Þjóðviljinn - 04.02.1979, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 04.02.1979, Qupperneq 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. febrúar 1979 Sunnudagur 4. febrúar 1979 ÞJÓÐVILJINN — StDA 13 Það vakti nokkra athygli að rétt fyrir jólin lauk stúdentsprófi frá Hamrahliðarskólanum 19 ára piltur, sem frá bernsku hefur verið bundinn við hjólastól. Ætla má, að dvölin i hjólastólnum hafi talsvert háð honum við námið þótt ekki beri próf- einkunnimar raunar vottumþað. Hann reyndist, er upp var staðið, þriðji i röðinni ofanfrá af þeim 71 stúdent sem útskrifaðist frá Hamrahliðarskólanum að þessu sinni. Þessi piltur heitir Jóhann Pétur Sveinsson frá Varmalæk í Skaga- firöi, sonur Sveins bónda Jóhannssonar frá Mælifellsá i Lýtingsstaðaherppi og Herdisar Björnsdóttur frá Stóru-ökrum i Blönduhliö. Er ættfólk hans þeirrar geröar aö kunnugum kemur ekki á óvart kjarkur Jóhanns Péturs og dugnaöur. Aö loknu prófi fór Jóhann meö foreldrum sinum noröur aö Varmalæk og dvaldist þar yfir jólin og frameftir janúarmánuöi. Undirrituöum lék forvitni á aö fregna af námi Jóhanns og fram- tiöarfyrirætlunum og brá sér þvl til fundar viö hann fram i Varma- læk einn lognkyrran dag milli jóla og nýars. baö var eins og fyrri daginn notalegt aö setjast niöur i eld- húsinu hjá þeim Sveini og Hebbu. Þvi miöur naut ég þó ekki langra samræöna viö Svein aö þessu sinni. Hann var á förum á safnaöarfund til þess aö passa upp á aö hann yrði ekki kosinn i sóknarnefndina. En nú er aö vikja aö erindinu. Rætt við Jóhann Pétur Sveinsson frá Varmalœk í Skagafirði um nám hans, framtíðar- áform o.fl. Jóhann Pétur Sveinsson AÐALATRIÐIÐ ER AÐ MISSA EKKI KJARKINN í hjólastól frá 6-7 ára aldri — Til aö byrja meö óx ég og þroskaðist llkamlega meö eöli- legum hætti, sagöi Jóhann Pétur. Én þriggja ára gamall varö ég fyrir þvi óláni, aö fá liöagigt þótt ekki virtist kannski mjög alvar- leg I fyrstu. Fátt var þó til ráöa þá gegn þeim sjúkdómi og svo henti' nlig paö slys aö lærbrotna illa. Kostaöi mig þaö mikla legu og viö þaö færöist liöagigtin i aukana þar sem ég gat ekkert liökaö mig meö hreyfingum. Er skemmst af þvi aö segja, aö siöan hef ég ekki getaöstigiö i fæturna en eingöngu oröiö aö bera mig um i hjólastól frá 6-7 ára aldri. Aö þvi kom aö sjálfsögöu, aö ég var sendur suöur til lækninga og dvaldi leng'i vél á" Lahdsþitalan- um. A Landspltalanum var ég aö sjálfsögöu I allskonar æfingum og þjálfun þar til 1975 aö ég fluttist I Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar viö Hátún. Hefur þaö veriö mitt annaö heimili siöan en lögheimili hef ég alltaf Útt á Varmalæk og dvaldist þar ööru hvoru. — Hvenær tókstu svo þá ákvöröun aö fara I menntaskóla? — baö er nú kannski ekki svo auövelt aö timasetja þaö nákvæmlega. Þetta varö svona smátt og smátt aö föstum ásetn- ingi. Mér var oröiö þaö ljóst, aö viö hjólastólinn mundi ég aldrei losna. Hinsvegar sætti ég mig illa viö þá hugsun, aö geta ekki aö einhverju leyti oröiö sjálfbjarga i lifinu, hlutgengur viö einhver störf. Ljóst var, aö likamlegri vinnu mundi ég jafnan eiga erfitt eöa ómöglegt meö aö sinna, fremur einhverjum andlegum störfum þvl ég fann ekki betur en hausinn væri I lagi. Og lykillinn aö öllum slikum störfum i þjóö- félaginu er eitthvert nám. Og svo ákvaö ég þá aö fara I mennta- skóla. — Hversvegna varö