Þjóðviljinn - 16.06.1979, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 16.06.1979, Blaðsíða 3
Laugardagur 16. júní 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3. Somonza-dátarnir hafa oröiö fyrir mikilli blóötöku undanfariö, en | þeir hefna sin á almenningi. ■ I Nicaragua: Stóroirustai í Managuaj 15/6 Yfir helmingur Managua, höfuöborgar Nicara- gua, er nií aö sögn Reuter-fréttastofunnar á valdi skæruiiöa Sandinistahreyfing- arinnar, en ekkert lát er á götu- bardögum I borginni. Viröist svo sem báöir aöilar hyggist berjast þar til úrslita. Flugher Somoza-stjórnarinnar heldur uppi loftárásum meö eldflaug- um á fátækrahverfi borgarinn- ar, þar sem Sandinistar eru sterkastir. t Leon, annarri stærstu borg landsins, er einnig barist og láta Somoza-liöar þar stórskotahriö dynja á hverfum þeim, sem Sandinistar hafa á sinu valdi. Manndauöi hefur verið glfur- legur í striöi þessu undanfarið og er talið að margar þúsundir manna hafi verið drepnar. Franska fréttastofan AFP telur að Somoza-herinn einn hafi misst um 1000 manns fallna slð- ustu tlu dagana. Telja má vlst að margfalt fleiri óbreyttir borgarar hafi verið drepnir, enda virðast hernaðaraðgerðir Somoza-liöa oft snúast upp I æðisgengin fjöldamorð á óbreyttum borgurum, sem þeir gruna upp til hópa — o g e kki að ástæðulausu — um samúð með Sandinistum. AFP hefur eftir heimildarmönnum sinum að stöðugt fleiri borgarbúar I Managua gangi I lið meö Sand- inistum. Allsherjarverkfall, sem Sandinistar boðuöu til, hef- ur að sögn danskra fréttamanna lamað allt atvinnullf I landinu, ogbendir það til þess að Sandin- istar njóti almenns stuðnings. Læknar og hjúkrunar- konur skotin Somoza-liðar virðast hafa þaö fyrir reglu aö myröa alla lækna og hjúkrunarkonur, sem sinna öðrum særðum mönnum en úr þeirri eigin liði, svo og alla særöa skæruliða og óbreytta borgara sem þeir fyrirhitta. Þannig óðu Somoza-menn fyrir skömmu inn á San Juan de Dios-sjúkrahúsið I borginni Estelli og skutu umsvifalaust alla særðamenn.sem þar fyrir- fundust. Rauði krossinn skýrir svo frá að Somoza-menn hafi stöðvað sjúkrablla, sem fluttu særða menn, og skotiö alla sem I þeim voru, lækna og hjúkrunar- konur lika. Talsmaöur Sandinista skýrir svo frá að I loftárás, sem Somoza-flugherinn gerði á fá- tækrahverfið Las American við Managua fyrir nokkrum dög- um, hafi um 200 óbreyttir borg- arar farist, og eftir þvl mann- skæðar virðast fleiri loftárásir hafa verið. Fréttir utan af landi eru óljósar, en svo er að heyra að Sandinistum hafi orðið hvaö mest ágengt i norðvesturhluta landsins. Þeir kváðu hafa á valdi slnu borgina Esteli og Leon að mestu leyti. Þar halda Somoza-liöar þó lögreglustöö- ■ inni, og varö mikið manntjón I ■ Ibúðahverfum þar I kring er í Somoza-flugherinn skaut á þau I eldflaugum til að hindra árás ■ Sandinista á lögreglustöðina. | Hungur og flótti Gifurleg neyð rikir meðal fólks I Managua og viðar, og hafa á að giska um 15.000-20.000 manns flúiö borgina. Starfs- menn Rauða krossins segjast hafa hitt fólk, sem ekki hafði bragðað mat í þá fimm