Þjóðviljinn - 14.10.1978, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. oktdber 1978
Mikib var rætt um samgöngumál á kjördæmisþingi Alþýöubandalagsins á Vestfjöröum. Myndin er tekin af Hálfdáni og sér yfir Bfldudai I Suöur-
fjöröum I Arnarfiröi.
Kjördæmísþing Vestfjaröa
Kjördæmisþing Alþýðu-
bandalagsins á Vestfjörð-
um var haldið um helgina
16-17 sept. sl.. Mættu þar
fulltrúar allra flokksfé-
laga nema af Ströndum og
úr Súgandafirði. Sérstakur
gestur fundarins var
Kjartan ólafsson, nýkjör-
inn þingmaður kjördæmis-
ins.
Fyrri dag fundarins voru mikl-
ar umræöur um stjórnmálaviö-
horfin almennt, stjórnarmyndun
og stööu Alþýðubandalagsins inn-
an hennar svo og afmörkuð mál
Vestfiröinga innan kjördæmisins.
Flestir þeir er létu skoöanir sínar
i ljós. voru meðmæltir þátttöku
Alþýðubandalagsins i stjórn og
töldu það geta unniö betur að
stefnumálum sinum i stjórn held-
ur en utan hennar. bó fannst
ýmsum að of litið af sérstökum
markmiðum flokksins hefði náðst
fram i stjórnarsáttmála, enda
væri hann á mjög afmörkuðu
sviði. bvi bæri að leggja mjög
rika áherslu á að vinna af fullum
krafti að þeim málum áfram, s.s.
utanrikismálunum, enda þótt
samstaða heföi ekki náðst innan
stjórnarflokkanna.
bingfulltrúar létu i ljós ánægju
yfir þeim árangri sem stjórnar-
samstarfið hefði skilaö, þótt að
stutt væri um liðið, og væntu mik-
iis af framhaldinu.
Sú gagnrýni kom fram á bjóð-
viljann að hann sinnti fréttaflutn-
ingi af landsbyggðinni ekki nægi-
lega vel, sérstaklega var minnst á
alþingiskosningarnar og barátt-
una á undan þeim i þessu sam-
bandi, þá hefði samband bjóðvilj-
ans við það sem var að ske úti á
landi mátt vera meira.
Mikið var rætt um samgöngu-
mál, bæði innan Vestfjaröa svo og
tengingu Vestfjarða við aðra
landshluta. Lýstu fundarmenn
áhyggjum sinum yfir þeirri
stöðvun á rekstri flóabátsins
Baldurs sem virðist óhjákvæmi-
leg innan skamms tima.
Einnig var rætt um vegalagn-
ingu úr Djúpi suður yfir heiðar og
virðast ráðamenn ekki geta kom-
ið sér saman um staðsetningu
vegarins, er þar deilt um borska-
fjarðarheiði og Kollafjarðarheiði.
Lýsti einn heimamaður þvi að
þótt tækist aö byggja vegi á
borskafjarðarheiði upp úr snjó,
þá tækist seint að byggja þá upp
úr bylnum, en þar gerast veöur
afar hörð. Inn i þessi mál koma
einnig samgöngumál Gufudals-
sveitar, en þar eru vetrarsam-
göngur mjög erfiðar, og mundi
það bæta búskaparskilyrði i
sveitinni verulega ef samgöngur
yrðu betri, bæði innan sveitar og
austur á við. bess má geta að
fjárjarðir eru mjög góðar i Gufu-
dalssveit og afurðir miklar.
Fram kom að Vestfirðingur,
blað Alþýðubandalagsins innan
kjördæmisins stendur mjög vel
fjárhagslega. Nýlega var keypt
til blaðsins setningarvél sem hef-
ur verið þvi mikil lyftistöng.
Akveðið var að bæta enn tækja-
kost þess til að létta vinnu við það
og gera það vandaðra. Um útgáfu
þess sér Alþýðubandalagsfélag
Isafjarðar með miklum sóma, en
frekar treglega gengur að virkja
hin félögin i fréttaöflun, og var
rætt um hvernig mætti ráða þar
bót á.
Ekki var fastákveðið hvert far-
ið yrði i sumarferð 1979, en uppá-
stungur komu um útileguferð til
Hornstranda, eða rólega yfirferð
um Arnarfjörö og Dýrafjörð.