Hamra- hliöarskóli fyrir valinu? — Ja, þaö stóö nú eiginlega þannig á þvi, aö fyrst var ég i Vöröuskóla. Þaöan tók ég lands- próf. Þaö gekk vel og jók mér kjark til átaka viö frekara nám. Nokkrir af félögum minum úr Vöröuskóla ákváöu aö fara I Hamrahliöarskólann og kannski hefur þaö ráöiö úrslitum um aö ég fór þangaö einnig. Svo kom þaö enn til, aö um húsakynni Hamra- hliöarskóians er auöveldara fyrir hjólastólafólk aö bera sig en hinna menntaskólanna. Rétt er aö þaö komi hér fram aö námiö undir fyrri hluta landsprófs stundaöi ég á Landspitalanum. Ótal hendur til hjálpar — Hver sá þér fyrir fari I skól- ann og úr? — Þaö geröi fatlaöur maöur, Gunnar Sigurjónsson. Inn i skóla- húsiö fór ég alltaf gegnum Ibúö húsvaröarins, Jóhanns Hjálmarssonar frá Ljósalandi I Skagafiröi. Og úr þvi aö viö erum aö rabba þetta þá vil ég taka þaö sérstakleea fram, aö Jóhanni og konu hans, Mariu Benedikts- dóttur, á ég ákaflega mikiö aö þakka fyrir mikla og marghátt- aöa aöstoö. Þaö má segja, aö þau hafi reynst mér eins og aörir for- eldrar. Ég þurfti aö sjálfsögöu á hjálp aö halda til þess aö komast um húsið, bæöi upp i kennslustof- urnar á efri hæöinni og einnig niöur tröppur, sem liggja aö stof- unum á neöri hæöinni. En ég þurfti aldrei aö kviöa fyrir þvi aö komast þaö. Min biðu alltaf margar framréttar hendur skóla- systkina minna hvenær sem ég þurfti á hjálp aö halda til aö kom- ast þaö. Framundan er Háskól- inn — Og nú þegar þú hefur náö þessum áfanga hygguröu þá ekki á frekara nám? — Jú, ekki get ég neitaö þvi. Ég lit á þaö, sem lokiö er, sem undir- búning aö frekara námi. Sannast aö segja hef ég fullan hug á aö Mín biöu alltaf margar framréttar hendur skólasystkina minna hvenær sem ég þurfti á hjálp þeirra aö halda. •• innrita mig i Háskólann I haust. — Hefurðu ákveöiö hvaö þú leggur þar fyrir þig? — Nei, um þaö hef ég nú ekki tekið fullnaöarákvöröun. Sviöiö er nú náttúrlega þrengra en hjá ýmsum öörum þvi sumar greinar er ég ekki fær um aö fást viö vegna fötlunarinnar. Trúlega veröur annaö hvort lögfræöi eöa viöskiptafræöi fyrir valinu. En þetta er nú allt svona i athugun hjá mér ennþá. Kostar sitt — Er það ekki erfitt fyrir þig fjárhagslega aö standa straum af þessu námi, hvernig er þaö t.d. meö aksturskostnaðinn? — Heimilissveit min, Lýtinga- staöahreppurinn, greiöir aksturs- kostnaöinn. Svo hef ég fengiö þennan svonefnda dreifbýlisstyrk þar sem ég stunda nám hér i Reykjavik og auk þess hef ég, nú upp á siðkastiö, fengiö 10 þús. kr. i dagpeninga á manuöi. Framanaf var það lægri upphæð en er oröin þetta nú. Þessi aöstoö hjálpaði mér auövitaö mikiö. En bóka- • • Ég mun hafa veriö eitthvaö 6-1 ára þegar ég læröi mannganginn og kennarinn var hún amma mín. Mér finnst skákin mjög skemmtilegt og þroskandi tómstundagaman • • kostinn varö ég aö sjá um sjálfur og hann er oröinn býsna kostnaöarsamur. Mikil framför — Nu ert þú I rafmagnshjóla- stól, sem þú getur meö einu litlu handtaki sveiflaö i allar áttir, hefuröu alltaf haft slikan stól? — Nei, nei. Framanaf haföi ég aöeins stól, sem varö aö ýta áfram af öörum eöa vinda, ef maöur haföi nægan mátt i hönd- unum til þess. En það gat ég aldrei. Ég varö alltaf aö bera mig um i þeim stól meö annara aö- stoö. En svo fékk ég þennan raf- magnsstól og viö þaö varö ég ,,fær allra minna feröa”, miöað viö þaö, sem áöur