Þjóðviljinn - 16.03.1979, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 16.03.1979, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 16. mars 1979 Finnar ganga að kjörborði Þuríður Pétursdóttir skrifar frá Helsinki Finnska þinghúsiö viö Mannerheimveginn I Helsinki. Þ.P. Dagana 18. og 19. mars verða þingkosningar i Finnlandi. Kosningabaráttan hófst opinberlega 26. febrúar, þegar utankjörstaðaatkvæðagreiðsla hófst. Sama dag birtust auglýsingaspjöld flokkanna á götunum og sjónvarpið fór af stað með flokka- kynningu. Fram að þessu hefur kosningabaráttan verið róleg. Flokkarnir virðast eiga erfitt með að vekja áhuga almennings. Sérstaklega á þetta við um ungt fólk, sem segir að engu skipti hvað kosið sé, þetta sé allt sami grauturinn í sömu skálinni. Þingkosningar Stiórnin, sem setiö hefur s.l. 3 ár, er samsteypustjórn Sóslal- demókrata, Fólkdemókrata, Mið- flokksins og Liberalafl.. Þessir flokkar hafa setið meira og minna I stjórn síðustu 10 til 15 árin og ekki gert ráð fyrir að breyting verði þar á I bráð. Nú slðast var það ritari Sóslaldem. sem sagði að Finnar hefðu ekki efni á að gera tilraunir með stjórn borg- araflokkanna eins og á stæði. Róttækustu breytingarnar sem gerðar hafa veriö á stjórninni slð- ustu árin eru þegar Fólkdemó- kratarnir koma inn I stjórnina eða fara út úr henni. Sem stendur eru þeir klofnir I afstöðunni til stjórnarþátttöku, meirihlutinn er I stjórn en minnihlutinn er f stjórnarandstöðu. Þeir ganga þó sameinaðir til kosninganna. Eftir olíukreppuna 1973 var verðbólga aðalvandamál Finna, eins og fleiri þjóða. Verðbólgan komst upp I 18-20% þegar hún varð mest 1975-1976, slðan hefur dregið úr henni ár frá ári og á slð- asta ári var verðbólgan 7,8%. Is- lendingi finnst þetta vel af sér vikið, þar til i ljós kemur hvað Finnar hafa greitt fyrir þessa hagstæöu þróun. Atvinnuleysi hefur aukist jafnt og þétt síðan 1974 (40.000 manns) og nú um miðjan febrúar voru 192.000 at- vinnulausir eða 8,7%. Sérstaklega er atvinnuleysið tilfinnanlegt meðal fólks undir 25 ára aldri. Við þetta bætist að Finnar hafa flust I stórum stfl til Svíþjóðar, eru nú um 350.000 Finnar I Svlþjóö, þar 18. -19. mars af hafa 130.000 atkvæðisrétt I þingkosningunum hér. (Það má e.t.v. bæta við, að atvinnuleysi er ekki haft aö lifibrauöi hér, eins og sagt er að gerist I sumum öðrum Norðurlandanna. Bæöi eru at- vinnuleysisbæturnar lágar og menn fá þær ekki nema takmark- aöan tlma.). Auk alls þessa hefur kaupmáttur launa minnkað frá ári til árs síðan 1975, og hér er ekki hægt að drýgja tekjurnar með yfirvinnu, hún þekkist ekki. Kosningabaráttan Umræðurnar það sem af er kosningabaráttunni hafa þvl staðið um hvernig draga skuli úr atvinnuleysinu. Þar sýnist sitt hverjum eins og gengur. Sóslaldemókratarnir þjófstört- uðu kosningabaráttunni þegar fjármálaráðherrann Paul Paa- vela kynnti tillögur flokksins til aö auka atvinnu. Þar er lagt til að eytt veröi 300 millj. marka I að hressa viö fjárhag sveitarfélaga og auka þannig framkvæmdir þeirra. Sveitarfélögin njóti góös af I hlutfalli viö hve margt fólk undir 25 ára aldri fái vinnu. Skipasmiðaiönaðurinn og annar iðnaður sem ræöur ungt fólk I vinnu á einnig aö njóta góös af þessum 300millj..Auk þess er gert ráð fyrir að 20-30 millj. marka faril að lækka ellilaunaaldur, þar sem fyrirtækin ábyrgjast að ungt A finnnska þinginu sitja 200 menn. Þeir skiptust milli 10 flokka I slö- ustu kosningum. Ef þeim er raðað eftir stærð Uta hlutföllin svona út: SDP Sóslaldemókratar..................... 