Þjóðviljinn - 19.01.1979, Page 7
Föstudagur 19. janúar 1979 —ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Ef Bólu-Hjálmar byggi í Reykjavik og vœri i sömu
kröggum og fyrr myndi hann leita til
Félagsmálastofnunar borgarinnar. Og hvað gerist þá?
Hjördis
Hjartardóttir
Hreppstjórar fyrr og nú
Einn dag á sumri áriö 1870, —
fyrir 108 1/2 ári síöan — fór
eamall fátækur maöur, noröur i
Akrahrepp, fram á að sér yröi
veittur örlitill sveitarstyrkur.
Helgi Jónsson þáverandi hrepp-
stjóri þar nyröra svaraöi skýrt
,,nei” og herma sagnir að vegna
slæmrar heyrnar styrkbeiöanda
hafi hann ekki einungis fengiö
munnlegt svar heldur einnig
skriflegt.
Þegar gamli maöurinn kom
heim orti hann kvæöi. betta
kvæöi varö þess valdandi aö
flestir íslendingar kannast enn I
dag viö aö einhversstaöar fyrir
norðan fyrirfinnist Akrahrepp-
ur. Kvæöiö byrjar svona: „Eftir
50 ára dvöl / i Akrahrepp ég má
nú deyja”, og slðar segir i
kvæöinu „félagsbræöur ei
finnast þar / af frjálsum
manngæöum litiö eiga / eru þvi
flestir aumingjar / en illgjarnir
þeir sem betur mega”. Gamli
maðurinn hét Hjálmar Jónsson
og var kenndur viö Bólu. Viö
þekkjum hann öll. I minni sveit
þótti þetta ljót saga og
Akrahreppur ólánshreppur
hinn mesti.
En til hvers að vera aö rifja
upp þennan aldargamla atburð,
— þaö er svo langt siöan og allt
svo mikiö breytt. Núna höfum
viö ellilaun og mæöralaun og
strætisvagna og skóla og dag-
heimili og sjúkrahús og elli-
heimili og rithöfundalaun og
heiöúrslaun rithöfunda og
margt margt fleira. Nú eru
framleiddir sjálfvirkir
tannburstar og skuttogarar og
bilar og traktorar og töfrasprot-
ar og frystikistur, — þetta er
bara allt saman oröiö miklu
finna og betra. Við búum i vel-
feröarþjóöfélagi. Ofan á allt
annað gott er komin vinstri
stjórn i Reykjavikurborg.
Vinstri stjórn meö félagslegan
þankagang, — heyrðist mér
allavega fyrir kosningar.
Þaö myndi ekki væsa um
hann Hjálmar gamla I ellinni I
dag, — eða hvaö skyldi maöur
halda? Ef Hjálmar byggi I
Reykjavik og væri I sömu
kröggum og fyrr myndi hann
leita til Félagsmálastofnunar
Reykjavikurborgar. Borgar-
yfirvöld eru nefnilega fyrir
löngu búin að koma á fót stofnun
til aö auka og bæta félagslega
þjónustu viö ibúa borgarinnar.
Fjárhagur hans yröi kannaöur
rækilega, bæöi tekjur og
útgjöld. Gengiö yröi úr skugga
um aö hann væri nú örugglega
ekki i sambúö. Ef viö göngum út
frá aö útgjöld (þaö er húsa-
leiga, hiti, rafmagn, fæðiskostn-
aöur og önnur nauösynleg
útgjöld, t.d. lækniskostnaöur)
væru hærri en tekjur ætti
Hjálmar rétt á styrk. Félags-
málaráö (kosiö af borgarstjórn,
af sjö meðlimum eru þrír einnig
borgarfulltrúar) mundi
samþykkja aöstoð til handa
gamla manninum skilyrðis-
laust.
Vandinn skapast ekki fyrr en
á aö greiöa Hjálmari styrkinn.
Þvi þó borgaryfirvöld séu
„félagsbræöur’” i oröi fer
minna fyrir þvi á boröi. Þeir
veita langt frá þvi nægilegt
fjármagn til félagsmálastofn-
unar Reykjavikurborgar til að
hægt sé aö greiöa öllum Hjálm-
urunum þaö sem samþykkt hef-
ur veriö. Ætti Hjálmar rétt á
húsaleigustyrk frá Félagsmála-
stofnun Reykjavikurborgar
væri hann að öllum líkindum
löngu búinn aö missa húsnæöiö,
nema leigusalinn vildi blöa i
alla vega nokkrar vikur ef ekki
mánuöi eftir aö fá húsaleiguna
greidda.
