Þjóðviljinn - 11.01.1979, Page 2
2S1ÐA — ÞJÓÐVILJINN— Fimmtudagur 11. janúar 1979
Ólafur Ragnar
Grímsson:
Efnahagsstefna
Alþýðubandalagsins.
I kosningunum á sl. ári lagði
Alþýöubandalagið fram ýtar-
lega stefnu i efnahags- og at-
vinnumálum. Hún hefur mótað
afstöðu og tillögur flokksins i
núverandi rikisstjórn. Þessi
stefna fól I sér tvfþætta hernað-
aráætlun I atlögunni við verð-
bólguna og baráttunni fyrir var-
anlegum kjarabótum.
Fyrri þáttur þeirrar hernað-
aráætlunar miðaðist við að
rjúfa vitahring sjálfvirkninnar
semá undanförnum árum hefur
leitt til sifelldra gengisfellinga
og sett allan eðlilegan ákvarð-
anagrundvöll hagkerfisins úr
skorðum. Tillögur Alþýöu-
bandalagsins um einstaka liöi i
framkvæmd þessa þáttar hafa
mjög mótað aðgerðir rikis-
stjórnarinnar á fyrstu mánuö-
um ferils hennar. Með aðgerö-
unum i septmeber og desember,
með beitingu millifræslu til að
hamla gegn verðhækkunum á
nauðsynjavörum, með marg-
þættri skattastefnu sem i senn
fjármagnar striðskostnaðinn i
veröbólgubaráttunni og flytur
byrðarnar y fir til hátekjufólks,
eignamanna og fyrirtækja, með
nýafgreiddum fjárlögum og
fjölmörgum öörum aðgeröum
hefur rikisstjórnin stigið mynd-
arlega á bremsuna og skert til
muna svigrúm hins sjálfvirka
vítahrings. Þessi þáttur hernað-
aráætlunarinnar markar þó
aðeins fyrstu sporin. Til að ná
varanlegum árangri þarf mun
umfangsmeiri og flóknari að-
gerðir.
I samræmi við efnahags-
stefnu Alþýðubandalagsins
verður siðari þáttur hernaöar-
áætlunarinnar i verðbólgubar-
áttunni að felast i umsköpun á
framleiðslu- og fjárfestingar-
kerfi landsins, samhæföri stjórn
á peningamálum, rikisfjármál-
um og gjaldeyrismálum, veru-
legri eflingu afkasta hjá Is-
lenskum útflutningsgreinum og
alm. samkeppnisiðnaði, bættri
stjórnun og virkara skipulagi til
að grundvöllur veröi innan tiðar
fyrir raunverulegri aukningu
velsældar alls almennings og
vfetækum félagslegum framför-
um. t þessu skyni þarf að koma
á sterkri fjárfestingarstjórn,
beita sér fyrir framkvæmd
nýrrar atvinnustefnu og leggja
á myndarlegan hátt til atlögu
gegn yfirbyggingarbákninu sem
á undanförnum árum hefur tek-
ið til sin æ stærri hluta vinnuafls
og fjármagns sem betur hefði
veriö varið i þágu gjaldeyris-
skapandi atvinnugreina.
Þessar þrjár meginforsendur
— sterk fjárfestingarstjórn, ný
atvinnustefna, atlaga gegn yfir-
byggingunni — þurfa að móta
efnahagsstefnu rikisstjórnar-
innar á nýbyrjuðu ári. í tilefni
af viðræöum rikisstjórnarflokk-
anna um útfærslu á seinni hluta
hernaðaráætlunarinnar I verð-
bólgubaráttunni skulu hér rif juð
upp nokkur meginatriði i þeirri
efnahagsstefnu sem Alþýðu-
bandalagið bar fram til sigurs i
kosningunum sl. vor.
Fjárfestingarstjórn —
Lánastefna.