var. Þaö er engan veginn sambærilegt fyrir þá, sem búa viö samskonar fötlun og ég. Nú er ég mun betur sjálf- bjarga en áöur. Hyggur á bilpróf — Nú eru margir fatlaöir búnir aö eignast bila. Mundir þú treysta þér til aö aka ef þú ættir bil? — Þaö vill nú svo til, aö ég er búinn aö kaupa mér bil og þaö er engan veginn vonlaust aö hægt verði aö útbúa hann þannig, aö ég geti ekiö honum. Bilinn keypti ég fyrir ári siöan. Og ég hef hugsaö mér aö reyna viö bilpróf seinni- partinn I vetur eöa i vor. Þaö er áreiöanlega ákaflega mikils viröi fyrir þá, sem fatlaöir eru, aö eiga bil, geti þeir á annað borö ekiö sjálfir. Þeir, sem reynt hafa, segja mér aö þaö sé allt annaö lif. — Var ekki strembiö fyrir þig að kljúfa bilakaupin peningalega jafnhliöa náminu? — Jú, náttúrlega má segja þaö. Ég fékk eftirgefna 1 milj. kr. en varö aö greiöa úr eigin vasa 2,4- 2,5 milj. Þó held ég aö sjálf kaup- in séu ekki þaö erfiöasta heldur reksturinn, bensin, skattar, tryggingar. Þaö eru miklar upp- hæðir. Og þá vaknar spurningin hvort ekki sé hægt að liöka eitthvaö til fyrir fatlaöa meö þennan kostnaö. Bilinn er ekki aöeins til ánægju og þæginda fyrir fatlaöa og er þó ekki litils viröi, — hann auöveldar þeim einnig aö taka þátt I at- vinnulifinu, aö skapa verömæti fyrir þjóöarbúiö og greiöa þannig a.m.k. eitthvaö til baka upp I þaö, sem þeim kann aö vera Ivilnaö umfram þá, sem full- hraustir eru. — Nú ert þú kominn hér noröur Jóhann, hefuröu hugsaö þér aö fara bráölega suöur aftur? — Já, ég býst viö aö fara fljót- lega eftir áramót. Þá þarf ég aö fara aö stunda æfingar af kappi. Ég gat minna sinnt þeim en skyldi á meöan ég var sem uppteknastur viö námiö. Þetta vildi gjarnan rekast dálitiö á. Og svo er það skákin En Jóhann Pétur hefur ekki aöeins vakiö athygli sem mjög duglegur námsmaöur. Hann hefur einnig iökaö skáklistina meö góöum árangri. — Hvenær byrjaöir þú aö tefla, Jóhann? — Þaö er nú nokkuö langt siöan ég læröi mannganginn, eins og sagt er. Ég mun þá hafa verið 6 eöa 7 ára og kennarinn var hún amma min. Sfðan iökaöi ég þetta svona af og til.en byrjaöi þó ekki aö tefla að neinu ráöi fyrr en ég kom i Hamrahliöarskólann. Aö þvi kom svo, aö ég fór aö taka þátt I taflmótum og eru þau nú orðin þónokkuö mörg, sem ég hef veriö þátttakandi I.Má t.d. nefna skákkeppni hjá Mjölni, Taflfélagi Reykjavikur og nú, þegar ég kem suöur, hef ég hug á aö taka þátt I Skákþingi Reykjavikur og mun þá trúlega tefla þar i C-flokki. Mér finnst skákin ákaflega skemmtilegt og þroskandi tóm- stundagaman. • . — Mér skilst á öllu aö þú litir tilveruna ekki sérlega dökkum augum, Jóhann, þrátt fyrir fötlun þina. — Nei, ég þykist ekki gera þaö. Auövitaö er ég illa vængbrotinn, en viö þvi veröur nú einu sinni ekki gert. Aöalatriöiö er aö missa ekki kjarkinn. —mhg Bókmenntaverölaun norrænna kvenna: Mótmæli gegn bokrnenntakarlræði N oröurlandaráðs Ivar Lo-Johánsson hlaut bókmenntaverð- laun Norðurlanda 1979. tJthlutun þessara verð- launa varð þó tilefni annarra bókmennta- verðlauna; Martha Tik- kanen hlaut bókmennta- verðlaun norrænna kyenna, en hópur nor- rænna kvenbókmennta- fræðinga samþykkti á ráðstefnu i Dröbak, Noregi að veita einum kvenrithöfundi verð- laun, og varð Martha Tikkanen fyrir valinu, fyrir ljóðabók sina, „Ástarsaga aldarinn- ar”. Bókmenntaverð- launum þessum var fyrst og fremst