Þjóðviljinn - 14.10.1978, Síða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. október 1978
P/OBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs
hreyfingar og þjóðfrelsis
Llgefandi: Útgáfufélag Þjóóviljans
Kramkvæmdastjóri: Eiður Bergmann
Kitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Auglýsingastjóri: Gunnar Steinn Pálsson.
Afgreiðslustjóri: Filip W. Franksson
Blaðamenn: Alfheiður Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Erla Sig-
urðardóttir, Guðjón Friðriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur
Margeirsson. Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. Iþrótta-
fréttamaður: Asmundur Sverrir Pálsson.
Ljósmvndir: Einar Karlsson, Leifur Högnvaldsson.
Útlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson. Sævar Guöbjörnsson.
Ilandrita- og prófarkalestur, Blaðaprentsvakt: Andrea Jónsdóttir,
Elias Mar, Oskar Albertsson.
Safnvörður: Eyjólfur Arnason.
Auglýs.ingar: Rúnar Skarphéðinsson, Sigriður Hanna Sigurbjörnsdóttir
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jón Asgeir Sigurösson.
Afgreiðsla: Guðmundur Steinsson. Kristln Pétursdóttir.
Sfmavarsla: Ólöf Halidórsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Otkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guðmundsson
Ritstjórn, afgreiðsla og augiýsingar: Slðumúla 6.
Reykjavik, simi 81333
Prentun: Blaðaprent h.f.
Lögregluríkið
er ekki
náttúrulögmál
Somoza, einræðisherra í AAiðameríkuríkinu Nicaragua
hefur unnið hernaðarsigur á andstæðingum sínum.
Vinstrisinnar, frjálslyndir, borgaraleg öfl, höfðu tekið
höndum saman um að koma frá völdum f jölskyldu, sem
hafði stjórnað þessu 2,3 miljón manna riki i f jörutíu ár
sem einkaf yrirtæki. En Somoza átti nóg af vopnum,hann
hafði og á að skipa 7500 manna þjóðvarðliði, sem er í
senn her og lögregla, og hann átti nægilegt fétil að kaupa
sér fyrir liðsstyrk um eitt þúsund erlendra málaliða —
uppgjafahermanna frá Víetnam og annarra ævintýra-
manna, sem leita uppi þá staði á hnettinum þar sem
mönnum eru greidd há laun f yrir mannvíg. Og f lugvélar
köstuðu sprengjum á leirkofa í fátækrahverfum borg-
anna og á götuvigin þar sem reyndir skæruliðar jafnt
sem hugsjónaríkir unglingar lögðu illa vopnaðir líf sitt
að veði fyrir frelsið dýra. Og að unnum sigri í krafti
öflugs vopnabúnaðar, gengu liðsmenn Somoza um bæi,
skutu inn í kirkjur, íbúðarhús og sjúkrahús, smöluðu
varnarlausum óbreyttum borgurum til f jöldaaftöku.
Tíðindi af þessu tagi eru ekki nýmæli í löndum
Rómönsku Ameríku. Þau hafa verið svo algeng áratug-
um saman, að alltof margir hafa farið að líta á það eins
og hvert annað náttúrlögmál að einræðisherra eða her-
foringjaklíka ráðskist með þau lönd; í vitund margra
manna verður lögregluríkið eins og hluti af hinu mið- og
suðuramríska landslagi.
Einmitt þess vegna er sú visa aldrei of oft kveðin, að
pólitískt ástand í ríkjum á borð við Nicaragua er bein
afleiðing af gömlum og nýjum ef nahagslegum,
hernaðarlegum og pólitískum umsvifum stóra bróður í
norðri, Bandaríkjanna. Nicaragua sjálft er afar skýrt
dæmi um þetta. Bandaríkin hernumdu landið árið 1912 og
þegar her þeirra fór þaðan árið 1933 skildu þeir eftir
handa hinum fyrra einræðisherra af Somozaf jölskyld-
unni, föður þess sem nú situr, Þjóðvarðliðið svonefnda
sem valdatæki. Lið þetta var þjálfað til lögregluhand-
verks af Bandaríkjunum og svo hefur verið síðan.
