Þjóðviljinn - 06.06.1979, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 06.06.1979, Blaðsíða 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 6, júni, 1979 Páfi fer sigurför um Pólland Jóhannes Páll páfi hefur veriö i heimsókn i Póllandi undanfarna 5 daga og hefur honum veriö mjög vel tekiö bæöi af yfirvöldum og almenningi. í fyrradag sóttu 500 þúsund manns helgiathöfn páfa viö klaustriö Czestochowa sem er einhver helsti pilagrimsstaöur pólskra kaþólikka. í ræöum sinum hefur páfi lagt áherslu á frelsi kirkjunnar undan afskiptum rikisvaldsins. Hann mun þinga meö kaþólskum biskupum i Póllandi, en kaþólskra kirkjan hefur verið mjög sterk þar og er heimsókn páfa álitin sigur fyrir hana. Af móttökunum sem páfi hefur fengiö hafa fréttaskýrendur viljað ráöa aö ráöamönrum i Póllandi sem mikiö i mun aö halda vinsamlegum samskipum við kirkjuna. Truflanir á innanlands- flugi í gær Truflanir uröu á innanlands- flugi i gærmorgun vegna veikinda flugumferöarstjóra. Sex feröir féllu niöur þar sem veöur leyföi ekki sjónflug. Eftir hádegi birti til og þá hófst fiug aö nýju. Enn situr allt viö þaö sama i deilum flugumferðarstjóra og fjármálaráðuneytisins vegna skipunarbréfa flugumferðar- stjóra. Að sögn Páls Gestssonar sem sæti á i stjórn félags flug- umferðarstjóra hefur fjármálaráðherra bannað aö fariö sé eftir bréfunum. „Algjört áhugaleysi viröist meöal ráöamanna um aö leysa deiluna og er þaö einkar bagalegt nú þar sem leyfi eru hafin og ekki fást menn til afleysinga”, sagði Páll aö lokum. —ká Glæsimark Framhald af bls.15 handarbrotinn, örn og Siguröur 1 leikbanni og Stefán og Guömund- ur þurftu aö yfirgefa vÖUinn i fyrri hálfleik vegna meiösla. Þrátt fyrir þetta böröust þeir vel aö vanda, en misstu einbeitnina i lokin ogtöpuöu. Einhvern veginn fannst manni, aö vörnin og mark- vöröurinnheföuátt aö geta komiö i veg fyrir tvö þessara marka. Bestan leik áttu Vilhelm og Sæ- ! björn, en annars var liöiö ákaf- lega jafnt. Nokkra athygli vakti ungur strákur, Jósteinn Einars- son, sem tók stööu Ottós. Skagamenn áttu ekki góöan leik i gærkvöldi og einhvern veginn var búist viö meiru af þeim. Framlina þeirra var ákaflega slöpp og þaö þurfti tengiliö til þess aö skora mörkin. Vörnin var betri hluti liösins meö Jón Gunn- laugs sem besta mann. Einnig áttu Sveinbjörn, þriggja marka og Kristján ágæta spretfi. Dómarinn, Hjörvar Jensson, var slakur I fyrri hálfleiknum, en lagaðist i þeim seinni og skemmtilegt var aö sjá þaö hvernig hann meöhöndlaöi vælu- kjóaháttinn I Sveinbirni eitt sinn. Hann hreinlega lét leikinn halda áfram. Staðan i 1. deild er nú þessi: Akranes 3 2 1 0 6—3 5 Keflavik 3 1 2 0 4—0 4 Valur 3 1 2 0 5—2 4 IBC 2 1 1 0 2—0 3 Fram 2 1 1 0 4—2 3 KR 2 1 1 0 2—1 3 KA 2 1 0 0 5—4 2 Vfldngur 3 1 0 2 3—8 2 Þróttur 2 0 0 2 1—4 0 Haukar 3 0 0 3 1—7 0 Allsherjarverkbann Framhald af bls. 1. þjónustu viö þá er slika flutn- inga annast. 4. Vélgæslu og vörslu fasteigna, framleiöslutækja, afuröa og annarra verðmæta. 5. Verslunar meö bensin, oliur og oliuvörur, afgreiöslu oiiuskipa og oiiufiutninga. 6. Smásöluverslunar meö mat- vörur. 7. Vinnu viö útgáfu, prentun og dreifingu dagblaöa. 