Þjóðviljinn - 04.05.1979, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 04.05.1979, Blaðsíða 5
Föstudagur 4. maí 1979 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 5 Sumarstarf fyrir börn og unglinga a vegum borgarstofnana Bæklingurinn „Sumar- starf fyrir börn og ung- Iingai979" er kominn út og hefur honum verið dreift til allra aldurshópa skyldu- námsstigs í skólum Reykjavíkurborgar. I bæklingi þessum er að finna framboð borgar- stofnana á starfi og leik fyrir börn og unglinga í borginni sumarið 1979. Um er aö ræða eftirtaldar stofnanir: Iþróttaráð, Leikvalla- nefnd, Skólagarða, Vinnuskóla og Æskulýösráð Reykjavikur. Starfsþættirþeir, sem um getur i bæklingnum, eru fyrir aldurinn 2—16 ára. Flest atriöin snerta iþróttir og útivist, en einnig eru Innstæðu- bindingin i 27% Innlánsstofnanir veröa aö greiöa 30% af innistæðu- aukningu á bund- inn reikning 1 lögum um stjórn efna- hagsmála o.fl., sem samþykkt voru á Alþingi snemma i þessum mánuði, var ákveðið, að innstæðu- binding i Seðlabankanum mætti vera hæst 28% af inn- stæðufé hverrar innláns- stofnunar i stað 25%, sem áð- ur var I gildi. 1 samræmi við þetta hefur Seðlabankinn nú með samþykki rikisstjórnar- innar ákveðið að hækka há- marksinnstæðubindingu úr 25% i 27%, en unz þvi marki er náð, veröur að greiða 30% af innstæðuaukningu á bund- inn reikning. Ákvöröun þessi er tekin með hliðsjón af batnandi lausafjárstöðu innlánsstofn- ana undanfarna mánuði og meiri aukningu útlána og peningamagns en gert var ráð fyrir i lánsfjáráætlun. Einnig mun þessi ákvörðun stuðla aö þvi aö bæta hlut- fallið á milli bundins fjár i Seðlabankanum og endur- keyptra afurðalána, en afurðalán hafa aukist mun hraðar undanfarin ár en það fé, sem Seðlabankinn hefur til ráöstöfunar til útlána. kynntar reglulegar skemmtisam- komur ungs fólks. Otgjöld þátt- takenda vegna starfsþáttanna eru mjög mismunandi. T.d. er gjald fyrir opið starf á vegum Siglingaklúbbsins kr. 300, en þátt- tökugjald i tveggja vikna nám- skeiði i reiðskólanum i Saltvík er kr. 25.000 og er það dýrasti liður- inn i sumarstarfinu. betta er i 7. skipti sem bæklingurinn um sumarstarf fyr- ir börn og unglinga er gefinn út og sagði Hinrik Bjarnason fram- kvæmdastjóri Æskulýösráðs, að hann teldi bæklinginn hafa náð þeim tilgangi sem til var ætlast. T.d. heföu foreldrar notað bæklinginn mikið i fyrra til að skipuleggja sumarið fyrir börnin. Meðal þess sem kynnt er i bæklingnum nú er kynnisferð i sveit. Farið verður um Olfus og Grafning. Litlar breytingar veröa á sumarstarfinu frá sl. sumri. Þó má geta þess, að útistarf fyrir börn á vegum Bústaða verður nú samfelldara en áður, þannig aö börnin þurfa ekki að fara heim I hádeginu. Tveir nýir starfsvellir veröa opnaðir i sumar, við Langholts- skóla og Alftamýrarskóla. Þá verður starfsvöllurinn við Blöndubakka fluttur að Breið- holtsskóla og starfsvöllurinn við. Rofabæ flyst að Arbæjarskóla. Sundnámskeið verða haldin á fimm stöðum i sumar og verða kennarar 16. Sundhöllin verður lokuð i sumar vegna endurbóta. Fjölmörg Iþrótta- og leikja- námskeið verða haldin og m.a. verður krökkunum nú boðið upp á afbragðs aðstöðu á nýjum iþróttavelli i Laugardal, sem lagður er gerviefni. Að sögn Stefáns Kristjánssonar iþrótta- fulltrúa borgarinnar er hér um stökkbreytingu að ræöa miöaö viö gömlu iþróttavellina. —eös Stjórn Fáks, frá v.: Bergur Magnússon framkvæmdastjóri, Ólafur Magnússon, Jón Björnsson, Ingi Laufdal, Guðmundur ólafsson, formaöur, Hjördis Björnsdóttir, Valdimar Jónsson og Gunnar Steinsson. Hrossum og hestamönnum fjölgar ört í Reykjavík Vorstarfsemi Hestamanna- félagsins Fáks er nú i fullum gangi. A Iaugardaginn kemur verður hin árlega firmakeppni félagsins, og á sunnudag verður efnt til hópreiðar að Hlégarði, en i henni hafa að jafnaði tekið þátt mörg hundruð manns. Um aöra helgi verða vorkapp- reiðar Fáks að Viðivöllum. Þar verður keppt i hefðbundnum vegalengdum svo sem 250 metra skeiði, 250, 350 og 800 metra stökki og 800 metra brokki. 