Þjóðviljinn - 14.10.1978, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN. Laugardagur 14. október 1978
AF TÝNDU BLAÐI
Þegar ég las Vikuskammt Flosa i síðasta
laugardagsblaði, kom mér ósjálfrátt í huga
Ijóðstúfur, sem ég hafði mikið dálæti á þegar
ég var krakki og er raunar eftir Jónas
Hallgrímsson:
Þegar þú kemur þar í sveit,
sem þrímennt er á dauðri geit
og tíkargörn í taumhaldið
og tófuvömb i áreiðið
og öllu snúið öfugt þó,
aftur og fram um hundamó,
svo reiðlagiðá ringli fer
og rófan horf ir móti þér...
Ég hef nefnilega undanfarin ár lagt fyrir
mig þá vafasömu iðju, að blekbulla í Þjóðvilj-
ann nær vikulega, víst að flestra dómi — og
ekki síst eigin — með æði misjöfnum árangri.
Á þessum langa og merka ritferli mínum
hef ur það æði oft borið við, að góðir og grand-
varir vinir mínir og velunnarar blaðsins hafi
bjargað mér f rá því að hlaupa á mig í skrif um
mínum og jafnvel verða mér til skammar
svona úr hófi fram.
Nú dettur sjálf sagt mörgum í hug að hér eigi
ég við ritstjóra blaðsins, eða einhverja
,,endurskoðendur" eða sensora, eins og það er
kallað á f ínu máli, en svo er ekki. Satt að segja
er það nú svo að þótt sjálfsagt megi segja
margt misjafnt um fráfarandi ritstjóra
Þjóðviljans, sem nú eru orðnir þingmenn, ráð-
herrar og guð má vita hvað, þá mega þeir eiga
það (eða máttu) — hvað mig áhrærir — að ekki
hef ég i eitt einasta skipti verið beðinn um að
skrifa eftir nokkrum kúnstarinnar reglum
öðrum en eigin. Nú hafa yngri og sprækari
menn tekið við ritstjórn blaðsins og er það vel,
en vonandi viðhalda þeir góðu siðum gömlu
mannanna.
Þeir, sem leggja síðustu hönd á Þjóðviljann,
haf a ,svo sannarlega, í ótalin skipti fært staf-
setninguna mína — sem vægast sagt er víst
bágborin —til betra vegs, þannig að „firir" og
„ifir" kæmu endanlega í blaðinu með ufsilon.
Þá hef ur það oft orðið mér til lífs þegar próf-
arkalesarar blaðsins hafa hringt í mig vegna
þess að þeir botnuðu ekki upp né niður í því
hvað ég var að fara. Þjóðviljinn hefur á að
skipa hæfustu mönnum, sem þurfa sífellt og
við verstu skilyrði að vera að berjast við einn
skæðasta erkidjöful allra blaða og bóka,
prentvillupúkann. Það er löngu sannað mál að
þennan andskota er ekki hægt að kveða niður,
en fyrir tilstuðlan (afsakið orðið) góðra
manna er oftast hægt að halda honum í skef j-
um, en ekki ailtaf.
Stundum getur nefnilega orðið stórslys ein-
hvers staðar á meðgöngutímanum frá því að
blaðagrein kemur undir, þar til hún fæðist
fullburða sem (í mínu tilviki) blaðagrein.
Satt að segja fæddist greinin mín, á laugar-
daginn var, andvana vegna þess að einhvers
staðar á leiðinni frá mér og inn á 2. síðu
Þjóðviljans týndist bróðurparturinn af spek-
inni eða heilt vélritað blað. Góðir menn reyndu
eftir bestu getu að bjarga þvi sem bjargað
varð, en endanlega þakti greinin óverulegan
hluta annarrar síðunnar. Þar sem Viku-
skammtur þessi var allt annað en broslegur
var brugðið á það þjóðráð að hafa fyndið efni
til uppfyllingar á síðunni. Þar var meðal ann-
ars stór fyrirsögn, sem teljast verður
brandari aldarinnar „S IGöLDU VI R KJ UN
VERÐUR FULLBOIN NÆSTU ÁRAMÖT"!
