Þjóðviljinn - 11.02.1979, Blaðsíða 7
.flföl iainifa'1 .it
5
7USr.fcvA.iu3 ’ v:vtil.IIVCtCl*} —
Sunnudagur 11. febrdar 1979IÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Skólasýning opnuð í Ásgrímssafni í dag:
Þj óðsagnamy ndir
frá ýmsum skeiðum
I dag verður 15. skóla-
sýning Ásgrímssafns opn-
uð. Eins og undanfarin ár
er leitast við að gera sýn-
ingu þessa sem fjölþætt-
asta, og sýna hinar ýmsu
hliðar í listsköpun Ásgríms
Jónssonar og verkefnaval.
Sýndar eru í vinnustofu
listamannsins vatnslita- og
oliumyndir, einnig nokkrar
þjóðsagnateikningar. Við-
fangsefni eru m.a. lands-
lag^blóm, hestar og eldgos.
I heimili Asgrims er sýning á
þjóösagnamyndum frá ýmsum
timabilum, flestar málaöar meö
vatnslitum, en safniö hefur gert
sér far um aö kynna skólafólki
þessar merkilegu bókmenntir
okkar i myndlist Asgrims Jóns-
sonar. Þær voru honum óþrjót-
andi viöfangsefni allt hans ævi-
skeiö. Og siöasta verkiö sem hann
vann i, fjórum dögum fyrir andlát
sitt, þá veikur á sjúkrahúsi, er
þjóösagnateikning sem honum
tókst ekki aö ljúka viö. Hún er
ætiö sýnd á öllum sýningum
safnsins.
Guömundur Benediktsson
myndhöggvari aöstoöaöi viö val
mynda og sá um upphengingu
þeirra.
Þessar árlegu skólasýningar
Asgrimssafns viröast njóta vax-
andi vinsælda. Ýmsir skólar
gefa nemendum sinum tómstund
frá námi til þess aö skoöa lista-
verkagjöf Asgrims, hús hans og
heimili, sem er nákvæmlega i
sömu skoröum og þegar Ás-
grlmur hvarf þaöan, en heimili
hans er eina listamannaheimiliö
sem til sýnis er I Reykjavik.
Skólayfirvcld borgarinnar hafa
stuölaö aö heimsóknum nemenda
i söfn, enda viröist slik list-
kynning sjálfsagöur þáttur i námi
uppvaxandi kynslóöar.
Breyting hefur oröiö á stjórn
Asgrimssafns. Hjörleifur Sig-
urösson listmálari, sem veriö
hefur I stjórn safnsins undanfarin
ár, og tók viö þvi starfi af Jóni
bróöur Asgrims, er nú á förum til
útlanda um óákveöinn tima. Viö
Siöasta mynd Asgrlms Jónssonar. ófullgerö teikning úr ævintýrinu um Sigurö Kóngsson, sem Asgrlmur
vann aö fjórum dögum fyrir andiátiö.
starfi hans á meöan tekur Guö-
mundur Benediktsson mynd-
höggvari.
Þegar Asgrlmur Jónsson kunn-
geröi erföaskrá sina á sinni tiö
óskaöi hann þess aö i stjórn safns-
ins tæki sæti frænka hans Guö-
laug Jónsdóttir hjúkrunarkona.
En vegna heilsubrests lætur hún
af þvl starfi nú, en viö þvi tekur
frænka hans, Sigrún Guömunds-
dóttir kennari.
Skólasýningin er öllum opin
sunnudaga, þriöjudaga- og
fimmt.udaga frá kl. 1.30-4.
Sértima geta skólar pantaö hjá
forstööukonu Ásgrimssafns i
sima 14090 og 13644. Aögangur
ókeypis. Asgrimssafn Bergstaöa-
stræti 74.
e>
ro
Hefurðu heyrt sögumar
sem ganga umVolvo?
Volvo „kryppan" kom mörgum á
óvart á íslandsmótinu í sandspyrnu í
september síðastliðnum. Sagan segir
að „kryppan" hafi hafnað í fyrsta sæti í
sínum flokki, fólksbílaflokki A8.
Volvo 343 með 138 ha. turbodiesel,
XD-1, setti heimsmet í hraðakstri í flokki
dieselbíla með 2ja lítra rúmmáli, á
Landvettersflugvelli. Metið er 209,18
km/klst. Fyrra metið 205,8 km/klst. var
sett í Bandaríkjunum árið 1972.
í sandspyrnumótinu var Volvo 144
einnig sigursæll. Hann komst í fyrsta
sæti í sínum flokki, flokki 4B, en sá sigur
kom fæstum á óvart, að minnsta kosti
ekki neinum, sem þekkja kosti 144.
Svo má líka bæta við þessa sögu,
að tveir fyrstu bátarnir sem unnu sjó-
rallið í haust, voru búnir Volvo Penta
vélum af gerðinni AQ 200/280.
Volvo 244 komst lengst í sínum
stærðarflokki í sparaksturskeppninni í
haust. Volvoinn komst 63,01 km — og
eyddi aðeins 7,94 lítrum á hverja 100
km.
í dag er Volvo 244 söluhæsta bifreiðin
á fslandi fyrstu 9 mánuði ársins. í heild-
arbílaeign landsmanna er Volvo nr. 4.
Fyrir 10 árum var Volvo í níunda sæti.
íslendingar hafa alltaf haft gaman af
góðum sögum. Það besta við sögurnar
okkar er samt það, að þær eru allar
dagsannar.
BVELTIR HF
■&H Suðurlandsbraut 16-Sími 35200