Þrátt fyrir töfrasprotann,
traktorinn, og allt hitt viröist i
raun ekki stór munur á hrepp-
stjóranum i Akrahreppi áriö
1870 og núverandi borgar-
stjórparihaldi. Það er þó helst
að Helgi Jónsson var ekki i nein-
um þykjustuleik en sagöi strax
þvert nei, á meöan hin svokall-
aða vinstri borgarstjórn segir já
i dag en nei á morgun. Borgar-
yfirvöld hafa komiö sér upp
hagstæöu kerfi, sem Helgi haföi
ekki. Þaö er borgarstjórn,
borgarráö, félagsmálaráö,
borgarstjóri, borgarritari,
Félagsmálastofnun og náttúru-
lega fleira. Félagsmálaráö set-
ur reglur um veitingu styrkja og
meira að segja samþykkir
hvern einstakan styrk. Borgar-
ritari neitar aö láta Félags-
málastofnun hafa nægilegt fjár-
magn. Borgarstjóri visar á póli-
tikusana og svona gengur bolt-
inn hring eftir hring innan
kerfisins. Við starfsmenn Fé-
lagsmálastofnunar sem erum
búin að tilkynna fólki einn dag-
inn að samþykktur hafi veriö
styrkur þvi til handa veröum
ekki bara næsta dag heldur vik-
ur ef ekki mánuði aö segja „nei,
þvi miður, engir peningar I
dag”. Þegar við undirtillurnar
kvörtum fyrir hönd Hjálmar-
anna fáum viö stundum hvorki
meira né minna en loforö og
þegar þau eru svikin önnur ný.
Samstarfsmaöur minn hvisl-
aði eftirfarandi stöku i eyraö á
mér um daginn: „Fariö I rass-
gat ráöamenn / röktu drullu-
sokkar / þiö skit úr hnefa
skammtið enn / skjólstæðingum
okkar”. Við skulum vona Sigun-
jóns, Kristjáns og Björgvins
vegna aö höfundurinn sé ekki
kraftaskáld eins og sagt væri aö
Hjálmar gamli væri — Þó get ég
ekki aö þvi gert aö mér finnst
stundum þeir ættu þaö skiliö.
Hjördis Hjartardóttir,
félagsráögjafi,
Breiöholtsútibúi F.R.
Máttarstólpar
þjóðfélagsins
t kvöld verður 10. sýning i Þjóö-
leikhúsinu á Máttarstólpum þjóð-
félagsins. Þetta er I fyrsta.skipti,
sem þetta þekkta verk Ibsens er
sýnt á sviði hérlendis og þykir þvi
tiðindum sæta. Leikstjóri
sýningarinnar er Baldvin Halld-
drsson en með helstu hlutverk
fara Eriingur Gislason, Guðrún
ÞStephensen, Gunnar Eyjólfs-
son, Briet Héðinsdóttir, Hákon
Waage, Bjarni Steingrimsson og
Guðrún Þórðardóttir.
11. sýníng verksins veröur svo á
miövikudagskvöld.
Tökum að okkur
viðgerðir og nýsmiði á fásteignum.
Smiðum eldhúsinnréttingar: einnig við-
gerðir á eldri innréttingum. Gerum við
leka vegna steypugalla.
Verslið við ábyrga aðila
TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ
Bergstaðastræti 33,
simar 41070 og 24613
Bœjarstjórinn á Seltjamarnesi:
„Mér finnst nóg komið”
Stjórn Sambands
islenskra sveitarfélaga:
Mælir
með
12%
Fulltrúi
Mér finnst vel við eiga að
leyfa f jármálaráðherra að
eiga fyrisögn þessa
greinarkorns/ en þetta er
svar hans við spurningu
Vísis 12. þ.m. um hækkun
útsvars í 12%.
,/Fulltrúi Seltjarnarness
sat hjá"
Segir Þjóöviljinn i undirfyrir-
sögn 16. þ.m. þegar skýrt er frá
samþykkt stjórnar Samb. is-
lenskra sveitarfélaga varöandi
hækkun útsvarsprósentu, siöan er
bætt viö „og geröi sérstaka grein
fyrir atkvæöi sinu”.
