Þjóðviljinn - 16.03.1979, Blaðsíða 16
Föstudagur 16. mars 1979
Aöalsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs-
menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, Utbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
^ 81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans I sima-
skrá.
Lands-
yirkjun
fær 5,2
miljarða
lán
1 gær var undirritaöur
lánssamningur i Reykjavik
milli Norræna fjárfestingar.-
bankans.sem aösetur hefur i
Helsingfors, og Landsvirkj-
unar. þar sem bankinn veitir
Landsvirkjun lán aö fjárhæö
allt aö jafnviröi 16 millj.
Bandarikjadollara (tæplega
5,2 milljörðum króna).
Lántaka þessi er liður I
fjármögnun virkjunar-
framkvæmdanna við
Hrauneyjafoss, en heildar-
kostnaður við virkjunina er
áætlaður um 140 miljónir
Bandarikjadollara (um 45
1/2 miljaröur króna) aö
meötöldum vöxtum i bygg-
ingartima. Hrauneyjarfoss-
virkjun er hönnuö fyrir 210
megawatta afl. 1 fyrri
áfanga virkjunarinnar veröa
tvær 70 megawatta vélasam-
stæður. Stefnt er að þvi, aö
önnur vélin veröi tekin i
rekstur haustið 1981 og hin
1981 til 1982.
Hverflar, rafalar og
mestur hluti rafbúnaðar
virkjunarinnar veröur keypt
ur af sænsku fyrirtækjunum
ASEA, Nohab-Bofors og
Karlstad Mekaniska Verk-
stad. Nokkur fyrirtæki, eink-
um fslensk en einnig dönsk
og sænsk, önnuðust I samein-
ingu fyrsta hluta virkjunar-
framkvæmdanna, sem fór
fram sumarið 1978 og fól i sér
gröft fyrir stöövarhúsi virkj-
unarinnar.
Lánstimi er 15 ár. Fyrstu 5
árin eru afborgunarlaus, og
fara endurgreiðslur fram
með jöfnum hálfsárslegum
greiðslum á siðustu 10 árum.
Landsvirkjun er annað
islenska fyrirtækiö, sem
Norræni fjárfestingarbank-
inn veitir lán. A árinu 1976
veitti bankinn Islenska járn-
blendifélaginu lán að fjár-
hæö 200 miljónir norskra
króna (12,8 miljarðir is-
lenskra króna) til byggingar
járnblendiverksmiðjunnar
að Grundartanga.
Bruni í V-
Húnavatnssýslu:
Fékk reyk-
eitrun
Bóndinn á Vatnsenda i V-
Hóp^Arni Jóhannesson, var i
gærdag fluttur til Reykjavik-
ur vegna reykeitrunar sem
hann fékk þegar kviknaði i
húsi hans I fyrrakvöld.
Liöan hans i gær var góö
og töldu læknar^á Borgar-
spitaianum aö honum heföi
ekki oröiö meint af eitrun-
inni.
Það var um hálf-tluleytiö i
fyrrakvöld að kviknaði 1
ibúðarhúsinu að Vatnsenda
og skemmdist það talsvert.
Slökk viliöiö kom frá
Hvammstanga og átti i
nokkrum erfiöleikum vegna
ófæröar, en greiðlega gekk
að slökkva eldinn. Talið er að
kviknað hafi I út frá oliuelda-
vél. Arni, sem býr einn á
jörðinni, var fluttur fyrst á
sjúkrahúsið á Hvammstanga
og slöan til Reykjavikur sem
fyrr segir.
—A1
Basar í
Torfunni
1 dag, föstudag kl. 9 árdegis
opna nemendur á 3. ári Mynd-
lista- og handiöaskóla tslands
basar i Bernhöftstorfu til ágóöa
fyrir skólaferöalag sem þeir
byggjast fara á næstunni. Ferö-
inni er heitið til New York, og
fjármagna nemendurnir hana
sjálfir aö öllu leyti.
Munirnir sem seldir verða á
basarnum eru allir unnir af
nemendunum sjálfum. Þarna
verða á boðstólum vatnslita- og
grafíkmyndir; keramikmunir,
sáldþrykk og ýmislegt fleira.
Einnig verður selt kaffi, vöfflur
og pönnukökur. Verði á þessum
veitingum verður stillt mjög I hóf.
Þá verða seldir happdrættismið-
ar, en happdrættið er lika liður i
fjáröflun til ferðarinnar. Vinn-'
ingar eru listaverk eftir kennara
MHI og aðra listamenn.