Laugardagsgreinina síðustu er ekki hægt að
birta hér eins og hún átti að vera, af því að
f rumhandritið er týnt, og væri raunar eins og
verið væri að reyna að blása líf i í eitthvað sem
andvana fæddist.
Rétt er þó að geta þess hér lauslega að í
greininni var f jallað um þá séríslensku hag-
speki að verslun standi þá með mestum
blóma, þegar hægt sé að ná hærra innkaups-
verði en útsöluverði. Þá var þar eitthvað f jall-
að um ómaklegar aðdróttanir, sem Samband-
ið hefði orðið fyrir,og að SÍS væri meðtandur-
hreinan skjöld, sem sannaðist best á því að
hægt væri að fá að sjá reikninga fyrirtækja
þess. í landinu eru víst sjöhundruð heildsalar
og samt flytur Sambandið inn helming alls
innflutnings m.ö.o. sjöhundruð sinnum meira
en hver heildsali um sig til jafnaðar. Samt er
það staðreynd að Sambandið hef ur ekki getað
boðið uppá hagstæðara vöruverð en heildsal-
ar, þótt f yrirtæki þess séu tvímælalaust miklu
betur rekin en önnur í landinu og vafalaust í
betri samböndum en allir aðrir í krafti veldis
sins. Fullvist er talið að Sambandið ætti að
geta fengið umtalsverðari magnafslátt en
aðrir. Sambandið á fulltrúa í öllum bönkum.
Sambandið á sinn eigin banka. Talið er að
Sambandið eigi greiðari aðgang að ýmsum
sjóðum en aðrir. Sumir telja að Sambandið
njóti skattfríðinda, og vitað er að Sambandið
f lytur varning sinn heim með eigin skipum og
losnar við að borga óheyrileg farmgjöld til
Eimskipafélags íslands og eru þá ótalin alls
konar pólitísk sambönd um allar trissur.
Þegar öllu er á botninn hvolft er það sjálf-
sagt rétt sem hagspekingar verslunarinnar
hafa verið að reyna að koma almenningi í
landinu í skilning um að undanförnu, að trygg-
ingin fyrir því að vöruverð verði hér lægra eri
annars staðar, sé hagnaðarvonin i því að halda
útsöluverðinu lægra en innkaupsverðinu. Og
að lokum lokaorðin í álitsgerð Verslunarráðs-
ins, því sjaldan er góð vísa of oft kveðin:
Eftir vorri álitsgerð
inn skal fært í sjóði
innkaupsverð minus útsöluverð
sem endanlegur gróði.
Flosi.
Fimm — Fimm
Kortsnoj vann bidskákina
t gær tókst Kortsnoj þaö sem
engan óraöi fyrir. Hann geröi
sér litiö fyrir og vann biöskák-
ina úr 31. skákinniog er þar meö
búinn aö jafna upp þriggja vinn-
inga forskot Karpovs.
Nú veröur hver skák hrein
úrslitaskák þar sem sá sem
vinnur fyrr telst heimsmeistari
f skák.
Karpov sem var meö svart
gafst upp i 71. leik i tapaðri
stööuog flýttisér siöanút ásamt
fylgdarliði sinu án þess aö segja
aukatekiö orö viö hina fjöl-
mörgu blaöamenn sem þjörm-
uöu að honum.
Eftir aöförina aö Karpov
ruddust fréttamennirnir inn i
búningsherbergi Kortsnojs og
klöppuöu honum lof i lófa.
Kortsnoj var hinn hressasti og
gaf Ut þá yfirlýsingu aö 5-5
þýddi happdrætti. Þegar.
Kortsnoj var inntur aö þvf hvort
hann hyggðist tefla til sigurs I
32. skákinni sem tefld veröur á
morgun, þrátt fyrir aö hann
heföi svart, var hann fljótur til
svara og sagöi: „Af hverju
skyldi ég tefla til vinnings?”