Þar sem ég veit, sem tryggur
lesandi Þjóöviljans um margra
ára bil, aö blaöiö vill flytja les-
endum sinum sem sannastar
fréttir úr þjóölifinu.átti ég von á
aö i fréttinni kæmi fram tilvitnuö
greinargerö, lesendum til
glöggvunar.
Til aö bæta úr þessum mistök-
um, læt ég greinargeröina fljóta
með þar sem hún kann aö varpa
ljósi á ástæöuna fyrir hjásetu
minni: „Sigurgeir Sigurösson
getur ekki staöiö aö samþykkt
þessarar bókunar um hækkun
skatta. Viðurkennd er þörf
sveitarfélaganna fyrir auknar
tekjur, en þar sem rikisvaldið
hefur þegar gengiö alltof langt I
skattlagningu telur hann, aö
annaðhvort veröi aö koma tiÞ
færsla tekna frá riki eöa sjálf-
ræöi sveitarfélaga um gjaldskrár
sinar”.
Þjóðviljinn og þjóðin
Rétt er aö upplýsa lesendur
blaösins um nokkur atriöi, sem af
ókunnugieik hafa skolast til hjá
blaöinu aö þvi er ætla verður.
1 stjórn Sambands isl. sveitar-
félaga sitja ekki fulltrúar til-
nefndir af ákveönum sveitar-
félögum, heldur fulltrúar kjörnir
af landsþingi, 9 aö tölu.
A landsþingi i haust tók ég af
heilum hug undir tillögu alls-
herjarnefndar flutta af öddu
Seltjamarness sat
hjá um heimild til
útsvarshœkkunar
Stjórn Sambands Islenskrn
sveitarfélaga samþykktl nýlega
aö mrla meö drögum aö frum-
varpi um 1#% hækkun álags á út-
svar, en félagsmálaráöherra .
hefur kynnt frumvarpiö fyrir J
samráöherrum sinum. Sam-
þykktln var gerö samhljóöa, en
fulltrúi Seltjarnarness sat hjá og
geröl sérstaka grein fyrlr atkvcöi
Báru Sigfúsdóttur, borgarfull-
trúa, svo hljóðandi:
”XI landsþing Sambands Isl.
sveitarfélaga vekur athygli
stjórnvalda á þeirri lækkun raun-
tekna sveitarfélaga af útsvörum
og aöstöðugjöldum, sem oröiö
hefur undanfarin ár, þar eö
álagningarprósenta þessara
gjalda hefur ekki hækkaö, þótt
aukin veröbólga milli ára gefi til-
efni til. — og siðan — Skorar
landsþingiö á Alþingi aö gera þær
breytingar á lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga, að sveitar-
félögin nái þeim rauntekjum af
þessum tekjustofnum, sem þeim
voru ætlaðir viö setninu lag-
anna.”
Alla þessa tillögu vil ég gera aö
minni og samþykki hana fúslega.
Siðan þetta landsþing var hald-
ið hefur ný „vinstri stjórn” tekiö
til hendinni i skattamálum á þann
veg, aö ég er viss um aö fleirum
en mér og Tómasi Arnasyni,
finnst nóg komiö.eöa hvaö finnst
þjóðinni?
Að halda sjó
Oft hefur þjóbarskútunni verið
siglt meira af kappi en forsjá og
er þessi stjórn ekki ein I sökinni,
þótt erfitt geti reynst aö finna for-
dæmi.
Viö sem reynum aö „halda sjó”
það er að segja beitum okkur
þeim sjálfsaga, sem fylgir þvi aö
stjórna, ættum að vera stjórn-
völdum þóknanlegir, með þvi aö
reyna eftir mætti að draga úr
skattheimtu, þegar greiöslugeta
almennings minnkar.
Viö teljum, sem fyrr, aö fyrst
komi þarfir einstaklingsins, siöan
sveitarfélagsins og þar næst
rikisins, þó þessu viröist öfugt
farið. En tökum aftur undir með
Tómasi, „okkur finnst nóg kom-
iö”.
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri
AUGLY SINGASÍMI
ÞJÓÐVILJANS ER
81333