Basarinn verður opinn frá 9 til 7
föstudag, laugardag og sunnu-
dag.
Sighvatur og Matthías:
Veitast harkalega að
fréttamöimum útvarps
lumræöum utan dagskrár á AI-
þingi i gær kvörtuöu margir þing-
menn yfir fréttaflutningi rikis-
f jölmiölanna.
Þar komu fram alvarlegar
ásakanir i máli Sighvats Björg-
vinssonar og Matthiasar Bjarna-
sonar. Sighvatur býsnaðist mjög
yfir fréttaflutningi útvarps og
sjónvarps og lét i það skina að
sjónarmið Alþýðubandalagsins
hefðu haft algjöran forgang. Það
mun mála sannast að góð
frammistaða Lúðviks Jósepsson-
ar mun hafa hlaupið illa fyrir
brjóst krata, en öllu veigameira
er þó það að Alþýðuflokksmaður-
inn sem vissulega var talað við i
umræddum fréttatima útvarpsins
var Karl SteinarGuðnason. Hann
mun nú ekki eiga upp á pallborðið
hjá Sighvati og sumir þingmenn
krata seg ja að ástæðan til þess að
hann stóð að samþykkt ASÍ um
verðbótakaflann i frumvarpi
Olafs hafi verið sú að hann hafi
ekki verið nógu vel inni í mál-
unum vegna þess að hann hafði
ekki setið á Alþingi siðustu tvær
vikurnar.
Þó keyrði um þverbak hjá
Matthiasi Bjarnasyni þegar
hann sagði að stjórnarandstaðan
hefði aldrei verið jafn svivirði-
lega skilin útundan hjá þing-
fréttaritara útvarpsins og i vetur.
Þingfréttir væru hlutdrægar og
stundum beinlinis rangar.
Olafur Ragnar Grlmsson and-
mæltiþessum árásum þingmann-
annaá fréttamenn,og minnti á að
sl. þriðjudagskvöld hefu þrir ráð-
herrar Alþýðuflokksins talað I röð
i útvarpi og Steingrimur Her-
mannsson hefði flutt þjóðinni
ávarp af tröppum stjórnarráðs-
ins. Það sæti hins vegar ekki á
krötum að gagnrýna fréttaflutn-
ing þvi full ástæða væri til þess að
athuga tengsl AJþýðuflokks-
mannavið fréttastofurútvarps og
sjónvarps,aðsvomikluleyti sem
þau sæjust ekki I þingsölum.
Ólafur upplýsti að hann hefði
heyrt lesna I útvarpi á sunnu-
dagskvöld frétt um að fullt
samkomulag hefði náðst i rik-
stjórninni um efnahagsmál-
in. Þessi frétt hefði hins vegar
verið röng. Ólafur kvaðst hafa
hringt i fréttastofuna og spurt að
þvi hvaða heimild væri fýrir
fréttinni. Sá sem fyrir svörum
varð hafi neitað að gefa upp
heimildir og hafi hann sagt að
samkomulag hafi verið um það
við heimildarmann að nefna ekki
nafn hans. Sagði ólafur það vera
brot á reglum rikisútvarpsins um
fréttaflutning. Hann kvab það
hafa komið fram i samtali sinu
við fréttamanninn að þingmaður i
Alþýðuflokknum hafi veitt þessar
„upplýsingar” og sagði Ólafur
það ámælisvert að Alþýðuflokks-
mönnum héldist það uppi aðfæra
ríkisfjölmiðlunum skröksögur.
M jög var kallað fram i ræðu Ólafs
ogheimtuðu menn að hann nefndi
fréttamanninn sem hann talaði
við og upplýsti Ólafur að hann
héti Gunnar Eyþórsson. Brá nú
Sighvatur við og kvaðst hafa
hringt i' Gunnar og væri hann nú á
leiðinni niður i þinghús. Sighvatur
sagði Gunnar alfarið neita að
hafa sagt nokkuðá þessa leið við
ólaf og væri rétt að hann ræddi
við hann i stað þess „að bera
fram aðdróttanir á saklausan
mann”. í svari Ólafs en hann tal-
aði aftur áður en Gunnar birtist i
húsinu kvað hann einfaldast að
skera úr um þetta með þvi að
fréttastofan birti nöfn heimildar-
manna sinna. Aður hafði Ólafur
skorað á þann krataþingmann
sem flutt hefði fréttamönnum
þessa „frétt” að gefa sig fram.en
enginn varð til þess þótt mikils
óróa gætti hjá hinum „óbreyttu
þingmönnum Alþýðuflokksins”.
r
Ihaldið sýnir „ábyrga” stjórnarandstöðu í borgarstjórn:
Neita að skipa fulltrúa í við-
ræðunefnd um Landsvirkjun
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins börðustgegn því af mik-
illi hörku en litlum rökum i
borgarstjórn I gærkvöldi, að skip-
uð yrði af hálfu borgarinnar viö-
ræðunefnd til að ræða viö rikiö
um framtið Landsvirkjunar og
endurskoðun á sameignarsamn-
ingirikisog borgar, sem eiga sinn
hvorn helminginn i fyrirtækinu.
