Þjóðviljinn - 26.05.1979, Síða 3
Laugardagur 26. maf 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Heilbrigðismálastofnun
Sameinuðu þjóðanna
Burt með
sígaretturnar
24/5 — Sérfræöingar Heilbrigöis-
málastofnunar Sameinuöu
þjóöanna hvöttu I dag til þess aö
tóbaksauglýsingar væru alger-
lega bannaöar hvarvetna i
heiminum og sögöu aö rikis-
stjórnir geröu réttast I þvi aö sjá
til þess, aö tóbaksrækt yröi skert
eöa henni alveg hætt. Sögöu sér-
fræöingarnir aö sigarettureyk-
ingar heföu breiöst út eins og far-
aldurmeö illum afleiöingum fyrir
heilsu mannkynsins.
Mannkyniöveröur aö lita svo á,
aö þaðaöreykja ekkisé eðlileg og
æskileg hegðun, segir i áliti sér-
fræöinganna. Banna skyldi hvaö-
eina, sem örvaö gæti fólk til þess
aö reykja, i þeim tilgangi að
breyta almenningsálitinu gagn-
vart tóbaksneyslu.
I skýrshinni um þetta segir
ennfremur, aö sjúkdómar, sem
aö meira eöa minna leyti mætti
rdcja til reykinga, heföu breiðst
hratt út i flestum löndum siöustu
25 árin. Einna verst hefur Bret-
land oröiö úti og nú fyrst er fariö
aö hamla þar á móti reykingum.
A árabilinu 1940-1970 jókst sigar-
ettuneyslan á hvernfulloröinn um
2000 til 3000 á ári. A sama tima
heföi lungnakrabbi færst mjög i
aukana og nú fyrst væri heldur
fariö aö draga úr útbreiöslu þess
sjúkdóms. 1 þróunarlöndum eru
reykingar minni og afleiöingar
þeirra aö þvi skapi ekki eins
áberandi, en hinsvegar færist
tókbaksneysla þar mjög I vöxt.
I október i fyrra létu hag-
fræöingar og heilsugæslustarfs-
menn i ljós áhyggjur út af þvi, aö
stórfyjrirtæki þau, sem ráöa
tóbaksversluninni I heiminum,
seldu til þróunarlandanna tals-
vert sterkari sigarettur en nú eru
yfirleitt á boöstólum i þróaöri
löndum. —I skýrslunni segir lika.
tsraelskur strætisvagn eftir
palestinskt sprengjutilræöi.
Auga
fyrir
• • •
auga
25/5 — Stórskotaliö Israels-
manna og libanskra hægri-
manna, bandamanna þeirra,
hamraöi i dag á ýmsum stöö-
um i Suður-Libanon, þar sem
palestinskir skæruliöar eru
taldir hafa bækistöövar.
Talsmenn palestinskra
skæruliöa hafa lýst á hendur
þeim sprengjutilræðum I
Israel undanfariö.
aö sjúkdómar af völdum reykinga
valdi rikjum efnahagslegu tjóni,
sem geri meira en að vega upp á
móti þeim tekjum, sem rikis-
sjóöir hafa af sköttum og tollum á
tóbaki.
n", ' VBI
tsraelskir landnemar I Vesturbakkahéruðum. Begin og margir landar
hans llta á þau héruö, sem þeir kalla hinum fornu nöfnum Samariu og
Júdeu, sem óaðskiljanlegan hluta Israels.
BERSEBA:
Vidræöur hafnar um sjálf-
stjórn fyrir Palestínumenn
25/5 — Viöræöur hófust I dag I
israelsku borginni Bérséba um
fyrirhugaða sjálfstjórn fyrir Pal-
estlnumenn, en gert er ráö fyrir i
friöarsamningi ísrales og
Egyptalands aö þeir fái sjálfræöi
nokkurt. Sendinefndir frá þessum
rikjum báöum og Bandarikjunum
taka þátt I viöræöunum.
