Þjóðviljinn - 28.03.1979, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN' Miövikudagur 28. mars 1979
UOWIUINN
Málgagn sósialisma, verkalýðs
hreyfingar og þjóðfrelsis
útgefandi: utgáfufélag ÞjóBviljans
Framkvæmdastjóri: EiBur Bergmann
Kitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg HarBardóttir
Rekstrarstjóri: Olfar ÞormóBsson
Auglýsingastjóri: Rúnar SkarphéBinsson
AfgreiBslustjóri: Filip W. Franksson
BlaBamenn: AlfheiBur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, GuBjón
FriBriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Margeirsson, Magnús
H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson. Erlendar fréttir: Halldór GuB-
mundsson. IþróttafréttamaBur: Ingólfur Hannesson. ÞingfréttamaB-
ur: SigurBur G. Tómasson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
Otllt og hönnun: GuBjón Sveinbjörnsson, Sævar GuBbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Safnvöróur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: SigrfBur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir ólafsson.
Skrifstofa: GuBrún GuBvarBardóttir, Jón Asgeir SigurBsson.
AfgreiBsla: GuBmundur Steinsson, Hermann P. Jónasson, Kristin Pét-
ursdóttir.
Sfmavarsla: Olöf Halldórsdóttir, SigriBur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún BárBardóttir
HúsmóBir: Jóna SigurBardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Palsdóttir, Karen Jónadóttir.
Otkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuBmundsson.
Ritstjórn, afgreiBsia og auglýsingar: SIBumúla 6, Reykjavlk. tfmi 8 13 33.
Prentun: BlaBaprent hf.
Láglaunabœtur
sem lausn
• Alþýðubandalagið hefur lýst sig reiðubúið til sam-
komulags um afgreiðslu efnahagsmálafrumvarps for-
sætisráðherra á þeim grundvelli sem Verkamannasam-
bandið hefur gert ályktun um. Þingflokkur og fram-
kvæmdastjórn Alþýðubandalagsins hafa látið í Ijós þá
skoðun að eðlilegt sé að taka f ullt tillit til ályktunar for-
ystumanna verkalýðsfélaganna ekki síst þar sem um
var að ræða einhuga ákvörðun allra þeirra sem mættu á
formannaráðstefnu Verkamannasambandsins.
• Alþýðubandalagið er eindregið sammála þeirri til-
lögu Verkamannasambandsins, að teknar verði upp sér-
stakar launabætur á lægri laun til þess að koma í veg
fyrir skerðingu þeirra launa með því nýja formi á vísi-
tölugreiðslur sem frumvarp forsætisráðherra gerir ráð
fyrir. I samþykkt formannafundar Verkamannasam-
bandsins kemur og glögglega fram/ að forystumenn
verkalýðsfélaganna hvar í f lokki sem þeir standa leggja
áherslu á að vísitölukafla frumvarpsins verði breytt á
þann veg sem Alþýðubandalagið hefur gert kröfur um.
• í samræmi við þetta hafa ráðherrar Alþýðubanda-
lagsins og flokksformaður þegar lagt fram tillögur um
breytingar á vísitölukaflanum og sérstakar jafnlauna-
bætur.
• Enda þótt skoðanakannanir bendi eindregið til að
meirihluti landsmanna vilji að núverandi ríkisstjórn sitji
áfram er það engin uppáskrift fyrir hana að fylgja í fót-
spor fyrri ríkisstjórnar á kauplækkunarbrautinni. Og
ætli samstarfsf lokkar Alþýðubandalagsins að slá á út-
rétta hönd Verkamannasambands Islands gæti svo farið
að taflið snérist við í skyndingu. Aiþýðubandalagið og
hin almennu verkamannafélög í landinu hafa teygt sig
til hins ýtrasta í samkomulagsátt. Sú staðreynd liggur
fyrir og hana ber að virða.
