Þjóðviljinn - 16.06.1979, Qupperneq 18

Þjóðviljinn - 16.06.1979, Qupperneq 18
18 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. júní 1979 Verdlauna- samkeppni Æskunnar og Flugleiða Nýlega var dregið úr réttum lausnum i verðlaunasamkeppni Æskunnar og Flugleiöa sem fram fór i vetur i tilefni af 80 ára af- mæli Æskunnar. Það var 14 ára stúlka Hrönn Baldursdóttir Jörfabakka 30 Reykjavik sem hlaut fyrstu verð- laun, ferð til Kaupmanna- hafnar. Hún má bjóða foreldrum sinum með sér og einu systkini, svo þetta er sannkallað fjölskylduboð. bað var einnig dregið um fleiri verðlaun, tvær feröir innanlands og þrenn bókaverðlaun. Pólifónkórinn efnir til skyndi- happdrættis þessa dagana, til að afla fjár til starfseminnar næsta vetur. Dregið verður 3. júli og eru ýmsir feröavinningar o.fl. i boöi. Næsta vetur mun kórinn reka söngskóla og raddþjálfun og i frétt frá kórnum segir aö nú hylli undir lausn á húsnæðismálum kórsins. Þá hefur kórnum borist tilboð frá hljómsveitarstjóranum Hubert Soudant sem gjarnan vill stjórna tónleikum hér með kórnum. Einnig er sú hugmynd á lofti aö kórinn fari utan og taki þátt i tónleikum undir stjórn Soudant en ekki hefur verið gengið frá þvi enn. —ká Hækkun ál j Ieigubifreiða- akstri Samþykkt hefur veriö hækkun á taxta leigubifreiða ognemur sú hækkun rúmum 14% að þvi er Þjóöviljinn hefur fregnaö. Þegar blaðið hafði samband við leigubif- reiðastöð i bænum var okkur tjáð aö verið væri að prenta gjaldskrána og yrði henni dreiftum leiðoghún yrðitii- búin. -kd éMÍÆ Sáluhjálp i viólögum Ný þjónusta — Símaþjónusta frá kl. 17-23 alla daga vikunnar. SIMI 81515 Þjáist þú af áfengis- vandamáli? Er áfengisvandamál einhvers náins að eyðaleggja þitt lif? Hringdu - og ræddu málið SAMTÖK ÁHUGAFÓLKS £>lLnLU UM ÁFENGISVANDAMÁLIÐ Alþýðubandalagið í Reykjavík Aðalfundur 20. júní Aður auglýstur aðalfundur Alþýðubandalagsins I Reykjavik verður haldinn miðvikudaginn 20. júni að Hótel Esju og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Ólafur Ragnar Grimsson alþingismaöur gerir grein fyrir niðurstöðum af störf- um nefndar er falið var aö gera úttekt á störfum Alþýðubanda- lagsins i borgarstjórn, rikisstjórn og verkalýðshreyfingu. 3. Onnur mál. Hvert stefnir Framhald af 7. siðu. menntaiðju félagslegum veru- leika og sett bókmenntir i rök- rétt samhengi við beinharöar samfélagslegar staöreyndir. Helga Kress hefur tæpitungu- laust og með skýrum dæmum sýnt fram á þá kvenfyrir- litningu, sem fyrirfinnst og kemur að meira eða minna leyti upp á yf irborðiö hvar og hvenær sem kona er að brjótast inn á ný svið og hasla sér völl á hefð- bundnu yfirráðasvæði karl- manna. Konur eru þannig ofur- seldar mati karlveldisins á þvi, hvaö sé nýtilegt, frambærilegt og áhugavert. Þess er máttur- inn að dæma þar um. Karlmenn ákveöa hvaö séu góöar bókmenntir, hvaö séu merkileg yrkisefni, og þar er lif og reynsla kvenna ekki ofarlega á blaði. Menning og list kvenna hefúr einatt veriö þöguö niður. Það er eins og fyrri daginn, að það stendur aftarlega i karl- mönnum aö viðurkenna konuna sem jafningja sinn úti í sam- félaginu við margvísleg störf og viðfangsefni, þegar komið er út fyrir heimiliö, eldhúsiö, að ekki sénú talað um rúmstokkinn. Á konuna