Anastasio Somoza sjálfur er útlærður í bandarískum
herskólum, og hann hefur engum manni hleypt til met-
orða í her sínum nema hinn sami hefði tekið út þjálfun í
Bandaríkjunum. Þúsundir þjóðvarðliða hafa notið sér-
kennslu í þeim skólum bandariska hersins við Panama-
skurð, sem kenna baráttu við þjóðfrelsishreyfingar.
Vopnabúnaður og herkostnaður kemur og frá Banda-
rikjunum —á sl. 15 árum hafa þau gefið Somoza 80 milj-
ónir dollara til að hann geti haldið uppi þessum einkaher
sínum, sem er eins og hernámslið í eigin landi.
Það er ekki nema að vonum, að einn af foringjum
„Breiðrar stjórnarandstöðufylkingar" Sergio Ramirez,
segi: „ íbúar Nicaragua vita mætavel, að þeir eru myrtir
af her og með vopnum sem eru hvorutveggja banda-
rískar afurðir". Um víðan heim hafa menn tekið undir
ásakanir andstæðinga Somoza í garð Carters Banda-
rikjaforseta og stjórnar hans fyrir að ekkert hafi af
þeirra hálfu verið gert til að stöðva hið mikla blóðbað
sem Somoza hefur efnt.til, hvað þá að lýðræðissinnar
mættu minnsta stuðningi eða skilningi af hálfu ráða-
manna í Washington, sem hafa líf þessa sköpunarverks
síns, Somozaættarinnar, alveg í vasa sínum ef þeir kæra
sig um.
Það þykir að sjálfsögðu ekki tíðindum sæta þótt eitt
vinstrablað minni á ábyrgð Bandaríkjanna á blóðbaðinu
i Nicaragua, en það væru nokkur tíðindi ef pólitískir
frændur og vinir þeirra á AAorgunblaðinu gæf u sér tíma-
korn frá forystukreppu og skipulagsmálum til að f jalla
um frelsi og rétt mannsins sunnan af Bandarfkjunum.
—áb.
• Óhœft eftirlit
IEftirlit meö umsvifum
Bandarikjahers á Keflavikur-
, flugvelli er fyrir neðan allar
Ihellur. Ekki einasta hafa
islensk stjórnvöld margoft opin-
berað himinhrópandi fákunn-
, áttu sina um vopnabúnað og
Ivopnaskak „sjóhersins á þurru
landi”, heldur hafa talsmenn
varnarmáladeildar utanrikis-
, ráðuneytisins jafnan lagt sig
Ifram um að sannfæra þjóðina
um að á Vellinum væri allt i
fyrirmyndarlagi enda þótt oftar
, en ekki komi á daginn að flest er
!i kaldakoli.
Svarthöfði i Visi birtir ádrepu
um einn þátt þessara mála i
, gær. Þjóðviljinn vakti athygli á
Iþvi sl. fimmtudag að enn á ný
heföu Bandarikjamenn á Vellin-
um verið staðnir aö þvi að veita
p oliusora út á Miðnesheiðina og
Iógna þar með vatnsbólum ná-
grannabyggða. Og þetta gerist
þrátt fyrir alla svardaga um aö
, mengunarvarnir séu í góðu lagi.
sanns vegar færa að hún sé ó-
vænt i þeirra augum, enda hafa
þeir hvorki nennt eða taliö það i
sinum verkahring að spyrjast
fyrir um eða kanna hvert af-
gangsolian á veiiinum rynni.
Þeir hafa sem sagt álitið aö það
væri fyrst og fremst I þeirra
verkahring að standa i stælum
við kommúnista um mengun á
meöan oiian rann. En það er
einmitt á svona starfsliði, sem
öll mál tapast á endanum — ein-
hverjum h ugsun ar la usum
pótentátum sem hugsa fyrst og
siðast um framkomu sina i fjöl-
miðlum, en minna um þau verk
sem þeim ber að vinna og allra
minnst um sannieikann i svona
máli.”