daga, sem liönir eru síðan bardagarn- ir í Managua hófust. Neyðin I höfuðborginni stafar meðal annars af þvl, að Somoza-herinn hefur lokað öllum samgöngu- leiðum þangaötil þess að hindra að Sandinistum berist líðsauki. TJndanfarna daga hefur hungrað fólk rænt öllu ætilegu úr matvörubúöum höfuöborgar- innar, en aörar verslanir eru aö vísu rændareinnig.Reuter hefur eftir sjónarvottum að hermenn Somoza taki þátt I ránskapnum og aki á brott úr eyðilögðum verslunum kæliskápum og öör- um állka verðmætum hlutum. Nokkuð er um það að menn strjúki úr þjónustunni hjá Somoza og á blaöamannafundi I Panamaborg héldu nokkrir ný- stroknir Somoza-liðsforingjar þvl fram fyrir tveimur dögum, að Bandarlkin miðluðu vopnum til Somoza gegnum grannrikin E1 Salvador og Gúatemala. Til þess að leyna stuðningi sinum við hinn illræmda harðstjóra flygju Bandarlkjamenn fýrst vopnunum til tveggja áður- nefndra landa, en þaðan væri þeim flogið til Chinandega I vesturhluta Nicaragua. Er þetta I samræmi viö upplýsing- ar, sem AP-fréttastofan hafði áður haft eftir heimildum l Panama. Talsmaður Somoza-liðsfor- ingjanna fyrrverandi, sem Bernardino Larios heitir, sagði ennfremur aö liðsforingjar Somoza hefðu undanfarið fengið þjálfun I Chile. Þá tóku Larios og félagar hans undir ftillyrð- ingar Sandinista um að Somoza heföi fengiö liðsstyrk frá E1 Salvador og Gúatemala, en I þeim löndum eru við völd álika gaurar og Somoza. Fregnir benda til þess að hermennirnir frá þessum löndum séu fluttir til Nicaragua bæði sjóleiöis og loft- leiöis. Talsmaður Sandinista I Genf sagði fyrir nokkrum dögum að chiliskt herskip hefði dögum saman haldið uppi skothrið á stöðvar Sandlnista á Kyrrahafs- ströndinni. Þá hefur þvi verið marghaldið fram að Somoza fái vopn frá Israel. Kannski hjálpa Israelar honum fyrir áeggjan Bandarlkjanna, kannski vegna þess að liklegt er aö hann verði þeim ekki andstæöur á vett- vangi Sameinuöu þjóðanna. dþ. I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I m I ■ ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ i ■ I ■ I ■ I Ágreiningur í dönsku ríkisstjórninni Margir spá stjórnarslitum Frá fréttaritara Þjóðviijans I Kaupmannahöfn, Gesti Guð- mundssyni: Dönsku rikisstjórninni gengur erfiðlega að ná samkomulagi um efnahagsaðgerðir sem einkum er ætlað að mæta oliukreppunni og horfum á miklum halia á greiðslujöfnuði viö útlönd. Þessa daga eiga sér staö samningaviðræður milli stjórnar- flokkanna, sóslaldemókrata og borgaraflokksins Venstre. Sam- komulag hefur náðst um 3-4 miljarða króna (um 200 miljarða isl. kr.) skattlagningu á orku- notkun og niðurskurö á fjárfram- lagi til sveitarfélaga. Verði þessar aögeröir látnar nægja, eru horfur á 11 miljaröa halla á greiðslujöfnuðinum. Venstre telur það helsta markmið stjórnarsamvinnunnar að minnka þennan halla verulega. Krefst flokkurinn þess að verö- bætur á laun verði skertar, rikis- útgjöld skorin niður um 3-4 miljarða og hætt við fyrri áætlun um að verja 1500 miljónum króna til aö draga úr atvinnuleysi. Alþýðusambandiö danska, LO, neitar algerlega