Þjóðviljinn - 04.05.1979, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 04.05.1979, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. mal 1979 DIODVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs hreyfingar og þjóðfrelsis l'lgefandi: L tgáfufélag Þjóöviljans Kramkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Kitstjorar: Arni Bergmann. Einar Karl Haraldsson. Kréttastjóri: Vilborg Haröardóttir l msjónarmaöur Sunnudagsblaós: Ingólfur Margeirsson. Kekstrarstjóri: Olfar Þormóösson Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. Erlendar fréttir: Halldór GuÖmundsson. íþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaöur: Siguröur G. Tómasson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. Otlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Safnvöröur: Eyjólfur Arnason Auglýsingar: Sigriöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Olafsson Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir. Jón Asgeir Sigurösson. Afgreiösla: GuÖmundur Steinsson, Hermann P Jónasson. Kristín Pét- ursdóttir. Slmavarsla: ölöf Halldórsdóttir, SigriÖur Kristjánsdóttir Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir Húsmóöir: Jóna SigurÖardóttir Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Citkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson. Kitstjórn, afgreiösla og augiýsingar: Siöumúla 6. Revkjavik. sími 8 13 33 Prentun: Blaöaprent hf. Listahátíð bamanna • Þegar dagar eða ár eru helguð einhverjum til- teknum hluta mannfólks, konum eða sjómönn- um eða börnum,vaknar jafnan upp viss kviði. Menn eru hræddir við að þau vandamál sem átti að vekja athygli á eins og drukkni i hátiðlegum ræðum og skriffinnsku og hafa óneitanlega ýmissa vondra fordæma að minnast. • Þeim mun ánægjulegra er það, þegar barnaár tengist við jafngott tiltæki og Listahátið barnanna sem nú er haldin að Kjarvalsstöðum við mikla að- sókn og áhuga. Sú hátið er eitt af þvi sem getur eflt mönnum bjartsýni nú um stundir, og mun ekki af veita — hvað sem liður vili um kreppu og niður- skurð þá er haldin glæsileg og allt að þvi ótrúleg hátið. Þessi atburður bætir mönnum i skapi með fleiri en einum hætti. Hann vekur athygli á þeim framförum sem hafa orðið á ýmsum sviðum skóla- starfs, enlátt kemur almenningi i landinu meira við en einmitt það. Hann vekur athygli á skapandi kröftum barna, sem vel gætu fyllt marga Kjarvals- staði, eins og aðstandendur hátiðarinnar hafa tekið fram. Og siðast en ekki sist ber hann vitni mjög já- kvæðri viðleitni sem kemur fram i þvi, að á barna- ári séu það einmitt börnin sjálf sem spurð eru að þvi, hvað þau vilji helst til málanna leggja. Fyrirvarar um Nató • Eins og rakið hefur verið hér i blaðinu öðru hverju að undanförnu, þá hefur i nokkrum löndum Vestur-Evrópu gætt vaxandi gagnrýni stjórnmála- manna á nokkurnveginn óskertri herforingjastjórn á málefnum Nató. Það eru ekki hvað sist ýmsir foringjar sósialdemókrata sem hafa ýmislegt við það að athuga hvernig herstjórarnir, og þá fyrst og fremst þeir bandarisku, stjórna stjórnmálamönn- um með þvi að skammta þeim ekki alltaf áreiðan- legar upplýsingar, upplýsingar sem teyma þá inn á sjónarmið þau, sem hagkvæm eru þeirri samsteypu hershöfðingja og iðjuhölda sem mestu ráð um vopnasmið og vopnasölu. • öflugast hefur gagnrýnin verið hjá hollenskum sósialdemókrötum. Þeir sátu einmitt á þingi nú um siðustu helgi, og voru varnarmál mjög ofarlega á baugi. Tillaga um að hætta þátttöku i hernaðar- samstarfi Natórikja var að sönnu felld,enhúnhlaut engu að siður mikiðfylgi —6.555 atkvæði gegn 7.677. Gagnrýnendur fyrri stefnu unnu hinsvegar merkan sigur i atkvæðagreiðslu um aðra tillögu. Fengu þeir það samþykkt, að flokkurinn féllist þvi aðeins á að- ild Hollands að Nató, að bandalagið tæki ekki i notk- un hina umdeildu nifteindasprengju. Þar að auki var samþykkt tillaga um það, að sósialdemókratar, sem nú eru i stjórnarandstöðu, ættu að beita sér gegn öllum kjarnorkuvigbúnaði þegar þeir kæmust i stjórn. • Þetta mun vera i fyrsta sinn um langan tima sem slikir fyrirvarar við vigbúnaðarkapphlaupi eru samþykktir af hálfu sósialdemókrataflokks i Nató- riki. Væri ekki ráð að senda utanrikisráðherra íslands á námskeið til flokksbræðra sinna i Haag? -áb k Fyrirmyndir íhaldsins Bjarni P. Magnússon ritar at- hyglisveröa forystugrein i Alþýöublaðiö i gær. Þar veltir hann þvi fyrir sér hvert Sjálf- stæðisflokkurinn sæki fyrir- myndir sinar og kemst að hroll- vekjandi niöurstöðum: „Sjálfstæöisflokkurinn hefur á siðustu árum verið að breyt- ast. Það er athyglisvert að skoða hvert flokkurinn hefur sótt fyrirmyndir sinar og frá hvaða öflum. 