Þjóðviljinn - 12.05.1979, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 12.05.1979, Blaðsíða 5
Laugardagur 12. mal 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA S Undirskrifta- söfnun að Ijúka Þessa dagana gengur fólk I hús og safnar undirskriftum þeirra sem styöja vilja kröfuna um næg og góö dagvistarheimili fyrir öll börn. Eins og menn minnast var myndarleg kröfuganga 24. mars s.l. til aö vekja athygli á þvl vand- ræðaástandi sem rikir i þessum málum. í kjölfarið fylgdi undir- skriftaherferð sem staðið hefur undanfarnar vikur. Að sögn þeirra sem standa að söfnuninni gegnur hún nokkuð vel, en það er gríðarlega seinlegt að fara um hverfi bæjarins og taf- samt að spjalla við fólk, sem hef- ur sitt að segja um barnaheimili og uppeldismál. t flestum tilvikum er söfnurum tekiö vel og menn skrifa undir með glöðu geði . Aætlaö er að ljúka söfnun um næstu mánaðamót og veröa list- arnir þá afhentir borgarstjórn. Söfnuninni er stýrt frá Sokk- holti, Skólavörðustíg 12 og er hægt að fá lista þar alla daga milli 5 og 7 en á fimmtudögum eru forsvarsmenn söfnunarinnar þar tilbúnir til viðræðna. — ká JAZZ í Stúdenta- kjallaranum Annað kvöld mun jasspianistinn Guðmundur Ingólfsson leika listir sinar i Stúdentakjallaranum viö Hring- braut.Ætlun er að hann skemmti gestum þar á sunnudagskvöld- um út mánuðinn. Sýning frétta- ljósmyndara sett upp á Akureyri Félag áhugaljósmyndara I Menntaskólanum á Akureyri gengst fyrir ljósmyndasýningu i Mööruvallakjallara dagana 11.—16. mai nk. Sýning þessi er hluti af sýningu samtaka fréttaljósmyndara sem haldin var i Norræna húsinu fyrir skemmstu. Sýningin verður opin virka daga frá kl. 20—22 og um helgar frá kl. 13—22. I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I Alþjóðleg undirskriftasöfnun i þágu pólitiskra fanga i DDR: Ntu ískmkir forystu- menn í stjóm- og mennta máhim eru með Um öll lönd Vestur-Evrópu og víðar f heiminum er nú að hef jast almenn undirskriftasöfnun undir áskor- uná stjórnvöld í Austur-Þýskalandi/ Þýska alþýðulýð- veldinu DDR, að þau lýsi yfir almennri sakaruppgjöf til handa pólitískum föngum. I áskoruninni eru sér- staklega nefndir tveir kommúnistar sem hafa verið í haldi vegna pólitískrar afstöðu sinnar, þeir Robert Havemann eðlis- og efnafræðingur og Rudolf Bahro hagfræðingur og heimsepkingur. Sama dag og skipu- leggjendur greindu fjölmiðlum frá upphafi undir- skriftasöfnunarinnar, 10. maí sl., bárust fregnir um það að Havemann væri frjáls ferða sinna, og er það merki þess að mótmæli vinstri sinna undanfarin ár gegn meðferðinni á Havemann hafi nú skilað árangri. Stjórnmálamenn, rithöfundar og aðrir listamenn, mennta- menn, vlsindamenn og forystu- menn verkalýðssamtaka standa að hinni nýju áskorun um sak- aruppgjöf i Austur-Þýskalandi, sem tengd er 30 ára afmæli Þýska alþýðulýðveldisins á komandi hausti. Niu Islend- ingar eru I hópi þeirra sem undirrituöu áskorunina áöur en tilkynnt var um hana opin- berlega. Þeir eru: Ragnar Arnalds menntamálaráðherra, Svavar Gestsson viðskiptaráö- herra. Atli Heimir Sveinsson tónskáld, formaður Tónskálda- félags Islands, Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamannasambands Islands, Kjartan Olafsson alþingis- maður, varaformaður Alþýðu- bandalagsins, Njörður P. Njarðvik lektor, formaður Rithöfundasambands Islands, ólafur R. Einarsson sagn- fræðingur, formaður útvarps- ráðs, dr. Páll Skúiason prófess- or, forseti heimspekideildar Háskóla íslands, Thor Vilhjálmsson rithöfundur, forseti Bandalags islenskra listamanna. Þetta er i fyrsta skipti sem íslendingar mótmæla opin- berlega fangelsun Havemanns og Bahros og skora á austur- þýsk stjórnvöld aö láta þá og aðra pólitiska fanga lausa. Úti I Evrópu hefur ekki Jinnt mót- mælum frá þvi að þeir voru handteknir fyrir 2—3 árum. Meöal aðila sem þar hafa látiö til sin heyra eru þessir: L’Humanité málgagn Kommúnistaflokks Frakklands, L’Unitá málgagn Kommúnista- flokks Italiu, Carillo formaður Kommúnistaflokks Spánar, sagnfræöingurinn Elleinstein og heimspekingurinn Althusser fremstu hugmyndafræðingar I Framhald á 18. siðu Rudolf Bahro Robert Havemann. ! Áskorun á ríkisráð DDR i tilefni 30 ára afmælis þess: j Almenn sakaruppgjöf tíl handa pólitískum föngum I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I i ■ I L Þýska alþýðulýðveldið DDR er aðili að alþjóöasamningi Sameinuðu þjóðanna um borg- araleg og stjórnmálaleg rétt- indi. Þeim samningi er sérstak- lega ætlað að tryggja hugsana- ogtrúfrelsi (18. grein), tjáning- arfrelsi (19. grein), félagafrelsi (22. grein), rétt fólks til að safn- ast saman með friðsömum hætti (21. grein), svo og frelsi til að flytjast úr landi (12. grein). Þessum skuldbindingum full- nægir Þýska alþýðulýðveldið DDR ekki, hvorki I löggjöf, rétt- arfariné viö öryggisgæslu rlkis- ins. Sum ofangreindra mann- réttinda eru ekki einu sinni tryggð I stjórnarskránni. 