Þjóðviljinn - 16.03.1979, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 16.03.1979, Blaðsíða 3
Föstudagur 16. mars 1979 WÓÐVILJINN — SIÐA 3 Nemendur Hótel- og veitingaskólans œtla aö kynna sýningu sina i miö- bœnum Idag og hafa útbúiöþessi spjöld I þvi skyni. (Mynd: Leifur) Heilsufars og kökugerðariist Nemendasýning Hótel- og veit- ingaskóia tslands veröur haldin á Hótei Esju um helgina. Nemendur kynna matartilbún- ing, borðlagningu og skreytingar viö ýmis tækifæri. Einnig veröa nemendur á staönum til aö veita upplýsingar og svara fyrirspurn- um. Ýmsar nýjungar veröa kynntar á sýningunni. Kjötbúö Suöurvers kynnir heiisufars og veröur gest- um boðiö upp á „heilsulokur”, þ.e. heilsubrauösamlokur meö heilsufarsi. Mjólkursamsalan kynnir tvær nýjar ístegundir, Ragnars bakari i Keflavik sýnir nýjungar I kökuskreytingum og heilsubrauð og Islensk matvæli kynna nýjan slldarrétt. Ýmis fyrirtæki kynna vörur sinar á sýningunni, sem nemend- ur sögöu aö væri hin fjölbreytt- asta sem skólinn heföi haldiö. Bakarar sýna kökugeröarlist og veitingahús af Reykjanessvæöi sýna kúnstir slnar. Seldar veröa veitingar og efnt veröur til happ- drættis með góöum vinningum. Sýningin á Hótel Esju veröur opin laugardaginn 17. mars kl. 14—19 og sunnudaginn 18. mars kl.10—19. Aögangseyrir er 300kr. en ókeypis fyrir börn yngri en 12 ára. —eös. SÁÁ vill Silungapoll SAA er oröiö afhuga KcHpjUfs- þar meöferöarheimiii fyrir sTmtök ÍTueamanna un SAA er oröiö afhuga Korpúlfs- stööum, en eins og skýrt var frá i Þjóöviijanum fyrir skemmstu, sóttu samtökin um aö fá aö reka „Ljúkum verkinu” Þessa viku stendur yfir lands- söfnun til ágóöa fyrir sundlaugar- sjóö Sjálf sbjargar, lands- sambands fatlaöra. Þaö eru Hjálparstofnun kirkjunnar og Lionshreyfingin á islandi sem standa fyrir söfnuninni, undir yfirskriftinni „Ljúkum verkinu”. Eins og flestum landsmönnum er kunnugt hefur þaö veriö baráttumál Sjálfsbjargar um margra ára skeið aö koma upp sund- og æfingarlaug I tengslum við endurhæfingarstööina aö Hátúni 12 I Reykjavík. Grunnur sundlaugarinnar var steyptur árið 1966, en allar götur slöan hefur hann staöiö þar án þess aö fjármagn hafi fengist til þess aö halda framkvæmdum áfram. Það er mat lækna og sjúkra- þjálfara aö fá tæki séu nauösyn- legri viö endurhæfingu fatlaöra en sund- og æfingarlaug, og gefur því auga leið að fatlaöir hafa sýnt ótrúlega þolinmæði viö aö biöa eftir þvi aö aöstaöa þessi fengist. A þessu ári hefur greinilega orðiö vart aukins skilnings al- mennings á þessu málefni, og hafa framlög einstaklinga til sundlaugarbyggingarinnar veriö aö berast sföustu mánuði. Framlögum má koma á glró- reikning Hjálparstofnunar kirkj- unnar nr. 20005, á skrifstofti Hjálparstofnunarinnar, Biskups- stofu, Klapparstig 27, og til sóknarpresta um land allt. Frá aöalfundi Starfsmannafélags Reykjavikurborgar: Stjórnin treystir völd sín og skerðir lýðrœði Frá aöalfundi Starfsmanna- félags Reykjavíkurborgar, sem haldinn var á laugardaginn, kom ýmislegt fram sem veitir góöa innsýn I starfshættí stjórn- ar félagsins og formanns þess, Þórhalls Halldórssonar. Skammta sér rifleg laun Forystumenn félagsins viröast ganga I sjóöi þess ótæp- lega og m.a. skammta þér sér rlfleg laun. Þannig veitti formaður félagsins sér 2,1 miljón kr. I stjórnarlaun á sl. ári. Maöurinn er þó I fullu *arfi og á fullum launum hjá Reykja- vlkurborg sem heilbrigðis- fulltrúi og sinnir málefnum félagsins oft I vinnutlma sinum þar. Upphæö sú, sem hann skammtar sér I formannslaun á sl. ári er hærri en sumir starfs- menn