Þjóðviljinn - 04.05.1979, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 04.05.1979, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. maí 1979 Georg Hermannsson skrifar: jAð gefnu tilefni Sitt hvað kom fram i skýrslu formannsinsm.a. að félaginuhef- ur verið falið að kanna fjölda, aldur, hag og stöðu þroskaheftra á Suðurnesjum að tilhlutan Sam- bands sveitarfélaga á Suðurnesj- um. Ernú veriðaðvinnaað þeirri könnun. ÞáhefurogSSS heimilað dagheimilisvistun allt aðfjögurra þroskaheftra barna í Garðaseli i Keflavik og mun ráða til þess fóstru eða þroskaþjálfa eftir þörf- um. Mikiö rekstrartap Flugleiöa á siðasta áriog óeining ráðamanna og starfsfólks, er virðist stofna framtið félagsins i hættu, er mörgum áhyggjuefni. Er óskandi að góðum mönnum megi auðnast að rétta við hag félagsinsog leiöa stjórnendur og starfsfólk einhuga saman til starfa. Farsæll og ör- uggur rekstur Flugieiða hlýtur að vera sameiginlegt hagsmunamál þessara aðila, og um leið þjóðar- innar allrar. Er leitt til þess að vita, að svo mjög skuli að þessum mönnum sorfið nú, að á nýafstöðnum aðal- fundi skuli Sigurður Helgason, forstjóri,gripa til þess að draga m/s Herjólf inn í umræður um erfiðleika Flugleiða og kvarta sérstaklega undan samkeppni Herjólfs og stuðningi stjórnvalda við rekstur skipsins. Tel ég skylt að gera athuga- semdir viö þessi ummæli. Ibúar Vestmannaeyja li'ta á m/s Herjólf sem brú milli lands og Eyja, er tengir þær við þjóð- vegakerfi landsins og gerir okkur kleift að hafa not af bifreiðum okkar, eins og öðrum landsmönn- um. Bifreiðaeign Vestmannaeyinga hefur vaxið mjög á siðustu árum og munu beinar tekjur rlkisins vegna þeirra nema mun hærri upphæðum ensá rekstrarstyrkur, sem m/s Herjólfur fær, er gerir okkur kleift að hafa not af bifreið- um okkar til jafns við aðra, a.m.k.aðnokkruleyti, þótt mörg- um þyki „vegatoHurinn” hársem greiddur er fyrir flutning bifreiða með skipinu. Án m/s Herjólfs hefðu Vestmannaeyingar sáralltil. notaf þvl fé, er þjóðin ver árlega til vegamála sinnq, þannig að stuðningur stjórnvalda við rekst- ur skipsins er mikið réttlætismál og skal hér þakkað tyrir aukinn daga vegna veðurs og i 2 daga skilning ráðamanna i þeim efn- vegna verkfalla. t febrúar 10 um. daga vegna veðurs og 2 daga Ætti ekki að þurfa. að fara vegna verkfalla. I mars 7 daga mörgum orðum um hver nauösyn vegna veðurs og 1 dag vegna Herjólfur. A siðasta ári flutti skipið 40.367 farþega, 9.027 bifreiðar og 8.130 tonn af vörum milli lands og Eyja. daglegar, Öruggar ferðir skipsins eru né hverja þýðingu slikt öryggi I samgöngum hlýtur að hafa fyrir búsetu þeirra rúmlega 4.700 ibúa, er Heimaey byggja, svo og fyrir allt atvinnulif eyjarinnar og þá um leið fyrir gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Tala tölur hér skýr- ustu máli um. en á siðasta ári flutti skipið 40.367 farþega, 9.027 bifreiðar og 8.130 tonn af vörum milli lands og Eyja. Þarf því engan að undra, þegar langþráðu takmarki Vestmanna- eyinga um öruggar samgöngur með skipi til daglegra feröa er náð, þótt nokkuð dragi úr far- .