Þjóðviljinn - 06.05.1979, Blaðsíða 7
Sunnudagur 6. mai 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Mér
datt það
í hug
Þaö er alltaf hressandi
að heyra i Davið Scheving
Thorsteinssyni iðnrek-
anda# sem sér til þess að
islenska þjóðin baðar sig
á hverjum morgni i sólar-
geislanum frá Flórída.
Þessum sólargeisla, sem
gengur undir nafninu
Tropicana. Þetta nafn
minnir okkur á, að þrátt
fyrir allt teygir hitabeltið
ofurlitinn anga sinn hing-
að norður undir heim-
skautsbaug. Eins og það
gerir líka með golf-
straumnum.
Daviö er aö visu barlómsmaö-
ur mikill fyrir hönd félaga
sinna, iönrekenda. En þótt hann
sé „lóminn lemjandi”, eins og
foröum var kveöiö um signor
Jón Arnason i SIS, er hann
hressandi eins og sólargeislinn
frá Flórida. Ég hefi aö vfsu
aldrei tekiö barlóm Daviös
mjög alvarlega. Ekki frekar en
stjórnvöld, aö sjálfs hans sögn.
Minnugurþess gamla máltækis,
aö enginn er búmaöur, nema
berji sér. Þetta hefur reynst
mér einkenni á flestum góöum
búmönnum, sem ég hefi kynnst.
Ég þykist viss um, aö Daviö er
góöur búmaöur.
A nýlegu ársþingi islenskra
iönrekenda setti Daviö fram á-
hugaveröa hugmynd um þaö,
sem hann nefndi „dulbúiö at-
vinnuleysi” á tslandi. Hann
kvaöþaö rikjandi I sjávarútvegi
og landbúnaöi og nefndi rök
fyrir staöhæfingu sinni.
Hann viöurkenndi lika, aö 1
iönaöi á Islandi væri framleiöni
alltof litil, en nefndi ekki bein-
linis dulbúiö atvinnuleysi i
þeirri grein.
Ef mælistika hans er lögö á
suma þætti i islenskum iönaöi,
rikir þar eflaust dulbúiö at-
vinnuleysi, rétt eins og i sjáv-
SIGURÐUR BLÖNDAL skrífar
Dulbúið atvinnuleysi
arútvegi og landbúnaöi. Eitt lit- En þetta eru auövitaö smá-
iödæmi: Hversu margar skyldu munir einir miöaö viö þá um-
vera þær trésmiöjur á Islandi, framkrafta i fé og fólki sem eru
sem hver um sig getur smiöaö i f jóröu stærstu atvinnugrein ls-
allar inni- eöa útihuröir i þau
hús, sem reist eru á hverjum
tima á landinu? Er ekki þarna
bundin fjárfesting og mannafli
langt umfram þarfir? Engu sið-
ur en i sildveiöum tslendinga
þessi árin, sem Jakob Jakobs-
son segir, aö sé hæfilegt verk-
efni fyrir 8-10 skip.
lendinga, versluninni. Skyldi
ekki rikja dulbúiö atvinnuleysi
þar? Ef fariö er eftir skýrgrein-
ingu Daviös.
Hérna um áriö var ég aö
hnýsast I þetta og sá þá, aö i
Reykjavik einni voru 990 smá-
söluverslanir. Ekki trúi ég þeim
hafi fækkað siöan, en mig minn-
ir þetta hafi veriö 1971. Og þá
voru skráöar 525 umboös- og
heildverslanir. Skyldi þeim hafa
fækkaö?
Fyrir einum 3 árum eöa svo
kom til Islands enskur sérfræö-
ingur i verslunarmálum. Mig
minnir þaö væri á vegum versl-
unarinnar sjálfrar. Hann átti aö
gera tillögur eða setja fram á-
bendingar um hagræöingu I at-
vinnugreininni. Ég hnaut um þá
yfirlýsingu hans aö rannsókn
lokinni, aö heildverslunin væri
aö veröa úrelt fyrirbæri, sem
aöeins leiddi af sér aukinn
kostnaö og þar af leiðandi hærra
vöruverö. Haföi hann rétt fyrir
sér?
Ef svo skyldi nú vera, þá eru
þessi 500-600 innflutnings- og
heildsölufyrirtæki óþörf og þá
hlýtur aö vera átakanlega mikiö
dulbúiö atvinnuleysi i þessari
atvinnugrein.
En litum á fieira.
Fyrir 2 árum tæpum sá ég
stóra bók meö fallegri kápu-
mynd, útgefna af Orkustofnun.
Hún bar nafnið Hólsfjallavirkj-
un.Og fjallaöi um virkjun meö
þessu nafni i Jökulsá á Fjöllum.
Þetta var einn virkjunarval-
kostur til raforkuvinnslu i þessu
mikla og grugguga fljóti.
Valkosturinn geröi ráö fyrir
þvi, aö fylla Möðrudal á Efra--
Fjalli af vatni, sem skyldi veröa
miölunarlón fyrir virkjunina.
