Þjóðviljinn - 16.06.1979, Side 20
DJÖÐVIUINN
Laugardagur 16. júní 1979
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga, kl. 9—12 f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfs-
menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382,, 81527,
81257 og 81285, afgreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348.
C 81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóðviljans i sima-
skrá.
Verður þú rekinn út af vinnustað og sviptur launum?
VSÍ vill lækka kaup
Alþýðusambandið hrekur áróður atvinnurekenda í fréttabréfi
l fréttabréfi ASÍ sem út
kemur í tilefni af verk-
bannshótun Vinnuveit-
endasambandsins segir að
hér sé um að ræða einstak-
lega ósvífna árás VSI á
ASI og alla félagsmenn
þess. Verkbannsboðun
þessi sé algert einsdæmi og
eigi ekkert skylt við
samúðarvinnustöðvanir
verkalýðsfélaga gegn at-
Kjaradómur
skipaður í
deilu
mjólkur-
fræöinga
Kjaradómur hefur verið
skipaður í mjólkurfræðinga-
deilunni samkvæmt samn-
ingi mjólkurfræðinga og við-
semjenda þeirra. Þegar hafa
eftirfarandi verið skipuð i
dóminn:
Bjarni K. Bjarnason borgar-
dómari form.
Sigríður Vilhjálmsdóttir
þjóðfélagsfræðingur
dr. Grimur Már Valdimars-
son gerlafræðingur.
Siðan skipar Vinnumála-
samband Samvinnufélaga
einn fulltrúa, Vinnu-
veitendasambandið tvo og
mjólkurfræðingafélagið tvo.
-ká
Heimskringla
í vidhafnar-
útgáfu
í tilefni 800 ára
afmœlis Snorra
Sturlusonar
Heimskringia ken.ur dt i
sérstakri viðhafnarútgáfu i
tilefni 800 ára afmælis
Snorra Sturhisonar. Otgef-
andi er hið isienska fornrita-
félag, ogútgáfan er undirbú-
in I samráði við Snorranefnd
og menntamálaráðuneytið.
Viðhafnarútgáfan sem er í
300 tölusettum eintökum og
árituð af forseta vorum,
Kristjáni Eldjárn, verður
seld hjá Bókaverslun Sigfús
ar Eymundssonar og þar er
tekiö við pöntunum á henni.
Starfsemi fornritafélags-
ins hefur aukist verulega að
undanförnu. Áherslan liggur
nú á endurútgáfu verka sem
eru þegar uppseld. A þessu
ári er áformað aö endur-
prenta Egils sögu og Ljðs-
vetninga sögu, og þrjú bindi
Konungasagna eru vel á veg
komin 1 undirbúningi. A
næsta ári er því gert ráð
fyrir að öll rit félagsins sem
út hafa komið verði á boð-
stólum.
vinnurekendum sem þau
hafa átt í deilu við.
Hér fara á eftir sýnis-
horn úr texta fréttabréfs-
ins:
Snertir verkbannið þig?
Ef atvinnurekandi sá, sem þú
vinnur hjá, er félagsmaður i VSl,
þá ert þú einn þeirra sem:
• Rekinn verður út af vinnu-
staðnum
• Neitað verður um að fá að
vinna, þótt hvorki þú sé
stéttarfélag þitt eigi i deilu við
VSÍ.
• Sviptur verður launum þínum.
• Missir rétt til atvinnuleysis-
bóta.
• Hefur ekki fengið 3% grunn-
kaupshækkun
Gegn hverjum er verkbanninu
beint?
• Gegn þeim, sem ekki eiga aðild
að yfirstandandi kjaradeilum
og hafa ekki neina möguleika á
að leysa þær.
• Gegn þeim, sem lægst hafa
launin
• Gegn þeim, sem ekki hafa
fengiö hliðstæða kauphækkun
og aðrir.
Að hverju stefnir vinnuveit-
endasambandið með verk-
banninu?
• Það stefnir að þvi að stöðva
alla atvinnustarfsemi.
• Þaö ætlar að brjóta niður þau
launakjör, sem hér hafa gilt.
• Það ætlar að lækka kaupið.
• Það ætlar að lækka kaupmátt-
inn.
• Það ætlar að flytja fjármuni
frá launafólki i landinu yfir til
atvinnurekendanna.
Neitaði ASl viðræðum við
vinnuveitendasambandið um
3% grunnkaupshækkun?
• 1 sjónvarpinu 12. júni 1979
sagði Þorsteinn Pálsson,
frkv.stj. Vinnuveitendasam-
bands Islands, að ASl hefði
neitað viðræðum um 3%
grunnkaúpshækkun.
• Þetta er ekki rétt.
Vinnuveitendasambandið fór
fram á þrihliða viðræður milli
atvinnurekenda, ASl og far-
manna- og fiskimannasam-
bandsins.
• Farmanna- og fiskimanna-
sambandiö er ekki i ASI og ASI
taldi ekki rétt að blanda sér i
deilur vinnuveitendasam-
bandsins við yfirmenn á kaup-
skipum.
• ASl hefur aldrei hafnað tvi-
hliða viðræðum milli ASl og
atvinnurekenda um 3% kaup-
hækkun.
