Þjóðviljinn - 04.05.1979, Síða 16
DJOÐVIUINN
Föstudagur 4. maf 1979
Aðalslmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga, kl. 9 — 12 f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
Utan þess tima er hægt að ná I blaðamenn og aðra starfs-
menn blaösins i þessum slmum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, afgreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans I slma-
skrá.
Guðmundur Hallvarðsson, for-
maður Sjómannafélagsins:
, ,Harðari
afstaða
en áður
vegna verkbannsins
99
„Kröfur okkar eru komnar
fram og við komum okkur sam-
an um að vlsa málinu til sátta-
semjara,” sagöi Guðmundur
Hallvarðsson formaður Sjó-
mannafélags Reykjavikur, er
Þjóðviljinn hitti hann að máli
við upphaf samningafundar sjó-
Guðmundur Hallvarðsson: Með þessu eru vinnuveitendur að hengja bakara fyrir smið. (Ljósm.:eik)
manna og útgerðarmanna kl. 14
i gær. Þetta var fyrsti sátta-
fundur þessara aðilja, en at-
vinnurekendur hafa lýst yfir
verkbanni á undirmenn á kaup-
skipum frá og með miðnætti 10.
mal nk.
„Verkbannið er sist til hins
betra og má segja að nú komi
aðrirmenn að samningaborðinu
en þegar kröfur vinnuveitenda
voru lagðar fram,” sagði Guð-
mundur. „Afstaða okkar er nú
einbeittari og harðari en áöur.
Viö vorum ekki búnir að leggja
fram kröfur okkar, þegar
vinnuveitendur boðuðu okkur á
sinn fund og lögðu þar fram sín-
ar kröfur. Þeir knúðu þarmeö
fram okkar kröfur og settu sið-
an þetta verkbann i beinu fram-
haldi af þvi, nákvæmlega með
þeim hætti sem vinnuveitendur
hafa hvað mest gagnrýnt I
starfsaðferðum yfirmanna á
farskipunum. Við fáum ekki séð
hvað veldur , en með þessu eru
vinnuveitendur aö hengja bak-
ara fyrir smið.” -eös
I
■
I
■
I
■
-!
Uppreisnarmenn eða framagosar? Myndin er tekin á blaöamanna
fundi fimmtánmenninganna i gær (Ljósm.: eik)
15 ungir og miðaldra Sjálfstæðismenn gefa
út bókina Uppreisn frjálshyggjunnar:
Hvöss gagnrýni á
Sjálfstæðisflokkinn
t gær boðuðu 15 ungir og mið-
aldra Sjálfstæöismenn til blaða-
mannafundar til að kynna bókina
Uppreisn frjálshyggjunnar sem
þá kom út. Ritstjóri er Kjartan
Gunnarsson og sagði hann að i
henni kæmi fram hvöss gagnrýni
á Sjálfstæðisflokkinn og störf
hans I siðustu rikisstjórn.
1 formála fyrir bókinni segir
m. a. að það sé orðið löngu tima-
bært að snúa sókn kommúnista i
Humarvertíð
hefst 21. maí
Akveðið hefur verið hvaða regi-
ur skuli gilda um humarveiðar á
komandi humarvertlð og eru
þessar hinar heistu:
1. Humarvertið hefst 21. mai
n. k. og stendur ekki lengur en til
15. ágúst n.k.
2. Ekki veröur leyft að veiða
meira en 2500 lestir humars á
vertiöinni og verða veiöarnar
stöövaöar fyrirvaralaust þegar
þvi magni hefur verið náö.
3. Humarleyfi verða aðeins
veitt bátum, sem eru minni en 105
brúttórúmlestir. Þó veröur stærri
bátum veitt leyfi til humarveiða
séu þeir búnir 400 hestafla aðalvél
eða minni.
4. Umsóknir sem berast eftir 15.
mal n.k. verða ekki teknar til
greina.
Auk þess gilda venjulegar
Framhald á blaðsiðu 14.
vörn og kveöa niður hatursróginn
gegn frjálsu framtaki og athafna-
lifi. Hugmyndafræði öfundarinn-
ar hefur of lengi ráðið of miklu i
samskiptum manna á íslandi,
segirþar. Fimmtánmenningarnir
sögðu að það væri löngu orðið
timabært að taka Sjálfstæðis-
flokknum tak og bókinni væri
m.a. ætlaö það hlutverk og þess
vegna kæmi hún út sama dag og
Landsfundur flokk^sins hefst.
