Þjóðviljinn - 29.11.1978, Side 5
Miðvikudagur 29. ndvember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
1 kröfugöngum á liðnum árum hefur verkalýðshreyfingin sett baráttuna gegn verðbólgu og dýrtfð á
oddinn um leiö og hún hefur krafistán árangurs framgangs brýnna réttindamála iaunafólks.
Kröfur ASÍ og
BSRB um félags-
legar umbætur
á móti niðurfellingu 3% af verðbótavísitölu
Á samráðsfundi rikisstjórnar-
innar með launþegasamtök-
unum sl. laugardag lagði
Alþýðusamband tslands fram
lista yfir þær ráðstafanir, sem
sambandið telur að framkvæma
þurfi á næstunni.
Uppsagnarfrestur
Þar er meöal annars að finna
breytingar á lögum um rétt
verkafólks til uppsagnarfrests.
Lagt er til að verkamenn, sem
hafa unnið i sömu starfsgrein I
eitt ár, fái eins mánaðar upp-
sagnarfrest. Verkamanni sem
unnið hefur hjá sama atvinnu-
rekanda I fimm ár samfleytt
beri tveggja mánaöa upp-
sagnarfrestur.
Þá er farið fram á, að allir
verkamenn skuli halda föstum
dagvinnulaunum i 6 mánuði,
forfallist þeir frá vinnu vegna
atvinnusjúkdóma eða slysa við
vinnu, eða á beinni leiö milli
heimilis og vinnustaöar i nauö-
synlegum erindum. Verkamenn
á fyrsta starfsári haldi óskert-
um launum sinum í 2 daga fyrir
hvern unninn mánuð i veikinda-
og slysatilfellum. Atvinnu-
rekendur greiði 1% af útborg-
uöu kaupi verkamanna i sjúkra-
sjóð viökomandi stéttarfélags.
Allir verkamenn eigi kost á sér-
stakri læknisrannsókn ókeypis á
tveggja ára fresti.
Orlofsfé
Verkalýöshreyfingin fer fram
á, aö rikisstjórnin lýsi þvi yfir,
að jafnan verði greiddir vextir
sem samsvara hæstu innláns-
vöxtum af innistæöum orlofs-
þega hjá Pósti og sima.
Launagreiöanda verði einnig
skylt aö veita innheimtuaðila
orlofsfjár upplýsingar um greitt
og vangreitt orlofsfé starfs-
mannasinna og verði orlofsaöila
heimill aögangur að bókhalds-
gögnum orlofsgreiöanda, i þvi
skyni aö sannreyna slikar upp-
lýsingar.
Pósti og sima verði einnig
heimilt að beita ákveönari aö-
geröum en nú tiökast, til að
knýja launagreiöanda til
greiöslu orlofsfjár á réttum
tima.
Næturvinna í stað
eftirvinnu
Lagt er til að á árunum 1979 til
og með 1983 skuli öll eftirvinna
leggjast af 1 áföngum, þannig
aö 1. januar 1979 taki nætur-
vinna við á föstudögum aö lokn-
um 8 dagvinnustundum. Einn
vikudagur bætist siöan viö á ári
þar til eftirvinna er endanlega
niöur fallin.
200 milj. til fræðslu-
og félagsmálastarfs
ASÍ
Fariö er fram á aö rlkis-
stjórnin beiti sér fyrir eftir-
farandi atriöum til stuönings
fræöslu- og félagsmálastarfi á
vegum verkalýöshreyfingar-
innar:
1) Viö afgreiöslu fjárlaga fyrir
áriö 1979 veröi samþykktar
eftirfarandi fjárveitingar: 1. Til
Félagsmálaskóla Alþýöu 50
m.kr. 2. Til Menningar- og
fræöslusambands alþýöu 30
m.kr. 3. Til Hagdeildar Al-
þýðusambands Islands 15 m.kr.
4. Til Hagræðingardeildar ASl
15 m.kr. 5. Til byggingar félags-
aðstöðu viö orlofsheimili verka-
lýössamtakanna 90 m.kr. Sam-
tals 200 miljón krónur.
2) Meö lagasetningu veröi
verkalýössamtökunum tryggö
eftirfarandi réttindi vegna
félagsstarfsemi þeirra: Verka-
lýösfélögum sé tilkynnt um
fyrirhugaöar breytingar á
starfsháttum fyrirtækja meö
nægilegum fyrirvara til aö timi
gefist til aö ræöa þær itarlega á
vettvangi félaganna.
Aðbúnaður
og öryggi á
vinnustöðum
Þá vill ASÍ aö rikisstjórnin
lýsi þvi yfir, aö sérstök áhersla
veröi lögö á aö hraöa samningu
nýrra og endurbættra laga um
aöbúnaö, hollustuhætti og ör-
yggi á vinnustöðum, svo og
könnun þeirri sem nú stendur
yrir á ástandi vinnustaöa I
öllum starfsgreinum, sem lofaö
var meö yfirlýsingu stjórnvalda
viö lok sólstööusamninganna
1977.