Reykjavíkurborgar fengu fyrir sina 40 stunda vinnuviku árið 1978. Þá fékk gjaldkeri félagsins 1,3 miljónir i sinn hlut fyrir störf i þágu félagsins á sl. ári. 1 reikningum félagsins eru 6,6 miljónir skráðar sem launa- kostnaöurá skrifstofufélagsins. A skrifstofunni starfa þó aöeins tveir hálfsdagsmenn. Stjórnar- menn voru beðnir aö sundurliöa þennan kostnaö á aöalfundin- um, en gjaldkerinn neitaöi þvi meö öilu. A vegum Starfemannafélags- ins er starfandi sjóöur sem heit- ir Menningar- og kynningar- sjóöurinn. Af nafninu mætti ráöa aö tilgangur hans væri aö styrkja félagsmenn til námskeiöa eöa kynnisferöa. Svo er þó ekki, heldur fá vinir og vildarmenn stjórnarmanna úr honum fé til að nota I skemmti- ferðir til útlanda. Gjaldkerinn var spurður aö því á aöalfundin- um hvort styrkþegum sjóðsins væri ekki gert skylt aö gera ein- hverja grein fyrir þvl, hvaö þeir gerðu viö peningana. Hann svaraöi þvl til, að svo væri ekki. Alls ekki væri spurt um til hvers styrkurinn væri notaöur og gæti hann þess vegna farið I sólar- landaferöir! Hins vegar hefur aldrei verið gerö tilraun til aö auglýsa þennan sjóö, þannig aö mjög fáir féiagsmenn vita um aö þeir eigi þess kost aö fá styrk úr honum. Fréttabréf og ferðalag Formaöur og gjaldkeri félagsins eyddu 600 þúsund krónum til aö sækja ráösteftiu i Finnlandi á sl. ári, en þaö er jafnhá upphæb og fór I útgáfu fréttabréfs handa félagsmönn- um allt áriö. Félagsgjöldin á sl. ári voru alls hátt I 50 miljónir, en af þeim fara sem sagt aðeins 600 þúsund kr. til aö gefa út fréttabréfiö, en kemur út 3—4 sinnum á ári og er eina plaggiö sem félagsmenn fá frá félaginu. Bréfum ekki svarað A vegum félagsins starfar svonefnd starfskjaranefnd, en hún er samstarfenefnd milli félagsins og Reykjavikurborgar og sitja þrír frá hvorum aðila I nefndinni. Þessi nefnd fjallar um ýmis erindi sem henni berast frá borgarstarfsmönnum I sambandi viö launakjör og leiöréttingar á launaftokkum. ÞórhaUur formaöur sagöi á aöalfundinum og virtist telja þaö eöUlegt, aö flest erindi fengju neikvæöa afgreiöslu I nefndinni. Einnig kom þaö fram I máli formannsins, aö venja væri aö svara ekki bréfum þeirra félagsmanna sem fengju neikvæöa afgreiöslu. Hafa menn enda kvartaö yfir þvl inn- an félagsins aö bréfum þeirra væri ekki svaraö. Stjórnin reynir aö treysta völd sin meö þvl aö skeröa völd fulltrúaráös félagsins, sem kos- iö var á sl. ári, og gera þaö sem óvirkast. T.d. kom fram sú til- laga á aðalfundinum aö vara- fulltrúar i fulltrúaráöinu hafi atkvæðisrétt er þeir mæta á fundum, en tillagan var feUd. Hins vegar var samþykkt, aö fundur fulltrúaráös sé ekki lög- mætur nema a.m.k. 60% fulltrúa sæki fundinn, en áöur hafði veriö miðað viö 50% mæt- ingu. Þetta eykur þvi llkurnar á þvl að sllkir fundir veröi ógildir og vandalaust er fyrir stuön- ingsmenn ÞórhaUs aö ganga einfaldlega af fundi og ógilda hann þannig, ef svo horfir aö einhver „óæskileg” tillaga muni ná þar samþykki. A aöalfundinum kom fram til- laga um aö uppstillingarnefnd stingi aUtaf uppá helmingi fleiri frambjóöendum en kjósa á I stjórnarkjöri, þannig aö alltaf verði kosiö. Að sjálfsögðu var þessi tillaga felld af þeim Þórhallsmönnum. Og til aö reyna aö lögfesta vald formannsins enn frekar komu stuöningsmenn hans meö þá til- lögu, aö lögfest yröi aö formaöur félagsins verði jafn- framt formaöur samninga- nefndar þess. Þessi lagabreyt- ing náöi ekki fram aö ganga, þar eö hún hlaut ekki stuöning 3/4 fundarmanna. Þessar upplýsingar um aöal- fundinn hefur blaðiö frá aöilum innan „Nýrrar hreyfingar”, sem