Varnarmálanefnd
fái hvíld
,,Þaö er nánast óþoiandi aö
upp skuii komast um sérlega
oliudreifingu á Keflavikurflug-
veiii eftir alla svardagana um
mengunarleysi staöarins. I ein-
hverjum öðrum löndum hefðu
menn verið látnir fjúka af
minna tiiefni. Það er ekki þar
sinn, en setja i þess stað til þess j
hæfa menn að kanna sorpdreif- J
ingu staðarins og frárennsli ■
þannig að tekin verði af öii tvi- I
mæli um mengun i framtíðinni. I
Það er Oddbergur Eiriksson ,
bæjarstjórnarmaður i Njarövlk, ■
sem uppiýsir þetta oliumái i I
Þjóðviijanum I gær og Páil As- |
geir Tryggvason staðfestir aö ■
olian renni nánast niður í jörð- i
ina þarna suðurfrá. Hann lýsir I
þvi jafnframt yfir að málið hafi |
þegar verið tekið fyrir I varnar- ■
málanefnd, eftir að við oliu- I
mengunina varð vart fyrir til- I
viijun. Aftur á móti fylgir ekki |
sögunni hvað var tekið fyrir I ■
varnarmálanefnd hér á árunum I
þegar mengunarmál á Miðnes- I
heiði voru mjög tii umræöu. |
Kannski þá hafi aðeins verið
hugsað um rökræöuna.”
Aðalverk og
hjáverk
Þaö er sannarlega ánægjulegt
aö geta einu sinni verið sam-
mála Svarthöfða. Auðvitað er
það frumskylda varnarmála-
nefndar aö gæta hagsmuna
Suðurnesjabúa og landsmanna
■
■
Mynd þessi er tekin fyrir nokkrum árum þegar veriö var að kynna glæstar mengunarvarnir á vegum
setuliðsins á Keflavlkurflugvelii. Meöal annars þessa oliuþró. Þessi kynning var andsvar við mikilli
gagnrýni og ótta Ibúa nágrannabyggðarlaga við að vatnsból kynnu að mengast.
. Hafa áhuga
| á ööru
ISvarthöfði bendir á aö engu
likara sé en að islensk varnar-
málayfirvöld haldi aö það séu
einungis rauðliöar og fjand-
Imenn vestrænnar samvinnu
sem teygi blávatn i nánd við
öskuhauga og oliusora banda-
riska setuliðsins.
ISiðan segir Svarthöfði:
„Þrátt fyrir langa og mikla
svardaga islenskra yfirvalda
þess efnis, að vatnsbólin væru
Iekki I hættu, er nú komið á dag-
inn að olia hefur veriö iátin
streyma út I heiðina i ómæidu
magni um alveg óvissan tima.
! Fulltrúar rikisins likja þessu við
E óvænta uppákomu, og má til
með sagt að oiiumengunin á
Keflavikurvelli og nágrenni
hans eigi eftir að skaða vatns-
bólin. En vegna fyrri yfir-
lýsinga út af mengunarleysi
staðarins er kominn timi til að
gera einhverja ábyrga fyrir
meiningarlausu slúðri um svona
mál, sem kemur I stað athugana
á staðnum og lagfæringa. Oliu-
rennslið hefði verið hægt að
taka föstum tökum fyrir löngu
hefði einhver nennt að spyrjast
fyrir um hvert olian rynni. Og
þótt seint sé skal utanrikisráðu-
neytinu bent áþaö, að frekari
mengunaruppákomur á Kefia-
vlkurvelli verða þvl efiðar I
framtiðinni. Þess vegna ætti
ráöuneytið að hvila varnar-
málanefnd á gæslustörfum um
allra gagnvart setuliðinu og
koma i veg fyrir að þaö brjóti |
þær reglur sem þvi hafa verið |
settar. Þaö er svo herstöðva- I
andstæðingum ,,að meinalausu |
þótt opinberir embættismenn ■
reyni að sannfæra fólk um I
vammleysi setuliðsins á öllum I
sviðum og þörfina fyrir þrásetu |
þess hér meðan þeir ástunda ■
þann áróður sem hjáverk en I
ekki sem höfuöverkefni. Og gott I
væri ef Gröndal tæki fram fyrir |
hendurnar á varnarmálanefnd ■
og upprætti ekki eingöngu sor- I
ann I viöskiptaháttum |
íslendinga eins og Alþýðuflokk- |
urinn hefur einsett sér, heldur ■
einnig sorann i samskiptunum J
við setuliðið.