Þjóðviljinn - 04.05.1979, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fostudagur 4. maí 1979
T extar
um börn
Segðu mér söguna aftur
Upplestrar- og
söngdagskrá
um börn i
íslenskum bókmenntum
Umsjón:
Guðrún Þ. Stephensen
Þaö var ósköp notaleg kvöld-
stund að sitja i rólegheitum yfir
rauövinsglasi i Leikhúskjallaran-
um og hlusta á þessa dagskrá, —
það er alltof litið gert af þvi hér á
landi að flytja manni uppbyggi-
legt efni við þægilegar og óþving-
aðar aðstæður. Sömuleiðis er það
höfuðkostur þessarar dagskrár
að hún tekur sig ekkert of hátið-
lega er hvorki með hámenningar
belging og alvöruþunga i fasi né
heldur að reyna að sanna eitt eða
neitt — hér koma einfaldlega
nokkrir leikarar saman og flytja
okkur handahófsvalda texta um
börn. Textarnir eru að sönnu mis-
jafnir, og flutningurinn lika, en
þegar á heildina er litiö er þetta
prýðilegt.
Margt var með miklum ágæt-
um, en allra mest þótti mér
gaman að þvi þegar þær Briet
Héðinsdóttir og Anna Kristin
sungu Magnús raular með
öldungis bráðfyndnum tilburðum.
Brlet og Anna Kristin syngja Magnús raular.
Margt annað af sungna efninu var
skemmtilegt, einkum það elsta og
það yngsta. Þarna eru t.d. lag-
lega samsettir textar eftir Pétur
Gunnarsson og Sveinbjörn Bald-
vinsson, báðir kunnir af plötum.
En svo voru lika nokkrir skelfing
þynnkulegir og væmnir textar
eftir Úlf Ragnarsson, Sig. Júl.
Jóhannesson og Orn Arnarson.
Af óbundna málinu bar Þór-
bergur auðvitað af. Eftir hann
voru fluttir tveir textar úr Sálm-
inum um blómið, sem inniheldur
mesta visku um börn af þeim
bókum sem út hafa komiö á
tslandi, annars vegar sagan um
Hauk sem skitti á fiðluna og hins
vegar sagan um merkilegustu
sögu i heimi. Báðir þessir textar
eru snilldarverk og auka meira
skilning okkar á eðli sagna-
skemmtunar en margar doktors-
ritgerðir. Fleira gott má nefna,
svo sem eins og fallega kafl-
ann um stóru systur úr Sjálfstæði
fólki, kafla úr Púnktinum hans
Péturs, hnyttilega og skemmti-
lega leikna kafla eftir Jónas
Arnason og Svavar Gests. Svo
voru kaflar sem voru dálitið
slæmir af þvi að höfundarnir voru
svo ákafir að troða uppá okkur
skoðunum sinum, kafli úr
Atómstöðinni og annar úr Lifandi
vatninu hennar Jakobinu — hvort
tveggja góðar bækur en gallaðar
vegna þess að höfundunum var
svo mikið niöri fyrir.
Þetta er upplifgandi og upp-
byggileg kvöldskemmtun og upp-
lagt að taka eldri börnin með.
Sverrir Hólmarsson
V iðamiklar
r éttindab ætur
I Þjóðviljanum 1. maí s.l.
var skýrt frá svokölluðum
félagsmálapakka og þeim
ávinningi fyrir verkalýðs-
hreyfinguna sem i honum
felst. Þær upplýsingar sem
þar komu voru byggðar á
gömlu viðtali við Arnmund
Backman lögfræðing sem
hefur unnið að gerð þess-
ara lagafrumvarpa. Síðan
hafa hins vegar verið gerð-
ar umtalsverðar
breytingar á þessum
Allt að 6 mánaða laun í
veikinda- og slysatilfellum
í stað 6 vikna áður
Verkafólk sem unnið hefur i 1
ár hjá atvinnurekanda innan
sömu starfsgreinar hefur eins
mánaöar uppsagnarfrest en áður
var þetta bundið þvi að unnið
hefði verið i 1 ár hjá sama at-
vinnurekanda. Nýmæli er hins
vegar að þeir sem unnið hafa i 3
ár hjá sama atvinnurekanda fá 2
mánaða uppsagnarfrest og þeir
sem unnið hafa samfellt i 5 ár hjá
sama atvinnurekanda fá 3
mánuöa uppsagnarfrest. Þetta
bætir mjög úr þvi réttleysi aði
fólki sem hafði kannski unnið 10
frumvörpum í meðferð
Alþingis og auk þess settar
einstakar reglugerðir
varðandi þessi mál í ráðu-
neytum. Þykir þvi ástæða
til þess að skýra frá því
hvernig þessum nýmælum
er háttað og hafði blaðið
samband við Arnmund á
ný á miðvikudag og bað
hann um að segja frá
„ f élagsmá lapa kkanum"
eins og hann er núna.