bauð fram lista til stjórnar- kjörs I Starfsmannafélagi Reykjavlkurborgar I fyrra. Þeir sögöu þaö augljóst, aö þeir sem félaginu ráöa, hafi á fundinum gert sitt ýtrasta tU aö auka völd stjórnarinnar og Þórhalls HaUdórssonar persónulega og skerða jafnframt lýðræöi innan félagsins. —eös ir meöferða'rheimili áfengissjúklinga. SAA-menn hafa falast eftir Silungapolli til sömu nota, en þar hefur verið rekiö barnaheimUi á vegum Rauöa krossins á sumrin, en húsiö er I eigu borgarinnar. Þaö er mjög illa fariö og mun kosta a.m.k. 10 miljónir króna aö gera þaö upp. Fyrir borgarráði lá á sama fundi og erindi SAA var tekiö fýrir, tillaga frá embættis- mönnum um að húsið yröi rifið, en þaö stendur mjög nærri vatns- bólum borgarinnar. Samtök áhugamanna um áfengisvandamál munu ekki mikla fyrir sér kostnað við endur- bygginguhússins þar sem ætlunin er að félagsmenn vinni viö það i sjálfboöavinnu að mestu leyti. Borgarráð ákvaö aö kynna SAA ástand hússins og kanna málið betur. Ekki hefur heldur veriö tekin afstaöa tU umsóknar NýUsta- safnsins um Korpúlfsstaöi, en ljóster aö skjalasafnborgarinnar sem þar hefur nokkurt húspláss mun á næstu árum þurfa aö auka viö sig þar. — AI Ibúðabyggðí Laugardahium? Eitt þeirra svæöa, sem skipu- lagsnefnd hefur nú tU athugunar sem nýbyggingas væöi innan gömlu borgarmarkanna er hluti Laugardaisins, þar sem i aðal- skipulagi er gert ráð fyrir opin- berum stofnunum á um 6 hektara svæöi. Jón Hjaltason veitingamaður og fleiri hafa falast eftir lóö á þessum staö undir keiluspilshús (bowling), og sagði Þóröur Þorbjarnarson borgarverk- fræðingur I gær aö ekki væri unnt aö taka afstööu til þess nú, þar sem skipulagsnefnd væri nú ,aö endurskoða fyrirhugaöa nýtingu alls svæöisins, vegna tillagna um þéttingu byggöar. 1 aðalskpulagi er gertráö fyrir þvi aö þarna risi t.d. menntaskóli, en hann er nú kominn inn i Sund (Vogaskóla), og því hafa komiö upp hugmyndir um að reisa þarna Ibúöabyggö. Siguröur Haröarson. formaöur Skipulagsnefndar sagöi I samtali við Þjóðviljann I gær aö ekkert heföi enn veriö ákveöiö um nýtingu svæöisins, sem væri eitt af mörgum sem skipulagsnefhd heföi nú tU skoöunar sem Ibúöar- svæöi. —AI. Banaslys á Siglufírði Þaö hörmulega slys varö á Siglufiröi á miövikudag aö 13 ára gamall piltur beiö bana af völdum raflosts I aöalspennistöö sem er rétt ofan viö bæinn. Pilturinn haföi ásamt tveimur öörum jafnöldrum stnum klifraö yfir tveggja mannhæöa háa girö- ingu sem er umhverfis spenni- stööina og slöan farið upp eftir spennibreyti. Kom hann viö leiðslu og beiö samstundis bana. Aö sögn lögreglunnar á Siglu-- firöi er giröingin rammgerö og greinilega merkt „Háspenna-llfs- hætta” og er rafmagn frá Skeiös- fossi I Fljótum —leitt um há- spennulinu inn I spennistööina. DrengUrinn hét Kolbeinn Kol- beinsson, sonur Kolbeins Friö- bjarnarsonar, formanns Verka- lýösfélagsins Vöku á Siglufiröi. AI Blikkiðjan Ásgaröi 1, Garðabæ önnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar biikksmíði. Gerum föst verðtilboð SÍMI 53468 Blaðberabíó Ungir fuilhugar Kappakstursmynd i litum. Sýnd i Hafnarbiói laugardaginn 17. mars kl. 13. MOÐVIUINN Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö and- lát og útför eiginmanns mins, fööur okkar, tengdafööur, afa og bróöur, Georgs Lúðvíkssonar framkvæmdastjóra Kvisthaga 23. Guðlaug L. Jónsdóttlr Margrét Georgsdóttir Lúövik S. Georgsson Ingibjörg Georgsdóttir GIsli Georgsson barnabörn og systkini. Sonja Garðarsdóttlr Reynir Jónsson Erla S. óskarsdóttir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.