er einkum litið sem kyn- veru, og það er mikill misskiln- ingur og hrapallegur, þegar talsmenn kvennahreyfinga, sem telja sig framfarasinnaðar og róttækar, einskorða sig I málflutningi slnum við svið einkamála og náinna samskipta kynjanna. A þvi hefur borið full mikið í seinni tiö á kostnað ann- arrar umræðu og mikilvægari, sem verður að beinast út á við. Éghefeiginlega furðað mig á þvi, að Helga Kress skuli ekki hafa fengið meiri undirtektir frá konum t.d. i blöðum. Hún heföi átt þaöskiliö, en fyrir mitt leyti vildi ég, þótt i Iitlu sé, færa henni þakkir fyrir timabært framlag hennar bl jafnréttis- baráttu og bókmenntalegrar umræöu. Þá get ég ekki lokið þessum linum svo aö ég minnist ekki á ágætt frumkvæði af hálfu Rauðsokkahreyf ingarinnar, sem gekkst nýlega fyrir bókmenntakynningu i Norræna húsinu þar sem flutt voru verk eftir Jakobinu Sigurðardóttur. Þar var myndarlega og vel að verki staðið. ílíÞJÓOLEIKHÚSIfl STUNDARFRIÐUR i kvöld kl. 20 miðvikudag kl. 20 föstudag kl. 20 Tvær sýningar eftir A SAMA TÍMA AÐ ARI þriðjudag kl. 20 fimmtudag kl. 20 Siðustu sýningar Miðasala 13.15-20. Simi 1-1200. BLÓMARÓSIR 3. sýning mánudag kl. 20,30 4. sýning fimmtudag kl. 20,30 Miöasala í Lindarbæ alla daga kl. 17-19,— sýningardaga kl. 17-20,30. Simi 21971. Blað- berabíó I dag kl. 13.00 Leikhúsbraskararnir Gamanmynd með Islenskum texta Aðalhlutverk: Dick Shown Gene Wilder Lífeyrissjóöir Framhald af 14. siðu. mönnum um þetta mál. Hann taldi að 3 leiðir kæmu til greina. í fyrsta lagi að hafa óbreytt ástand, sem þýðir stöðuga hækkun vaxta. I Öðru lagi væri hægt aö bæta verðbótaþættinum ofan á grunnvextina. Verðbóta- þátturinn er nú 22%, en almennir grunnvextir 6%. I þriöja lagi væri svo hægt að fara alfarið út I það að verötryggja lánin. Gallinn við verðtrygginguna væri sá að fyrsta árið myndi útlánageta sjóðanna versna mikið, vegna þess að ráðstöfunarfé þeirra mun minnka verulega. Kosturinn er hins vegar viö aðbæta verðbótar- þættinum ofan á, væri að greiðslubyrðin jafnaðist, og kæmi það láglaunafólki mjög til góða. Hrafn lagði hins vegar áherslu á aö ekkert væri hægt aö segja til um, hvaða leið væri æskilegust, en lifeyrissjóðirnir myndu kapp- kosta að ná samstöðu um þetta mál. — Þig Sumarferðir Framhald af 13. siöu. hópnum, sem þar dvelst. 3) 13. júli kl. 14.00 verður farið frá tsafirði til Aðal- vfkur og til baka föstu- daginn 20. júli. 4) 13. júli kl. 14.00 verður fariö til Hornvikur og dvalið þar i viku, eða til 20. júlí. Þá kemur Fagranesið og tekur þá sem dvelja í Aöalvik og Hornvik. 5) 20.—27. júli: Hornvik eða Aðalvik eöa Fljótavikur. Þeir sem taka þátt I þess- um ferðum veröa að hafa með sér allan viðleguút- búnað og dvelja I tjöldum allan timann. Þeir sem fara til Hornvikur og Aöalvíkur tjalda einu sinni og fara I allar skoöunarferöir að morgni, en koma aftur I tjaldstað að kvöldi. Þátttakendur geta hagað feröum sinum að vild til tsa- fjarðar, tekið þátt I hópferð flugleiðis, frá Reykjavík, eða komiö á eigin bilum þangaö og slegist I hópinn á bryggj- unni á tsafirði. Nánariupplýsingar um til- högun ferða þessara eru veittar á skrifstofú Ferða- félags tslands, Oldugötu 3, s. 11798 og 19533.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.