Til að tryggja framkvæmd
markvissrar framleiðslustefnu
er nauðsynlegt aö taka upp gerö
þjóðhags- og framkvæmdar-
áætlana til langs tima. Sllkar
áætlanir verði grundvöiiur
meginákvarðanatöku i efna-
hagsmálum. Þær taki mið af
framleiöslugetu bjóðarbúsins,
hóflegri nýtingu auölinda og
mikilvægum félagslegum
markmiöum i umsköpun þjóðfé-
lagsins f samræmi við hagsmuni
launafólks. Innan ramma þess-
ara áætlana verði gerðar árieg-
ar fjárfestingaráætlanir fyrir
allar höfuðgreinar atvinnulifs-
ins og opinbera starfsemi. Leit-
ast verði við aö miða fjárfest-
inguna einkum við gjaldeyris-
skapandi og gjaldeyrissparandi
greinarsem i senn styrkja efna-
hagslega stööu þjóöarinnar
gagnvart umheiminum, skapa
í þinghléi
meira öryggi og treysta efna-
hagslegt sjálfstæði.
Þegar slikar áætlanir hafa
verið gerðar verði skipan lána-
mála breytt á þann veg að
tryggt sé að allar meiriháttar
lánveitingar — bæöi hjá bönk-
um, fjárfestingarlánasjóðum og
öðrum meiriháttar lánastofn-
unum — verði metnar i ljósi
fjárfestingaráætlana I viðkom-
andi atvinnugreinum. Þær
framkvæmdir einar sem þjóna
markmiðum áætlana fái aðgang
að nauðsynlegu opinberu fjár-
magni. Tryggt verði að ýtarlegt
mat á framlagi hverrar nýrrar
meiriháttar fjárfestingar til
umsköpunar atvinnulifsins liggi
fyrir áður en ákvörðunin um
lánveitinguna er tekin. Jafn-
framt skuli þær framkvæmdir
sem stuðla að aukinni útbreiðslu
félagsiegra eignarforma, sam-
runa fyrirtækja og nýjum sam-
vinnuformum f rekstinum hafa
að öllu jöfnu forgang í lánveit-
ingum.
Mikilvægur þáttur nýrrar
lánastefnu verði beiting sveigj-
anlegra vaxta sem verði mis-
munandi eftir útlánategundum.
Við mótun hinnar nýju lána-
stefnu verði einnig tekið miö af
þvi að tilteknir útlána flokkar
verði látnir bera fulla verð-
tryggingu og sparisjóöaeigend-
um verði tryggðar sérstakar
verðbætur.
Ný atvinnustefna
Á sl. ári flutti Alþýðubanda-
lagiö ýtarlegar tillögur um nýja
atvinnustefnu sem gefiö var
heitið tslensk atvinnustefna. Á
þvi ári sem nú er hafiö hlýtur
það að vera meginverkefni rfk-
isstjórnarinnar aö tryggja
framkvæmd slikra breytinga á
atvinnulifi landsmanna. Grund-
vallaratriöi islenskrar atvinnu-
stefnu eins og hún hefur verið
boðuð af Alþýðubandalaginu
eru: 1) Aö skapa sem viðtæk-
asta samstöðu um.að atvinnulif
á fslandi verði f höndum inn-
lendra aðila, íslensk atvinnu-
stefna kemur þannig i stað
þeirrar erlendu stóriðju sem
siðustu valdhafar höfðu f háveg-
um. 2) Aö áætlunargerð og
skipulagshyggju, markvissum
rannsóknum, markaðsleit og
virkum stuðningi hins opinbera
veröi beitt I þágu meiriháttar
uppbyggingar Islenskra at-
vinnuvega. 3) Framleiðslan
veröi endurskipulögö i þvi skyni
að draga úr sóun, óhagkvæmni
og yfirbyggingu sem aukist hef-
ur á undanförnum árum og
stuðlað þannig að alhliða fram-
förum I rekstri. 4) Til að auka
forræði fólksins sjálfs yfir fram-
leiðslutækjum og vinnuskipu-
lagi verði félagsiegur rekstur
látinn hafa forgang f uppbygg-
ingu atvinnulifsins og jafnframt
þeir framleiðslumöguleikar
sem I senn eru arðvænlegir fyrir
þjóöarbúiö og henta vel sem
hæfileg viðfangsefni fyrir sam-
tök fólksins viðsvegar um
landið.