1 slðustu kosn- ingabaráttu var slagorð Sjálf- stæðisflokksins frelsi eða sósíal- ismi. Slagorðið varð til 1976 og sá sem bjó það til var þá for- sætisráöherra i Baden- Wuerwnberg i Vestur-Þýska- landi, maöur aö nafni Hans Fil- binger. Siðla siöasta sumar varð hann að láta af völdum þegar það komst upp aö hann hafði unniö sem striðsdómari nasista i Noregi. Franz Josef Strauss leiðtogi CSU I Vestur- Þýskalandi gerði slagoröið að slagorði sins flokks I kosningun- um 1976 I Vestur-Þýskalandi. Sá sami Strauss sagði i nóvember 1977 á feröalagi i Chile við ein- ræðisherranr Augusto Pinochet „Sjá þú til þess að frelsið verði varið i þinu landi”. Þannig er túlkun þessa andlega leiðtoga ihaldsflokka I heiminum á orð-. unum frelsi eða sósialismi — þaö má réttlæta ógnarstjórnir vegna þess að þær berjast gegn sósíalisma. Það er ekki siður áhugavert að hyggja að túlkun Filbingers á slagorðinu, en hann sagði 1976 að slagoröið fjallaði um — lýðræðisriki — eða socialistiskt riki. Þar með er það gefiö að allir sem aðhyllast vinstri kenningar séu fjand- menn lýðræðis.” Geir Beint samband „Auðvitað segja menn hér heima að hér sé ekki um or- sakasamband að ræða, sjálf- stæðismenn hafi einfaldlega dottið ofan á þetta ágæta slag- orö og svona sé það bara meö tilviljanir I þessum heimi. En er þaö svo? Alþýðublaðiö dregur mjög i efa aö ekki sé samband á milli hægri afla á Islandi og annarsstaðar i heiminum. Næg- ir að benda á þá staðreynd að yngri menn i Sjálfstæöisflokkn- um hafa mjög góð samskipti við skoðanabræður sina i Vestur- Evrópu og varla eru þeir bara að tala um daginn og veginn þá er þeir hittast.” hafa ekki viljaö opinbera hægri stefnu sina með þvi að ganga til liðs við Strauss, má sem dæmi nefna flokkana i Hollandi og Belgiu og sennilega á það og við um Sjálfstæöisflokkinn.” Þversagnirnar „En opinberunin á sér stað með öörum hætti, hugmynda- fræðingar Sjálfstæðisflokksins boöa nú Endurreisn i anda frjálshyggju. Kjarni þeirrar stefnu felst I þvi að boða frjálst markaðskerfi sem hvergi er til, nema þá i hugmyndafræði hag- fræðikennslubóka. Hið svokall- aða frjálsa hagkerfi á að tryggja einstaklingnum frelsi, frelsi frá stööugum rikisafskipt- um frelsi undan socialisma. Þversögnin er hinsvegar sú að það er löngu sannað að kostir hins svo kallaöa frjálsa mark- aöskerfis nýtast ekki án rfkisaf- skipta þannig að tómt mál er um það að tala að endurreisn geti átt sér stað i anda frjáls- hyggju. Slikar staðreyndir skipta þá sjálfstæðismenn litlu máli. Þaö sem máli skiptir er að vera trúr hugsjóninni um frelsi hins sterka til þess að deila og drottna, frelsi fjármagnsins til þess að ráða yfir mönnum og þjóðum. Þvi er baráttan gegn socialisma algjört forgangs- verkefni jafnt hjá Strauss, Pino- vhet sem hjá Sjálfstæöisflokkn- um.” -e.k.h. Strauss Samræmd hægri sveifla „Alþýöublaðið vill og benda á þá staðreynd að hægri sveifla Sjálfstæðisflokksins hvað varð- ar stefnumótun og slagoröa val gerist samtimis þvi aö hægri flokkarnir i Evrópu stofna Alþjóðasamband hægri flokka og einkennilegt nokk þá var það Strauss sem hvaö hatrammast barðist fyrir þvi að sambandiö yrði stofnað og notaöi til þess á fundum slagorðið frelsi eða socialismi. Alþjóöasamband hægri flokka var stofnað af sjö flokkum og tiu áheyrnarflokk- um i april 1978. Margir flokkar Pinochet Leikklúbbur Laxdæla hyggur á suöurför með Saumastofuna nú um Saumastofan í Garðinum og á Seltjarn- arnesi Leikklúbbur Laxdæla hefur að undanförnu sýnt leikrit Kjartans Ragnarssonar, „Saumastofuna”,i leikstjórn Jakobs S. Jónssonar við góðar undirtektir. Sýningar eru nú orðnar fimm talsins og hyggur klúbburinn nú á leikför suðurá bóginn. Laugardagskvöldiö 5. mai kl. 21 verður sýning i samkomuhúsinu Garði, og sunnudagskvöldið 6. mai verður Saumastofan svo sýnd i FELAGSHEIMILINU Sel- tjarnarnesi og hefst sú sýning kl. 20. Þó Leikklúbbur Laxdæla sé ungur að árum hefur hann afrek- að mikið á stuttum tima og aöal- lega fengist við islensk verkefni, helgina. Myndin er tekin á æfingu. þ.á.m. Skugga-Svein Matthiasar, Silfurtunglið* eftir Halldór Lax- ness, Táp og fjör og Skjaldhamra eftir Jónas Arnason og nú i ár Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson. Ennfremur hefur klúbburinn leikið og lesiö úr verk- um ýmissa skálda á bókmennta- kvöldum heima I héraði. Leik- klúbburinn var stofnaör 1971, og núverandi formaöur er Sigurjóna Valdimarsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.