1 dag kom ekkert fram i viöræö-
unum annaö en þaö, sem fyrir
löngu var vitaö, aö Israelar og
Egyptar eru mjög ósammála um
mörg atriöi viövikjandi sjálf-
stjórninni og leggja raunar mis-
munandi skilning i ákvæöi samn-
ingsinsum sjálfstjórn. Formaöur
Israelsku sendinefndarinnar,
Jósef Burg innanrikisráöherra,
sagði aö tsrael myndi aldrei sam-
þykkja stofnun palestinsks rikis.
Egyptar segjast hinsvegar ennþá
ætlast til að Israelar yfirgefi
Vesturbakkasvæöiö, Gasaspild-
una og Austur-Jerúsalem, en
fáum dettur i hug aö Israelar
samþykki þaö.
Palestinumenn eiga engan full-
trúa i viöræöunum I Berséba og
segja hlutdeild Egypta I þeim
svik viö málstaö Palestinu-
manna.
Havemann áfrýjar
sektardómi
25/5 — Austurþýskur
dómstóll dæmdi i dag
visindamanninn Robert
Havemann til að greiða
10.000 marka sekt á
grundvelli ákæru um
brot á gjaldeyris-
löggjöfinni, að sögn
Reuter-fréttastofunnar.
Stendur þetta i sam-
bandi við meintar rit-
launagreiðslur til Have-
manns frá vestur-
þýskum útgefendum
hans. Havemann hefur
áfrýjað dómnum. Hann
neitar þvi að hafa brotið
gegn stjórnarskrá rikis-
ins og hefur krafist þess
að fá að velja erlendan
lögfræðing til þess að
verja sig.
Kommúnistaflokkurinn á ítaliu
hefur lýst sig reiðubúinn að út-
vega lögfræðing Havemann til
varnar. Havemann, sem nú er 69
ára, var i þessum mánuöi látinn
laus eftir aö hafa veriö i stofu-
fangelsi heima hjá sér I hálft
þriðja ár. Gagnrýni hans á
stjórnarvöld varö til þess aðhann
var sviptur stöðu prófessors I
eölisfræöi viö Humboldt-
háskólann 1 Berlln 1964.
* Kyj
.. ,
Havemann — áöur I stofufangelsi,
nú sektaöur.
Hútúar ofsóttír í Búrúndi
24/5 — Gtlagar frá Afrikurlkinu
Búrúndí, sem dveljast i Belgiu,
sökuöu I dag Tútsi-þjóöflokkinn,
sem ræöur rikjum I landinu, um
aö hafa aö nýju byrjaö ofsóknir á
hendur Hútú-þjóöflokknum, sem
er þar I meirihluta. Segja út-
lagarnir aö um 1000 manns hafi
nýveriö horfiö sporlaust i Búrúndi
og margir flúiö til grannrlkisins
Kúanda, þar sem Hútútar fara
meö stjórn.
A liönum árum hafa Tútsar I
Búrúndi hvaö eftir annað ofsótt
Hútúta grimmilega. Þannig voru
þúsundir manna drepnir þar i
landi 1972. Bæöi Rúanda og
Búrundi voru undir yfirráöum
Belgiu áöur en þau uröu sjáif;
stæð, en þar áöur undir Þjóöverj-
um. Tútsar voru frá gamalli tlö
mestu ráöandi I löndum þessum
báöum, enda þótt þeir séu miklu
færri en Hútúar. Mest áberandi
munurinn á þjóðflokkum þessum
tveimum er aö Tútsar eru
hávaxnari miklu. /
Færri stúdentar í ár en í fyrra
11 framhaldsskólar á
landinu munu að þessu
sinni útskrifa rétt rúmlega
900 stúdenta á þessu vori.
Auk þessara skóla munu
tveir aðrir skólar útskrifa
stúdenta.