• Vinnuveitendasambandið
svaraði hins vegar hinni sjálf-
sögbu kröfu um 3% til Alþýðu-
sambandsfélaganna með þvl
að setja þá i verkbann.
Þessir bílar hafa eflaust lent í mörgum ævintýrum á
vegum landsins enda komnir til ára sinna. Þeir sjást
nú sjaldan á vegum, en þegar myndin var tekin voru
þeir á leið á sýningu Fornbílaklúbbsins í Laugardaln-
um sem haldin er í minningu 75 ára af mælis bílsins á
Islandi.
(Mynd Leifur)
Bjarni Bragi Jónsson hjá Hagdeild Seölabankans:
■........ — ■ ■■ ■■ .. ■■■.... 1 ■■■■..—n.
Verðtrygging auðveldar
fasteignaviðskipti
,,Ef ákveðnar breytingar koma
til á núverandi skattalöggjöf, þá
mun þessirýmkaða heimild tii að
verðtrvggja lán á aimennum
markaði, bæði koma kaupendum
og seljendum til góða,” sagöi
Bjarni Bragi Jónsson hjá Hag-
deild Seðlabankans, er Þjóð-
viljinn innti hann eftir þvi hvaða
áhrif verðtryggingar á lánum
heiðu á fasteignamarkaöinn.
„Það er enginn vafi á þvi”,
sagði Bragi,uað verðtryggingin
myndi, ef skattalagabreytingar
kæmu tíl i þvi’ formi að verðbólgu-
braskið kæmi ekki lengur sem
skattaafsláttur.hafaþau áhrif áð
kaupandinn myndi þurfa að
borga minna út, lánstíminn
lengdist og afborganir yrðu
jafnari. Seljandinn myndi
hagnast eðlilega á þann hátt að
hann fengi raunvirði fjármagns
sins allt tíl baka ásamt þeim litlu
vöxtum sem yrðu á lánunum, ef
verðtrygging kæmi til fram-
kvæmda almennt.”
Bragi var þá spurður um það
hvort 100% verðtrygging lána hjá
Húsnæðismálastofnuninni og
lækkun vaxta i 2%, eins og stjórn
stofnunarinnar hefur gert tillögu
um, myndi hafa einhver áhrif á
hin almenna fasteignamarkað, en
hann taldi svo ekki vera, vegna
eðlis Húsnæðismálastjórna-
lánanna. -Þig
Verðtryggíng á lánum til fasteignakaupa
Fasteignasalar taka
afstöðu í næstu viku
Fasteignasaiar i Reykjavik
munu koma saman tQ fundar n.k.
þriðjudag, þar sem þeir munu
fjaila um þá heimild sem gefin
hefur verið um rýmkun á verð-
tryggingu lána á aimennum
markaði.
Þjóðviljinn reyndi I gær aöhafa
samband viö nokkra fasteigna-
sala I Reykjavik, til að spyrja þá
álits á því hvaða áhrif verðtrygg-
ing lána muni hafa á fasteigna-
markaðinn. Heldur illa gekk þó
að fá þá til að tjá sig, þar sem þeir
hafa ekki enn fundað saman um
málið, en fundur hefur verið
boðaöur á þriðjudag f næstu viku.
Hljóðiði fasteignasölunum var þó
mjög mismunandi til þessa máls.
Sumir þeirra vildu að lán yrðu
verðtryggð alfarið, en aðrir töldu
að þessi heimild myndi ekki hafa
nein áhrif nú á hinum almenna
maritaði, þvi lánasjóðirnir þyrftu
að taka þessa reglu upp hjá sér
áður en þetta myndi hafa einhver
áhrif á hjá þeim.
Engilbert Guðmundsson
Engilbert
sumar-
ritstjóri
Engilbert Guömundsson
hagfræðingur hefur verið
ráðinn ritstjórnarfulltrúi á
Þjóðviljanum nú I sumar.
Engilbert mun leysa rit-
stjóra blaðsins af i sumar-
leyfum og tekur til starfa á
mánudag.
Engilbert hefur verið
sumarmaður á Þjóðviljan-
um og ritað greinar i
Þjóðviljanum að staðaldri.
Ritstjórn Þjóðviljans býður
hann velkominn til starfa.
Rjómaís
ís-álfar (fyrir éiiín).
J lítil kringlött kexknka
1 stór iskúla 1 krnmarluis
ávaxtahlaup.
I.eggió ískúhma á kexió.
Setjiö ávaxtalilaup i
spráúiupitka tneó mjóum
stút og sprautiö augu. ne.f
og munn á iskúluna.
Setjiö krámárhúsió á ,
sem húfu ó'g þér.gétiö
veriö visS ttrn aö yngstu
börnin mtihu hafa gaman
af. _
Makkarónu-ís.
Skériö 2 litra áf vanilluís
i sneiöar, leggiö í lögum á
fát meö gröfmuldum
makkarónuin sem
hafa legiö í bleyti í 2 glös-
um af sherry í 2 klst.
Skreytiö nveó þeyttum
rjóiha og smjörristuöum
móndlum.