Hæö vatnsborös i lóninu má
marka af þvi, að turnspiran á
krikju Jóns i Möörudal átti aö
standa ein upp úr vatnsfletin-
um, rétt eins og sjónpipa á kaf-
báti upp úr haffletinum.
Fyrir þann sem horft hefir yfir
Möörudal af Vestara-Fjallgaröi
i kvöldsól og skynjaö þá dverga-
smiö náttúrunnar, sem þessi
dalur er og þekkir alla þá sögu,
sem viö hann er bundin, virtist
þaö sérkennilega iöja, aö láta
færustu verkfræöinga landsins
gera sér þaö til dundurs aö út-
hugsa svona mikiö lón til raf-
virkjunar, sem aöeins skildi eft-
ir turnspiruna á kirkju Jóns I
Möörudal til minja um þaö lif og
land, sem fyrrum var á Efra--
Fjalli. Hverslags stjórnmála-
menn gátu þaö veriö, sem á
þennan hátt sólunduðu dýrseld-
um og dýrmætum vinnukrafti?
Og þaö fyrir einn baunadisk
handa einhverjum útlending-
um, sem eru aö reyna aö koma
peningum sinum I lóg.
1 agndofa undrun minni varö
mér á aö spyrja: Þvi eru þessir
verkfræöingar ekki heldur settir
I einhver gagnleg störf t.d. I
frystihús eöa á togara? I staö
þess aö sækja stúlkur til Astra-
liu. Eöa i staö þess aö skrifa vis-
indaskáldsögu , sem ber jafn-
hverdagslegt nafn og Hóls-
fjallavirkjun. Bara þessi eina
visindaskáldsaga hlýtur aö hafa
kostaö tugi miljóna króna, ef
ekki meira.
Þegar Daviö Scheving setti
fram hugmynd sina um hib dul-
búna atvinnuleysi, rifjaðist út-
koma þessarar skáldsögu upp
fyrir mér. Táknar hún ekki dul-
búiö atvinnuleysi þeirra verk-
fræöinga og jaröfræöinga, sem
sömdu hana?
En greiöslan til þeirra heitir
ailavega ekki atvinnuleysisbæt-
ur, heldur finu nafni: Rann-
sóknir á virkjunarvalkostum Is-
lendinga.
Stundum er viö hæfi að halda
sér við veruleikann, þótt skáld-
sagnagerð geti veriö freistandi
atvinnubótavinna. Á sama hátt
og Arnas Arneus skýröi von
Offelen forðum frá þeim veru-
leika, að þaö væri ekki hægt aö
selja ísland, er veruleikinn sá i
dag, aö jafnvel i rannsóknum á
virkjunarvalkostum Islendinga
eru vissir hlutir, sem ekki er
hægt aö láta verkfræðinga og
jarðfræöinga fást viö. Þaö eru
ákveöin mörk velsæmis, sem
má ekki leyfa þeim aö stiga yfir.
Meöal þess er þaö aö láta
Möðrudal á Efra-Fjalli i friöi og
lofa kirkju Jóns i Möðrudal aö
standa áfram á þurru landi.
Siguröur Biöndal.
SKAKMOTIÐ I MONTREAL:
Tal-taktamir blómstra
Stórmeistaramótiö I Montreal,
sem nú er alveg aö ljúka, telst lik-
lega sterkasta skákmót frá upp-
hafi vega. Næstum öllum stiga-
hæstu skákmönnum heims hefur
veriö safnaö saman i 10 manna
mót, og meöalstigatalan er langt
yfir 2600 stigum sem þýöir aö
mótiö er i 15. styrkleikafiokki.
Mun þetta vera I fyrsta sinn sem
slikt mót er haldiö. Þaö mót sem
næst kemur aö styrkleika er Hk-
lega Piatigorsky-cup, en þaö var
einnig 10 manna mót haldiö i
Santa Monica, Bandarikjunum, á
þvi herrans ári 1966.
Þrir skákmenn sem nú tefla i
Montreal voru meðal þátttakenda
þá, þeir Boris Spasski, Bent Lar-
sen og Lajos Portich. Spasski
varö efstur, 1/2 vinningi á und-
an Fischer. Larsen varö nr. 3, og
Portich deildi 4. sætinu meö
Unzicker frá V-Þýskalandi. Þess
ber aö geta aö 1966 var ekki byrj-
aö aö taka upp Elo-stigakerfiö
sem nú tröllriöur skákheiminum,
þannig aö samanburöur er e.t.v.
ekki marktækur.
Þegar þetta er skrifaö eru þrjár
umferöir eftir og i efsta sæti trón-
ar Mikhael Tal meö 10 1/2 vinn-
ing, 1/2 vinningi á undan heims-
meistaranum Karpov sem hlotiö
hefur 10 vinninga. Viröist barátt-
an um 1. sætið svo til eingöngu
vera á milli þessara skákmanna,
þó aö Portisch frá Ungverjalandi
komi á hæla þeirra meö 9 vinn-
inga. Karpov tapaöi mjög óvænt i
12. umferö fyrir Larsen og þaö
meö hvitu. Þaö þarf vart aö taka
þaö fram aö tap Karpovs er þaö
fyrsta eftir aö einvíginu viö
Kortsnoj lauk. Frammistaöa Tals
kemur svo sem ekkert á óvart,
um hæfileika hans getur enginn
efast, og þaö er eftirtektarvert
hversu mikiö öryggi er fariö aö
einkenna skákir hans, Jafnvel
hinar flóknustu sóknarskákir.