54 menn og 25% atkv. SKDL Fólkdemókratar........................ 40 menn og 19% atkv. (Bandalag kommúnista og nk. jafnaöarmanna). KESK Miöflokkur (Centerparti).............. 39 menn og 18% atkv. KOK Samlingsparti (Ihaldsfl.).............. 35 menn og 18% atkv. RKP Svenska folkpartiet.................... 10 menn og 5% atkv. LKP Liberalapartiet......................... 9 menn og 4% atkv. SKL Kristilega sambandiö.................... 9 menn og 3% atkv. SMP Landsbygdspartiet....................... 2 menn og 4% atkv. SKYP Enhetspartiet......................... 1 maður og 2% atkv. SPK Konstitutionelapartiet............... 1 maöur og 2% atkv. ■C' 'iduf’'*iT 'iíé*m bT ™ 1 ^p: Iw- —'•»»»' - ÍWEÍW-m Götumynd úr finnsku höfuðborginni. Ljósm. Þ.P. fólk verði ráðiö I þær stööur sem þannig losna. Stytting vinnuvikunnar I 35 tima á nokkrum næstu árum er aöal kosningamál Fólkdemókrat- anna. Þeir segja að fyrirtæki hafi á slðustu árum tekiö upp og aukið sjálfvirkni við framleiösluna, og um leið fækkað fólki og bætt sam- keppnisstöðuna. Sjálfvirknin hafi stóraukið framleiðni vinnunnar og þvi sé ekki nema eðlilegt að stytta vinnutímann. Vinnutlma- stytting leiddi til þess að vaktir yrðu 41 stað 3ja þar sem unnið er allan sólarhringinn og vlða ann- arsstaðar I vaktavinnu þyrfti að fjölga fólki. Borgaraflokkarnir vilja aftur á móti létta sköttum af atvinnuveg- unum og draga úr beinum skött- um en leggja á neysluskatta I staðinn. Þetta segja þeir aö muni auðvelda fyrirtækjum að ráða. fleira fólk i vinnu. Þeir vilja einn- ig greiöa mæörum ungbarna n.k. laun fyrir að vera heima I stað þess að vinna úti og lækka elli- launaaldur, sérstaklega fyrrver- andi hermanna. Meö þessu segj- ast þeir losa yfir 100 þús. stöður fyrir ungt fólk að ganga inn I. Flokkarnir hafa gert sitt besta til aö auglýsa þessar lausnir sln- ar, en einhvernveginn virðast þeir ekki geta kveikt áhuga al- mennings, Að vlsu var mikil að sókn I utankjörstaðaatkvæöa- greiðslunni fyrsta daginn, en nú lltur út fyrir aö kjörsókn verði ekki sérlega mikil. Sérstök áhersla er lögö á að fá Finna I Sviþjóð til að nota kosningarétt- inn. Þar kusu aðeins 25% I siö- ustu kosningum (1975). Það er búist við töluverðri aukningu, en samt er ekki talið að þátttökupró- sentan verði mjög há, I besta falli 50%. Gallup kannanir hafa sýnt að Samlingspartlið muni vinna á I kosningunum og sumir hafa túlk- aö þaö sem hægrisveiflu. Kann- anirnar hafa þó sýnt aö þeir munu vinna á á kostnað litlu flokkanna til hægri, Landsbygdspartlsins og Enhetspartísins. Það er því ekki llklegt að stórbreytingar verði I pólitlkinni hér I Finnlandi 1 þess- um kosningum. Frá Þuriöi Pétursdóttur í Finnlandi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.