Þjóðviljinn - 14.10.1978, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 14.10.1978, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. október 1978 Laugardagur 14. október 1978 WÓÐVILJINN — SlbÁ ll Þegar ég kem innan um gamal- legar byggingar sem bera I fasi sinu framandlegan viröuleik fyrri alda gripur mig stundum einhver undarleg og seiöandi tílfinning fyrir löngu horfnum blæbrigöum mannlifsins. Þegar maöur litur upp halla sér skyndilega góölát- Iegir stafnar yfir mann og fornir sexrúöugluggar bjóöa mann vel- kominn tíl 19. aldar en mikilúö- legar tvöfaldar útidyrnar eru kyrfilega læstar og meina inn- göngu. Ef mörgsvona hús standa þröngt og umlykjandi I upphaf- legu umhverfi sinu getur vald þeirra oröiö svo yfirþyrmandi aö gnýr bilanna hverfur fyrir marri i handvögnum. hundsgá og hófa- tökum. Svona magnaöáf) seiö hef ég fundiö i gömlu London, Kaup- mannahöfn, Þórshöfn i Fær- eyjum, Akureyri og Isafiröi og um daginn var ég á góöviöris- gangi i miöri viku i Þingholts- stræti i Reykjavik og fór þá aö gjóa augum og hægja á göngu minni og jafnvel nema staðar og hlaupa leiftursnöggt inn i einka- garöa. Töfrarnir höföu gripiö mig. t þessari götu milli Banka- strætis og Bókhlöðustigs standa nokkrir öldungar i húsaröö sem lita út eins og þeir heföu gleymt sér fyrir áttatiu árum og væru fyrst aö ranka við sér núna. Þingholtsstræti er eitt af helstu öngstrætum i miöborg Reykja- vikur. Gatan er kennd viö bæinn Þingholt sem stóö þar sem nú er húsiö nr. 3. Bærinn var nefndur eftir þinghúsi hreppsins nokkru neöar (þar sem nú er Skóla- stræti). Visir aö götunni fór aö myndast litlu fyrir 1860 og liklega hefur verið fullbyggt viö hana skömmu eftiraldamót. Þaö er þvi engin furöa þó aö þröngt sé um ameriskar drossíur á Þingholts- stræti á þvi herrans ári 1978 Flest gömlu húsin standa enn viö Þingholtsstræti en i misjöfnu ástandi þó. Sumum hefur veriö breytt svo aö þau eru vart þekkj- anleg frá fyrri tiö. Eftir aö hafa reikað dágóöa stund i þessu skemmtilega stræti, sem ég vissi nánast ekkert um, dróst hugur minn á Þjóöskjala- safn þar sem hægt er aö fletta manntölumfráýmsum tima.Mér til einskærrar ánægju fletti ég manntalinu frá 1901 og athugaöi hverjir bjuggu þá i fáeinum hús- um sem vöktu athygli min um- fram önnur. Þetta eru húsin nr. 1,7,12,13,14 og 16. A eftir hringdi ég i Fasteignamat rfkisins og fékk uppgefiö hvenær þau voru reist. Ekki gæfu sagnfræöingar mikiö fyrir svona dagstundar- rannsókn, enda ekki ætlast til þess, en þó gæti svona klór oröiö i áttina til einnar biaöagreinar, hugsaöi ég meö mér. Þingholtsstræti 1 er nú klætt svörtum pappa og blikki og þar er verslun á neðri hæð. Þegar litiöer upp á efri hæöina blasa við fjórir fagurgjörvir gluggar meö út- Myndir: eik Texti: GFr 1 húsinu nr. 14 bjó amtmannsekkja Caroline Jónassen, fædd Siemsen, og haföi eina vinnukonu. Þá eru allir Ibúarnir upp taldir. Hér bjó sjálfur yfirragarinn og haföi