Þjóðviljinn - 06.05.1979, Qupperneq 3
Sunnudagur 6. mal 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
flöskuskeyti aö utan ...flöskuskeyti aö utan ...flöskuskeyti aö utan ...
Pyntingar I spænskum fangclsum: Andi Frankós svlfur enn yfir
vötnum Juan Carlos.
Forsíðu
myndin
Forslða Sunnudags-
blaðsins er að þessu sinni
eftir Ragnheiði Jónsdóttur
og ber myndin nafnið „2010”.
Ragnheiðurstundaði nám i
Myndlistarskólanum i
Reykjavik 1959-60 og 1964-68,
og ennfremur i Myndlista- og
handiðaskóla Islands á
árunum 1968-69. HUn var
einnig við myndlistarnám i
Danmörku, á Glytpotekinu
Kaupmannahöfn 1961-’62, og
i Frakklandi, Atelier 17
Paris, 1970.
Ragnheiður hefur tekið
þátt i fjölda samsýninga. Af
alþjóðlegum samsýningum
má nefna: Biannalinn i
Bradford 1972 og 1978, Graf-
isku sýninguna i Ljubljana
1971, ’73, ’75, ’77, og ’79.
Prentbiannalinn i Freidrik
stad i Noregi ’72, ’74, ’76, og
Ragnheiður Jónsdóttir
’78, Evrópska biannalinn i
Mulhouse 1974 og 1978,
Biannalinn á Ibiza, 1974 og
1978, Alþjóðlega biannalinn i
Krakow, Póllandi ’72, ’74, ’76
og '78, Biannal evrópskrar
grafiklistar Heidelberg —
New York 1979 og Sýningu
verölaunahafa i Frechen
1978, en á þeirri sýningu
hlaut Ragnheiður 6.
verðlaun.
Ragnheiður hefur einnig
haldið margar einka-
sýningar bæði hérlendis og
erlendis. Hún hefur bæði
sýnt i Reykjavfk, á Akureyri
og ísafirði. Erlendis hefur
Ragnheiður haldið sýningar I
Galleri Móment 76, Stokk-
hólmi 1977, Galleri Hell-
iggjest, Kaupmannahöfn,
1978 og i Alberta-háskóla
Edmonton, Kanada 1979.
Fjöldi listasafna, bæði á
Islandi og I Evrópu hafa
keypt myndir Ragnheiðar
Jónsdóttur, þ.á.m. öll helstu
listasöfn Norðurlanda. —im
de Gaulle: Landsetrið selt, mun-
irnir á uppboð og ekkjan á elli-
heimili.
Ekkja
de Gaulle
a emheimili
Paris 27. april:
Yvonne de Gaulle, ekkja fyrr-
verandi Frakklandsforseta,
Charles de Gaulle, hefur neyðst
til að selja landsetur sitt i
Comombey-Les-Deux-Eglises
vegna fjárhagsörðugleika .
Ekkjan mun innan tiðar fara til
Parisar og eyða ævikvöldinu á
elliheimili.
Phillipe de Gaulle aðmiráll og
sonur forsetans heitins, hefur
ákveðið að hluti landsetursins
verði gerður að safni. Hann hefur
tilkynnt uppboð á 300 munum,
sem voru i eigu föður hans, og
hyggst nota peningana til að fjár-
magna safnið. Franska stjórnin
hefur hins vegar lýst þvi yfir
nýverið, að hún muni reyna að
finna lausn á fjármögnunar-
vandamálinu, þannig að ekki
þurfi að koma til þess, að munir
fyrrverandi Fakklandsforseta
fari á uppboð.
Ný lög
varðandi
nauðgun
Honululu, 30. april:
Hawaii er fyrsta ríki Banda-
rikjanna, sem hefur sett lög þess
efnis, að eiginmenn geta ákært
konur sinar fyrir nauðgun.
Allmörg riki Bandarikjanna
hafa sett lög varðandi nauðgun I
hjónabandi, en einungis I þvi til-
viki, að konan sé fórnarlambið.
Hawaii er hins vegar fyrsta
rikið, sem heimilar manninum að
kæra konuna fyrir sama verknað.