í nýrri löggjöf um aöbúnaö,
hollustuhætti og öryggi á vinnu-
stööum veröi skýrt ákvæöi um
rétt og skyldu trúnaöarmanna
og vinnueftirlits aö stööva vinnu
þar sem vinnustaöur er ekki
búinn i samræmi viö lög og
reglugeröir, eöa hætta er á
heilsutjóni eða slysum.
Lán til endurbóta
Jafnframt muni rikisstjórnin
beita sér fyrir útvegun fjár-
magns aö upphæö allt aö 200
milj. króna sem lánaö veröi at-
vinnufyrirtækjum i samráöi viö
viökomandi verkalýösfélög, til
aö framkvæma meiriháttar
endurbætur á aöbúnaöi,
hollustuháttum og öryggi á
vinnustööum.
Aðbúnaður
sjómanna
Fyrir sjómannastéttina fer
ASI fram á eftirfarandi félags-
legar umbætur : 1. Fyrir árs-
lok 1978 veröi sett löggjöf um
aðbúnað sjómanna og öryggis-
mál, sem m.a. feli I sér rétt sjó-
manna til ókeypis fæöis um
borö, Itarlegri ákvæöi um
öryggis- og heilbrigöismál á
skipum, fyllri rétt sjómanna til
bóta i veikinda- og slysatil-
fellum og greiöslur viö örorku
og dauösföll, ásamt framlagi úr
rikissjóöi til hagræöingar,
fræöslu- og félagsmála samtaka
sjómanna.
2. Endurskoöuð veröi ákvæöi
laga um lögskráningu sjómanna
i þvl augnamiöi aö tryggt sé
meö stórhækkuðum sektar-
ákvæöum og missi veiöi- og
skipstjórnarréttinda, aö skip
séu ekki gerö út meö óskráöa
áhötn.
Sjómannafrádráttur
hækki
3. Sjómannafrádráttur skatta-
laga veröi endurskoöaöur I þvi
skyni aö hann fari stighækkandi
miöaö viö fjölda skráningar-
daga.
4. Gjaldeyrisyfirfærsla sjó-
manna á farskipum veröi hækk-
uö úr 30% I t.d. 40%.
Ríkisstarfsmenn
njóti atvinnuleysis-
trygginga
Helstu hugmyndir Bandalags
starfsmanna rikis og bæja um
félagslegar úrbætur til handa
opinberum starfsmönnum eru:
Aukin aöild opinberra starfs-
manna aö húsnæöismálafram-
kvæmdum rikis og sveitar-
félaga, en þar hafa opinberir
starfsmenn stundum oröiö út-
undan.
Opinberir starfsmenn veröi
annaöhvort aöilar aö Atvinnu-
leysistryggingasjóöi eöa riki og
sveitarfélög beiti sér fyrir þvi,
aö þeir njóti ekki lakari kjara en
þeir sem aöild eiga aö sjóönum.
Þróunin er sú, aö meginhluti
opinberra starfsmanna er rúö-
Framhald á 18. siöu
Sex A ustur-Evrópuríki:
Sendiherrar
kallaöir heim
frá Búkarest
VIN, 28/11 (Reuter) — Yfirvöld I
sex Austur-Evrópurikjum hafa
kallað sendiherra sina heim frá
Rúmenfu, að sögn diplómata I
Búkarest i dag.
Sendiherrarnir eru frá eftir-
töldum löndum: Sovétrikjunum,
Búlgarlu, Tékkóslóvakiu, Austur-
Þýskalandi, Ungverjalandi og
Póllandi. Er taliö aö yfirvöld
þessara landa vilji þar meö lýsa
andúö sinni á stefnu Ceausescu
forseta.
Hann hefur lýst yfir ágreiningi
sinum viö bandamenn sina I Var-
sjárbandalaginu, m.a. neitaöi
hann aö hermenn lands sins tækju
þátt 1 innrásinni i Tékkóslóvakiu
fyrir tiu árum. Auk þess neitaöi
hann aö skrifa undir sameigin-
lega yfirlýsingu Varsjárbanda-
lagsrikja, þar sem Camp David-
samningarnir voru fordæmdir.
Skýrt var frá þvl I Búkarest I
dag, aö mörg verkalýðsfélög í
landinu heföu lýst yfir stuöningi
sinum viö forsetann og stefnu
hans. <
Vattstungnu
úlpurnar frá Max
loksins komnar aftur
Nýir litir.
SEnoum CEcn pústkröfu
SIMI25980
LAUGAVEGI66