Þjóðviljinn - 06.06.1979, Page 5
BYGGINGAMENN:
Mótmæla harö-
lega Ólafslögum
Stjórn Sambands bygginga-
manna hefur i einróma samþykkt
fullskipaös stjórnarfundar
mótmælt ólafslögunum svoköll-
uöu og hvatt félög innan
sambandssins til aö vera viö þvi
búin aö þurfa innan tlöar aö verja
kjör sín eftir hinum gömlu, hefö-
bundnu leiðum, ef stjórnvöid og
atvinnurekendur sverjast aö nýju
i fóstbræöralag um aö rýra
kaupmátt almennra umsamdra
verkalauna, eins og þaö er oröað í
samþykktinni.
Alyktun fundarins i heild er svo-
hljóðandi:
„Fundur fullskipaðrar
stjórnar Sambands bygginga-
manna haldinn i Skiðahótelinu á
Akureyri 26.og 27.mai 1979 itrekar
fyrir samþykktir SBM um
nauðsyn á samstarfi handhafa
rikisvaldsins og verkalýðs-
hreyfingarinnar til þess að
tryggja þau kjör handa verka-
fólki, sem um hefur samist á
vinnumarkaðinum. Þá fagnar
fundurinn og þeim réttarbótum
sem nýlega hafa verið staðfestar
með lagasetningum ákvæöa hins
svokallaða félagsmálapakka,
sem er árangur af samstarfi
þessara aðila.
Fundurinn telur að meö áfram-
haldi sliks samstarfs hefði mátt
ná verulegum árangri i að bæta
kjör launafólks, jafnframt þvi
sem dregið væri úr vexti
verðbólgu. Nú sýnast hinsvegar
ýmsar blikur á lofti i þessum
efnum.
Samþykkt hefur verið á alþingi
gegn einróma mótmælum mið-
stjórnar Alþýðusambands
Islands svokölluð efnahagsmála-
löggjöf (ólafslögin) sem skerða
mjög umsaminn kaupmátt
almennra vinnulauna, en á sama
tima samþykkt af rikisstjórn að
greiða án hindrana fullar verö-
bætur á hæstu laun. Samtimis
hafa samtök atvinnurekenda
farið eins að, samþykkt hækkanir
á hin hæstu laun starfshópa sbr.
flugmenn og verslunarmenn en
neitað almennri 3% launa-
hækkum hjá verkafólki til
samræmis við breytingar á
kjörum opinberra stofnana.
Þessum aðgerðum rikisvalds
og atvinnurekenda mótmælir
sambandsstjórnarfundur SBM
Framhald á 18. siðu
Söngsveitin Filharmónia á æfingu meö Sinfóniuhljómsveitinni.
Sinfóníusveitin og Fílharmonía
Níunda Beethovens
á næstu tónleikum
Niunda sinfónia Beethovens er
verkefni næstu sinfóniutónleika.
Vilja íslenska
bréfavini
„Viö, heilmargir Japanir,
allt frá táningum til fer-
tugra, óskum eftir bréfavin-
um i ykkar landi.”
Þannig hefst bréf frá al-
þjóölegum bréfavinaklúbbi i
Japan, sem vill ná sambandi
við Islendinga. Klúbburinn
er sá stærsti sinnar tegundar
þar I landi og var stofnaöur
1950 I þeim tilgangi að vinna
að auknum kynnum og
menningarlegum samskipt-
um Japana viö aðrar þjóðir.
Segir I bréfinu að ensku-
kennarar i Japan styðji
starfsemina.
Beðið er um, að þeir sem
hafa áhuga og skrifa, taki
skýrt fram aldurinn, kyn,
nafn og fullt heimilisfang,
svo og áhugamál.
Þeir sem vilja eignast jap-
anska bréfavini geta skrifað
til:
Mr. Yuzo Inoue,
International Friendship
Club,
P.O. Box 5 Akabane,
Tokyo 115-91,
Japan.
sem verða I Háskólabiói á
fimmtudagskvöldiö kl. 20,30.
Flytjendur ásamt Sinfóniuhljóm-
sveit islands er Söngsveitin Fil-
harmonia og einsöngvararnir
Sieglinde Kahmann, Ruth Magn-
ússon, Siguröur Björnsson og
Guðmundur Jónsson.
Stjórnandi á tónleikunum er
franski hljómsveitarstjórinn
Jean-Pierre Jacquillat, sem hef-
Stjórn Reykjavikur-
deildar R.K.f. hefur
ákveðið að hefja aftur
heimsendingu tilbúinna
máltiða til aldraðra og ör-
yrkja í Reykjavik. Tilhög-
un verður nú önnur en áður
var, þar eð maturinn er
frystur. Maturinn verður
sendur út einu sinni í viku
og verða minnst þrjár
máltiðir sendar heim.
Maturinn verður seldur á
kostnaðarverði frá framleiöanda,
ur veriö hér oft áður og stjórnað
Sinfóniuhljómsveitinni I Reykja-
vík og viðar um land.
Marteinn H. Friðriksson hefur
æft kórinn og undirbúið hann fyrir
þessa tónleika, en söngsveitina
skipa nú um 150 manns.
Tónleikarnir verða endurteknir
i Háskólabiói laugardaginn 9. júni
og hefjast þá kl. 15.
en heimsendingarkostnaður og
önnur umfjöllun varðandi matar-
sendingarnar er framlag deildar-
innar vegna þessarar þjónustu.
