hafa jafnréttisbaráttu
islenskrar alþýðu að gerast þátttakendur í jafn-
réttisbaráttu fatlaðra á þriðjudaginn kemur, því tak-
markið er jafnrétti.
Kröfur þær sem bornar verða í göngunni á þriðjudag
hafa það megininntak að ryðja burt þeim hindrunum
sem útilokað hafa fatlaða frá almennri þátttöku í
atvinnu- og menningarlífi. Með ekki ýkja miklum
kostnaði getur hið opinbera og f leiri aðilar komiðtil móts
við kröfur fatlaðra og skapað þeim raunhæft jafnrétti. i
þessu efni er fyrst og fremst spurningin um skilning og
vilja annarra þegna samfélagsins til að koma á raun-
hæfu jafnrétti. Fatlaðir eru með aðgerðum sínum að
vekja alla þegna þjóðfélagsins til umhugsunar um þann
þjóðfélagsveruleika sem við fötluðum blasir. Aðgerðirn-
ar verða vonandi til þess að auka skilning ráðandi aðila
á nauðsyn aðgerða.
Smæð islensku þjóðarinnar ætti að gera það að verkum
að jafnréttishugmyndin nái sterkari tökum á lands-
mönnum þar sem hver einstaklingur verður þjóðar-
heildinni dýrmætari en raunin er í stærri þjóðfélögum.
Hið fámenna íslenska þjóðfélag hefur ekki efni á að úti-
loka stóran þjóðfélagshóp frá þátttöku í íslensku at-
vinnu- og menningarlífi. Vilji landsmenn standa undir
þvi nafni að teljast til lýðræðisþjóða, þá ber þeim að
koma hér á raunhæfu jafnrétti til handa öllum landsins
þegnum.
Muniö þiö þá tiö þegar þaö var
sama hvenær morgunsins viö
vöknuöum, viö gátum alltaf
kveikt á útvarpinu og fundiö
okkur samastaö i tilverunni?
Þá tiö þegar hin eina sanna átt-
hagafræöikennsla fór fram i
morgunútvarpi milli sjö og
tiu, og þaö i einkatimum, þvi
þulirnir töluðu viö hverja og
eina okkar eins og hún væri ein
aö hlusta? Aö visu skal viöur-
kennt aö þaö var höfuðborgarsól
sem skein og Reykjavikurvind-
ar sem fóru sér hægt, en þaö
sýnir bara nauðsyn á morgunút-
varpi fyrir hvern landshluta.
Þetta voru þeir morgnar þegar
morgunútvarpsstjórar höfðu
næöi og tima til aö byggja upp
viöfeöma dagskrá af tónlist,
vafalaust rekiö upp ramakvein
eöa eitthvaö. Þetta hefur gerst
mjög hægt og bitandi. Viö höf-
um talaö um hvert atriði i
nokkra daga og ergt okkur en
látið þar viö sitja. Ekki annaö
aö gera. Ég man ekki i hvaöa
röö innrásirnar voru geröar siö-
an i þá gömlu góðu daga sem
getið var i upphafi, þegar
morgunþulir höfðu timann milli
sjö og tiu tiu óskertan af ööru en
fréttum og veðurfregnum viö og
viö, sem auðvitað eru stór part-
ur af átthagafræðinni. Sá lestur
tekur á aö giska 38 minútur af
þeim rúmu þrem sem þulir
'höföu yfir að ráöa. Þá er rétt
rúmur tveir og hálfur eftir.
Til að velja af handahófi þvi
rannsókn skortir skulum viö
Silja Aöal-
steinsdóttír
sk ritar
samhangandi i marga klukku-
tima, og ræða við mig milli
laga, ýmist til að veita mér upp-
lýsingar um tónlist eöa segja
mér nákvæmlega á hverju ég
ætti von ef ég hætti mér út fyrir
dyr. Þetta voru góöir morgnar,
en þeir eru liönir og koma ekki
aftur nema eitthvað veröi aö
gert.
útvarp Reykjavík,
góðan dag
lengi sem ég man verið lengsta
dagskrá útvarpsins i höndum
einnar manneskju og jafnframt
sú besta. Það hafa hlustendur
lengi vitað en tekið þaö alveg
eins og sjálfsagðan hlut. í þenn-
an starfa valdist úrvalsfólk með
viðtæka þekkingu á tónlist, sem
er nauðsynleg, og góðan hæfi-
leika til að rabba rólega og
elskulega við hlustendur, en sá
hæfileiki er afar sjaldgæfur.