þegafjölda Flugleiða hingað, svo stopular sem flugsamgöngur hingað oft eru, eins og tölur sið- ustu þriggja mánaða sýna: 1 janúar féllu flugferðir niður i 10 verklalia. Auk þess voru all- margar ferðir felldar niður af öðrum ástæðum, fyrir utan tafir, sem oftverða ogþykja þreytandi. Þrátt fyrir ferðir m/s Herjólfs er eigi að siður full þörf góðra flugsamgangna milli lands og Eyja,enda fluttu Flugleiðir um 36 þús. farþega hér á milli á siðasta ári, auk þess sem minni flugfélög fljúgamikiö hingað. Er ekki vitað til að tap hafi verið á flugi til Vestmannaeyja. Leyfi ég mér að vona að forð- ast verði að ala á sundrung og baráttu milli Herjólfs og Flug- leiða og verði frekar reynt að stuðla að aukinni samvinnu þeirra, öllum til hagsbóta. Georg Hermannsson, formaðurHerjólfs. ■ h ■ mm ■ mm ■ mm ■ ■■ ■ mm ■ ■! Félagið er að koma upp leik- fangasafni fyrir börn með frávik £rá eðlilegum þroska. Mun það hafa að geyma sérvalin þroska- leikfixig ogverður til húsa I Aðal- veri i Keflavik. Skrifstofa félags- ins verður opin frá kl. 3-5 og veitir nánari upplýsingar. Fram fer og útláns- og leiðbeiningastarfsemi og boðið verður upp á einstak- Umsjón: Magnús H. Gíslason Góð afkoma hjá Frá aðalfundi Mjólkursamsölunnar. Aðalfundur Þroskahjálpar á Sudurnesjum Hinn 26. marssl. var aðalfund- ur Þroskahjálpar á Suðurnesjum haldinn I Sjálfstæðishúsinu i Njarðvik, svo sem skýrt er frá i Suðurnes jatiðindum. Um 60 manns sátu fundinn. 1 fundarbyrjun minntist for- maöur, Einar Guðberg, látins fé- lagsmanns, sr. Páls Þórðarsonar, fyrrv. sókarprests i Njarðvlk, en hann var einn af stofnendum fé- lagsins. Framsögumenn á fundinum voru beir Magnús Kjartansson, fyrrv. ráðherra, og Jón Sævar Alfonsson, varaformaður lands- samtakanna. Magnús ræddi al- mennt um málefni fatlaðra en Jón Sævar um lagasetningu um málefni þroskaheftra, en hann var formaður nefiidar, er skila átti drögum að frumvarpi um þau mál og hefur nefndin skilað af sér. Má vænta þess, að frumvarp- ið verði tekið fyrir á yfirstand- andi þingi. A fundinúm barst félaginu gjöf, kr. 177.300 kr. en það er ágóði af skemmtun, sem haldin var I Stapa 23. mars sl. Gefendur eru skipshafnirnar á loðnuskipunum Hörpunni, Gigjunni, Keflvikingi og Guðmundi RE, ogeigamiklar þakkir skilið fyrir. lingaheimsóknir, þar sem for- eldrar og börn geta komið á um- sömdum tima. Þá mun félagiö einnig hafa „opið hús” hálfmánaðarlega eða annan hvern laugardag, i fyrsta skipti 28. april n.k., frá kl. 2-4. Þessu „opna húsi” er ætlað að skapa tengsl aðstandenda þroskaheftra og miðla þekkingu og reynslu. Mun það eflaust gera þeim, sem eru að hefja barátt- una, léttara fyrir og má mikils gagns af þvi vænta. Kristjana Kjartansdóttir, fóstra, hefur verið ráðin til aö annast þessi störf fyrir félagiö. Stjórn Þroskahjálpar á Suður- nesjum skipa: Einar Guðberg, Keflavik, formaður, Asgeir Ingimundarson, Njarðvik, Kristin Guðmundsdóttir, Garði, Reynir Eiriksson, Keflavik, Ing- þór Geirsson, Keflavik, Sigriður Eyjólfsdóttir, Keflavik, Ólafia Lúðviksdóttir, Sandgerði, Asta Einarsdóttir, Grindavik. Endurskoðendur eru: Hallur Guðmundsson, Keflavik, Sigurð- ur Ingvarsson, Garöi, Maria Valdimarsdóttir, Keflavik. —mhg Mj ólkursamsölunni Freyr Okkur hefur borist búnaðar- blaðið Freyr, nr. 6 þ.á. A siðum hans er að finna eftirtalið efni: Forystugreinina Samskipti sveitafólks og bæjarbúa. Or skýrslum nautgriparæktarfélag- anna 1978. Pétur Sigurðsson hjá Framleiðsluráöi . landbúnaðarins skrifar grein um Áhrif „bónus” - kerfisins i Noregi á framleiöslu mjólkur. Páll Sigbjörnsson, ráöu- nautur, segir frá samanburði, sem gerður var á afuröasemi kálfa undan fjórum holdanautum og kálfa undan nautum af is- lensku mjólkurbúakyni, gerðum á Austurlandi 1975—1976. Magnús Sigsteinsson, ráöunautur, ritar greinina: Gulrófnageymsla á Hrauni I ölfusi og aðra um Votheyslosun með tallu og gripkló. Birt er ársskýrsla Lifeyrissjóðs bænda fyrir árið 1978 fyrir áriö 1978. Grein er um atvinnusjúkdóma i landbúnaöi, auk ýmissa smærri frétta.