Þjóðviljinn - 12.11.1978, Side 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. nóvember 1978
BLAÐAÐ
í NOKKRUM
TÍMARITUM
Opna úr Sjávarfréttum. Ritstjórnin og auglýsinga-
deildin fallast i faðma (og skammast sín ekkert
fyrir það).
Auglýsing á annarri hverri
síðu og víxlastríðið mikla
Það er alveg stórfurðu-
legt, hvilik býsn koma hér
út af blöðum og allra-
handa tímaritum. Er
bókaþjóðin alfarið lögst í
blaðalesfcur? Maður gæti
haldið það, miðað við þau
ósköp sem út eru gef in af
blöðum og tímaritum
handa fámennri þjóð að
lesa.
Ég tók um daginn heim meö
mér fáein þeirra aöskiljanlegu
timarita, sem skolast inn um
gættir þessa blaös, til aö fletta
um kvöldiö milli svefns og vöku.
Lesmál þetta reytti ég saman
af nokkru handahófi. Þegar ég
dró þaö svo úr pússi minu, komu
i ljós: Sjávarfréttir, Frjáls
verslun, Samúel, Æskan (bóka-
skrá 1978), Heima er best og
Listræninginn.
Þaö er satt aö segja auimo
skrýtiö aö fletta svona ólikum
blööum i belg og biöu.
Sjávarfréttir
Sjávarfréttir (9. tbl.) eru stút-
fullir af auglýsingum einsog
önnur blöö sem þeir Frjálsir
framtaksmenn gefa út. Ritstjóri
er Steinar J. Lúövlksson, sem
skrifaö hefur þá rollu i mörgum
bindum sem heitir Sjóslysasaga
tslands og er liklega ekki bein-
linis skemmtilesning. Hann var
áöur iþróttaskribent á Mogg-
anum.
I blaöinu eru fróöleg viötöl viö
nokkra fiskifræöinga, en merki-
legast þótti mér þó aö rekast
þarna á langa og ýtarlega grein
eftir Gisla Pálsson mann-
fræöing um sjómennsku og
sjávarbyggöir. Gisli hefur
sérhæft sig á þessu sviöi hinnar
félagslegu mannfræöi og hefur
stjórnaö námskeiöi um sjávar-
byggöir i Félagsvisindadeild
Háskóians.
Saga af sjónum
1 grein sinni segir Gisli litla
dæmisögu úr bók, sem kom út
1972 á vegum Memorial-háskól-
ans á Nýfundnalandi og hefur aö
geyma mannfræöilegar rit-
geröir um fiskveiöar á Noröur-
Atlantshafi. Þar segir frá skip-
stjóra, sem sagöi i talstööina:
,,Hér er ekkert aö fá, gerum
ekkert annaö en aö rlfa veiöar-
færin og fáum ekkert annaö en
rusl. Ég veit ekki hvar þetta
endar, en vona þaö besta.
Skipti.” Samt sem áöur landaöi
togarinn mjög góöum afla i
þetta sinn, meiri afla en i nokkr-
um öðrum túr þá vertiö.
Andersen sá, sem um þetta
skrifar, heldur þvi fram aö
feluleikur af þessu tagi sem
einkennir allar merkja-
sendingar á bátabylgjunni þjóni
þeim tilgangi aö styrkja stööu
skipstjórans I samkeppninni á
hafinu. Skipstjóranum er
umhugaö um aö halda viröingu
sinni og þaö reynir hann aö gera
m.a. meö þvi aö villa um fyrir
öörum skipstjórum og koma i
veg fyrir aö þeir fái vitneskju
um hvaö hann veiöir og hve
mikinn afla hann hefur fengiö.
— Þetta gerist ekki hér, eöa
hvaö...?
Sterk auglýs-
ingablanda
Sjávarfréttir eru prentaöar á
glanspappir og nákvæmlega
önnur hver siöa er auglýsing.
Blaðið ætti þvi aö bera sig og vel
þaö. En eftir þvi sem lengra er
flett, veröa skilin ógleggri milli
efnis og auglýsinga. Tekur þá
viö kynning á breskum fyrir-
tækjum, sem framleiöa ýmis-
legar vörur fyrir sjávarútveg.
Auglýsingar frá þessum sömu
fyrirtækjum eru svo innan um
og samanviö efniö og er þetta
blaöamennska á heldur lágu
plani. En þeir hinir Frjálsu
framtaksmenn kalia vist ekki
allt ömmu sina i þeim efnum.
