Þjóðviljinn - 04.02.1979, Page 14

Þjóðviljinn - 04.02.1979, Page 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. febrúar 1979 Um hnignun flokksræðisins og afleiðingar hennar Hver f j andinn varð af háttvirtum kjósendum? Sigurvegarar í prófkjörum Sumirhinna yngri þingmanna Alþýöuflokksins hafa lagt mikla áherslu á þaB, aB þeir séu eigin- lega ekki þingflokkur heldur „bandalag manna sem unnu sigur I prófkjörum”. Þetta þyk- ir þeim bera vott um hnignun flokksræBis sem svo hefur veriB nefnt og hefur veriB mjög I tisku aB skamma um nokkurra ára skeiB. Hér er um aB ræBa vissa amrikaniseringu á stjórnmála- lifi — hvergi á formúlan „bandalag sigurvegara i próf- kjörum” eins vel viö og þegar lýst er hinum tveim stóru flokk- um Bandarikjanna. Þar er hnignun flokkanna mjög langt komin, en þeim mun meira fer fyrir pólitiskum fjölmiölaslag einstaklinga, sem hafa tak- markaöan áhuga eöa möguleika á stefnumótun á landsmæli- kvarBa. Þaö er þvi ómaksins vert aö minna nokkuö á þá þróun sem oröiö hefur I Bandarikjunum. Ekki sist vegna þess aö þvi fer fjarri aö hnignun flokkanna hafi haft jákvæö áhrif — hvort sem væri á pólitiskan áhuga eöa þá pólitiska þátttöku. Tveir þriðju sitja heima Svo er nú komiö aö jafnvel i þvi tveggja flokka kerfi sem viö lýöi er i landinu reynist meö hverju ári erfiöara aö komast aö einhverjum pólitiskum meirihlutavilja, blátt áfram vegna þess aö háttvirtir kjós- endur sitja heima. Þaö voru innan viö 28% atkvæöisbærra Bandarikjamanna sem kusu Jimmy Carter til forseta. Koch borgarstjóri fékk umboö sitt til aö stjórna risaborginni New York meö atkvæöum aöeins 12% kjósenda. 1 nýafstöönum kosningum til þings greiddu tveir kjósendur af hverjum þrem alls ekki atkvæöi — enda þótt frambjóöendur hafi aldrei eytt jafn miklu fé og nú til aö koma sér á framfæri i sjónvarpi og öörum fjölmiölum. Þaö er ekki heldur hægt að segja, aö fólkiö sé barasta oröiö hundleitt á þeirri feguröar- og sniöugheitakeppni milli ein- staklinga sem fram fer I fjöl- miðlum fyrir kosningar. 1 mörgum rfkjum hefur fariö fram almenn atkvæöagreiösla um svonefnda skattauppreisn og þar meö tillögur um stór- fellda lækkun skatta. En aöeins i einu riki Bandarikjanna tók meira en helmingur kjósenda þátt 1 atkvæöagreiðslunni um þessi mál, sem óneitanlega varöa afkomu hvers einasta manns. Skrýtnir fuglar Áöur fyrr mátti útskýra lé- lega þátttöku I kosningum meö þvi, aö fátæklingar, og þá eink- um svartir fátæklingar, hinir óskólagengnu, mættu ekki á kjörstaö. Þetta átti vel viö um 1950. En siöan þá hefur and- staöa hvitra manna gegn þátt- töku blökkumanna 1 kosningum i Suðurrlkjunum veriö kveöin niöur aö verulegu leyti, kosn- ingaaldur hefur veriö lækkaöur i átján ár, skrásetning á kjör- skrár hefur veriö gerö einfald- ari. Samt fer kjósandi Banda- rikjamönnum hraöfækkandi. Og athuganir félagsfræöinga sýna þaö mjög skýrt, að mennta- menn og efnaö millistéttarfólk flykkist I stórum hópum i raöir þeirra sem sitja heima þegar blásiö er til kosninga. Þaö er talin fuilkomlega eölileg og sjálfsögö afstaöa hvar sem er i samfélaginu aö sitja heima. Eiginlegir kjósendur eru hins- vegar minnihlutahópur. Kannski veröa þeir innan tiöar orönir „skrýtnir fuglar” i vit- und almennings. 1 gamla daga voru menn ekki i neinum vafa um þaö hvar þeir væru staddir á hinu pólitiska landabréfi. Einn af öldunga - deildarþingmönnum Repúblik- ana seint á siöustu öld, George F. Hoar, komst t.d. svo aö oröi: „Þeir sem vinna góö verk i kirkjum, þeir sem rækta sitt eigiö land, þeir sem fóru i striöiö og björguöu heiöri þjóöarinnar finna sér staö I Repúblikana- flokknum. Meöan þrælahaldar- inn fyrrverandi, kráreigandinn, kosningasvindlarinn og glæpa- lýöur stórborganna, þeir sem geta hvorki lesið né skrifaö, finna sér aölilegan samastaö I Demðkrataflokknum”. Flokk- arnir voru eins og viöa annars- staöar einskonar veraldlegar kirkjur meö helgum möhnum, helgisiöum, kreddum, umbun og refsingu. ÝYYYYfÝVYf^rvr' Fillinn og múlasninn ( tákn stóru flokkanna tveggja) eru horfnir og hvar má ég höföi halla? Ég þori aö veöja aö ef ég ætti miljón doiiara gæti ég leigt mér fjöl- miölastjóra og látiö þig kjósa mig... SUNNUDAGSPISTILL Veraldlegar kirkjur hrundar Aö sjálfsögöu ér auövelt aö segja sem svo aö margt af þeim ofstopa hafi mátt missa sig. En enginn veit hvaö átt hefur fyrr en misst hefur. Nú eru stjórn- málafræöingar sammála um