— 20 ár á sama staö var hægt aö
sparka meö mánaðarfyrirvara
og þannig var kannski kippt al-
gjörlegrunninum undan þess lífs*
munstri.
1 félagsmálapakkanum er lög-
festur réttur verkafólks til 3
mánaða dagvinnulauna i þeim til-
fellum að slys verði i vinnu eða á
leið til og frá vinnu eða vegna at-
vinnusjúkdóma sem orsakast af
vinnunni. Þetta er algjör viöbót
viö gildandi rétt. en áður haföi
verið samið i samningum um 4
vikna sérstakan rétt. Þeir sem
starfaö hafa eitt ár samfellt hjá
sama atvinnurekanda eiga rétt á
óskertum launum I 1 mánuð i
veikinda- og slysatilfellum en
áður höfðu flest verkalýösfélög
samið um 14 daga óskert laun.
Hafi þetta verkafólk verið ráðið i
3 ár hjá sama atvinnurekanda fær
það 1 mánuð að auki á daglaunum
og eftir 5 ára starf samtals 3
mánuöi. Þetta þýðir að verkafólk
getur átt rétt á allt að 6 mánaða
launum i veikinda- og slysatil-
fellum i stað 6 vikna hámarks
áður.
18 mánaða ríkisábyrgð á
laun vegna gjaldþrota
Þá er gert ráð fyrir allt að 18
mánaða rikisábyrgð á laun, verði
fyrirtæki gjaldþrota en reynslan
sýnir aö þeir 6 mánuðir sem fyrir
voru nægðu ekki til að fólk næði út
þessum peningum sinum. Hér er
þvi um verulega kjarabót að ræöa
þar sem mjög algengt er aö fyrir-
tæki fari á hausinn með stór-
felldar upphæðir i vangreiddum
launum. Þá bætist þaö við aö
ráðuneytið er búið aö gefa út
reglugerð þar sem kveðiö er á um
að rikissjóöur greiði fulla vexti á
þessa kröfu.
Orlof greitt þó um vanskil
sé að ræða og vextir
hækkaðir
Mjög hefur verið undir hælinn
lagt að þegar fólk hefur ætlað i
sumarfri hafi það fengiö
orlofsfé sitt útgreitt vegna van-
skila fyrirtækja á greiðslu þessa
fjár. Þá hafði Póstgiróstofan
enga lagaheimild til aö rannsaka
Viðtal við
Arnmund
Backman
lögfræðing
um
Jélags-
málapakk-
ann”
eins og hann
er nú
sjálfstætt hvað hverjum atvinnu-
rekanda bar að greiða. Nú er
reglugerð að sjá dagsins ljós þar
sem kveðið er á um að Póstgiróið
greiði viðkomandi fólki orlof þó
aö um vanskil sé að ræða hjá at-
vinnurekandanum. Þannig
greiöir það höfuöstólinn strax en
vexti þegar innheimta hefur farið
fram. Þá hefur Póstgiróstofan
fengið heimild til að fara i bók-
haldsgögn fyrirtækja til að stað-
reyna orlofsgreiðslur. Þá er rikis-
stjórnin búin að samþykkja
vaxtahækkun úr 5% i 11,5% og
hefur til athugunar að hækka
vextina enn meira.
Bein lögtök heimiluð vegna
vanskila í sjóði
Þá hefur nú verið heimilað að
taka beint lögtak án undanfar-
andi dóms eða sátta hjá atvinnu-
rekanda vegna vanskila á
umsömdum greiðslum i sjúkra-,
orlofs- og stéttarsjóði stéttar-
félaga svo og iögjaldagreiöslum i
lifeyrissjóði. Þetta auöveldar
mjög alla innheimtu.
Næturvinna að lokinni dag-
vinnu á föstudögum
Þá er nú á lokastigi hjá Alþingi
frumvarp um að næturvinna skuli
hefjast að lokinni dagvinnu á
föstudögurp, en beöið er með að
fella eftirvinnu algjörlega niöur
þar til séö veröur hvernig þessi
breyting kemur út i raun.
Bætt hollusta og öryggi á
vinnustöðum
Að lokum má geta þess að
viðamikið frumvarp um aöbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnu-
stööum liggur nú hjá rikisstjórn-
inni,en endurbót á þvi sviöi var
eitt af loforðum í „félagsmála-
pakkanum”. I þessu frumvarpi
eru geysimiklar úrbætur um
öryggi á vinnustöðum svo sem
um ókeypis læknisþjónustu fyrir
verkafólk á 2 ára fresti, öryggis-
trúnaðarmenn og nefndir, lág-
marks hvildartima og Vinnueftir-
lit rikisins.
—GFr