Ekki vildu þeir þó viöurkenna aö
hún væri liður i innbyrðis valda-
baráttu. Blaðamaður Þjóðviljans
spurði hvort þetta væri uppreisn
innan Sjálfstæðisflokksins og
spurði þá einn fimmtánmenning-
anna, Halldór Blöndal varaþing-
maður, á móti hvort honum fynd-
ust þeir vera uppreisnarlega
vaxnir og varö blaðamaðurinn að
játa að'honum fyndist það ekki.
Þeir sem eiga efni i bókinni eru
Bessi Jóhannsdóttir kennari,
Baldur Guðlaugsson lögfræðing-
ur, Björn Bjarnason skrifstofu-
stjóri, Davlð Oddsson borgarfull-
trúi, Erna Ragnarsdóttir arki-
tekt, Friðrik Sophusson alþingis-
maður, Geir Haarde hagfræðing-
ur, Halldór Blöndal varaþing-
maöur, Hannes Gissurarson hug-
myndafræöingur, Jón Asbergsson
viöskiptafræðingur, Jón Steinar
Gunnlaugsson lögfræðingur, Pét-
ur Eiríksson framkvæmdastjóri,
Þór Whitehead sagnfræöingur,
Þorsteinn Pálsson framkvæmda-
stjóri og Þráinn Eggertsson hag-
fræðingur.
YFIRMENN_Á FARSKIPUM:
Látum vinnuveitendur
um rangfærslurnar
Á f undi sínum i gær sam-
þykkti samninganefnd
FFSi að afturkalla ekki
undanþágu fyrir Fjallfoss/
sem hefur verið í áburðar-
flutningum til hafíssvæð-
anna fyrir norðan og aust-
an. Segir i samþykktinni að
þrátt fyrir harkalegar
verkbannsaðgerðir Vinnu-
veitendasambandsins hafi
aðstæður bænda lítið
breyst, og því muni Far-
manna- og fiskimanna-
sambandið ekki svara með
hörku og þvermóðsku, að
hætti vinnuveitenda.
Nefndin átaldi einnig harðlega
þá ósvlfnu áróðursherferð sem
Vinnuveitendasambandiö hefur
rekið gegn farmönnum I fjölmiðl-
um landsins. I samþykktinni er
sérstaklega minnst á fuilyrðingar
Þorsteins Pálssonar fram-
kvæmdastjóra VSI i sjónvarps-
þættinum „Kastljósi” s.l. föstu-
dag. En að sögn farmanna fór
hann þar með illar ýkjur um tekj-
ur bæöi skipstjóra og vélstjóra.
Jafnframt segja farmenn að Þor-
steinn hafi smurt hvorki meira né
minna en 50% á þær tekjur, sem
hann kvað annan stýrimann hafa
að jafnaði.
ÖS
Farmannaverkfallið harðnar:
Undanþágumar
afturkallaðar
Verðandi óskað til hamingju með „stéttvísina” 1. maí
„Við höfum verið held-
ur tregari á undanþágur
núna og drógum til baka
þær undanþágur sem búið
var að veita til færslu á
skipum i höfninni," sagði
Þorkell Pálsson formað-
ur verkfallsnefndar FFSi
í viðtali við blaðið í gær.
Brúarfoss hafði fengið
heimild til að fara undir
kornkranann í Sundahöfn
og til baka aftur, og einn-
ig hafði Háafossi verið
heimilað það sama. Síð-
degis í fyrradag voru
þessar undanþágur
dregnar til baka og er
Brúarfoss nú stöðvaður
undir krananum, en verið
er að moka 400 tonnum af
korni úr Háafossi.
Fleiri undanþágur til korn-
losunar hafa verið dregnar til
baka og undanþágubeiðni fyrir
Kyndil til oliuflutninga var
hafnað. 1 gær fékk Reykjafoss
leyfi til að losa i Reykjavik, en
skipiö er að koma að utan og
Mælifell fékk leyfi til losunar á
Svalbarðseyri vegna snjókomu
og slæmrar færðar þar fyrir
norðan.
„Eftir þvi sem okkur sýnist
stefnir I langt verkfall”, sagði
Þorkell. „Þaö má sjá það á þvi
hvernig gengið er frá skipunum
og þaö virðist vera álit okkar
viðsemjenda að það verði langt.
Og þegar þeir vilja ekki einu
sinni yröa á samningamenn
okkar, þá verður maður að
búast við löngu verkfalli, þvi
miður.”
Þorkell sagðist að lokum vilja
óska Verðandi I Vestmanna-
eyjum til hamingju með „stétt-
vlsina” 1. mai. Þann dag var
samþykkt á fundi I félaginu að
félagsmenn skyldu greiða at-
kvæði um áframhaldandi aðild
félagsins að FFSI. Fór sú at-
kvæðagreiösla fram I gær.
—eös
-GFr