aö flokkarnir séu I rústum. Þaö er varla aö frambjóöendur til þings nenni lengur aö skirskota til þess, aö þeir séu tengdir ákveönum flokki. Allir eru „óháöir”, frambjóöendurnir jafnt sem kjósendur. Frambjóö- endur reyna helst að vekja at- hygli á sér meö þvi aö hamra á einhverju einstöku máli sem á dagskrá er á hverjum staö; sjálf fjölmiðlatæknin beinir athygl- inni fyrst og fremst aö þeim sjálfum, að hanaslag einstakl- inga, ekki málefnum. A hinn bóginn eru tengsli einstakra hagsmunahópa viö flokkana losaralegri en fyrr. Stórauö- valdiö sem hefur vanalega beint stuöningi sinum einkum til Repúblikanaflokksins telur sér ekki lengur sérstakan hag i aö eiga „sinn eigin” flokk. Demó- krataflokkurinn hefur alltaf veriö bandalag ýmiskonar hópa, og þaö hefur liklega aldrei veriö eins margklofiö og sjálfu sér sundurþykkt og nú. Finna til vanmáttar Sem fyrr segir eru þeir sem heima sitja á kjördag úr öllum stéttum og á öllum aldri. Skoö- anakannanir benda til þess, að þeir sem enn kjósa séu öörum fremur þeir sem enn hafa trú á þvi aö þaö sé ómaksins vert aö gera áætlanir um framtiö sina. En þeir sem ekki hafa slika trú lengur og telja aö lif þeirra sé fyrst og fremst háö ýmsum til- viljunum og happadrætti, þeir eru liklegri til aö kæra sig koll- ótta um pólitik og hreyfa sig ekki á kjördag. Báöir hópar hafa heldur litiö álit á stjórnmálamönnum yfir- leitt. En mjög stór hluti þeirra, sem ekki kjósa, leggur áherslu á aö þeim finnist þeir vanmáttug- ir i pólitiskum efnum. Vinstri- sinnar eiga svo auövelt meö aö finna sinar skýringar á þessari útbreiddu vanmáttarkennd. Þeir munu þá leggja höfuö- áherslu á þaö, aö enda þótt vinstrihópar nokkrir séu til inn- an Demókrataflokksins, þá séu stóru flokkarnir tveir báöir há- borgaralegir flokkar „hins frjálsa framtaks” og þaö sé ekki von aö menn hafi verulegan áhuga á pólitisku kerfi sem i raun og veru ekki býöur upp á neina valkosti. Og sem fyrr seg- ir: almenningur er ekki aöeins löngu þreyttur á þvi hve litill munur er á stóru flokkunum tveim — hann er einnig þreyttur á „sigurvegurum I prófkjörum” sem hver um sig hafa hátt um nýtt pólitikt siðgæði, ný andlit, nýja vendi sem sópi best. En hvað sem þvi liöur: hnignun hinna pólitisku flokka hefur ekki eflt pólitiskan áhuga almennings, hún hefur heldur ekki bætt stjórnarfar og stjórnarhætti. Hvað sem um heföbundiö flokkakerfi má segja, þá var hægt að nota þaö til aö „skipuleggja möguleika, koma einhverjum starfsaga á' menn og hugmyndir” eins og Lance Morrow segir i vikublaö- inu Time. Nú sýnast allir óháðir — en þeir halda áfram aö vera háðir einhverjum hagsmuna- hópum, oftast þá einhverjum fjársterkum aöilum sem hafa lagt fé i rándýra kosningabar- áttu — um leið og þeir glutra niöur hæfileikanum til pólitisks samstarfs. Þingiö veröur eins og afmælisparti hjá fimm ára krökkum, segir sami höfundur. Þaö veröur meö hverju ári sem liður ófærara um aö móta eitt- hvaö sem likist stefnu I þeim málum sem allir hafa þó áhyggjur af eins og orkubruöl- inu og veröbólgunni. Rannsóknar- blaðamennska Aður en viö þetta efni er skiliö er rétt aö minna á eftirhreytur þeirrar siövæöingar sem rann- sóknablaöamennskan, sem náöi sinum frægasta árangri i Watergatemálinu, ýtti af staö. Margir héldu aö með henni gætu hafist betri timar; nú mundu strangari kröfur gerðar til þeirra sem sæktust eftir háum embættum. Þessi bylgja hefur oröiö skammvinnari en bjart- sýnir menn vildu. Time hefur tekiö saman nokkur dæmi i þessa veru. Charles Diggs heitir þingmaöur frá Detroit sem var sekur fundinn um 29 ákærur um misnotkun opinberra sjóöa — mánuöi siöar var hann endur- kosinn á þing i sinu kjördæmi meö 80% greiddra atkvæöa. Daniel Floods, þingmaöur frá Pennsylvaniu, sekur fundinn um aö hafa tekiö viö 60 þúsund dollurum i mútur var endurkos- inn meö 54% greiddra atkvæöa. Tveir þingmenn frá Kaliforniu, sem höföu tekiö viö „gjöfum” frá mútustjóra Suöur-Kóreu, Tongsun Park, voru endur- kjörnir meö góöum meirihluta. Meira aösegja Wany Hays, sem þurfti aö segja af sér þing- mennsku eftir aö upp komst um aö hann lét rikiö borga frillu sinni ágæt laun og varö þaö mál mjög frægt; Hays þessi er nú aö brölta upp á græna grein aftur og fann hann I þeim kosningum sem hér hafa veriö geröar aö umtalsefni sæti á þingi I Ohio. Syndin er lævis og lipur. AB eftir Árna Bergmann

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.