Samkvæmt upplýsingum sem
Þjóöviljinn aflaöi sér hjá Þór
unni Bragadóttur i Mennta-
málaráöuneytinu munu nákvæm-
ar tölur ekki vera til ennþá, en
þeir skólar sem hér um ræöir eru:
MR meö 131 stúdent, MH, meö
150 stúdenta aö meötalinni öld-
ungadeild, Menntaskólinn viö
Sund meö 186, MA meö 107 stúd-
enta Menntask. á Laugarvatni
45, Menntaskólinn i Kópavogi 60,
Menntaskólinn á Isafiröi 30,
Menntadeildin i Breiöholti og Ar-
múlaskóla um 26, Flensborgar-
skóli meö um 50 stúdenta,
Menntaskóli Suöurnesja 18 og
Verslunarskólinn meö 100 stúd-
enta. Ekki voru komnar neinar
tölur frá menntadeildinni á Akra-
nesi og Framhaldsdeild Sam-
vinnuskólans.
Fjöldi stúdenta i ár er nokkru
lægri en var í fyrra, en allt áriö
1978 útskrifuöust um 970 stúdent-
ar. Nokkur hópur stúdenta út-
skrifast nú meö bæöi stúdentspróf
og sveinspróf i einhverri iön.
— Þig
I StUttLS
máii
Sandinistar
bíta jrá sér
24/5 — Hermenn Somoza-
stjórnarinnar i Nicaragua
hafa hrakiö skæruliöa
sandinista-hreyfingarinnar
úr borginni Jinotega i
noröurhluta landsins, aö
sögn talsmanns stjórnar-
innar. Hann sagöi aöSomoza
liöiö heföi misst sjö menn
fallna og tiu særöa I bardög-
um i borginni. I gær geröu
sandinistar Somoza-her-
mönnum fyrirsát skammt
frá Managua og viðurkennir
talsmaöur stjórnarinnar aö
herinn hafi oröiö fyrir
nokkru tjóni.
Yfir 60 slasast
í jarðskjálfta
25/5 — öflugur jaröskjálfti
varö I suöurhluta Júgóslaviu
I nótt og snarpir kippir skóku
landiö ööruhvoru I dag. Aö
sögn opínberra talsmanna
hafa 64 menn slasast, þar af
10 aivarlega. Mikiö tjón
hefur oröiö á vegum, vatns-
leiöslum, húsum og hótelum.
Engin slys uröu á erlendum
feröamönnum, sem fiestir
hafast viö á ströndinni.
Jaröskjálftafræöingar
segja aö jaröhræringar
þessar stafi af þvi, aö jarö-
skorpan sé aö færast I samt
horf eftir skjálftahrinuna
miklu 15. april, en þá fórust
yfir 100 manns, yfir 1000 slös-
uðust og 80.000 misstu heim-
ili sin.
17 drepnir af
lögreglu
i El Salvador
25/5 — Um 10.000 manns
fylgdu i gær til grafar 17
mönnum, sem lögreglan i
San Salvador, höfuöborg
Miö-Amrerikurikisins E1
Salvador, drap fyrir þremur
dögum er hún skaut á mót-
mælagöngu stjórnarand-
stæöinga. Mannfjöldinn
hrópaöi vigorö gegn
stjórninni. Talsmaöur
stjórnarinnar segir aö her
hennar muni á næstunni gera
úrslitatilraun til þess aö
hrekja skæruliöa vinstri-
manna úr kirkjum þeim og
sendiráöum, sem þeir hafa
haft á valdi sinu um skeiö.
Lögregla
rœðst
á blaðamenn
24/5 — Lögreglan I Sao
Paulo, Brasiiiu, beitti i dag
kylfum og táragasi gegn
blaöamönnum þar i borg,
san eru i verkfalli. Verk-
fallsmenn eru um 4000
talsins. Höföu blaöamenn
safnast saman til þess aö
hindra aö tveimur helstu
blööum borgarinnar yröi
dreift, en þá kölluöu ráöa-
menn blaðannaá lögregluna.
Blööin koma út þrátt fyrir
verkfalliö, en eru færri siöur
en venjulega og einkum fyllt
meö fréttum frá frétta-
riturum I öörum borgum
landsins. Blaöamenn
krefjast hærri launa.