t framhaldi af þessum al-
mennu grundvallarmarkmiðum
felur fslenska atvinnustefna,
sem Alþýöubandalagið hefur
boðað, f sér sérstaka áherslu á
uppbyggingu ákveöinna greina
atvinnulifsins. Það er höfuðat-
riöi aö í stefnumótun stjórn-
valda fyrir nýbyrjað ár veröi á
skýran og glöggan hátt kveðið
upp úr meö það hvaða atvinnu-
greinar skulu hafa forgang og
verða burðarásari þeirri þróun
sem f senn á að efla atvinnuvegi
landsmanna og stuöla að varan-
legum framförum i almennum
lifskjörum. Skoöun Alþýðu-
bandalagsins er að það dugi
hvergi nærri að beita eingöngu
alm. aðgerðum I þágu iðnaðar-
uppbyggingar og betri nýtingar
sjávarafla heldur verði aö taka
skýrt af skarið um það hvaða
iðngreinar og hverskonar end-
urnýjun I fiskiönaði skuli sér-
staklega settar á oddinn. Fjár-
magni og kröftum stjórnkerfis-
ins veröi siðan beitt af alefli I
þágu slikra forgangsgreina.
Atlaga gegn yfirbygging-
arbákninu
Á undanförnum árum og ára-
tugum hefur hlaðist hér upp
margslungin yfirbygging,
gróðabákn, sem i reynd er að
sliga fólkið i landinu. Þessi yfir-
bygging mótast mjög af óeöli-
legum vexti margvislegrar
milliliðastarfsemi. Hana þarf
að taka til allsherjar uppskurð-
ar. í þvi skyni hefur Alþýðu-
bandalagið lagt rlka áherslu á
að dregið verði úr óhagkvæmni I
rekstri og forræöi einkafjár-
magns á sviði mikilvægrar
milliliðastarfsemi. Eitt oliu-
sölufélag á vegum opinberra
aðila taki að sér allan innflutn-
ing á sölu á oliu og oliuvörum,
tryggingafélögum verði fækkað
með auknum félagslegum
rekstri á þvi sviði, flutnings-
kostnaður skipafélaga verði
iækkaður með margvislegu
endurskipulagi á starfsemi
þeirra, svo að nokkuö sé nefnt.
Meiginþátturinn I tillögum Al-
þýðubandaiagsins um niður-
skurö yfirbyggingarbáknsins
fellst hinsvegar i nauðsyn á end-
urskipulagningu innflutnings-
verslunarinnar. Stefna verður
aðverulegri fækkun þeirramörg
hundruð heildsölufyrirtækja
sem nú eru i landinu og.
stuðla að mjög óhagkvæmum
vöruinnkaupum til landsins og
eru mörg hver flækt i margvis-
legt gjaldeyrissvindl og ýmis-
konar brask sem þróast hefur
á undanförnum árum. I efna-
hagstillögum Alþýðubandalags-
ins er bent á nauösyn þess að
boðinn verði út innflutningur á
mikilvægum vörutegundum og
verði þeir útboðsskilmálar i
samræmi við lægsta verö á er-
lendum mörkuöum. Berist eng-
in tilboð á slikum lágmarks-
kjörum þá verði opinberir aðii-
ar að annast slikan innflutning.
Viötækt útboðskerfi af þessu
tagi er óhjákvæmilegt tæki til
þess að hrista innflutningsversl-
unina svo til aö nauösynleg hag-
kvæmni náist útúr hinu óhóflega
milliliðabákni á þessu sviði.
Jafnframt veröi tekin upp
samræmd innkaup á helstu
vöruflokkum sem rikisstofnanir
og aörir opinberir aðilar þarfn-
ast til alm. rekstrar og fram-
kvæmda. Innflutningsstarfsemi
á lýöræöislegum samvinnu-
grundvelli verði efld til muna til
þess að veita einkabröskurun-
um aukið aðhald.
Gliman við hið margvislega
misferli og spillingu sem þróast
hefur I heildsölukerfi landsins
verður varla árangursrlk nema
beitt sé mjög grimmum refsing-
um gagnvart gjaldeyrissvikum,
skattsvikum og öörum vafa-
sömum rekstraraðferðum fyrir-
tækja 1 þessum greinum. Þaö
kemur fyllilega til álita að
svipta fyrirtæki sem verða upp-
vis að sliku misferli öllum rétt-
indum til áframhaldandi inn-
flutningsstarfsemi.
