Þjóðviljinn - 12.11.1978, Side 7

Þjóðviljinn - 12.11.1978, Side 7
Sunnudagur 12. nóvember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Spuni og óundirbúin leikræn tjáning... Hingað til landsins er væntanleg hljómsveitin The Feminist Improvising Group f boði Gallerí Suður- götu 7 og Tónlistarfélags Menntaskólans við Hamrahlíð. Hún mun halda tvenna tónleika/ laugardaginn 18.nóvember kl. 16 í Menntaskólanum við Hamrahlíð og sunnu- daginn 19. nóvember kl. 16 i Félagsstofnun stúdenta. Hljómsveitina skipa eingöngu kvenmenn.enda var hún stofnuö sem andsvar við karlveldi þvi sem rikir innan tónlistarheims- ins. Þær hföðu haft fá tækifæri til að koma fram á sviði improviser- aörar tónlistar áður en þær stofn- uðu þessa hljómsveit. Allir eru meðlimir hljóm- sveitarinnar yfirlýstir feministar án þess þó að hafa eina sameigin- lega pólitiska stefnuskrá. Þær lita m.a. á framlag hljómsveitar- innar sem tillegg til sköpunar „feminiskrar menningar”. Ný- stárleg og djörf tónlist þeirra stingur nokkuð i stúf við hefð- bundna baráttutónlist hinnar rót- tæku jafnréttishreyfingar, þar sem framsæknin birtist oft ein- göngu I textunum, en ihaldssemi hins vegar rikjandi varðandi tón- listarformið. Til þess að koma pólitiskum boðskap sinum á framfæri beitir hljómsveitin stundum óundirbúinni leiktækni tjáningu jafnhliöa tónlistar- flutningnum. Hljómsveitin var stofnuö i októ- bermánuöi á siðasta ári og kom fyrst fram á róttækri tónlistarhá- tið i London, sem bar yfirskriftina „Musiq for So’cialism”. Siöan þá hafa þær haldið fjölda tónleika i Bretlandi og viðar I Evrópu svo sem I Hollandi, Sviþjóö, Dan- mörku og Frakklandi og hafa alls staðar hlotið góðar viðtökur. I Paris léku þær um miðjan sept- ember sl. og birtum viö hér hluta úr umsögn úr dagblaðinu Le Monde: ,,... og þá kom fram ein eftir- tektarverðasta hljómsveitin sem um getur I dag. Saxófónkvartett- ar, blöndun alls kyns hljóöa, bygljutilbrigði i hverjum hljóð- heimi, söngur Maggie er ekki bara tæknilega fullkominn heldur býr yfir meiru, frumlegur og brennandi leikur Lindsay Cooper eða ljómandi tilbrigöi Irene Schweizer — hvert óvænt atriði rak annað á tónleikunum, sem voru hátiö tónlistar leikinnar af fingrum fram. Atta stórkost- legar tónlistarkonur saman á sviði án þess að vera merktar þeim óljósa frumspekilega drunga, sem einkennir karlmenn I sömu stöðu. Slikir atburöir breyta okkur. Okkur kemur sú spurning i hug hvort einn af þeim þátum sem gefa „evrópskri spunatónlist” gildi, svo við ger- umst nú djörf, sé ekki einmitt framlag kvenna, sem þessi tónlist dregur fram I dagsljósið.” Hljómsveitina skipa alls 9 kon- ur, en hingaö til lands koma ein- ungis 4 þeirra. Þær eru: Georgie Born — selló og bassa- gitar. Hún lék meö rockhljóm- sveitinni Henry Cow á árunum 1976-78. Hún hefur lika unnið i leikhópum og leikiö með Company, hljómsveit enska git- arleikarans Derek Bailey (þess má geta að saxófónleikarinn Evan Parker sem hélt tónleika hér I vor er meðlimur I sömu hljómsveit). Lindsay Cooper— fagott, sópr- an saxófónn, óbó og flautur. Hún starfaði einnig með Henry Cow á árunum 1974-78 og hefur leikið inn á nokkkrar hljómplötur með þeirri hljómsveit. Þá hefur hún unniö meö leikhópum og með ýmsum „spunamönnum”, þ.á.m. Evan Parker og áöurnefndri hljómsveit, Company. Maggie Nichols — rödd. Hún hefur sungið með ýmsum hljóm- sveitum þ.á.m. Spontaneous Music Ensemble og 50 manna jasshljómsveit Keith Tippets, Centipede. Hún hefur nýlega gefið út plötu með söngkonunni Julie Tippett, sem flestir þekkja liklega undir nafninu Julie Driscoll. Hún hefur starfrækt „raddsmiöju” (workshop) I London slöustu 8 árin og hefur hug á að gera slikt og hið sama meðan hún dvelur hér. Irene Schweiser — pianó og á- sláttur. Hún er svissneskur jass-- pianisti og hefur haldið fjölda ein- leikstónleika i Evrópu. Hún hefur Lúðvik Jósepsson. Ragnar Arnalds. ölafur Ragnar Grimsson Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins Miðstjórn Alþýðubandalagsins hefur boöað til flokksráösfundar að Hótel Loftleiðum dagana 17. til 19. nóvember n.k. Miðstjórnin leggur áherslu á að öll flokksfélög sendi fulltrúa á ráöstefnuna til samráös um þau vandamál sem nú eru uppi i islenskum stjórnmálum. Föstudagur 17. nóvember 17.00 1. Fundarsetning og könnun kjörbréfa 2. Kosning fundarstjóra og starfsnefnda 3. Flokksstarfið og staða flokksins i þjóðfé- félaginu: ólafur R. Grimsson 20.30 4. Yfirlit um stjórnmálaviöhorfið: Lúðvik Jósepsson 5. Störf og stefna rikisstjórnarinnar: Ragnar Arnalds 6. Almennar umragður. Laugardagur 18. nóvember 10.00 1. Skýrsla verkalýðsmálaráðs 2. Skýrsla æskulýðsnefndar 3. Almennar umræður 14.00 4. Umræöur um flokksstarfið og fjárhags- áætlun næsta árs. 17.00 5. Kosning miðstjórnar 6. Alit stjórnmálanefndar og stjórnmála- ályktun flokksráðsfundarins. Sunnudagur 19. nóvember 14.00 Alit starfsnefnda, umræður og afgreiðsla mála. Ráðgert er að fundi ljúki eigi siöar en kl. 18.00. gefið út tvær einleiksplötur. Irene starfar nú i triói með saxófónleik- aranum Rudiger Carland og trommuleikaranum Louis Moholo. Jafnvel er von á einum meðlimi til viðbótar. Það er húnSally Pott- er, sem syngur undravel. Sem fyrr segir mun Maggie Nichols standa hér fyrir „radd- smiðju” (workshop). Þaö skiptir engu máli hvort þátttakendur hafa sungið fleiri eöa færri nótur á ævinni. Þær konur sem hafa áhuga á að taka þátt i þessu eru beðnar aö snúa sér til Kristinar ólafsdóttur, sima 22419. í hádeginu alla daga ”Shawarma„ ísraelskur grillréttur Borinn fram í brauóhleif, meó sinnepssósu og salati VerÓ kr 500/- VeriÓ velkomin LOFTLEIÐIR Veitingabúö Blaðberar óskast Seltjarnarnes: Skeljabraut, Selbraut, Sólbraut og Sæ- braut (sem fyrst) Þingholtsstræti (sem fyrst) Háteigsvegur (sem fyrst) Óðinsgata (sem fyrst) uonmnNN Síðumúla 6. sími 81333

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.