Þjóðviljinn - 04.05.1979, Page 3
Föstudagur 4. maí 1979 ÞJQDVILJINN — SÍÐA 3
Frá aðalfundi Kjördæmisráðsins. Svavar Gestsson ráðherra i raeðustól.
Frá kjördœmisráði Alþýðubandalagsins á Vesturlandi:
Jónas Árnason hyggst
hætta þingmennsku
Frá fréttaritara Þjóöviljans i
Stykkishólmi, Ólafi Torfasyni:
Á 109. afmælisdegi Lenins 22.
april 1979 kom Kjördæmisráö Al-
þýðubandalagsfélaganna á Vest-
urlancfi saman til fundar i Stykk-
ishólmi. Mæting var góð, tæplega
50 félagar viðs vegar að. Gestir
fundarins voru alþingismennirnir
Jónas Árnason og Svavar Gests-
son, ráðherra. Avörpuðu þeir
báðir fundinn og lýsti Jónas
Árnason þvi yfir viö þetta tæki-
færi að hann gæfi ekki kost á sér
aftur í fyrsta sæti framboðslista
Alþýðubandalagsins á Vestur-
landi til alþingis.
Verkefni fundarins sem var I
rauninni framhaldsaðalfundur
voru m.a. útgáfa Vesturlands-
blaðsins, styrktarmannakerfið,
lagabreytingar, skýrslur aðildar-
félaganna og tilhögun sumar-
ferðalagsins.
Fram kom áhugi á þvi að auka
útgáfu Vesturlandsblaðsins og
,gera hana reglulegri. Var i þvi
sambandi vitnað til gróskumikill-
ar útgáfu Austurlands og Norður-
lands og þess, hve mikill aflvaki
slikur umræðu- og fræðsluvett-
vangur getur orðið.
Miklar umræður spunnust einn-
ig um erindi Svavars Gestssonar,
sem fjailaði um brýnustu vanda-
mál og framtiðarverkefni Al-
þýðubandalagsins i rikisstjórn.
Sjö stelpur
á Seltjarnar
nesi
Litla leikfélagið úr Garðin-
um sem undanfarið hefur
sýnt sænska leikritið „Sjö
stelpur” við góðan orðstir á
Suðurnesjum ætlar að sýna
leikritið i Félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi i kvöld, föstu-
daginn 4. mai, kl. 20.30.
Leikstjóri er Sigmundur
Orn Arngrimsson, og er sýn-
ingin bönnuð börnum undir
12 ára aldri.
Var beint til hans fjölmörgum og
umbúðalausum fyrirspurnum um
baráttumál Alþýðubandalagsins
og hversu þeim reiddi af i núver-
andi stjórnarsamstarfi. Var
Svavar i svörum sinum bein-
skeyttur að vanda.
Jónas Arnason vakti athygli á
þvi að i félagsheimilinu voru,á
sama tima og fundurinn var hald-
inn,tvær aðrar fylkingar, báðar
Vegna fréttar i Þjóöviljanum i
gær af móttöku borgarstjórnar i
Höföa 1. mai s J. vil ég biöja biaö-
iö aö birta eftirfarandi:
Þegar ákvörðun um móttökuna
var tekin var ég staddur erlendis i
erindagjörðum fyrir Reykja-
vlkurborg. 1 simtali við formann
1. maí nefndar tjáði ég honum að
vegna þess hve seint þessi
ákvörðun var tekin þá yrði nefnd-
in að bera alla ábyrgð á gesta-
listum og sjá um að boðskort
kæmust til skila.
með núverandi og verðandi
stuðningsmenn Alþýðubanda-
lagsins innanborðs, þ.e.a.s.
Junior Chamber hreyfingin og
Bridge-snillingar Vesturlands
sem þar héldu mót sitt. Lét Jónas
opna dyr salarins á gátt I fundar-
lok og sungu viðstaddir Alþjóða-
söng verkalýðsins fullum hálsi,
svo allir mættu af samkomu þess-
ari lærdóm draga.
Með einhverjum hætti komst
hið siðarnefnda ekki með réttum
hætti til skila I þessu langlínu-
samtali, en þau fyrirmæli sem
starfsmenn borgarinnar fengu
varðandi boðskort vegna
boðsins voru, að hafa þau tilbúin
til afhendingar til 1. mai nefndar
fyrir hádegi mánudaginn 30.
april, en aðrir myndu sjá um
dreifingu þeirra.
Þrátt fyrir þennan stutta fyrir-
vara og einnig það að lengri tima
ATHUGASEMD
OG ÞAKKIR
frá Sigurjóni Péturssyni
Listahátíð bama að Kjarvalsstöðum
„Svona gerum við”
Dagskrá föstudaginn 4. maí
kl. 14.00‘-Sýningin opnuð;
kl. 17.30: Skólahljómsveit
Mosfellssveitar leikur undir
stjórn Birgis D. Sveinssonar.
Frá ölduselsskóla
Krummavisur eftir Jóhann-
es úr Kötlum. Leikræn tján-
ing 8 ára barna.
Frá Flataskóla: Skólakór
Garðabæjar, yngri deild,
flytur söngleikinn „Litla
Ljót” eftir Hauk Ágústsson.
Stjórnandi Kristin Jóhannes-
dóttir.
Kór Breiðholtsskóla. Stjórn-
andi Þorvaldur Björnsson.
I
■'
I
■
I
■
I
10 gönguferðir
á Esjuna í maí
Feröafélag tslands hefur skipu-
lagt 10 gönguferöir á Esjuna i
maimánuöi, en Esjan hefur löng-
um notiö mikilla vinsælda göngu-
manna.