Pyntingar
í fangelsum
á Spáni
Kaupmannahöfn 28. april:
— Pyntingar eru enn við lýði I
fangelsum á Spáni, en aðferðirn-
ar hafa breyst, sagði spænski
læknirinn Eva Forest á blaða-
mannafundi sem hún hélt I Kaup-
mannahöfn I slðustu viku.
Eva Forest hefur nýlega sent
frá sér tvær bækur um aðstæð-
urnar i spænskum fangelsum.
Þær heita „Pyntingar á Spáni” og
„Dagbókarkorn og bréf úr
fangelsi minu”.
A fundinum sagði læknirinn
að fangarnir gætu til og með
valið sér pyntingaraðferð —
og auðvitað er þetta allt gert i
nafni lýðræðisins. Siðustu fjóra
mánuði hafa rúmlega 400 fangar
verið pyntaðir i spænskum fang-
elsum, að sögn Forest og hefur
hún sjálf tekið viðtöl við um 40
þessara fanga. Höfuðpyntingaað-
ferðin er rafmagnshögg og sér-
stök högg sem slegin eru með
höndinni á allan likama fangans
með þeim afleiðingum að fórnar-
lambið fær svima og ógleði sem
likist sjóveiki.
Fleiri
en einn
ieinu
Tími ferðalaga og sumarleyfa fer í hönd, þá er
endurnýjun miða fyrir fleiri en einn mánuð í einu
góður varnagli. Komiö tímanlega til umboðsmanns-
ins.
Við drfigum 10. maí.
5. flokkur
18 @ 1.000.000- 18.000.000,-
36 — 500.000.- 18.000.000,-
207 — 100.000,- 20.700.000-
630 — 50.000- 31.500.000,-
8.100 — 25.000- 202.500.000,-
8.991 290.700.000-
36 — 75.000,- 2.700.000,-
9.027 293.400.000-
Brögðóttur
bakari
Messina, 30. april:
Bakari frá Sikiley hefur veriö
handtekinn af Itölskum yfirvöld-
um, ásakaður fyrir að svikja fé út
úr tryggingarfélögum og valda
umferðaröngþveiti. Hann hefur
einnig misst ökuleyfið.
Dómarinn i Messina gaf skipun
um að handtaka bakarann, sem
heitir Pietro Vernuccio og er 35
ára að aldri, eftir að mörg trygg-
ingarfélög höfðu kært hann.
Tryggingafélögin höfðu borgað
Pietro háar upphæðir vegna
árekstra sem hann átti ekki sök á,
en talan var orðin grunsamlega
há, þar sem Pietro hafði lent i 100
árekstrum á siðasta ári.
Við rannsókn kom i ljós að bak-
arinn var sérfræðingur i um-
ferðarreglum. Þekkingu sina not-
aði hann i fristundum sinum með
þvi að koma öðrum ökumönnum á
óvart en ávallt þannig að það var
ekki hann heldur fórnardýrið sem
átti sök á árekstrinum.
Billinn hans Pietro, sem er af
gerðinni Fiat 500, var orðinn mjög
skældur og skellóttur eftir alla
árekstrana, en hvað gerði það til
þegar ökutækið aflaði honum
mikilla tekna...
HAPPDRÆTTI
HÁSKÖLA ÍSLANDS
Menntun í þágu atvinnuveganna
---------------------------------------
Skrifstofustörf
Fjármáladeild Sambandsins óskar að
ráða i eftirtaldar stöður:
1. Viðskipta- eða hagfræðing i kaupfélaga-
eftirlit.
2. Skrifstofumann með bókhaldskunnáttu,
Samvinnuskóla- eða hliðstæð menntun
æskileg.
Umsóknir er greini aldur, menntun og
fyrri störf sendist starfsmannastjóra, er
gefur nánari upplýsingar, fyrir 12. þ. mán.
$ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Nordsjö og Harpa deila með sér plássi í nýju
byggingavörudeildinni. Nordsjö málningin blönduð
á staðnum í þúsundum lita, örugg og einstaklega
qj áferðarfalleg málning. Öll áhöld til málningar-
__ vinnu og allrar almennrar byggingarvinnu.
e>L_______________________________________
Byggingavörudeild
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Sími 10600