Jafnhliöa þessum aögerðum
sem beinast aö þeim þætti yfir-
byggingarbáknsins sem tengd-
ur er mjlliliöagróðanum telur
Alþýöubándalagiö nauðsynlegt
að endurskipuleggja bankakerf-
ið sem sameiningu banka og
endurbótum á starfsháttum
þeirra. Jafnframtverði rekstur
umfangsmikilla rikisstofnana að
takast til ýtarlegrar skoðunar
og endurskipulagningar. Al-
þýðubandalagið hefur i þessu
sambandi bent sérstaklega á
starfsemi stofnana og fyrir
tækja á sviði orkumála og heil-
brigðismála, starfsemi Pósts og
sima, Landhelgisgæslunnar og
fjölmargra annarra aöila. Það
hlýtur að verða meiriháttar
verkefni þeirra sem fara með
stjórn landsins á næstu mánuð-
um og misserum aö hafa for-
göngu um sllka uppstokkun og
endurskipulagningu starfsem-
innar hjá rikinu sjálfu til þess að
veita i senn verðugt fordæmi
öðrum til eftirbreytni og til aö
geta enn frekar knúiö á um hlið-
stæðan uppskurð á öörum þátt-
um yfirbyggingarbáknsins.
81333«
Sjómaður spyr:
Hvert fara
Nú undanfariö hefur mjög
borið á þvi að togarar og önnur
fiskiskip hafa siglt með afia sinn
óunninn og selt i erlendum
höfnum. Samtimis getur að litá
„fréttir” I Mogga um aukið at-
vinnuieysi landverkafólks, sem
auðvitað eiga að gera vinstri
stjórnina tortryggilega I augum
lesenda. Af þessu tilefni langar
mig til þess að gera eftirfarandi
fyrirspurn til þeirra sem svar-
að geta:
1. Þegar fréttir birtast um sölur
fiskiskipa erlendis, er ævinlega
greint frá brúttóveröi sem fæst
fyrir aflann. Hvert er hiö raun-
verulega verð sem fyrir fiskinn
fæst, ef tekið er tillit tii upp-
skipunarkostnaðar erlendis,
oliukostnaðar við að sigla veiði-
skipunum út og heim og veiði-
taps og vinnulauna áhafnar
meðan á söluferð stendur?
2. Hvað eru það háar fjárhæðir
sem útgerðarmenn sleppa við
að greiða i sameiginlega sjóði
vegna þessara söluferða?
3. Hvað er útflutningsverðmæti
þeirra fiskafurða sem fást
mundu úr þeim afla sem ævin-
týramenn selja nú erlendis?
Margar fleiri spurningar
mætti setja fram, en þessar
nægja i bili, þvi svörin viö þess-
um munu sýna, ef þau fást.aö
hér er útgeröin að stela eins oe
oft endranær. Það eru gömul
sannindi, að allur gróöi er af-
rakstur vinnu, og enginn út-
gerðarmaður ætti skip ef ekki
væri fyrir gegndarlaust strit
sjómanna.
Með von um að Þjóðviljinn
birti þetta; kærkveöja.
Sjómaður.
Vér mótmælum!
Við getum ekki orða bundist
yfir kiausu nokkurri sem birtist
i Þjóðviljanum hinn 30. des.
1978, þar sem kona að nafni
„E.K.” iýsti þvi yfir, að henni
fyndist „fjandi góð” viðbygg-
ingin sem rlsa á viö Hótel Borg.
Þessa viðbyggingu teljum við
I hrópandi andstöðu við um-
hverfið, þar sem fyrirhugað er
aö hún risi. Teljum við þessa
konu, sem og svo marga fleiri af
hennar sauðahúsi, alls ekki hafa
neina tilfinningu fyrir formi og
listrænu gildi gamla bæjarhlut-
ans. Gott dæmi um þessa
smekkleysu er, þar sem Iðnað-
arbankahúsið og Nýja Bió
standa eins og skókassar uppúr
þessu fallega hverfi sem er, þvi
miöur, óöum að missa sinn
gamla sjarma vegna sifelldra
og óhugnanlegra breytinga.
