Þjóðviljinn - 06.05.1979, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 06.05.1979, Blaðsíða 9
Sunnudagur 6. mai 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Á hverju ári snúa tugir milljóna nýrra lesenda sér til sérrita í heim- inum. Sérritin uppfylla þörf sívaxandi fjölda fyrir sérhæft efni og nýjar fréttir af tækninýjungum og rannsóknum. Sérritin flytja efni og auglýsingar, sem lesendur vita fyrirfram að eru á þeirra sviði. Og auglýsendur vita fyrirfram hverjir lesendur sérritanna eru. Fjölmiðlakönnun Hagvangs leiddi í Ijós fyrir sérritin tölur, sem enginn getur skákað. Auk þess að fara til flestra fyrirtækja í land- inu eru sérritin lesin á 89% heimila á höfuðborgarsvæðinu. í Ijós kom að 92% kaupstaðabúa og 55% íbúa í dreifbýli lesa sérritin, sem gefin eru út af Frjálsu framtaki h/f. Fjölmiðlakönnunin staðfestir að þróun íslensku sérritanna er í samræmi við alþjóðakröfur um sérhæfða fjölmiðlun sem tengist starfi eða áhugamálum einstaklinga. Auglýsingar í sérritunum hitta beint í mark. Þær ná 100% nýtingu vegna hins sérhæfða lesendahóps, sem les auglýsingar af sama áhuga og annað efni blaðsins, hefur blaðið í höndunum vikum eða mánuðum saman og heldur því síðan til haga í mörg ár. Einmitt af þessum ástæðum hafa auglýsendur í síauknum mæli snúið sér til sérritanna. Sérhæfð fjölmiðlun Frjálst framtak h/f. Símar 82300 og 82302 .

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.