1 Þýska alþýðulýðveldinu DDR eru nú 4-6 þúsund pólitísk- ir fangar, að þvi er alþjóða sak- aruppgjafarstofnunin Amnesty International upplýsir. Nægir aðnefna tvö dæmi um þá starfs- háttu sem orðnir eru hversdags- legirhjá dómstólum og öryggis- lögreglu. Á annan áratug hefur Robert Havemann sætt lög- reglueftirliti og stofufangelsi og honum meinaö aö stunda vls- indastörf sin. A Hitlerstimanum satsami Havemann I fangabúð- um nasista og hætti þá lif i sinu i baráttu gegn ofureflinu. — I fyrra var Rudolf Bahro dæmdur i 8 ára fangelsi fyrir það eitt aö hafa á marxiskan hátt rannsak- að aöstæöur sósialismans i landi sinu, en bók hans um þau efni nýtur nú viðurkenningar viöa um lönd. Aðbúnaöur að gæsluvarð- haldsfœigum einkennist af þvi, að visvitandi er leitast við að buga andlegt þrek fanganna. Beitt er þjakandi aöferðum viö yfirheyrslur, iðulega er farið fram úr úrskuröuöum gæslu- varöhaldstlma, ekki gefst kost- urá frjálsu vali á verjendum, það færist i vöxt að fangar fái ekki i hendur ákæruskjal og siö- ar dómsorö, áfrýjunarréttur er i reynd að engu gerður, og réttar- höld fara fram fyrir luktum dyrum. Aratugum saman, en ekki sist þegar myrkur fasismans grúfði yfir, hafa verkalýös- samtök, sósialistar, lýðræðis sinnar, trúaðir kristair menn og kommúnistar barist fyrir tján- ingarfrelsi og óheftum rétti al- mennings til upplýsinga, fyrir funda- og félagafrelsi, fyrir verkfallsrétti en gegn pólitisk- um ofsóknum. Formælendur Þýska alþýðulýöveldisins DDR og sér i lagi framámenn hins sósialiska eini ngarflokks Þýskalands SEDsegjastbyggja á þessari andfasisku hefð og skipa sér undir merki alþjóð- legrar verkalýöshreyfingar. Fyrir þvi skorum við undirrit- uö á rikisráðiö — að standa við skuldbindingar alþjóðasamnings Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi — að láta af gerræöinu gagn- vart Robert Havemann og öðrum þegnum — að ógilda dóminn yfir Rudolf Bahro — að lýsa tafarlaust yfir al- mennri sakaruppgjöf til handa öllum pólitiskum föng- um. Við sem stöndum að þessari áskorun erum andvig hvers kyns politiskri kúgun og at- vinnubanni. Við viljum stuðla að þvi að mannréttindi séu hvarvetaa i heiöri höfð. Þess vegna þolum við þaö ekki þegj- andi, að fólk sé haft I haldi i Þýska alþýöulýðveldinu DDR á grundvelli skoðana sinna einna, og aðbúnaöur þessa fólks er mál sem við látum okkur varða. Ráðstefna um arðsemi heilbrigðisþjónustu „Hvaöa áhrif geta heflbrigöis- stéttir haft á kostnaö og arösemi h ei Ibrigöisþjónustu ? ”, er umræöuefni á ráöstefnuum heil- brigöismál sem haldin veröur 12. mai n.k. I Norræna húsinu kl. 13-17. Þar veröa flutt nokkur stutt framsöguermdi og slöan veröa hr ingborösum ræöur . öllum áhugamönnum er heimil þátt- taka. Olafur ólafsson landlæknir talar um útgjöld vegna heil- brigðisþjónustu, Davíð A. Gunnarsson frkvstj. rikisspital- anna um heilsuhagfræði — arö- semismælingar, Oddur ólafsson alþm. um breytta heilsugæslu — meiri arösemi. Gréta Aðalsteins- dóttir hjúkrunarkennari um áhrif verkaskiptingar heilbrigöisstétta áarðsemi, Skúli Johnsen borgar- læknir um áhrif lækna á arðsemi heilbrigðisþjónustu, Ragnheiður Haraldsdóttir BSc hjúkrúnar- fræðingur um menntun hjúkr- unarfræðinga með tilliti til arð- semi og árangurs heilbrigðis- þjónustu, Ella Kolbrún Kristins- dóttir sjúkraþjálfarakennari um arðsemi endurhæfingar i nútima þjóðfélagi, Kristján Ingólfsson form. Tannlæknafélagsins um hvernig má lækka kostaaö við tannlækningar og Jón Grétar Ingvarsson lyfjafræðingur um hvernig má lækka lyfjakostnaö. Aö lokum þessum framsögu- erindum verða hringborðs- umræður með fyrirspurnum og svörum og stjórnar þeim Arin- björn Kolbeinsson yfirlæknir. Aðrir þátttakendur eru Haukur Benediktsson frkvstj. Borgar- spítalans, Bragi Nielsson alþm. Ingibjörg Agnarsdóttir sjúkraliöi Vigdfe Magnúsdóttir hjúkrunar- forstjóri, Brynjólfur Sigurðsteon hagsýslust jóri, Bergljót Halldórsdóttir meinatæknir, Adda Bára Sigfúsdóttir borgar- fulltrúi og Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri. Samtök heilbrigöisstétta gangast fyrir ráðstefnunni og mun Maria Pétursdóttir for- maður þeirra setja hana. —GFr

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.