Þjóðviljinn - 16.06.1979, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. júnl 1979
17.JUNI 1979
Þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur
óskar eftir söiufólki
tíl aö selja merki þjóðhátiöardagsins 17. júni. Sölufólk
komiaðFrikirkjuvegi llá 17.júnikl. 10. Góösölulaun.
Þjóöhátiöarnefnd Reykjavikur.
Blikkiðjan
Asgarði 7, Garðabæ
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verötilboö
SÍMI53468
Áskriftasími
Þjódviljans 81333
Leigumiðlanir leggja upp laupana
Mikil húsnæðisekla
— segir starfsmaður leigjendasamtakanna
Erfiðlega gengur hjá Leigj-
endasamtökunum aö útvega
meölimum sinum húsaskjól um
þessar mundir. Mun færri Ibúöir
eru falar til leigu en undanfariö,
og Guömundur J. Guömundsson
starfsmaöur samtakanna sagöi
okkur aö hinar svokölluöu leigu-
miölanir sem starfræktar væru
viö misjafnan oröstlr leggöu nú
upp iaupana hver á fætur annari.
Hann sagöi aö mikið væri leitað
til samtakanna, bæði eftir ráð-
leggingum isambandi við misklíö
milli leigjenda og leigusala,
einnig væri stöðug spurn eftir
leiguibúðum hjá leigumiölun
samtakanna.
Guðmundur kvað furðumarga
húseigendur leita upplýsinga hjá
samtökunum um eittog annað, og
kvað þá segja marga að þjónusta
Húseigendafélagsins við þá væri
slæleg.
Aðspurður sagði hann að
meðalleiga ibúa væri orðin mjög
Guömundur J. Guömundsson
starfsmaður Leigjendasamtak-
anna: „Samtökin hafa vissulega
sannaö tilverurétt sinn. Meira að
segja húseigendur ieita til okkar
eftir upplýsingum”.
há. Algengt væri að menn greiddu
40-50 þús. kr. fyrir 2ja herbergja
ibúðir og hann hefði heyrt um eitt
tilvik þar sem sett var upp 90 þús
kr. á mánuði fyrir slika ibúð.
Guðmundur sagði að fjár-
skortur háði Leigjendasam-
tökunum mjög, og I raunínni
hefðu allir svikiðþau um stuðning
nema Reykjavikurborg, sem
hefði á slnum tima veitt 700 þús.
til þeirra. Alþingi hefði mjatlað
200 þús. kr. i samtökin, eða jafn
miklu og Húseigendafélagið fékk,
sem væri þó ekki á flæðiskeri
statt. Reynt hefði verið að fá
fundi með ráðherrum um málið,
en ekki tekist.
Að lokum gat Guömundur þess,
að aðalfundur Leigjenda-
samtakanna yrði haldinn næsta
laugardag I fundarsal Sdknar að
Freyjugötu 27. bangað ættu leigj-
endur að fjölmenna til að styrkja
samtök sih.
— ÖS
Fyrstu sjúkraliðarnir
brautskráðir frá G.A.
og fyrstu nemendur með sérhœft verslunarpróf
Fyrstu tlu sjúkraliöarnir meö
Alþýöubandalagið Vestfjörðum
Sumarferð
um eyðibyggðir í Grunnavíkur-
hreppi og Sléttuhreppi dagana
30. júní og 1. júb 1979
fullum starfsréttindum braut-
skráöust frá Gagnfræöaskóla
Akureyrar I vor, en verklega
kennslan var I höndum
Fjóröungssjúkrahússins á Akur-
eyri.
Þá fengu nú við skólaslitin
fyrstu 11 nemendurnir sklrteini
um sérhæft verslunarpróf að
loknu þriggja ára námi á við-
skiptasviði, en þeir luku fyrstir
almennu verslunarprófi viö
skólann 1978. Þessir nemendur
eiga þess kost að þreyta
stúdentspróf að viðbættu einu
námsári.
Þetta kom fram m.a. I ræðu
skólastjóra, Sverris Pálssonar,
við skólaslitin 5. júni.
Innritaðir nemendur voru alls
676, 190 í 10 deildum framhalds-
skólastigs og 486 í 21 deild grunn-
skólastigs. Kennarar voru 62, 40
fastakennarar og 22 stunda-
kennarar. 177 nemendur luku
grunnskólaprófi, og 117 náðu
réttindaeinkunn til framhalds-
náms eða 66,1%.
Hæstu einkunn á sérhæfðu
verslunarprófi hlaut Laufev L.
Arnadóttir, 8,4. Hæstu einkunn i
2. bekk heilbrigðissviðs hlaut
Ragnheiður Sigfúsdóttir, 9,0, I 2.
bekk uppeldissviðs Hansina
Einarsdóttir, 8,6 og I 2. bekk
viðskiptasviðs (á almennu
verslunarprófi) Elin J. Jónsdóttir
8,8. — Hæstu einkunn i fram-
haldsdeildum hlaut Lisbeth Grön-
valdt Björnsson, 1. bekk heil-
brigðissviðs. 9, 6.
• Alþýðubandalagið á Vestfjörðum
efnir til ferðar um Grunnavik,
Jökulfirði, Aðalvik og allt norður
að Hornbjargi dagana 30. júni og 1,
júli.