konungsbréf upp á þaö. Þingholtsstræti 13. Fjær sést nr. 11 þar sem Hannes Hafstein, þá landritari, bjó á fyrstu búskaparárum sinum. skuröi og undir þakbrún er lika útskurður. Þetta hús mun hafa veriö reist aldamótaáriö og bjuggu þá í þvi 2 fjölskyldur, samtals 11 manns. Þar bjó Jón Þóröarson kaupmaöur og þil- skipaútgeröarmaöur ásamt fjöl- skyldusinni og hjúum. Hann var fyrsti kaupmaöurinn í Reykjavík sem reisti sláturhús, pylsugerö og niöursuöuverksmiöju. 1 húsinu bjó einnig Jón Lúðvlgsson verslunarþjónn, sem var 22 ára 190U ásamt karli föður si'num, Lúövigi Jónssyni daglauna- manni, móöur og bróöur. Þar leigöi einnig Guörún Jónsdóttir saumadama eins og þaö var orö- aö i manntalinu. Þingholtsstræti 7 er veglegt og vel við haldiö tvilyft timburhús á kjallara sem reist var áriö 1880. Þorvaldur póliti mun hafa búiö I húsinu fyrir aldamót en viö manntaliö 1. desember 1901 eru þar 17 manns. Þar skal fyrsta fræga telja, nefnilega Jakoblnu Jónsdóttur Thomsen húsmóður, 65 ára ,styrkta af rikissjóöi og landsjóöi. Hér er engin önnur en ekkja Grims Thomsens, dóttir Jóris I Reykjahliö I Mývatnssveit. Hún hefur haft hjá sér i húsinu sveit ungra manna og kvenna. Þar eru bræöurnir Benedikt barnakainari og Baldur stud.art. Sveinssynir frá Húsavík. Benedikt faðir Bjarna forsætis- ráöherra, var þá 23 ára en Baldur, siöar ritstjóri, aöeins 18 ára gamall. Þarna var lika Guö- Hús kaupmannsins, þilskipaútgeröarmannsins og slátrarans Jóns Þóröarsonar i Þingholtsstræti 1. rr»## c t 1 oirarmr höfðu gripið Hús Helga tónskálds er oröiö heldur hrumt en viröuleikinn leynir sér ekki. Þingholtsstræti 12. Reikað milli 6 gamallegra húsa 1 Þingholtsstræti vinnukonu og eru þá allir ibúarnir taldir upp og er fátitt aö hús telji svo fáa ibúa á þeim tima. Þetta er amtmannsekkjan Caroline Jón- assen eins og stendur I mann- talinu. Hún er 51 árs og búin aö vera ekkja eftir manninn sinn sálaöa Eggert amtmann i 10 ár. Aöur haföi búiö i húsinu Jón Jens- son assesor, bróöursonur Jóns Sigurössonar forseta, og seinna bjó I þvi Bjarni Sæmundsson fiskifræöingur. Þetta er þvi al- deilis viröuiegt hús og ekki má gleyma aö amtmannsekkjan Jónassen var fædd Siemsem. Siöasta húsiö sem hér er tekiö til umræöu er Þingholtsstræti 16 Þar bjó enginn annar en Bjarni Jónssonfrá Vogi, þá 38 árakenn- ari viö Læröa skólann en þekkt- astur fyrir eldheita stjórnmála- baráttu þó aö nú til dags þekki sumir hann ekki aö öðru góöu en forláta vindlum sem heitnir eru eftir honum. 1 fjölskyidu Bjarna er kona hans, 13 árum yngri, tvö litil börn, faðir hans, uppgjafa- presturinn Jón Bjarnason, nær áttræöur aö aldri, bróöurdóttir húsbónda og ein vinnukona.I hús- inu býr lika vinnulaus ekkja á- samt tveimur gjafvaxta dætrum og Jóhannes Sveinsson leigjandi, 63 ára daglaunamaöur. Mörg fleiri merkileg og gömul hús eru viö Þingholtsstræti, sem ekki mætti siöur rita um, svo sem Gutenberg og húsiö nr. 7 þar sem Hannes Þóröur Hafstein, þá land- ritari, bjó i 2 ár ásamt kornungri konu sinni. Þaö verður aö biöa betri tiöar meö blóm i.haga. -GFr. rún Sigriöur Jóhannsdóttir náms- mær frá Borg á Mýrum og Solveig Pétursdóttir námsmær frá Gautlöndum. Siöast en ekki sist dvelur hjá Jakobinu Andrés Björnsson stud.art., slöar leikari og skáld. Hann er sagöur aökom- andi frá húsi Sigvalda snikkara viö Túngötu. 