8. Dreifingu áburöar og fóöurbæt- is. 9. VSt veitir undanþágur vegna nú ðfyrirséöra knýjandi nauö- synja og ótalinna þjóöfélags- legra mikilvægra starfa eftir nánari ákvöröun á hverjum tima.” Herbragð Framhald af bls. 20. Af deilunni sem slikri er það hins vegar að frétta aö engin hreyfing er sjáanleg og ekki hefur verið haldinn fundur I meir en í viku. Ekki heföi heldur verið boö- I aður neinn fundur enn og sæti þvi ! allt klossfast, sagöi Gissur aö lok- um. Þjóöviljinn reyndi árangurs- laust aö ná tali af Guölaugi Björg- vinssyni forstjóra Mjólkursam- sölunnar, til aö bera undir hann þessar staöhæfingar mjólkur- fræöinga. — Þig Iðnaðurinn Framhald af 6. isiðu. viö ísl. iönaö, sem eigi i erfiöleik- um. Þótt hér sé ekki um stóra fjár- hæö aö ræöa þá tel ég þetta vera þýöingarmikiö iðnaöarpólitiskt mál og viöurkenningu á þvi aö iönaöurinn hefur ekki notiö sam- bærilegra kjara á við aöra at- vinnuvegi. — 1 skýrslu nefndarinnar er lagt til aö gengi veröi miöaö viö þarfir iönaðarins. Hver er skoöun þin á þessu? Gengi miöað við iðnað? — Ég tel ekki raunhæft aö gengiö veröi skráö I samræmi við hagsmuni iönaöarins. Hins vegar er þaö annaö mál aö tekiö sé tillit til hagsmuna iönaöarins þegar gengi er skráð. Viö erum ekki aö fara fram á aö hagsmunir iönaö- arins veröi teknir fram yfir hags- muni annarra atvinnugreina. Við bendum hins vegar á aö gengið er oröiö iönaöinum jafn mikilvægt og þaö er sjávarútveginum. Þess vegna veröur aö taka tillit til okk- ar þarfa einnig. Sem dærpi má nefna aö I fyrra geröi rikisstjórn- in samkomulag viö útflytjendur sjávarafuröa um aö tryggja þeim hærra verð fyrir afuröir sinar, en gengiö var skráö á. A sama tima ___& SKtPAUTGCRB RIKISINS Ms. Baldur fer frá Reykjavik þriöjudag- inn 12. júni til Breiöafjaröar- hafna. Vörumóttaka á mánudag og til hádegis á þriöjudag. Rlkisskip. Pípulagnir Nylagnir, breyting- ar, hitaveitutenging- ar. Simi 36929 (milli kl. 12 og 1 og eftir kl. 7 á kvöldin) DIOOVIUINN Auglýsmgasimi Þjóðviljans er 8-13-33 Blaðberar óskast AUSTURBORG: Skriðustekkur (sem fyrst) VESTURBORG: Tjarnargata (sem fyrst) DJOÐVIUINN Siðumúla 6, simi 8 13 33 • Blikkiðjan Asgarði 7, Garðabæ önnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SÍMI53468 t Inniiegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför Aðaibjargar Guðnadóttur Kúld Fyrir hönd vandamanna Arinbjörn Kúld varö útflutningsiönaöurinn aö sætta sig viö hiö skráöa gengi. Til skýringar má nefna þaö dæmi, aö þær aöstæður séu fyrir hendi, ab laun og innlendar kostn- abarhækkanir hafi valdiö þvi, aö fiskvinnslan sé komin I þrot og i ráði sé aö lækka gengiö þess vegna. En i sama mund veröur verðhækkun á fiskafuröum er- lendis, sem leysir vanda sjávar- útvegsins. Genginu er haldiö óbreyttu, en útflutningsiönaöur- inn situr uppi með fyrirsjáanlegt tap og óleyst vandamál. Breytt útlánastefna — Af skýrslu samstarfsnefnd- arinnar má ráöa aö ein af mikil- vægustu aðgeröum sem þörf er á er breytt útlánastefna bankanna. 1 hverju fælist þessi breytta stefna? — Nú þegar er nefnd starfandi á vegum iönaöarráöuneytisins sem fjallar um þessi mál, en þetta lýtur fyrst og fremst aö rekstrarlánum til iönaöar. Hins vegar þá er núverandi afuröa- lánakerfi mjög óhagsætt iönaðin- um. Þaö hefur valdiö þvi aö sifellt stærri og stærri hlutur af útlána- aukningunni ár hvert hefur veriö endurkeypt af Seölabankanum, sem þýöir sifellt minna og minna sem fellur i hlut iönaöarins, en aukningin oröiö meiri hjá land- búnaði og sjávarútvegi. Ég vil nefna nokkrar tölur þessu til staðfestingar. t árslok 1978 námu heildarendurkaup Seölabankans um 40 miljörðum króna. Hlutur iönaöar var um 10%, landbúnaðar 40% og sjávar- útvegs 46% og vegna sivaxandi þunga endurkaupanna i heildar- útlánum bankanna eins og ég gat um áöur, hefur hlutur iðnaðar i þeim minnkaö úr 12% árib 1971 i 11,2% áriö 1978 þ.e. á aðlögunar- timanum. Á hinn bóginn hefur hlutur landbúnaöar vaxiö úr 9,9% 116,9% og sjávarútvegur úr 14,5% i 23,5%. Fyrsta skrefið er þvi ab breyta hlutfallinu milli atvinnugrein- anna hvaö varöar endurkaup Seölabankans. — Aö lokum Pétur, hvert á aö vera hlutverk Ctflutningsmiö- stöövarinnar i þróun