„E.K.” segir I grein sinni,
að óþarfi sé að eltast viö stil
Hótel Borgar, sem reist var um
1930 og I anda þess tlma. Það er
firra.
Við endurtökum: Að sjálf-
sögðu verður húsiö umfram allt
að falla inn i umhverfi sitt. —
Tökum ekki þá stefnu að bæta
nýbyggingum inn i gamalgróin,
stilhrein hverfi, og eyðileggja
þannig heildarsvip þeirra.
Sigriður H. Gunnarsdóttir
Gerður Stefánsdóttir
Nina Heigadóttir
Samtök heimsfriöar og sameiningar:
Unificatíon Church
hefur veriö hreinsuð
Vcgna- Islenskra blaðaskrifa
þám. i Þjóðviijanum um 3 hin
svökölluðu Moon samtök (Uni-
fication Church) hafa Samtök
heimsfriðar og sameiningar á Is-
landi, sem eru hiuti af Unification
Church, óskað eftir að birt verði
sem athugasemd frá þeim eftir-
farandi grein, sem byggð er á frá-
sögn New York blaösins „The
New World” 3. des. sl. Til frekari
uppiýsingar skal þess getið, að
forystumaöur samtakanna hér-
lendis er Halvard K. Iversen.
„Dómsmálaráðuneyti Bandarikj-
anna hreinsar „Unification
ChurcE’eftir rannsókn FBI.”
Dómsmálaráðuneyti Banda-
rikjanna hefur ekki fundið neina
visbendingu sem gefur ástæðu til
frekari löglegra rannsókna,
vegna ákæruá hendur „The Uni-
fication Church”, varðandi heila-
þvott, nauðungarkyrrsetu og
mannrán, segir fulltrúi rikissak-
sóknara Benjamin R Civiletti.
Ekkert kom fram sem gaf tilefni
til að fella starfsemi hreyfingar-
innar undir athæfi sem varða við
lög, eða gaf ástæðu til frekari
rannsóknar.
Þetta var niöurstaða af ná-
kvæmri rannsókn á Sr. Moon og
„The Unification Church”, fram-
kvæmdri af FBI frá árinu 1977.
Þeir Robert Giaimo, D-Conn,
ogLeo Ryan, D-Calif. komu sam-
an ásamt fulltrúum sakamála-
deildar dómsmálaráöuneytisins,
þann 17. mai ’77, til viðræðna um
ásakanir á hendur hreyfingar Sr.
Moon og annarra trúflokka, varð-
andi heilaþvott og önnur álika at-
hæfi. Þeir kröfðust lagalegra að-
gerða gegn hreyfingunni.
Giaimo skipaði þrjá sérfræð-
inga til þessa dómsmálafundar:
Dr. Margrét Singer, sálfræðing
frá Berkeley Calif., sem er sér-
fróö um heilaþvott, og bar m.a.
vitni i réttarhöldunum yfir
Patriciu Hearst; Professor Rich-
ard Delgado frá Lagaháskóla
Washington, sem rannsakaö hef-
ur lagalegar hliðar á hugstjórn-
um, og Dr. Colin Williams frá
Yale Divinity School.
Siðan bað dómsmálaráðuneytið
FBI að rannsaka sakagiftir.
Arangur þessara rannsókna var
birtur opinberlega af dómsmála-.
ráðuneytinu eftir morðiö á Leo
Ryan og fjöldasjálfsmöröunum i
Guyana. Rannsóknin leiddi i ljós,
að einginn fótur var fyrir þeim á-
sökunum og ákærum á hendur
hreyfingunni. „Þaö hefur verið
reynsla okkar, að meölimir þess-
ara trúfbkka séu bersýnilega
sjálfbjarga, sjálfráöa fulltiða
fólk.”
Til að draga saman afstööu
dómsmálaráðuneytisins, var haft
eftir Civiletti aöstoðar rikissak-
sóknara: „Maöur ákærir ekki fólk
fyrir þaö sem það hugsar, heldur
þaö sem það framkvæmir.” ”