hleypt af stokkunum til að mót- mæla karlræði þvi, sem einkennir bókmennta- verðlaun Norðurlanda. f njðurstööum kvenritahöf- undanna sem þinguöu i Dröbak, segir m.a.: „Allt frá þvi aö bókmennta- verðlaunum Noröurlanda var fyrst úthlutaö 1962, hafa aöeins rithöfundar af karlkyni hlotiö verölaun, og einungis hafa karl- menn átt sæti i verölaunanefnd- inni. Hópur norrænna kvenbók- menntafræöinga hefur þess vegna ákveöið aö veita kvenrit- höfundi frá Noröurlöndum sér- stök verðlaun til mótvægis viö bókmenntaverölaun Noröur- landa. Viö höfum hafið söfnun og hvetjum aörarkonur aögera slikt hið sama”. Alitiö er undirritaö af Susanne Fabricius, Danmörku, Ase Hiort Lervik, Noregi, Helgu Kress, Is- landi og Birgitte Holm, Sviþjóö. Þeir, sem hafa áhuga á aö sendapeninga, eöa hafa samband við hópinn, geta skrifað til: Martha Tikkanen Nordisk kvinners litteraturpris Postboks 1092-9001 Tromsö Noregi. Ástarsaga aldarinnar En hver er Martha Tikkanen? Hún ersænskfinnsk og fæddist ár- ið 1935. Hún hefur gefiö út fjórar skáldsögurogheitirsúfyrsta „Nú i morgun” og er tileinkuö upp- þvottavélinni hennar, sem er af geröinni Constructa. Ljóðabókin, eða ljóöasafniö „Astarsaga aldarinnar”, sem kom út i fyrra er opinská lýsing á sambúðhennar við eiginmanninn Henrik Tikkanen, sem er þekktur rithöfundur og teiknari i Finn- landi, og hefur átt við ofdrykkju- vandamál að strlöa. Ljóöasafniö spannar yfir öll þau vandamái, sem felast i sambúö hjóna, þar sem konan er hin sjálfkjörna vinnukona á heimilinu en maö- urinn reynir aö komast áfram i lifinuogöölast fé og frama. Ast, hatur, vonbrigöi og önnur tilfinn- ingamál, sem einkenna hjóna- bandið, eru einnig þemu, sem ljóðin byggja mikið á. I heild má segja, að ljóöabók Mörthu Tik- kanen sé uppgjör viö mann sinn og lif sitt i hjónabandi. Hið hefð- bundna lifsmynstur kvenna fyrr og nú er einnig tekið til umræöu. Ljóðasafniö endar á hvatningu til allra að berjast gegn sjónarmiö- um i þjóöfélaginu, sem kúga kynjasamskiptin og von um baráttu gegn hinni vondu sam- visku, sem sifellt þjáir okkur. Martha Tikkanen hefur fyrst og fremst veriö þekkt hingaö til fyrir bók sina „Karlmönnum veröur ekki nauðgaö”, sem finnski leik- stjórinn Jörn Donner kvikmynd- aði fyrir nokkrum árum. -im Tvö ljóð úr Ástasögu aldarinnar eftir Martha Tikkanen Fyrir umþaðbil tíu árum þegar hinar ótrúlegu orkulindir smábarnamömmunnar voru nær tæmdar og ég reyndi í örvæntingu að biðja þig að taka þinn hluta og ábyrgð á því sem beggja er hlustaðir þú aldrei á mig en sagðir að ég væri smámunasöm sem rifist þegar þú ættir fullt í fangi með að skapa þér nafn Ég skildi þó aldrei af hverju þú þráaðist við að segja að þú elskaðir mig þegar þú tókst ekki einu sinni eftir því að brátt yrði ekkert eftir af mér til að elska Síðan skapaðir þú þér nafn meðan ég stóð með vitin full af veruleik I dag þegar þú ert nafn ertu einnig gagnrýndur fyrir skort á innlifun og fyrir þekkingarleysi á veruleikanum Og nú kemur þú til min og vilt að ég segi þér hvaða veruleik þær tala um þessar nýju manneskjur (Þýðing: -im) Færðu mér ekki rósir taktu af borðinu i staðinn Færðu mér ekki rósir Ijúgðu minna i staðinn. Færðu mér ekki rósir hiustaðu á mig í staðinn elskaðu mig minna trúðu á mig meira Færðu mér ekki rósir! (Þýðing: — im)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.