Þykir þetta benda til þess aö
hann muni tefla varfærnislega
og foröast aö taka áhættu.
Þegar Karpov var kominn
meö aö því er virtist afgerandi
forustu 5-2 tóku forráöamenn
sovéskra skákmála aö streyma
til Filipseyja til þess aö vera
viðstaddir lokaathöfnina. Fyrst
kom sovéski stórmeistarinn
Evgeny Vasiukov frá Indlandi
þar sem hann var aö vinna
skákmót. Hann kom þó aðeins
til þess aö sjá Karpov tapa 28.
skákinni.
Síöan kom forseti sovéska
skáksambandsins Cosmounaut
Vitaly Sebastianov rétt I tæka
tiö til þess að sjá Karpov tapa
29. skákinni og nú i gær kom i-
þróttamálaráðherra sovétrlkj-
anna, Viktor Yvonin, og var
hann viöstaddur uppgjöf
Karpovs i siöustu skák.
Fréttir frá Filipseyjum
herma aö Karpov hafi ekki
áhuga á aö fá fleiri heimsókn-
ir...
En snúum ókkur nU aö
biöstööunni:
Karpov lék hér biöleikinn,
sem allir höföu reiknaö meö:
47. — gxf5
48. gxf5-Hg8
Ef svartur leikur strax 48. —
He8 þá feemur 49. d5! (en ekki
49. Hxe8 Kxe8 50. d5 Kd7 meö
jafntefli) t.d. 49. — Hxe2 50.
Kxe2 cxd5 51. c6! og vinnur.
49. Kc3
Einnig viröist 49. d5 vera
möguleikúen Kortsnoj fer sér aö
engu óöslega, enda hefur hann
ákveðna áætlun i huga.
49. — He8
Eftir 49. — Hg3 50. Kb4 Hxh3
51. a6! bxa6 52. Ka5 er vinn-
ingurinn skammt undan.
50. Hd2-He4
51. Kb4-Ke8
Enn á ný hefur Karpov
engan tíma til peöaveiða meö
51. — Hf4 vegna 52. a6! o.s.frv.
52. a6!
Þannig opnar Kortsnoj kóng
sinum leið aö svörtu peðunum.
52. —bxa6
53. Ka5-Kd7
54. Kb6!
Peöiö á a6 hefur enga
þýöingu. Fyrir öllu er aö koma
kóngnum i sem ákjósanlegasta
stöðu.
54. —b4
55. d5
C-peðiö á aö gera út um
skákina!
55. — cxd5
56. Hxd5+ Kc8
57. Hd3!
Kortsnoj teflir listavel. Hrók-
urinn kemur ekki aöeins i veg
fyrir framrás b-peösins, heldur
hefur hann einnig aug'astað á g3
reitnum.
57. — a5
58. Hg3-b3
Nauösyniegt vegna hótunar-
innar 59. Hg8+ ásamt 60. c6.
59. Kc6!
Enn á ný nákvæmni. Með þvi
aö hóta máti á g8 vinnur hvitur
nú b-peðiö.Þaö mátti hinsvegar
ekki taka strax meö 59. Hxb3??
vegna 59. — Hb4+ og það er
svartur sem vinnur.
59. — Kb8
60. Hxb3 + -Ka7
61. Hb7 + -Ka6
62. Hb6 + -Ka7
63. Kb5!
Nú vinnur hvitur nokkur
peð...
63. — a4
64. Hxf6-Hf4
65. Hxh6-a3
66. Ha6+-Kb8
67. Hxa3-Hxf5
68. Hg3-Hf6
69. Hg8 + -Kb7
70. Hg7+-Kc8
71. Hh7
Karpov gafst upp. Annaö
hvitu peöanna mun brátt birtast
upp á 8. reitarröö sem ný
drottning.
32. skákina á aö tefla i dag ef
Karpov tekur sér ekki fri en
hann á einn fridag inni —
Kortsnoj engan.