—mhg j Aðalfundur Mjólkursamsölunn- ar i Reykjavlk var haldinn 25. april sl. Fundinn setti og stjórnaði vara- foraðurinn Gunn ar Guðbjartsson I veikindaforföllum stjórnarfor- manns, Agústs Þorvaldssonar. Varaformaður gerði grein fvrir störfum stjórnarinnar á árinu, m.a. kom fram, að frestað hefur veriðað (aka ákvöröun um hvort Mjólkursamsalan hætti þátttöku i Vinnuveitendasambandinu, en ákvörðunar er aö vænta á næstunni. Gunnar lagði áherslu á, að breyta þyrfti reglum um út- borgun haustuppbótar á mjólk. Það væri brýnt hagsmunamál fyrir bændur að jafna framleiðsi- una sem mest. Nú væru sveiflur alltof mikiar. Minnst var mjólkin á svæði Mjólkursamsölunnar I febrúar, 3,3 milj. ltr. en mest I júlf, 7 milj. ltr. Hækka þyrfti verulega verð til bænda á haust- mjólkinni en lækka að sama skapi verðiö á sumarmjólkinni. Forstjóri Mjólkursamsölunnar, Guðlaugur Björgvinsson, gerði grein fyrir rekstri hennar og reikningum og fara hér á eftir nokkur atriði úr ræðu hans. Innvegin mjólk I þau fjögur mjólkurbú, sem eru á svæði Mjólkursamsölunnar var 61,3 milj. ltr. á sl. ári og er það 4,8% aukning frá fyrra ári. Hjá Mjólk- urbúi Flóamanna var tekið á móti 42 milj. ltr. Mjólkurstööin I Reykjavík fékk 5,3 milj. ltr. Mjólkursamlagiö iBúöardal tóká móti 3,1 milj. ltr. og Mjólkursam- lagið I Borgarnesi fékk 10,7 milj. ltr. Samtais voru seldir 32,1 milj. ltr af nýmjólk, eöa 52% af inn- veginni mjólk. Það var sam- dráttur um 1,4%. Samdráttur var einnig I sölu á undanrennu. Veruleg aukning varö i sölu á jóg- úrt eða um 21%, söluaukning varö á skyri um 5.5% og sala á rjóma var 8,4% meiriáriö 1978 en áriö á undan. Mjólurframleiðendur á svæði Mjólkursamsölunnar voru 1273 i árslok 1978 oghafði fækkað um 22 frá fyrra ári. Nokkrar nýjar afurðir komu á markaðinn á s.l. ári. Þar má nefna melónu- og kaffijógúrt. Brotið var f blað i sögu mjólkur- iðnaðarins þegar hafin var á árinu sala á Floridana appelslnu safa. En mjög góð sala var á þessum vörum á árinu, og sala á appelsínusafanum skilaði umtalsverðum hagnaöi. 1 árslok voru 232 starfsmenn hjá Mjólkursamsölunni og hafði fjölgað um 7 á árinu. Rekstur brauð- og ísgerðar gekk mjög vel og var þetta eitt besta árið síðan hafinn var rekstur á þessum tveim deildum M.S. Fjárfesting var með minna móti, en aöalfjárfestingin var endurnýjun á átöppunarvél. Rekstrarkostnaður Mjólkur- samsölunnar lækkaði hlutfalls- lega miðað við undangengin ár, þvi hann reyndist vera 6,5% af sölu, en áriö 1977varhann 8,5% af sölu. Niðurstööutala rekstrar- reiknings M.S. á árinu var 7322 milj. kr. Fyrningar vorurúmar 29 milj. kr. og um 40 milj. kr. voru lagðar I byggingarsjóð. Seldar voru mjólkurvörur fyrir 7109 milj. kr. Grundvallarverð mjólk- ur fyrir svæði Mjólkursam- sölunnar var kr. 135,20 á hvern litra, en útborgunarverð aftur á móti kr. 135,48. A fundinum komu fram tvær tillögur þar sem lagt var til að reglur um útborgun haustupp- bótar á mjólk yrðu endurskoð- aðar og þær greiðslur hækkaðar. Þessar tillögur voru samþykktar. (Heim.: Uppl.þjón.landb.) —mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.