Seinni dag fundarins störfuðu
nefndir fyrir hádegi, en siðan
voru nefndaálit lögð fyrir fund-
inn. Um þau urðu miklar og gagn-
legar umræður.
Að endingu var kosin stjórn
kjördæmisráös. Formaður var
endurkosinn Unnar bór Böðvars-
son Krossholti Barðaströnd.aðrir
i stjórn: Bolli Ólafsson,
Patreksfirði, Gunnlaugur A.
Júliusson, Rauðasandi, Guð-
mundur Friðgeir Magnússon,
bingeyri og borkell Jóhannsson,
Strandasýslu.
Gunnlaugur A. Júliusson
ritari
Anna
Moffo
væntan-
leg til
íslands
Anna Moffo, sópran-
söngkonan heimsfræga, er
væntanleg til íslands í
þessum mánuði. Hún mun
halda tvenna tónleika í
Háskólabíói, fimmtudag-
inn 26. okt. kl. 20.30 og
sunnudaginn 29. okt. kl.
14.30. Miðasala verður á
skrifstofu Happdrættis H(.
Tjarnargötu 4, og hefst
mánudaginn 16. okt.
bað er Fulbright-nefndin á
lslandi, sem gengst fyrir komu
önnu Moffo hingað, i samvinnu
við Háskóla Islands, en tilefnið er
tuttuga ára afmæli Fulbright-
stofnunarinnar. Söngkonan
kemur hingað ásamt undirleikara
sinum, Martin Smith.
Anna Moffo er fædd i Bandarik-
junum, en foreldrar hennar voru
italskir. Snemma á listamanns-
ferli sinum hlaut hún . Fulbriht-
styrk til söngnáms á Italiu. Hún
hefur sungið i óperum við
Metropolitan i New York og La
Scala i Milanó, i San Francisco,
Chicago, Vin. Búdapest, Stokk-
hólmi, Berlin og Mönchen. Sem
konsertsöngvari hefur hún komið
fram um öll Bandarikin og
Evrópu. Hún hafði fastan
sjónvarpsþátt i italska sjónvarp-
inu og hefur oft komið fram i
sjónvarpi vestan hafs. Einnig
hefur hún sungið inn á margar
hljómplötur og leikið i tólf
kvikmyndum. óperurnar La
Travita og Lucia di
Lemmermoor, sem hún söng i
kvikmyndaðar voru i Evrópu,
hafa báðar verið sýndar i islenska
sjónvarpinu. Fyrir söng sinn
hefur Anna Moffo hlotið
margháttaða viðurkenningu,
þ.á.m. æðstu heiðursorðu italska
lýöveldisins.
Nýr
mynd-
listar-
klúbbur
Til stendur að stofna i næstu
viku myndlistarklúbb, áþekkan
þeim, sem starfað hefur á
Seltjarnarnesi undanfarin ár.
Mun klúbburinn, > ef til kemur,
hafa aðsetur I Hvassaleitis-
skólanum.
Klúbburinn veröur opinn fyrir
fólk á öllum aldri og þar verður
veitt tilsögn i málverka- og
myndgerð.
beir sem áhuga hafa á þátttöku
i klúbbnum hringi i sima 8-50-14,
eftir kl. 18.30, næstu kvöld. bar
verða veittar allar nánari
upplýsingar.
Kjördæmisþing Alþýöubandaiagsins á Vestfjöröum
Almenn stjórnmálaályktun
Kjördæmisráðstefna
Alþýðubandalagsins á
Vestfjörðum fagnar
þeim góða árangri sem
Alþýðubandalagið náði
i sveitarstjórnarkosn-
ingum og alþingiskosn-
ingum fyrr á þessu
sumri.
í þessum kosningum
náði Alþýðubandalagið
þvi marki að verða
næst stærsti flokkur
þjóðarinnar og að
hnekkja pólitisku for-
ræði rikisstjórnar
hægri aflanna, sem hér
fóru með völd allt sið-
asta kjörtimabil.
Kjördæmisráöstefnan lýsir
fullum stuðningi við þær ráð-
stafanir I efnahags- og kjara-
málum, sem nýmynduð rikis-
stjórn hefur gengist fyrir og þá
alveg sérstaklega við ráðstaf-
anir til niðurfærslu verölags, i
þvi skyni að tryggja kaupmátt
launa.