Það er leitun á öðrum eins, en
þá leit verður að gera ef ætlunin
er að halda í horfinu. Svo virðist
hins vegar sem útvarpið hafi
tekið þá stefnu að gera þessa
menn óþarfa, eyðileggja i raun
þessa ágætu dagskrá og prýði-
legu afþreyingu fyrir okkur.
Erlendis eru heilar stöðvar —
oft viðbótarstöðvar hjá rikisút-
varpi — byggðar á nákvæmlega
sömu atriðum og morgunút-
varpið okkar heitið. Það er leit-
að að góðu fólki með þá hæfi-
leika og þekkingu sem ég áður
taldi og deginum skipt á milli
þess. Þetta er ódýr dagskrá og
þjónar vel tilgangi sinum.Fjarri
sé það mér að biðja um meira af
sliku i útvarp Reykjavik, en ég
bið um mitt morgunútvarp aft-
ur. Þvi meðan aðrir hafa tekið
upp sið þenna — sjálfsagt með-
fram af fjárhagsástæðum — þá
höfum við skorið okkar dagskrá
niður við trog.
Nú verða sagðar fréttir
Þessi niðurskurður hefur ekki
gerst i einu lagi. Þá hefðum við
segja að morgunleikfimin hafi
oröið fyrst á vettvang af utanað-
komandi þáttum. Það sagöi
enginn neitt við henni meðan
hún var einu sinni á morgni, en
tvisvar fannst okkur einum of
oft. 1 hana fara 20 minútur. Þá
eru eftir tveir og tiu. Tiikynn-
ingar taka mismikinn tima,
segjum 15 að meðaltali. Þá er
eftir einn fimmtiu og fimm.
Morgunstund barnanna var
þarfaþing meðan hún var á
morgunverðartima fyrir leik-
skóla og dagheimili, en nú er
erfitt fyrir marga að hlusta á
hana. Hún tekur 15 minútur og
þá er eftir einn og fjörutiu. Tiu
minútur tóku forystugreinar
dagblaðanna eftir að þær komu
á vettvang með sina vafasömu
átthagafræði. Þingfréttir taka
15 minútur, og þegar þær eru
ekki, setur dagskrárdeild eitt-
hvað annað þar i staðinn, t.d.
eitthvað um verslun og við-
skipti. Morgunbæn tekur 5 min-
útur — og hvað er þá eftir?
Klukkutimi og tiu minútur.
Næst á dagskrá er þáttur-
inn af ýmsu tagi
Eins og þetta væri ekki nógur
niðurskurður þá vildi tónlistar-
deild nú fá pláss fyrir sig ekki
siður en leikfimi og þingfréttir.
Einhverjum hefði fundist það
óþarfi þvi það hafði alltaf verið
spiluð úrvalstónlist alla morgna
svo Iengi sem elstu menn
mundu og plötuúrvali útvarps-
ins til sóma. Þátturinn sem tón-
listadeild fékk fyrir sig heitir Af
ýmsu tagi og klipur hálftima af
þessum einum og tiu sem eftir
var handa pródúsentum
morgunútvarpsins. Satt að
segja varð okkur fyrst fyrir að
hlæja þegar þátturinn af ýmsu
tagi leit dagsins ljós. I-iafði þá
verið leikin tónlist af einhverju
ákveðnu tagi i morgunútvarpi
og ástæða til að vikka sjóndeild-
arhring áhangenda þess? Svo
uröum við reiðar og svekktar,
þvi okkur varð ljóst aö eftir
stóðu fjörutiu minútuf i átt-
hagafræöina. Fáar minútur sem
þar að auki dreifast viða. Eina
rýmið sem ennþá er eftir i raun
fyrir samfellda dagskrárgerð
morgunþula er milli morgun-
leikfimi eitt og morgunbænar:
Tuttugu og fimm minútur.
