Þjóðviljinn - 12.05.1979, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 12. mai 1979
«Jið íslenzka prentarafélag
AÐAL-
FUNDUR
Hins íslenzka
prentarafélags 1979
verður haldinn i dag, laugardaginn 12.
mai 1979 i félagsheimilinu, Hverfisgötu 21
og hefst kl. 13.15.
Dagskrá:
1. Lagðir fram til úrskurðar endurskoðaðir reikningar
félagsins.
2. Skýrsla stjórnar og nefnda um liðið starfsár.
3. Stjórnarskipti.
4. Kosning endurskoðenda.
5. Kosning ritnefndar Prentarans.
6. Nefndakosningar.
7. Lagabreytingar.
— Tillaga um úrsögn úr Alþýðusambandi Islands.
8. önnur mái.
— Ráðning eftirlitsmanns i Miðdai?
— Sameining bókageröarfélaganna og hugsanleg
félagsslit.
— Annaö, ef fram kemur.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á
fundinn og taka þannig virkan þátt i af-
greiðslu og umræðum um sin eigin mál-
efni.
Stjórnin
RITARI
Óskum eftir að ráða ritara til starfa i
u.þ.b. fjóra mánuði.
Umsóknum er greina menntun, fyrri störf
og aldur skal skilað fyrir 17. mai 1979.
SKÝRSLUVÉLAR RÍKISINS
OG REYKJAVÍKURBORGAR
Háaleitisbraut 9
Simi: 86144
E
LANDSVIRKJUH
HAALEITISBRAUT 68
108 REYKJAVÍK
ÚTBOÐ
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum i að
undirbyggja og mölbera um 13 km veg frá
Sprengisandsleið við tengingu vegaslóðar
að Haldi i Tungnaá að væntanlegri brú
yfir Tungnaá neðan við Hrauneyjafoss.
ÍJtboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68,
Reykjavik, frá og með mánudeginum 14.
mai 1979 að telja, og kostar eintakið
10.000,- kr. Tilboðsfrestur er til 25. mai
1979, en þá verða tilboð opnuð kl. 14:00 i
skrifstofu Landsvirkjunar.
Reykjavík, 12. mai 1979
LJÓSMYNDASÝNING
Á LOFTINU
Skólavöröustig 4
JÓN HÓLM
sýnir 45 myndir
Opiö kl. 14—18
Blindrafélagið 40 ára
A þessu ári eru liðin 40 ár frá
stofnun Blindrafélagsins, en þann
19. ágúst 1939 kom saman um tug-
ur blindra og þrlr sjáandi og
stofnuðu með sér félagið.
Blindrafélagið er landsfélag meö
aðsetri i Reykjavik og eru i þvi
bæði aðalfélagar, sem hafa sjón
sem nemur 6/60 eða minna,og
styrktarfélagar sem hafa betri
sjón eða fulla.
Stjórn félagsins hefur ákveðið
að nýta þetta afmælisár til að
upplýsa almenning um helstu
hagsmunamál blindra, sem
ásamt atvinnumálum eru
menntunarmálin sérstaklega á
framhaldsskólastiginu. Nýlega er
kominnút hjá félaginu bæklingur,
sem ber heitið „Hvernig aöstoðar
þú sjónskerta?”.Bæklingurinn er
fysrt og fremst ætlaður sjáandi
fólkitilaöauðvelda þvi samskipti
við blint ogsjónskert fólk. Verður
honum dreift á næstunni ásamt
fréttabréfi félagsins, sem nú tek-
ur mið af afmælinu og er i þvi
yfirlit yfir starfeemi félagsins og
aðra starfsemi sem er innan
veggja I félagsmiöstöðinni að
Hamrahlið 17.
I félaginu eru nú um 100 aðal-
félagar og hafa þeir einir at-
kvæðisrétt og hafa málfrelsi og
tíllögurétt á fundum. Aðsetur
félagsins er i Hamrahlið 17, sem
raunar eru tvö sambyggð hús,
og var eldri hlutinn tekinn I notk-
un 1961 en sá yngri 1973. 1 þvi húsi
eru skrifstofur félagsins, félags-
miðstöð, íbúðir og atvinnu-
rekstur. Þar hefur Fransiska
Gunnarsdóttir blindraráðgjafi
aðsetur sitt, en formaður félags-
ins, Halldór Rafnar.hefur einnig
viðtalstima vikulega á sama stað.
Hljóðbókasafn og
blindraletur
Þá er I Hamrahliðinni blindra-
letursbókasafn og veitir Rósa
Guömundsdóttir, varaformaður
félagsins, þvi forstöðu. Þar fer
fram f jölritun á efni á blindraletri
og er það nokkurt safn bóka á is-
lensku og öðrum Norðurlanda-
málum sem lánaðar eru þeim
sem þess óska. Hljóðbókagerð er
einnig I húsinu, en með þeirri
tækni hefur aðgangur blindra að
bókakosti verið auðveldaður
verulega. Bækur á blindraletri
eru mjög fyrirferðarmiklar, og
hljóðritaðar bækur I hljóðbóka-
safni eru nú 460 talsins. Hljóð-
bókasafnið er rekið I samvinnu
Blindrafélagsins og Borgarbóka-
safns Reykjavikur og sér Blindra
félagið um framleiðslu bókanna,
en Borgarbókasafnið um skrán-
ingu þeirra og dreifingu. Allur
lestur á hljóðbókum er unninn i
sjálfboðavinnu. Dreifingin er hjá
þeirri deild Borgarbókasafiisins
sem nefnist „Bókin heim” og er
aðsetur hennar i Sólheimum 25. A
siöasta ári voru lánþegar um 330,
enda geta ótrúlega margir ekki
hagnýtt sér venjulegt lesefrii.