19. mai verður svo farin hópferð á hestum upp á Sandskeið, og 24. mai er fyrirhuguð hópreið i Heið- mörk ef ástand gróðurlendis leyf- Skipaverkstöð i Kleppsvik: Viðræðuhópur frá iðn- aðarráðuneytinu skipaður Iðnaðarráðherra hefur skipaö fjögurra manna viðræðuhóp samkvæmt beiöni hafnarstjórnar Reykjavikur tii þess að fjalla um uppbyggingu skipaverkstöðvar i Kleppsvik. I nefndinni eiga sæti: Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræöingur, Gunnar Guttormsson, deildarstjóri, Jón Karlsson og Ólafur Ragnar Grimsson, þingmaöur. Gunnar Guttormsson er formaður nefndarinnar, sem mun skv, bréfi sem lagt var fram á fundi hafnar- stjórnar i gær vera reiðubúin til viðræðna þegar i stað. Hafnar- stjórn skipaði 5 manna undirnefnd til að ræða við stjórnvöld um þetta mál, og er Björgvin Guðmundsson, formaður hafnarst jórnar formaöur þeirrar nefndar. —AI. ir. Aö venju verða svo Hvita- sunnukappreiðar, en þær hafa farið fram frá stofnun Fáks 1922. Dregið verður i Happdrætti Hestamannafélagsins Fáks 4. júni, og er aðalvinningurinn reið- hestur, sonarsonur Sörla frá Sauðárkróki. Mikil fjölgun félaga hefur verið i Fáki á sl. ári og gengu 191 i félagið. Fáksfélagar eru nú 938. A nýafstöðnum aðalfundi var aöallega fjallað um fyrirhuguð kaup félagsins á beitarjörö. Þetta mál er mjög brýnt fyrir hesta- menn, vegna þess aö beitarlönd i nágrenni Reykjavikur eru orðin alltof þröng og hefur þurft að leysa vandann með þvi aö bera á þau áburð. Hestum fjölgar stöð- ugt á Reykjavikursvæðinu og er nú verið aö byggja ný hesthús I Viöidal og viö Selás fyrir 3 — 400 hross. Stjórn Fáks hefur leitað til borgarráðs um að fá til afnota jaröirnar Saltvik og Arnarholt á Kjalarnesi, og er það mál til athugunar. t frétt frá stjórn Fáks segir aö þaö fari mjög I vöxt að yngra fólk stundi hestamennsku, og starf- rækir Fákur reiöskóla á veturna og frá Saltvlk á Kjalarnesi á sumrin, og hefur Reykjavikur- borg styrkt reiðskólann. Reið- námskeiö eru hafin hjá félaginu og er Reynir Aöalsteinsson kenn- ari. —e.k.h. St. Jósefsspítalinn Landakoti HJOKRUNARFRÆÐINGAR óskast á hinar ýmsu legudeildir spitalans, einnig á gjörgæsludeild og á skurðstofu. Til greina kemur fast starf, hlutastarf og sumar- afleysingar. SJÚKRALIÐAR óskast einnig á hinar ýmsu deildir spitalans. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri i sima 19600 frá kl. Reykjavik4. mai!979. St. Jósefsspítalinn Landakoti Spitalinn óskar eftir BARNAGÆSLU i vesturbænum og leitar eftir barngóðri konu, sem áhuga hefði á að taka að sér börn á aldrinum tveggja til fjögurra ára yfir sumarmánuðina. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri i sima 19600 frá kl. 11—15. Reykjavik4. mai 1979. Mosfellssveit Innritun aðfluttra nemenda i allar deildir grunnskólanna Mosfellssveit næsta vetur, fer fram i skólunum dagana 7.-6. mai kl. 9—13. Simi Varmárskóla (6—12 ára nemendur) er 66267. Simi gagnfræðaskólans (13—15 ára nemendur) er 66586. Skólastjórar Aðalfundur Aðalfundur félags landeigenda i Selási verður haldinn að Hótel Esju laugar- daginn 5. mai 1979 kl. 14. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. önnur mál. Stjórnin. Staða f ramkvæmdast j óra við Háskólabió er laus frá næstu áramót- um. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist skrifstofu Háskólabiós fyrir 15. mai n.k. Háskólamenntun er æskileg. Nánari upplýsingar veitir framkvæmda- stjóri biósins. Stjórn Háskólabiós. íbúðalánasjóður Seltjamamess Umsóknarfrestur um lán úr Ibúðalána- sjóði Seltjarnarness er til 1. júni n.k. Umsóknareyðublöð ásamt reglugerð sjóðsins fást á bæjarskrifstofunni. Lán verða afgreidd fyrir 15. júni. Bæjarstjórinn Seltjarnarnesi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.