Lægð yfir islandi
Atthagafræöina kyrkti svo
veðurstofan i greip sinni að «
mestu þegar amast var við þvi *
aö þulir segðu frá veöri og vind- “
um i morgunútvarpi, það átti I
einungis að koma beint frá
veðurstofunni. Samt vita allir <£
að lesturinn þaðan er svo -
náttúrulaus að maöur þarf að I
nota vökustaura til að hlusta á m
hann til enda. Nú vitum við ■
aldrei i hvað við eigum aö fara á
morgnana, hvort það er nóg aö
fara i eina peysu eöa hvort þaö I
er nauösynlegt að vera i lopa- j
peysu utan yfir, hvort það er |
nóg að vera i sportsokkum eða ■
hvort við ættum að draga fram I
föðurland. B
Afleiðingin af þessu öllu verð- |
ur sú að það fer að verða alveg '
ástæðulaust að opna útvarpið á •
morgnana ef það sem mann I
vantar er að átta sig á tilverunni ■
og lita glaðan dag. Dagskráin er |
orðin eins þá og á öðrum timum ■
dags og kynningin á henni jafn- I
vélræn, þótt enn eigi þulirnir m
góða spretti við og við á hlaup- i
unum milli þátta. Morgunút- *
varpið er fyrir bi.
Er vaxandi hæö yfir
Grænlandi?
Eins og ég sagði fyrr þá var Z
morgunútvarpið okkar einstakt I
i sinni röð og besta dagskrá sem ;
hefur verið i útvarpinu, að I
minnsta kosti reglulega. Það !
þarf að endurheimta, og tillaga ■
min er sú að snúa vörn upp i I
sókn: Byrja á að endurheimta ■
timann sem fer i Af ýmsu tagi, |
halda áfram við helming af ■
morgunleikfimi, fresta þing- I
fréttum fram yfir tiu tiu og JJ
sleppa morgunbæn. Þá fáum við ■
klukkutima i viðbót af átthaga- I
fræði. Og að sjálfsögðu á að ?
leyfa morgunþulum að tala um f
hvað sem þeir vilja i þessari ■
dagskrá sinni, þeir ráða henni I
sjálfir og við búum ekki við B
tjáningahöft, er það? Þeir eiga ■
að lýsa veðri og vindum, skiða- ■
færi, göngufæri og færð yfirleitt í
eins og þurfa þykir. Siðan á að |
prófa fólk sem sækir um þetta ■
starf og þjálfa það vandlega áð- |
ur en það tekur til starfa. Þetta B
er ekki þularstarf Þetta er dag- g
skrárgerö og ein sú vandamesta J
sem unnin er i útvarpinu. Ef vel .
á að vera.
“ Morgunútvarpið hefur svo
Hvað varð
af morgun-
útvarpinu?
Blómlegt starf
kvenfélaga
Dagana 2. og 3. scptember
s.l. var haldinn að Hallveigar-
stööum 13. formannafundur
Kvenféiagasambands tslands.
Sátu hann 18 formenn héraðs-
sambanda af þeim 22, sem rétt
eiga á setu þar. Kvenfélögin inn-
an Ki eru nú 249 og samanlögð
félagatala þeirra rétt um 24 þús-
und.
Gefnar voru skýrslur um störf
Kt og aðildarsambandanna og
kom þar fram sem endranær hve
feikna mikið starf kvenfélög
vinna um land allt að fjölþættum
verkefnum. A vegum Kt er starf-
rækt Leiðbeiningarstöð hús-
mæðra og er sivaxandi aðsókn að
henni. Það gefur út fræðslurit um
ýmis hagnýt efni auk timaritsins
Húsfreyjunnar, sem kemur út
fjórum sinnum á ári. K1 er aðili
að Húsmæðrasambandi Norður-
landa og Alþjóðasambandi hús-
mæðra.
A fundinum voru samþykktar
alls 8 áskoranir, sem fundarmenn
beina til ýmissa aðila. Fjalla þær
m.a. um verðlagsmál i sambandi
við könnun á innkaupsverði ým-
issa vara á Norðurlöndum, um
merkingu ullarvara, fæðingaror-
lof, nýtingu innlendrar græn-
metisframleiðslu, versnandi
verslanaþjónustu vegna fækkun-
ar á smásöluverslunum og um
fjölgun ráðunauta i heimilisgarð-
rækt.
Stjórn Kt skipa: Sigriður Thor-
lacius formaður, Sigurveig Sig-
urðardóttir varaformaður og
Margrét S. Einarsdóttir með-
stjórnandi.