Ljóst er aö núverandi rlkis-
stjórner fyrst og fremst mynd-
uötil að tryggjakaupmátt launa
og til að foröa framleiðsluat-
vinnuvegunum frá stöðvun. Hitt
er ástæða til aö harma, að ekki
tókst að knýja samstarfsflokka
Alþýðubandalagsins til sam-
komulags um meiriháttar
kerfisbreytingar i islensku þjóð-
félagi, né heldur til að fallast á
brottför bandarfska hernáms-
liðsins frá Islandi.
Við endurskoðun samstarfs-
yfirlýsingar rikisstjórnarinnar
á næsta ári leggur Kjördæmis-
ráðstefna Alþýöubandalagsins á
Vestfjörðum rika áherslu á, að
jafnframt þvi sem aögeröir
verði miðaðar við aö draga úr
verðbólgu og að halda kaup-
mætti launa, þá verði stefnt að
eftirfarandi atriðum:
1. Að Alþýöubandalagiö
leggji mjög þunga áherslu á
kröfuna um brottför hersins.
2. Að löggjöf verði sett um at-
vinnulýðræði, þannig að starfs-
fólk rikisstofnana ogverkafólk i
stærri fyrirtækjum fái mjög
veruleg itök i stjórnum þeirra
og geti þannig m.a. haft áhrif á
vinnuskipulag og rekstur.
3. Aö sett verði lög um há-
markslaun, þannig að hæstu
laun fyrir 40 stunda vinnuviku
verði aldrei hærri en sem svar-
ar tvöföldum launum verka-
manns. Ennfremur verði allt á-
kvæðisvinnufyrirkomulag
endurskoðað.
4. Lögverðisettumtakmörk-
un yfirvinnu verkafólks, til þess
að koma i veg fyrir óeðlilega
mikla yfirvinnu, einkum i fisk-
iðnaði, og stefnt veröi að þvi að
fjölga vinnandi fóiki i fram-
leiðsiuatvinnuvegunum.
5. Að stóreignir og eignir um-
fram eölilegar lifsþarfir veröi
sérstaklega skattlagðar, m.a. i
þvi skyni aö koma i veg fyrir ó-
eðlilega fjárfestingu. Unnið
verði gegn fjármagnsstreymi
utan af landi til Stór-Reykjavik-
ursvæðisins.
6. Að róttækar endurbætur
verði geröar varðandi vöruinn-
flutning I landið og heildsölu-
fyrirkomulagið iagt niður I nú-
verandi mynd.
7. Aö sérstök rannsókn fari
fram á starfeemi Isl. sölufyrir-
tækja, fiskútflytjenda i Banda-
rikjunum og rekstri skipafél-
aga.
8. Aö tryggingafélögum verði
fækkað verulega og þeim komið
i hendur ríkisins og samvinnu-
félaga fyrst og fremst.
9. Aö öllu fyrirkomulagi fast-
eignasölu i landinu verði breytt
og þvi komið i hendur rfkis og
bæjarfélaga.
10. Að lögð veröi rik áhersla á
aðrétta hlut lifeyrisþega i land-
inu. Oryrkjum verði tryggt
jafnrétti til atvinnu og á öðrum
sviðum.
Kjördæmisráðstefna Alþýöu-
bandalagsins á Vestf jörðum vill
vara sérstaklega við niður-
skurði opinberra framkvæmda
og þjónustu, enda kemur hann
harðast niður á dreifbýlinu, þar
sem þjónusta hins opinbera er
viða öll i lágmarki og fram-
kvæmdir , s.s. i húsnæðismál-
um, samgöngumálum og
menntamálum ákaflega bág-
bornar. Slikur niðurskurður
myndi draga úr eölilegri sam-
neyslu og gera búsetu viða um
land erfiðari en nú er.
Kjördæmisráðstefna Alþýðu-
bandalagsins á Vestfjörðum vill
leggja sérstaka áherslu á aö al-
þýðubandalagsmenn haldi á-
fram baráttu sinni af öllu afli
fyrir þeim málum sem nú liggja
utan samstarfsyfirlýsingar
rikisstjórnarinnar og miða i átt
til sósialisks þjóðskipulags.
—mhg