aö fallast á þess- ar kröfur og I gær tóku sósial- demókratar afdráttarlaust undir sjónarmið sambandsins. Afstaða þeirra er sérstaklega eindregin hvaö varðar verðbótaskerðingu. Hvorugur deiluaðila hefur enn sýnt nokkur merki um undanláts- semi og æ fleiri fréttaskýrendur spá stjórnarslitum og kosningum I ágúst. Venstre telur sig hafa fengið litlu framgengt I stjórnar- Sóknin aukin í karfa togari leigður til karfaleitar Sjávarútvegsráöuneytið aug- lýsti nýlega eftir togara til 10 daga tilraunaveiða. Jón B. Jónasson hjá Sjávarútvegsráðu- néytinu sagði að ætlunin væri að kanna betur möguleika Islend- inga til karfaveiða, en þeirri fiskitegund hefur af ýmsum or- sökum ekki verið gefinn mikill gaumur fram til þessa. Jón sagði aö þeir hefðu árlega vissa fjárveitingu til að ráöstafa I rannsóknir á ónýttum stofnum. Rækja og kolmunni hefðu áður verið könnuð en nú væri röðin komin aö karfanum. Hann sagði að það sem réði þvi að karfinn hefði orðið fyrir valinu væri einkum það aö Þjóöverjar hefðu nýtt dyggilega karfamiö suðaustur af landinu, en væru nú endanlega horfnir af miðunum. Likur bentu þvi til að islenskir fiskimenn gætu aflaö þar dável af þessari litt nýttu fiskitegund, og jafnframt heföi skortur á veiðan- legum þorski ýttkarfanum frekar inn sviðsljósiö. Hann væri llka fýsilegri en áöur til veiða, vegna 30% verðuppbótarinnar, sem bættist við karfaveröiö við fisk- verðsákvöröunina I þessari viku. —ÖS Stórflóð í Jamaiku 15/6— Að minnsta kosti 24 menn - hafa farist I verstu flóöum, sem um getur isögu Jamaiku, og 17 að aukier saknað. Þúsundir manna hafa misst heimili sln og sam- 14/6 — Tékkóslóvaskur andófs- hópur segir i bréfi til Sameinuðu þjóöanna, sem barst til Lundúna 1 dag, að I sl. mánuði hefðu ellefu I hópnum verið ákærðir fyrir að vinna gegn rikinu. Akærur þessar eru þesseðlis að séumenn samstarfinu og hyggur auk þess gott til glóðarinnar I kosningum eftir góðan árangur I kosning- unum til Evrópuþingsins. Sósialdemókratar biðu þá mik- inn ósigur en eru hins vegar full- vissir um að þingkosningar 14/6 — Robert Boulin, atvinnu- málaráðherra Frakklands, kynnti I dag stjórnarfrumvarp viðvikjandi réttarstöðu erlendra verkamanna I landinu, en að skylduliði meðtöldu eru þeir yfir fjórar miljónir. Margir telja að frumvarpið sé fyrst og fremst ráðstöfun til þess að fækka þessu erlenda fólki, og muni stjórnin samkvæmt frumvarpinu, verði það samþykkt, geta sent um 200.000 erlenda verkamenn úr landi árlega næstu árin. Meirihluti þessara verka- manna fluttist inn I landið á sjö- unda áratugnum, þegar mikil þensla var I efnahagslifi Vestur-Evrópurlkja og vinnuafl vantaði. Af erlendum verka- mönnum I Frakklandi nú eru A fundi útvarpsráðs i gær kom ræðuflutningur Sigurðar Lindals prófessors i umræöuþætti um verkföll og verkbann I sjónvarpi sl. þriðjudagskvöid til um- ræðu. Fréttastofa sjónvarps upp- lýsti að Sigurður Lindal hefði veriö beöinn um hlutlæga lög- skýringu á verkföllum og verk- bönnum. Hinsvegar hefðu umsjónarmenn þáttarins ekki gert neinar ráðstafanir til þess að fá einhvern