•Farið verður frá ísafirði með
Fagranesinu, laugardaginn30. júni
og komið aftur á sunnudagskvöld 1.
júli.
•Þátttaka er öllum heimil og
kostar kr. 10.000.- fyrir fullorðna,
en kr. 5000.- fyrir börn.
•Allir þátttakendur verða að hafa
með sér tjöld og vistir. Gönguferðir
eða lengri sjóferð með Fagra-
nesinu eftir vali. Þaulkunnugir
leiðsögumenn i hópi fararstjóra.
• Gist verður að Flæðareyri i
Jökulfjörðum i tjaldbúðum og
dansað þar i samkomuhúsinu á
laugardagskvöld. Rútuferðir úr
Strandasýslu og Barðastrandar-
sýslum að Isafjarðardjúpi verða
farnar á föstudagskvöld 29.júni.
Þátttaka tilkynnist fyrir 25. júnl einhver.jum
þeirra, sem hér veröa taldir:
Arneshreppur:
Jóhanna Thorarensen, Gjögri
Kaldrananeshreppur:
Pálmi Sigurösson, Klúku
Hóimavlk:
Hörður Asgeirsson, skólastjóri
Hrútafjörður:
Guðbjörg Haraldsdóttir, Borðeyri
Reykhólasveit:
Jón Snæbjörnsson, Mýrartungu
Baröaströnd:
Unnar Þór Böðvarsson, Krossholti
Rauöasandshreppur:
Gunnar össurarson, Asi
Patreksfjörður:
Gunnlaugur Júlíusson, simi 1423 eða Bolli
Ólafsson, simi 1477
Tálknafjöröur:
Höskuldur Daviðsson
BDdudalur: Jörundur Garðarsson
Þingeyri:
Davið H. Kristjánsson
Flateyri:
Guðvarður Kjartansson
Suðureyri:
Þóra Þórðardóttir
Bolungavik: Guðmundur Ketill Guðfinnsson
ísafjörður:
Aage Steinsson, simi 3680
Elin Magnfreðsdóttir, simi 3938
Gigja Tómasdóttir, simi 3822
Súðavik: Ingibjörg Björnsdóttir
Notkun vanabindandi
lylja hefur stórminnkað
Eins og skýrt var frá I blaöinu
s.I. laugardag þá kom fram á
fundi sem landlæknir hélt meö
blaðamönnum I slöustu viku, aö
mikill samdráttur hefur oröið i
ávlsun lækna á vanabindandi lyf.
A fundinum kom einnig fram,
að einstaklingum sem fá eftirrit-
unarskyld lyf hefur fækkaö úr
7.250 I 4.164 eða um 42.6% á
árunum 1976-78, og að heildar-
magn eftirritunarskyldra lyfja
hefúrminnkaðum rúmlega 40% á
sama tíma. Þá hefur ávísuðu
magni á eftirritunarskyld svefn-
lyf minnkað um 48%, róandi lyf
um 33% og sterk verkjalyf um
20%.
Helstu ástæður til þessa
minnkaða magns af vanabind-
andi lyfjum hérá landi taldi land-
læknir vera þær, að siðan farið
var að keyra inn i tölvur upplýs-
ingar varðandi lyfjaávisanir
lækna, fæst miklu fyrr heildar-
yfirlit yfir það magn sem ávisað
er hverju sinni, en tölvuútskriftir
fara fram mánaðarlega. Afrit af
útskriftunum er síðan sent til
lækna sem geta boriö þær saman
og athugaö hvort þeirra
sjúklingar fái ávisað sterkum
lyfjum hjá fleiri iæknum. Taldi
Ólafur ólafsson landlæknir, að
svo til algjörlega væri búið að
koma I veg fyrir þaö með þessum
aðgeröum að sjúklingar flökkuðu
á milli lækna til að fá ávisanir á
sterk lyf.
Spurningu varðandi það hvort
eitthvaö annað hafi komið I stað
þeirra lyfjaefiia sem nú hafa
horfið úr sölu á siðustu árum
svaraði landlæknir þvi til að
ekkert benti til að þar kæmu i
staðinn önnur vanabindandi lyf
frá læknum. Hins vegar mætti
benda á að heimabrugg hefur
mjög aukist á þessum sömu
árum. Hverjir hópar þjóðfélags-
þegna það væru sem notuðu mest
sterk lyf eða svefnlyf svaraði
landlæknir aö það væri mest
gamalt fólk, óvinnufærir
öryrkjar, fráskilið fólk og ekkjur
og ekklar.
Þess má geta i lokin að á
árunum 1972-76 voru gerðar
kannanir á fjölda lyfjaávfeana i
Reykjavik og reyndust þá reyk-
vfekir læknar ávisa mestu magni
af vanabindandi lyfjum miðat
við kollega sina á Norðurlöndum
að Dönum undanskildum.
En með þeim samdrætti sem
átt hefur sér stað á siöustu árum i
ávisun á vanabindandi lyf þá
standa islenskir læknar nú jafn-
fætis bræðrum sinum á Norður-
löndum að Dönum undanskildum,
sem ávlsa enn umtalsvert meira
en aðrar norðurlandaþjóðir af
þessum lyfjum.