Á blaðamannafundi I siðustu
viku kom fram að framtiðarverk-
efni félagsins eru helst á sviði
menntunar-,endurhæfingar- og
atvinnumála.
Endurhæfingu hafa blindir sótt
til Norðurlanda og til Englands og
fengið þar kennslu I notkun hvita
stafsins og annarra hjálpartækja
svo sem úra, sem sérstaklega
taka mið af þörfum þeirra.
Almenn menntun bundin
við grunnskólastig
Hvað almenna menntun varðar
eru blindir og sjónskertir mjög
afskiptir. Blindraskólinn var
lengst af rekinn af félaginu, en nú
er hann kominn inn i skólakerfið.
Sérstök blindradeild er starfrækt
viðLaugarnesskólann, og eruþar
nú4nemenduráaldrinum 11—18
ára sem háðir eru þvi að hafa
námsefni á blindraletri. Halldór
Rafnar formaður Blindrafélags-
ins sagði að framhaldsskóla-
menntun blindra væri i algerum
ólestri, en nú er starfandi á veg-
um menntamálaráðuneytisins
nefiid sem gera á tillögur um til-
högun náms fyrir blinda á fram-
haldsskólastigi.
Atvinnumál blindra eru að sögn
Halldórs i'betra horfi hér á landi
en viðast annars staðar, en þó má
betur gera. Blindrafélagið leggur
Framhald á 18. siðu.
Hamrahlið 17 er félagsmiöstöð blindrafélagsins og þar eru fbúðir, söfn
og skrifstofur, auk þess sem fjölmargir blindir stunda atvinnu sfna f
húsinu.
Þrír stjórnarmanna Blindrafélagsins, frá vinstri: Halldór Rafnar, for-
maður, Rósa Guðmundsdóttir, varaformaður, og Eggert V. Kristins-
son meðstjórnandi. Ljósm. — Gerður.
V íkingslækjar ætt
heldur ættarmót
á þriggja alda afmæli ættfödurins
Vfkingslækjarætt ætlar að efna
til ættarmóts i sumar, en við Vik-
ingslæk kenna sig niðjar Bjarna
hreppstjóra Halldórssonar og
Guðriðar Eyjólfsdóttur konu
hans. Þetta er mikil ætt og stend-
ur fé hennar viða fótum. Gt eru
komin fimm bindi af ættartölunni
og þrjú til viðbótar eru tilbúin i
handriti. Ættarmótið er haldið á
Jónsmessu, þann 24. júni.
1 ár eru þrjár aldir liðnar frá
fæðingu Bjarna Halldórssonar. Á
leiði þeirra Vikingslækjarhjóna
er svofelld áletrun:
Her hvila siðpruð sæmdar hion
sálugi Bjarne Halldorsson
Góð dæmi öðrum gáfu af sier
og sæl Guðriður Eyjolfsdotter
og fylgja upplýsingar um að þau
hafi gifst árið 1709, átt 17 börn.
Guðriöur lést árið 1756, en Bjarni
ári siöar.
Ættarmótið fer þannig fram aö
komið verur fyrst saman um há-
degisbilið 24. júni I garðinum
Gunnarsholti, þaðan sem haldið
verður laust fyrir klukkan 2 um
skamman veg aö Keldum, þar
sem fram fer stutt minningarat-
höfn i Keldnakirkjugarði, en þar
hvila þau hjónin Bjarni og Guð-
riður.
Að lokinni athöfn að Keldum
verður farið aftur að Gunnars-
holti og efnt þar til skemmtidag-
skrár, en áður en hún hefst verður
kaffihlé. Er þess vænst, að menn
hafi nesti með sér, þar sem ekki
er gert ráö fyrir veitingum á
staðnum.
1 góðu veðri verður samkoman
haldin i garðinum i Gunnarsholti,
en að öðrum kosti i hinni rúmgóðu
birgðageymslu heykögglaverk-
smiðju staðarins.
Meðal skemmtiatriða verður
einsöngur Ellýar Vilhjálms og
Kristins Hallssonar, en jafnframt
syngur kór, og lltil strengjasveit
leikur.
Nokkur ávörp verða flutt, en
siðan verður ætlaður rúmur timi
til að hittast og ræðast við.
Þeir, sem langt eiga að sækja
og kjósa að fara hópferð að Gunn-
arsholti og Keldum, geta pantað
far með Austurleiö i siðasta lagi
22. júni I afgreiðslu hennar i
Umferðarmiðstöðinni i Reykja-
vik og Fossnesti á Selfossi. Lagt
verður af stað úr Reykjavlk kl. 11
f.h. og frá Selfossi kl. 12. Heim-
ferð er áætluð kl. 18-19.