Þjóðviljinn - 05.07.1979, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 05.07.1979, Blaðsíða 1
UOmiUINN Fimmtudagur 5. júli 1979 —150. tbl. 44. árg. Meistarinn lét sér ekki nægja léreftiö, svo sem sjá má á þessu verki Kjarvals sem nú er á sýningu á Kjarvalsstöð- um. — Ljósm. Leifur. Kjarvals- staðir verði listaverka- miðstöð Reykjavlkurborg á nú á þriðja hundrað málverka, auk safns Júhannesar Kjar- vals og fjölda myndverka viðs vegar um borgina. Listaverkasafnið er þvi verðmæt eign, sem óverj- andi er að sé eftirlitslaust og óskrásett, segir I greinar- gerð með tillögu borgarfull- trúa Alþýðubandalagsins um listaverkamiðstöð borgar- innar. Tillagan, sem lögð verður fram i borgarstjórn i dag, er svohljóðandi: „Borgarstjórn samþykkir að miðstöð lista- verka i eigu Reykjavikur- borgar verði að Kjarvals- stööum og þar verði þau verk varðveitt sem eru i geymslu á hverjum tima. Skrá yfir listaverkin verði i vörslu list- ráðunauts Kjarvalsstaða sem annist siðan skráningu nýrra verka. Gerð verði reglugerð um framtiðarskipan þessara mála, þar sem kveðið verður á um hvernig kaup á lista verkum fara fram, hvaða aðili annast viðhald þeirra I merkingu höggmynda borginni og annað er varðar eftirlit með listaverkum borgarinnar.” I greinargerð með tillög unni kemur fram að enginn sérstakur aðili annast nu listaverkakaup fyrir borgina en umsjón með listaverkum hennar annaðist fyrrverand borgarlögmaður um skeið Frá þvl hann hætti störfum hefur enginn ábyrgur aðil haft umsjón með þeim. Seg- ir ennfremur að ekki sé ástæða til stofnunar sérstak listaverkasafns þar sem ekkert sé eðlilegra en aö þessi verk skreyti stofnani borgarinnar. Þar sem borgin reki menningarmiðstöð að Kjarvalsstöðum, þar sem verk þessi hafa einnig verið sýnd, sé eðlilegt að þau eig þar eins konar lögheimi' undir forsjá listráðunaut staðarins. Sölutregda er á Karfa og grálúðu Aukins ufsa vart á Veslfjardarmidum Offramboð virðist nú vera bæði á karfa- og grá- lúðumörkuðum Islendinga erlendis og hefur stjórn Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna sent frysti- húsum innan samtakanna skeyti þar sem segir að frysting þessara afurða sé á ábyrgð þeirra sjálfra eftir l. júlí. Ekki hefur tekist að ná samningum við Rússa ' um frekari sölu þangað en búið er að frysta upp í nú- gildandi samninga við þá. Nú er í gildi þroskveiði- bann og hefur fiskiskipum m. a. verið beint á karfa- og grálúðuveiðar. 1 samtölum við embættismenn I sjávarútvegsráðuneyth og við- skiptaráðuneyti I gær kom fram að þrátt fyrir þessa óvissu núna væru menn vongóðir um að rætt- ist úr. Þjóðviljinn hafði I gær sam- band við Jón Pál Halldórsson for- stjóra Norðurtangans á Isafirði og sagði hann að markaðsstaðan væri ákaflega erfið um þessar mundir. Verð á grálúðu hefur far- ið lækkandi en grálúðuveiðarnar eru Vestfirðingum mjög mikil- vægar. T.d. væru á vegum Norð- urtangans gerðir út tveir linubát- ar á grálúðu og hefði afli þeirra verið góður að undanförnu. Hvor um sig kom með um 70 tonn I slð- ustu viku. Jón Páll sagöi að A-Þjóðverjar og Pólverjar væru helstu keppi- nautar íslendinga á mörkuðum fyrir grálúðu I V-Evrópu en litið mætti út af bera til að verð lækk- aði. Helstu markaðirnir eru I V- Þýskalandi, Belgfu, Bretlandi og Rússlandi en tiltölulega fámenn- ur hópur neytti grálúöunnar. Hún er ákaflega feitur fiskur og bragðgóður, en ekki við allra hæfi. Jón Páll sagði að togararnir á Isafirði væru nú á þorskveiðum og hefðu veitt vel að undanförnu. Þeir komu allir inn um siðustu helgi með á annaö hundrað tonn. Hann bjóst við að ekki yrði farið I þroskveiðibannið fyrr en I ágúst. Arið 1972-73 var um þriðjungur Framhald