Stjðrn Reykjavikurdeildar hóf
þessa þjónustu við aldrað fólk og
öryrkja fyrir nokkrum árum, og
mæltist hún vel fyrir. Þetta var
þá algert nýmæli, sem ekki haföi
þekkst áður hér á landi.
Þeir sem ðska að njóta þessar-
ar þjónustu geta fengiö aliar nán-
ari upplýsingar á skrifstofu
Reykjavikurdeildar R.K.I., Oldu-
götu 4, simi 28222 og er þar veitt
móttaka á pöntun á matnum.
RKÍ Reykjavík
Heimsending máltída
aldraðra og öryrkja
Miövikudagur 6, júni, 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
í stuttu máli
Frá handavinnusýningunni
Handavinnusýning aldraðra
í Bústaðasókn
Sýning a handavinnu aldraöra
var haldin i safnaöarheimili Bú-
staöasóknar sunnudaginn 20.
mal. Þar voru sýndir munir, sem
aldraðir I sókninni höfðu unnið á
samverustundum i safnaöar-
heimilinu, sem haldnar hafa vcr-
iö vikulega á miövikudögum i
vetur.
Bústaðasókn hefur nú um
þriggja ára skeið gengisi fyrir
slikum samkomum aldraðra, og
hefur aösókn að þeim verið mjög
góð. Samkomurnar hafa verið
haldnar á miövikudögum milli kl.
14 og 17 yfir vetrarmánuðina. Þar
hefur eldra fólkinu gefist kostur á
að hittast, spjalla saman og vinna
aðýmsum handavinnuverkefnum
undir leiðsögn kennara. Auk þess
voru haldnir fyrirlestrar um ýmis
málefni, kórar komu i heimsókn
og sungu fyrir samkomugesti, og
ennfremur veittu sóknarprestur-
inn og organistinn fólkinu aðstoö
hvor á sinu sviði.
Safnaöarráð Bústaðasóknar
skipulagði þessar samverustund
ir, en formaður þess er Aslaug
Gisladóttir. Aðalkennari var
Magöalena .Sigurþórsdóttir, en
Lára Asbjörnsdóttir sá um veit
ingar.
Sýning Landsambands ísl.
frímerkjasafnara
Landssamband islenskra fri-
merkjasafnara gengst fyrir fri-
merkjasýningu i Alftamýrar-
skóla dagana 7.-10. júni, en þar
veröa sýnd ýmis áhugaverö söfn
islenskra frlmerkja I eigu is-
lenskra, danskra, sænskra og
bandariskra safnara, sem sum
hafa unniö til verölauna á er-
lendum sýningum.
Starfrækt verður sérstakt
pósthús á sýningunni og verður
þar I notkun stimpill hennar.
Gerö hafa veriö sérstök umslög
og sérstök blokk i 500 tölusettum
eintökum. Sömuleiðis postullns-
platti með merki sýningarinnar,
sem veittur verður I verðlaun,
og aö auki 80 tölusett eintök af
plattanum, sem seld verða á
sýningunni.
Einsog á undanförnum sýn-
ingum verður starfræktur veiöi-
pottur, þar sem menn geta
reynt hæfni sina og eru ýmis fri-
merki i verölaun. Sýningin
verður opin fimmtudag og
föstudag kl. 17-22, en laugardag
og sunnudag kl. 14-22.
Merkir
r
Islendingar á
frimerkjum
Ingibjörg H. Bjarnason skóla-
stjóri og alþm. og Torfhildur
Hólm skáld eru næstu merkir
lslendingar sem út koma á frl-
merkjum i samnefndum flokki,
aö verögildi 80 kr. og 170 kr.
Þröstur Magnússon hefur
teiknaö frimerkin, sem verða
prentuð i frimerkjaprentsmiöju
frönsku póstþjónustunnar. Ot-
gáfudagur er 7. júli og má panta
merkin hjá Frimerkjasölunni,
POB. 1445, 121 Rvik. Fyrsta-
dagsumslög kosta kr. 40, en
óáprentuö kr. 30.
Ljósmyndasýning í Sívertsenhúsi
í Hafnatfirði
Félagið Byggðarvernd stend-
ur fyrir ljósmyndasýningu og
kaffisölu I byggöasafninu i
Hafnarfiröi, húsi Bjarna Slvert-
sen aö Vesturgötu 6 i Hafnar-
firöi, dagana 4.-17. júni.
Vill félagið með þessu vekja
fólk til umhugsunar um þróun
byggðarinnar. Þarna verða til
sýnis gamlar myndir af byggð-
inni og einstökum húsum, og
jafnframt nýjar myndir til sam-
anburöar. Kennir þar margra
grasa. Gefst fólki kostur á að
gæöa sér á kaffi og vöfflum á
meðan þaö viröir fyrir sér
myndirnar. Einnig er hægt að
panta eftir ljósmyndum sem á
sýningunni eru
Sýningin er opin virka daga
frá kl. 20.00 til 23.30 en laugar-
daga og sunnudaga kl. 14.00 til
23.30 og er aðgangur ókeypis.
Stuðningur við FFSÍ
Fundur ,,Ýr”, fjölskyldufé-
lags landhelgisgæslumanna, 28.
mai sl. samþykkti einróma aö
lýsa yfir stuöningi við aögerðir i
kjarabaráttu Farmanna- og
fiskimannasambands Islands.
Ennfremur lýsti fundurinn yfir
andúð á þeirri auglýsinga- og
áróðursherferð sem Vinnuveit-
endasamband Islands hefur
haft í frammi.