Eftir að samþykkt hafði verið
gegn 7 atkvæðum þeirra að kosin
yrði 5 manna viðræðunefnd með
fulltrúum allra flokka, lýstu
Sjálfstæðismenn þvi yfir að þeir
myndu ekki skipa fulltrúa frá sér
þvi þeir vildu ekki taka ábyrgð á
slikum viðræðum!
Sýndu borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins þvi rétt einusinni
hve „ábyrgir” þeir eru i ^tjórnar-
andstöðu sinni. I bókun þeirra
kom fram að yrðu þeir ekki sáttir
við niðurstöður viðræðnanna
myndu þeir fara fram á alls-
herjaratkvæðagreiðslu meðal
borgarbúa um hana.
Þessi hjákátlega afstaða Sjálf-
stæðisflokksins sætti mikilli
gagnrýni á fundinum. I bókun
meirihlutans segir, að þar sem
Reykjavikurborg eigi helminginn
i Landsvirkjun, geti ekki orðið
neitt af sameiningu Laxár-
virkjunar, I32ja kw. byggðalin-
anna og Landsvirkjunar, nema
með samþykki borgarstjórnar.
Það sé þvi ekki aðeins eðlilegt
heldur skylt að rikið ræði við
borgarfulltrúa um þær ráðagerð-
ir sem nú eru uppi um stækkun
Landsvirkjunar. Ósk iðnaðarráð-
herra þar um sé þvi sjálfsögð og
eðlileg.
Tilefni þessarar nefndar-
skipunar er tviþætt. I fyrsta lagi
samstarfsyfirlýsing núverandi
stjórnarflokka, þar sem segir að
stofnað skuli eitt landsfyrirtæki
sem sjái um alla orkuvinnslu og
orkudreifingu i landinu og i öðru
lagi samþykkt stjórnar Laxár-
virkjunar og bæjarstjórnar Akur-
eyrar um að Laxárvirkjun skuli
ganga inn I Landsvirkjun, eins og
heimilt er I lögum.
Nýlega hefur sérstök starfs-
nefnd iðnaðarráðuneytisins skil-
að áliti, þar sem lagt er til að
landsfyrirtæki um öflun og dreif-
inguraforku verði I byrjun mynd-
að með samruna Landsvirkjunar,
Laxárvirkjunar og 132ja kw.
byggðalinu.num.
Mikill ótti var I herbúðum Sjálf-
stæðisflokksins við að raforku-
verð yrði jafnað á landinu og
lýstumenn áhyggjum sinum yfir
hversu afkastamikill og duglegur
þessi iðnaðarráðherra nú væri, að
hafa eftir 6 mánaða stjórnarsetu
unnið að þvi sleitulaust að sam-
starfsyfirlýsingin yrði að veru-
leika i þessu efni.
1 útreikningum starfsnefndar
iðnaðarráðuneytisins kemur
fram að samruni Laxárvirkjunar
og Landsvirkjunar mun engu eða
sáralitlu breyta um raforkuverð á
útsölustöðunum, en þar sem
skuldabyrði nýju byggðallnanna
er mjög mikil myndi yfirtaka
skuldannahækka raforkuverðum
16,7% -— 22,3%, allt eftir þvi við
hvaða tima er miðað.
I bókun meirihlutans segir að
gengið sé til viðræðnanna með
óbundnar hendur og án nokkurra
skuldbindinga um samþykki
þessara tillagna, Borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins héldu þvi
fram að meirihlutinn væri að
stefna hagsmunum Reykvíkinga i
voða og kalla yfir sig stórfellda
hækkun á raforkuverði í Reykja-
vik. Þeir vildu þó ekki vera með i
þvi að tryggja hagsmuni borgar-
búa i' fyrirhuguðum samningavið-
ræðum oghöfnuðuþvi sætum sin-
um i nefndinni.
—AI