til andsvara, þegar Ijóst var að innlegg Siguröar var umdeilanlegt. Ólafur R. Einarsson formaður útvarpsráðs lét bóka það á fund- inum aö sér þætti miður að Sig- uröur Lindal lagaprófessor skyldi bregðast þvi trausti sem rfldsút- varpið ber til hans sem fræöi- manns er leitaö var til hans sem sérfræðings I vinnurétti, og nota tlmann I sjónvarpi til árása á verkalýöshreyfinguna. Jafn- framt átaldi formaður útvarps- ráös I bókun sinni að stjórnendur þáttarins skyldu láta undir höfuð leggjast að leita til aöila á önd- kvæmtheimildum hjá Sameinuðu þjóöunum hafa um 40.000 manns orðið fyrir alvarlegu tjóni. Flóðin stafa af völdum rigninga, er staðið hafa yfir i marga daga. dæmdir á grundvelli þeirra, geta þeir fengið þriggja ára fangelsis- vist. Meðal þeirra ákæröu er leikritahöfundurinn Vaclav Havel og Peter Uhl, sem einnig er framarlega meðal tékkó- slóvaskra andófsmanna. myndu rétta hlut þeirra. Þaö dregur úr likum á kosning- um aö báöir flokkar hafa fullan hug á að sýna vilja sinn til að starfa I „traustri rikisstjórn” og veröur þvi engu spáö um niður- stöðu núverandi samningalotu. flestir frá Portúgal (430.000), Alsír (420.000), Spáni (250.000) og Marokkó (165.000). Samkvæmt frumvarpinu fær mikill meirihluti erlendra verka- manna þriggja ára dvalarleyfi i landinu, en þau verða ekki endur- nýjuð sjálfkrafa eins og dvalar- leyfi þau til skemmri tlma, sem verkamenn fá oft nú. 1 s.l. mánuði náði staðfestingu frumvarp frá innanrikisráð- herranum, sem gefur lögreglunni óbundnari hendur en áöur til þess aö vlsa úr landi fólki, sem dvelst I landinu i leyfisleysi og er talið skipta mörgum þúsundum. Atvinnuleysingjar i Frakklandi eru 1.3 miljón — 5.2% vinnu- aflsins — og mun þar að finna aðalástæöuna til ráðstafana þessara gegn erlendu vinnuafli. veröri skoöun, þegar ljóst var að ekki var um fræðilega umsögn aö ræöa. Lágmarkskrafa væri þó að stjórnendur hefðu gefið þátt- takendum i umræðuþættinum kost á að heyra boöslap laga- prófessorsins áöur en komiö var I beina útsendingu. 1 samtali við Þjóðviljann I gær sagði Ólafur að sig furðaði á þvi aðsvosómakærfræðimaður I lög- fræöi og sagnfræöi sem Sigurður Lindal skyldi hafa látiö reiðina hlaupa með sig I gönur og bregöast þannig þeirri hlutlægni sem er aðall þeirrar fræðigreinar sem hann stundar. —ekh Víetnamar reknir frá Malasíu 15/6 — Varaforsætisráðherra Malaslu sagði i dag að allir vletnamskir flóttamenn I landinu, um 70.000 talsins, yrðu reknir úr landi og skotið yrði eftirleiöis á báta með flóttafólki frá Viet- nam. Meirihluti flóttafólks- ins er af kinverskum upp- runa, en sambúð Malaja og Klnverja I Malaslu hefur ekki alltaf verið upp á það besta og mun Malaslustjórn af þeim sökum ekki vilja að Klnverjum fjölgi mjög I landinu. Indónesia, Tailand og fleiri Suðaustur-Asiu riki hafa tekiö upp svipaða stefnu I þessu máli og Malasla. Frakkland: F rumvörp gegn erlendum verkamönnum Formaður útvarpsráðs um sjónvarps- rœðu Sigurðar Líndal Brást trausti Tékkóslóvaskir andófsmenn ákœrðir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.