Arið 1977 efndi Ferðafélagið til
allmargra gönguferða á Esju og
var þátttaka mjög mikil. Alls
gengu þá 1700 manns á fjallið i
þessum ferðum. Ferðirnar sem
skipulagðar hafa verið nú i mai
verða með svipaðri tilhögun og
var fyrir tveimur árum.
Gönguferðirnar hefjast á mel-
unum fyrir austan bæinn Esju-
berg á Kjalarnesi og verður geng-
ið þaðan á Kerhólakamb, sem er i
851 m hæð. Sama leið verður
gengin til baka. 1 göngulok fá
þátttakendur viðurkenningar-
skjal og svo veröur efnt til happ-
drættis. Göngumenn verða skráð-
irihverri ferð ogað loknum þess-
um 10 ferðum verða dregin út 5
nöfn, og er vinningur úttekt á ár-
bókum félagsins fyrir 8000 kr.
Samkvæmt venju verður lagt af
stað I ferðirnar frá Umferðarmið-
stöðinni kl. 13.00, en þeir sem
kjósa frekar að koma á eigin bil-
um geta ekið upp á melana og
slegist þar i förina.
Börn i fýlgd fulloröinna fá fritt
eins og jafnan i eins dags ferðum
félagsins.
Gönguferöirnar veröa sam-
kvæmt þessari áætiun:
6. mai, 12.mai, 13. mai, 19. mai,
20. mai, 24. mai, 26. mai, 4. júni,
16. júni, og 23. júni.
Áhugafólk um
bættan hag
þeirra sem
eiga við geð-
ræn og sálræn
vandamál að
stríöa:
Stofn-
fundur
í kvöld
I kvöld föstudag verður
stofnfundur áhugafólks um
bættan hag þeirra sem eiga
við geðræn og sálræn vanda-
mál að striða. Fundurinn
verður i Safnaðarheimili
Langholtskirkju og hefst kl.
9. A fundinn mæta m.a. að-
standendur, læknar, sálfræð-
ingar, fulltrúar þingflokka
og einnig verður reynt að fá
þá sem eiga eða hafa átt við
þessi vandamál að striða til
að mæta. Allt áhugafólk er
hvatt til að koma á fundinn.
— GFr
Evrópufrímerkin
20 ára
— tvö ný frímerki úr sögu
pósts- og simaþjónustu
þvi tilefni verða gefin út i hverju
aðildarlandi frimerki úr sögu-
póst- og simaþjónustu.
Islensku merkin i þessari seriu
sýna annars vegar talsimatæki,
eins og var i notkun hér á landi
fyrir siðustu aldamót.og hins veg-
ar lúður og pósttösku frá fyrri
timum.
Þröstur Magnússon teiknaði
merkin, sem prentuð eru i Sviss.
—AI
Gefin hafa verið út tvö ný is-
lensk frimerki aö verögildi 110
krónur og 190 krónur og sýna þau
talsimatæki og lúður og póst-
tösku.
1 ár er þess minnst að tuttugu
ár eru liðin sfðan Evrópusamráð
pósts og sima, CEPT, var stofn-
að. Þá var m.a. ákveðið að leggja
til við aðildarlöndin að þau skyldu
gefa út frimerki einu sinni á ári,
svonefnt Evrópufrimerki, með
sameiginlegu myndefni. Á þessu
ári kemur þvi út tuttugasta út-
gáfa Evrópufrimerkjanna, og af
tók hjá verkalýðsfélögunum að
skila inn nafnalista en upphaflega
var gert ráð fyrir, tókst með sam-
stilltu átaki allra aðila og mikilli
vinnu hjá þvi starfsfólki, sem sá
um vélritun boðskortanna, að
koma boðum til nær allra i tæka
tið.
Það er þvi ómaklegt að segja að
starfsfólk borgarinnar hafi ekki
lagt sitt af mörkum til þess aö
þessi móttaka gæti tekist sem
best, þvi þrátt fyrir ofangreind
fyrirmæli aðstoðaði það við út-
sendingu boðskortanna eftir
föngum.
Ég kann þeim og öllum öörum,
sem hlut áttu aö þessari ánægju-
legustu móttöku, sem ég hef tckiö
þátt i, minar bestu þakkir.
Sigurjón Pétursson.
Flautu-
tónleikar
í Norræna
húsinu
1 kvöld, föstudaginn 4. mai kl.
20.30,heldur Gunnar Gunnarsson
flaututónleika I Norræna húsinu.
Sigurður Marteipsson leikur með
á pianó. Eru tónleikar þessir
seinni liöur i einleikaraprófi hans
frá Tónlistarskólanum i Reykja-
vik. A efnisskránni eru verk eftir
Vivaldi, J.S. Bach, Lennox
Berkeley, Rachmaninoff og
Gabriel Fauré. Aðgangur aö tón-
leikunum er ókeypis og öllum
heimill.
Símahœkkunin
Eins og skýrt hefur veriö frá I
Þjóöviijanum hefur veriö ákveöin
20% hækkun á gjaldskrá fyrir
simaþjónustu, og tók hún gildi 1.
mai s.l.
Heistu breytingar sem þessi
hækkun hefur i för með sér eru:
Stofngjald fyrir sima hækkar úr
kr. 46.000.- I kr. 55.000.-, en auk
þess þarf aö greiða fyrir talfæri
og uppsetningu tækja. Gjald fyrir
umframskref hækkar úr kr. 17 i
kr. 20,40,afnotagjald af heimilis-
sima á ársf jóröungi hækkar úr kr.
7.700.- I kr. 9.300.-, venjulegt
flutningsgjald milli húsa á sama
gjaldverði hækkar úr kr. 23.000.- i
kr. 27.500 .- Gjöld þessi eru án
söluskatts.