Enginn friður
fyrir kommum
1 Frjálsri verslun (9. tbl.) má
sjá myndir af af Daviö Ölafs-
syni seölabankastjóra i göngu-
ferö og nafna hans Scheving
Thorsteinssyni i badminton. En
bévitis kommarnir eru jafnvel
þarna á fleti fyrir, i þessu höfuö-
vigi hins heilaga einkafram-
taks. Þarna má sjá viðtal víö
þann skelfilega mann Svavar
Gestsson viðskiptaráöherra, og
sagt er frá áætlun, sem
Kinverjar hafa gert til ársins
1985, „þar sem lögö er áhersla á
iönvæöingu, vélvæöingu I land-
búnaöi og aukna utanrikis-
verslun.” Og Frjáls verslun
segir frá þvi meö nokkrum
feginleik, aö Teng Hsiao-Ping
hafi hvatt til þess á visindaráö-
stefnu I vor, aö „visindastarf-
semi i Kina yröi leyst úr viöjum
pólitiskrar hugmyndafræöi”...
Svo er þarna grinfull auglýsing
frá Þjóöviljanum, sem einhver
hagoröur maöur hefur samiö af
mikilli natni. Textinn er
einskonar limra:
t blaöinu er besti efniviður
og boöskap þess aö lesa er
góöur siöur,
þvi mundu aö þú ert þinnar
gæfu smiður.
Þjóðviljaskáld
Þaö er gott til þess aö vita, aö
svo efnilegt skáld skuli vera hér
á meöal vor. Gaman væri aö fá
meira aö sjá og heyra úr pússi
kvæöamannsins.
Annars er aölögunarhæfni
Þjóbviljans hreint ótrúleg, þvi
máltækið „Hver er sinnar gæfu
smiður” er nefnilega I stuttu
máli hinn heimspekilegi
boöskapur og undirstaða óheftr-
ar einstaklingshyggju,
samkeppnishyggju og kapital-
isma i sinni frumstæöustu
mynd. Hver er sjálfum sér
næstur, ekki á ég aö gæta bróöur
mins. ónei.
Grátt gaman
Þetta hlýtur þvi aö vera allt i
grini gert hjá auglýsingaskáldi
Þjóöviljans, og er það grátt
gaman aö gera at I ábyrgöar-
fullum bisnissmönnum sem
geyma stressiö I svartri tösku.
Boðberar Hins Frjálsa
Framtaks eru þó hreint ekki á
þeim buxunum aö gefast upp i
baráttunni, þótt skuggalegur
kommúnisti sé sestur i stól
viðskiptaráðherra. Lokaorð
Frjálsrar verslunar eru svo-
hljóöandi, i drottins nafni:
„Hér á árum áöur voru
útgeröarmennirnir helstu fjár-
glæframenn i samfélaginu
samkvæmt kenningum vinstri-
sinna. Um nokkurt skeiö hafa
þaö veriö kaupmennirnir. Nú
sjást þess glögg merki aö
samgöngufyrirtækin veröi næst
tekin fyrir og úthrópuö. Bram-
boltinu i róttæklingaliöinu
veröur ekki endalaust tekiö meö
þögninni einni. Það þarf að
svara þvi fullum hálsi.”
Ekkert púður
í þessu
Samúel þessi er frá þvi 1
september. A forslðunni er
afgreiöslustúlka i Karnabæ ber
aö ofan og hylur brjóstin
feimnislega. Ætli hún heföi
komist i Playboy meö þessu
sakleysislega háttalagi sinu,
blessunin? Alveg voðalegt hvaö
Islenskar stelpur eru tregar aö
sitja fyrir á alminlegum pornó-
myndum.
Samúel heldur okkur viö efniö
og minnir á amrfska drauminn.
Viö fáum nefnilega aö kynnast
„lúxusþotum forrikra for-
stjóra” I máli og glæsilegum lit-
myndum. Gvuö hvaö þaö væri
gaman aö vera forrikur for-
stjóri i lúxusþotu i gvuðseigin-
landi... Svo segir lika af frægu
fólki og frægum biómyndum i
Samúel þessum.
Æskan er
til í tuskið
Ég hélt ég væri aö gripa meö
mér hiö aldraöa barnablaö
Æskuna, en það varþá bóka-
HHHHHHHK WHHHHHHHBHHHHHHHHHHHH i|l' HMHHHHHHHHI
Daviö Scheving ibadminton, — rétt eins og viö hinir.Svo fær rnaöur sér
auövitaö eitt glas af Tropicana á eftir.
Svo bregöast krosstré...