iönaöar á íslandi? útf lutningsmiðstöðin — Samstarfsnefnd um iönþróun leggur rika áherslu á, aö Cltflutn- ingsmiðstöð iðnaöarins veröi efld i samræmi við það hlutverk, sem henni er ætlaö aö sinna og aö rekstrarkostnaður hennar veröi greiddur af fjárlögum. Ennfrem- ur leggur nefndin til, aö hlutverk stofnunarinnar veröi vikkaö og henniheimilaö aö veita eftir föng- um aöstoð viö innlenda markaös- starfsemi iönfyrirtækja og iön- lÍÞJÓDLEIKHÚSIfl A SAMA TIMA AÐ ARI fimmtudag kl. 20 laugardag kl. 20 Fáar sýningar eftir. STUNDARFRIÐUR föstudag kl. 20 sunnudag kl. 20. greina, sem hafa möguleika til útflutnings, þannig aö byrjaö sé meö abgeröum á heimamarkaöi. 1 þessu sambandi vil ég sér- staklega benda á, hve nágranna- þjóðirnar hafa aö undanförnu lagt gifurlega aukna áherslu á mark- aðsstarfið og uppbyggingu mark- aðsstofnana sinna og þá fyrst og fremst á siöustu 5 árum, eftir aö breytinga á samkeppnisaöstöö- unni fór aö gæta fyrir alvöru i kjölfar oliukreppunnar. A sama tima og efling markaösviöleitni fyrir iðnaðinn á erlendum mörk- uðum hafa tæplega veriö til um- ræðu hér á landi, og fjárveitingar til Otflutningsmiöstöövar iönaö- arins hafa staöið svo til i staö i krónutölu, þrátt fyrir óöaverö- bðigu og rekstur einkennst af si- felldum fjárskorti, hafa framlög til sambærilegrar starfsemi t.d. á Noröurlöndum margfaldast, auk margvislegrar annarrar fyrir- greiöslu viö útflutning. Hér þarf þvi að veröa breyting á. Mótmæla Framhald af 5. siðu. harðlega. Einnig mótmælir fundurinn harölega þeirri fáránlegu reglugerðarsetningu sem nýlega hefur veriö kynnt af forsætisráðuneytinu um fram- kvæmd á greiöslum visitölubóta skv. Ólafslögunum,en þar er fólki mismunaöum bótagreiöslur, ekki abeins eftir launaupphæöum eöa launakerfum sem þaö tekur laun samkvæmt, heldur einnig eftir þvi hvaöa launamannasamtökum þaö tilheyrir. Auk þessa ranglæt- is, veröur heldur ekki séö aö launaútreikningur skv. reglugerb þessari sé framkvæmanlegur. Enda lögin og reglugerðin unnin af hinum sömu sérfræö- ingum og embættismönnum sem mótaö hafa efnahags- og kjara- mál fyrri rikisstjórna. Fundurinn varar stjórnvöld alvarlega viö slíkri valdnlöslu og hvetur félög innan SBM að vera viö þvi búin aö þurfa innan tiöar að verja kjör sin eftir hinum gömlu heföbundnu leiðum, ef stjórnvöld og atvinnurekendur sverjast aö nýju i fóstbræöralag um aö rýra kaupmátt almennra umsamdra verkalauna.” Aðalfundur útgáfu- félags Þjóðviljans Aöalfundur Utgáfufélags Þjóö- viljans hefur veriö boöaöur og veröur hann haldinn þriöjudaginn 12. júni 1979. Aöalfundurinn veröur haldinn aö Grettisgötu 3 og hefst kl. 17. Fundarboð veröur sent félags- mönnum meö bréfi ásamt úr- dráttum úr reikningum blaösins. Minnum á mið- st j órnarf undmn Miöstjórn Alþýöubandalagsins hefur veriö kölluö saman föstu- daginn 8. jdni aö Grettisgötu 3. Fundurinn hefst kl. 17 á föstudag og veröur fram haldib á laugar- dag. A dagskrá miöstjórnarfundar- ins eru fjórir liöir. Svavar Gests- son heldur framsöguræöu sem hann nefnir „Vegamót I stjórnar- samstarfinu”. Hjörleifur Guttormsson hefur framsögu um iönaöar- og orkumál. Þá veröur rætt um flokksstarfiö og loks er liöurinn önnur mál. alþýöubandalagiö Tilkynning til styrktarmanna Alþýðubandalagsins. Styrktarmenn ABL eru vinsamlega minntir á aö greiöa giróseöiana fyrir mánaöamótin. — Alþýöubandalagiö. Alþýðubandalagið i Reykjavík FLOKKSFÉLAGAR Nú liöur aö aöalfundi og enn eru nokkrir, sem ekki hafa greitt félags- gjöld fyrir áriö 1978. Hafiö samband viö skrifstofuna Grettisgötu 3 hiö fyrsta. Opiö milli kl. 9—17 slmi 17500. — Gjaldkeri og starfsmaöur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.