Brýnt til baráttu
• Miðstjórn Alþýðubandalagsins gerði á fundi sínum i
lok síðustu viku ályktun í tilefni af því að um þessar
mundir eru þrjátíu ár liðin síðan ísland gerðist aðili að
hernaðarbandalagi. Þar segir m.a. að átökin um aðild
íslands að NATO og dvöl Bandaríkjahers í landinu haf i
klofið þjóðina í tvær fylkingar í afstöðunni til þessara
stórmála og svo muni verða uns við losum okkur við
herstöðina og af klafa hernaðarbandalags.
• „Alþýðubandalagið er eini stjórnmálaflokkur lands-
ins sem berst heilshugar fyrir brottför alls herliðs af
islenskri grund og úrsögn úr hernaðarbandalagi. Miö-
stjórn Alþýöubandalagsins leggur ríka áherslu á að
þessa baráttu veröur að heyja af vaxandi þrótti.
Sú staöreynd að Alþýðubandaiagið er um sinn aðili að
ríkisstjórn, sem ekki hefur framangreind markmið á
stefnuskrá sinni, má síst af öllu verða til að draga úr því
upplýsinga- og áróðursstarfi, sem nú er brýnna en
nokkru sinni, ef krafan um herlaust land utan hernaðar-
bandalaga á að fá nægan hljómgrunn meðal þjóðarinn-
ar.
• Miðstjórn flokksins heitir á alla Alþýðubandalags-
menn að vinna af alef li, hvar sem þeir fá því við komið,
aðframgangi þess mikilvæga stefnumáls flokks okkar,
að ísland standi utan allra hernaðarbandalaga og leyfi
engu ríki hér neins konar hernaðaraðstöðu. Miðstjórn
hvetur félagsmenn til að hafa forystu, hver á sínum
vettvangi, fyrir þvi að sameina alla herstöðvaand-
stæðinga um þá kröf u að Bandaríkjaher hverf i sem fyrst
með allt sitt af íslenskri grund og ísland segi sig úr
Atlantshafsbandalaginu."
• Sósíalísk hreyfing, sem jafnan hefur haft baráttuna
fyrir vopnleysi og hlutleysi í stórveldaátökum að megin-
máli í starf i sínu, á það sammerkt með öllum herstöðva-
anstæðingum að muna sókn og sár vonbrigði, sigra og
ósigra, á þrjátíu ára NATó-skeiði islands. En það hefur
jaf nan verið aðal þessara hreyf inga að geta snúið vörn í
sókn og til hennar munu nú margir brýna líkt og mið-
stjórn Alþýðubandalagsins í samþykkt sinni.
Snorri
Sturluson
800 ára
Eins og margir eru liklega
búnir a6 gleyma eru á þessu ári
liðnar átta aldir frá þvi a6
Snorri Sturluson fæddist. Ekki
hefur enn verið neitt að ráöi
fjallaö um þetta ágæta afmæli i
blööum, nema hvaö Morgun-
blaöiö skrifaöi stórkostlegan
leiöara þar sem blaöiö tók þaö
aö sér að vernda Snorra karlinn
fyrir fmynduöum árásum
marxiskra kennara, sem leiö-
araskrifari taldi aö hafa mundu
hvassthorn i siöu sagnaritarans
vegna þess aö hann var höföingi
og átti kýr margar.
Nú berast okkur fregnir frá
Noregi, þar sem Snorri hefur
lengi veriö i sérstökum heiöri
haföur vegna þess aö hann hafi
ekki aöeins lýst norskri sögu,
heldur haft meö Heimskringlu
djúpstæö áhrif á skilning Norö-
manna á sjálfum sér og þar meö
á tiöindi sem gerðust mörgum
öldum eftir aö Snorri var höggv-
inn I Reykholti. Eöa svo segja
Norömenn einatt, og við skulum
láta okkur hafa þaö aö taka þá
trúanlega.
I
Christian Krogh reyndi aö gera
sér grein fyrir þvi hvernig
Snorri hafi litiö út. Mönnum
ber saman um aö listamaöurinn
hafi meö þessari mynd og öör-
um iýst sjálfum sér fyrst og
fremst.