á blaðslöu 14. Hjörleifur Guttormsson spyr: Á Krafla að verða minnis- varði? Varðandi ummæli Vilmundar Gylfasonar um að ekkert hafi breyst varðandi stýringu mála við Kröflu minni ég á að iðnaöar- ráðuneytið fól að fengnu samþ. rikisstjórnarinnar, Rafmagns- veitum rikisins að annast stjórn á rekstri og framkvæmdum við virkjunina frá sl. áramótum, og frá sama tima var hin mjög um- deilda Kröflunefnd lögð niður, sagði Hjörleifur Guttormsson I viðtali við Þjóöviljann I gær. — Mér virðist að Vilmundur Gylfa- son, alþingismaður, þyrfti að taka sér tima til rólegrar athug- unar mála varðandi þessa virkj- un. En ég hygg að við getum verið sammála um, að margt hefur þar farið úrskeiðis á liðnum árum. Það er hinsvegar áhorfsmál að minu mati hvort varðveita eigi mannvirkin við Kröflu engum að gagni um ókomin ár. Sjá 3. síðu Bensín- og svartolíuhækkun á næstunni Bensínlítrinn í Enga staðfestingu að fá Hjá verðlagsstjóra liggja nú fyrir beiðnir frá olíufé- lögunum um miklar hækk- anir á öllum tegundum olíu. Er Þjóðviljinn hafði samband við Georg Ölafsson verðlags- stjóra siðdegis i gær staðfesti hann að beiðnir um hækkanir lægju fyrir, en þar sem rikis- stjórnin hefði gefið út um það Krakkarnir úr Arbæ og Breiðholti veröa að sækja sund niður I Laugar- dal, þrátt fyrir það að i hverfunum eru litlar útisundlaugar sem vel mætti hafa opnar almenningi. Ljósm. Leifur. Sundstaðir opnir lengur um helgar / / Utilaugar í Arbæ og Breiðholti opnar fyrir almenning Borgarfulltrúar Alþýðu- bandalagsins hafa lagt til að sundlaugarnar í Árbæj- arskóla og Breiðholtsskóla verði opnaðar almenningi og einnig aðrir sundstaðir borgarinnar verði opnir lengur um helgar en nú er. Tiílaga þeirra, sem koma mun til afgreiðslu á borgarstjórnar- fundi i dag er svohljóðandi: „Borgarstjórn sambvkkir að fela borgarráði • að kanna ýtarlega möguleika þess að um helgar séu sundstaðir borgarinnar opnir lengur en nú er. Einnig verði at- hugað, hvort ekki sé fært að opna alménningi sundlaugarnar i Arbæ og i Breiðholti.” Síðast nefndu sundlaugarnar eru litlar útilaugar, sem hingað til háfa eingöngu verið notaðar til kennslu, en að sjálfsögöu mætti nýta þessi mannvirki betur og auðvelda ibúum i Arbæ og Breið- holti aö stunda sund sér til heilsu- bótarog hressingar eins og marg- oft hefur verið bent á hér i Þjóð- viljanum. —AI Vinnuslys í Tveir piltar slösuðust I gær þeg- ar lyftari sporðreistist þar sem unniö var að hreinsun á spirölum uppi við loft i verksmiöjuhúsnæði Norðurstjörnunnar i Hafnarfirði. Slysið átti sér stað um fimm- leytið i gærdag, en piltarnir höfðu verið að vinna allan daginn við hreinsun uppi við loft, en til að komast þangað voru þeir hafðir i skúffu sem fest var á gaffla lyft- Hafnarfirdi arans. Eins og áöur sagði sporð- reistist siðan lyftarinn með þeim afleiðingum að piltarnir féllu til jarðar. Þeir voru báðir fluttir á slysa- deild Borgarspitalans, og mun annar þeirra hafa hlotið þó nokkra áverka. Stjórnanda lyftarans sakaði hins vegar ekki. -tg- rúmar 300 kr? yfirlýsingar að gasolian yrði greidd niður þá fengist sennilega ekki hækkun á henni. Georg vildi ekki gefa upp hvað hækkunar- beiðnin væri mikil, né vildi hann skýra frá hvenær beiðnin yrði af- greidd. Þjóðviljinn hefur hins vegar fregnað það, eftir öðrum leiðum, að hugsanlega verði hækkunin afgreidd i næstu viku, og mun bensinið þá fara i rúmar 300 krónur litrinn. Auk þess er bú- ist viö nokkurri hækkun á svart- oliu. Þessar upplýsingar eru þó al- gjörlega óstaðfestar, þar sem ákveðið hefur verið af hlutaðeig- andi aðilum að láta ekki neitt uppi um þessi mál. — Þig

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.