1 Þingholtsstræti 7 eru lika fjölskyldur Sighvats Arnasonar, sem lifir á eignum sínum, og Þóröar Magnússonar daglaunamanns. Meöal annarra leigjenda eru menntaskólapilt- arnir Vernharöur Þorsteinsson og Þóröur Oddgeirsson og Oddur Steingrimur Ivarsson skósmiöa- meistari. t Þingholtsstræti 12 býr Helgi Helgason kaupmaöur, þilskipaút- geröarmaöur, söngstjóri og tón- skáld ásamt fjölskyldu sinni. Helgi var einn merkasti tónlistar- frömuður okkar fyrr. Hann stjórnaöi lúörasveitum og allir ís- lendingar hafa sungiö lag hans viö öxar viö ána. Hús hans ber það meö sér aö hann hefur veriö velmegandi maöur en nú er þaö dálitiö fariö aö láta á sjá. Þegar manntaliö er tekiö er húsbóndinn fjarverandi I Þerney úti á Sund- unum. Hvað skyldi hann hafa verið aö gera þar? En Helgi er ekki eini listamaöurinn I húsinu. Þar býr lika Gunnþórunn Hall- dórsdóttir, ein af bestuleikkonum okkar á fyrri árum og ein af stofnendum Leikfélags Reykja- vikur. Hún er 28 ára, þegar manntaliö er tekiö, og býr i hús- inu ásamt móöur sinni Helgu Jónsdóttur,57 ára. Helga er ekkja eftir Halldór Jónatansson söðla- smiö og rekur matsölu og tekur aö sér þvotta. Alls búa 8 manns i húsinu. Þingholtsstræti 13 var heimili hins viröulega og vel metna yfir- fiskimatsmanns I Reykjavík eöa ragara eins og þaö starf var þá kallað. Hann hét Þorsteinn Guð- mundsson og fékk þau eftirmæli aö hann heföi verið orölagöur aö skyldurækt. Hann er 54 ára 1901 og býr I húsinu ásamt konu, þremur börnum og þremur hjúum. Einnig býr þar systir hús- freyju, saumakonan Jórunn Ragnheiöur Guömundsdóttir. í Þingholtsstræti 14 bjó ákafiega fin frú ásamt einni Þingholtsstræti 13. Dálitiö danskur svipur. Bárujárnsþakiö var sett beint ofan á annaft Ur timbrl. Upphaflega voru bæfti sumar- og vetrargluggar á húsinu. Ekki eru bakdyrnar sfftur virftulegar hjá alþingismanninum og kennara Lærfta skólans. Þingholtsstræti 16. Heldri manns dyr og gluggi. Þingholtsstræti 12. Innan þessara virftulegu veggja bjó ekkjufrúin, Jakobina Thomsen, og haffti um sig hirft ungmenna, svo sem Benedikt og Baldur Sveinssyni verts frá Hósavik, leikarann og skáldift Andrés Björnsson, og ungpiurnar Guftrúnu Sigriði frá Borg á Mýrum og Solveigu frá Gautlöndum i Mývatnssveit. Þingholtsstræti 7. Hús Bjarna frá Vogi I Þingholtsstrætl 16. Margt gætl hósift sagt ef þaft mætti tala. .....•••*•• •• Kankvisir sexróftugluggar bjófta mann velkominn til 19. aldar en mikilóftlegar tvöfaldar ótidyrahurftirnar eru kyrfilega læstar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.