Er hœgt að
treysta honum?
1 tilefni afmælis Snorra kem-
ur út sérstök hátiöarúrgáfa af
Heimskringlu og eru ritstjórar
hennar þeir Hallvard Mageröy
og Finn Hödnebö. Heimskringla
veröur fyrstu tvö bindin i nýrri
fjögurra binda útgáfu af sögum
Noregskonunga.
1 viðtali viö Aftenposten á
dögunum eru ritstjórarnir m.a.
spuröir aö þvi hve áreiöanlegan
sagnaritara þeir telja Snorra
vera, og viö leyfum okkur aö lita
svo á, aö islenskir lesendur
hljóti aö hafa nokkurn áhuga á
þeirri spurningu.
Falsar ekki
söguna
Finn Hödnebö segir: Menn
eiga aö gæta sin á þvi aö hengja
sig ekki i smáatriðum. Aö þvi er
varöar meiriháttar atburöi býr
Snorri ekki til neitt nýtt,
I þeim efnum höfum viö
möguleika á aö prófa hann
Erik Werenskiold hét litsamaöurinn sem fenginn var til aö stjórna
myndskreytingu Heimskringlu nálægt aldamótum. Þessar þrjár
skissur sýna hvernig hjá honum þróaöist sá strikastill sem aörir
fimm listamenn tóku einnig miö af.
eftir öörum sagnfræöilegum
bókmenntum. En þegar hann
til dæmis lýsir leynifundum,
þá getur enginn vitaö hvaö
þar fór fram i raun. Snorri veit
þaö , en þaö er ekki sögufölsun
af hans hálfu, heldur þaö sem
gefur sögulegri atburöarás lif.
Og höföingjar bænda halda
ágætar ræöur, sem Snorri sjálf-
ur hefur samiö, en þær inni-
halda heldur ekkert sem af-
skræmir raunverulega sögu.
Þaö er ekki margt I frásögninni
sem er svo af vegi fært, aö menn
geti haldiö þvi fram, aö hér sé
um þaö aö ræöa aö skoöa at-
buröi meö augum þrettándu
aldar manns.
Halvard Mageröy sagöi:
Snorri gerir þaö sem algengt
var bæöi i fornöld og á miööld-
um — hann lætur sér ekki nægja
staöreyndir heldur reynir hann
aö endurskapa söguna. Eru sög-
ur hans heimildabókmenntir?
Þar er til nefnt erfitt hugtak —
þýöir þaö aö um sé aö ræöa hlut-
drægt úrval á staöreyndum og
upplýsingum? Menn geta til
dæmis sagt, aö Snorri hefji
bændahöföingjana I æöra veldi
vegna þess aö þeir eru af hans
stétt. En þaö er rangt aö segja,
aö Heimskringla sé áreiöanleg
„aftur á bak” aðeins af þvi er
varöar samtiö Snorra. Persðnur
sögunnar eru út frá eigin for-
sendum...
Lesið Snorra!
Hin nýja útgáfa á Snorra
kemur nú út bæöi á nýnorsku og
bókmáli. Notaðar veröa mynd-
skreytingar sex norskra lista-
manna sem unnu merkilegt
starf I þágu Heimskringlu fyrir
skrautútgáfu sem kom út ná-
lægt aldamótum — þær hafa og
veriö notaöar I islenskri útgáfu.
Nú fá myndirnar aö njóta sin I
fullri stærö.
Aöstandendur hinnar norsku
útgáfu minna lesendur sina á
þaö, aö þaö sé ekkert á móti þvi
aö kaupa Snorra til aö hafa hann
I bókahillu. En þaö er mjög
brýntfyrir mönnum i leiöinni aö
enn geti menn lesiö hinn forna
texta sér til innblásturs og lyft-
ingar. Einhverntima höfum viö
sjálfir heyrt brýningar I þessa
sömu veru.
— áb
—ekh