Hann hefur ennþá ekki tapaö
skák á mótinu, en i siöasta mót
sem hann tók þátt i, Skákþingi
Sovétrikjanna, var hann einnig
taplaus. 1 5. umferö fyrirhitti
hann gamlan erkióvin, sjálfan
Bent Larsen. Larsen geröi þau
mistök aö tefla i Lone Pine og
kom þvi allþreyttur til leiks.
Hann tapaöi lika nánast öllum
fyrstu skákum sinum. Lætur
hann örugglega þau mistök ekki
henda sig aftur aö mæta jafn illa
undirbúinn aö tafli. Ein rós hefur
þó slæöst i hans hnappagat.
Hvernig sem úrslit veröa, þá
stendur hann uppi sem sigurveg-
ari I innbyröis skákum gegn
Karpov, einn sigur og eitt jafn-
tefli. En látum öllum formála lok-
iö. Tal vill komast aö meö sýni-
kennslu i sóknartaflmennsku:
5. umferð:
Hvitt: Mikhael Tal (Sovétr.)
Svart: Bent Larsen (Danmörk)
Sikileyjarvörn
1. e4-c5 5. Rc3-d6
2. Rf3-Rc6 6. Bg5-e6
3. d4-cxd4 7. D2-Be7
4. Rxd4-Rf6 8. 0-0-0-a6
(Larsen og Tal hafa marga
hildi háð yfir skákboröinu. M.a.
hafa þeir háö tvö einvigi. Hiö
fyrra vann Tal eftir æsispennandi
baráttu meö 5 1/2 vinningi gegn 4
1/2, en i þvi sföara gekk betur
fyrir Bent. Hann hlaut 5 1/2 v., en
Tal aöeins 2 1/2. I þvi einvigi lék
hann þeim glæfralega leik 8. -0-0
og sigraði um siöir eftir mikla
baráttu. Nú hefur hann annaö i
huga.)
9. Í4-DC7 10. Be2
(Tal hefur mikiö dálæti á þess-
ari meöhöndlun hvitreita
biskupsins. Eftir uppskipti á f6 er
h5-reiturinn ákjósanlegur stökk-
pallur fyrir guösmanninn.)
10. ..Rxd4 11. Dxd4-b5
(Leiöir svo að segja þvingaö til
taps, en þaö var þegar oröiö erfitt
aö sporna við yfirburðum hvits á
miöborðinu. 9. -Dc7 á liklega eftir
aö fara I byrjanabækurnar sem
lélegur leikur.)
12. e5!-dxe5 14'. Bxe7-Rxc3
13. fxe5-Rd5
(14. -Rxe7 dugar skammt vegna
15. Rxb5! o.s.frv.)
15. Bf3!
(Hárfinn millileikur sem hefur
aö öllum likindum komiö Larsen i
opna skjöldu. I athugasemdum
sinum viö skákina gefur Tal upp
15. -Re2+ sem vænlegasta fram-
haldið, en svartur eigi samt sem
áöur við ýmsa erfiðleika aö etja
eftir 16. Bxe2-Dxe7 17. Bf3-Bb7
18. Bxb7-Dxb7 19. Dd6-Hc8 20.
Hd2-Dc6 21. Hhdl-Dxd6 22. Hxd6-
Ha8 23. Hb6 meö hugmyndinni
Hdl-d3-a3. Svartur á greinilega
fyrir höndum afar torsótt enda-
tafl. Þá dugar 15. -Bb7 skammt
eftir 16. Bd6-Bxf3 17. bxc3 og hvit-
ur vinnur mann. Ennfremur er
15. -Kxe7 glapræöi t.d. Dh4+-f6
17. exf6-gxf6 18. Db4+-Kf7 19.
bxc3 meö yfirburöastööu. Svarta
staöan er greinilega þegar oröin
geysilega erfiö ef ekki töpuö.)
15. ..Rxdl 17. Db6! (Afgerandi.)
16. Bd6-Dc4 17. ..Rf2!
(Larsen er snjall I spriklinu.
Hugmyndin meö textaleiknum
kæmi berlega i ljós eftir 18. Dxf2-
Df4+ 19. Kbl-Bd7 og svartur
stendur betur!)
18. Bc6+!Bd7 21. Dxa8+-Dc8
19. Bxd7+-Kxd7 22. Da7
20. Db7 + -Kd8
—• Carsen gafst upp. Þaö er ekki
nóg meö aö hvltur hóti máti á e7,
heldur er riddaranum á f2 frek-
lega ógnaö.