Þjóðviljinn - 06.07.1979, Side 11
Föstudagur 6. jiilt 1979 WÓÐVILJINN — StÐA 11
íþróttir 0 íþróttir gl íþróttir ff
■ ^ J ™ Umsjón: Ingólfur Hannesson V / ® *■ ' ^
Átök
að loknum leik
Vals og Víkings
Aö loknum leik Vals og Vikings
I gærkveldi á efri Laugardalsvell-
inum urðu átök meðal stuðnings-
manna félaganna. Eftir að starfs-
menn vallarins höfðu árangurs-
laust reynt að stilla til friðar á á-
horfendstæðunum barst leikur-
inn út fyrir völlinn og var lögregla
kvödd til.
Henni tókst að visu að koma á
friði milli stuðningshópa félag-
anna, en tókst þó ekki betur til en
svo að ryskingar upphófust milli
hennar og tveggja stuðnings-
manna Vikings. Urðu lögreglu-
mennirnir sem voru vart af ung-
lingsaldri að lokum að kveðja til
liðsauka. Þrátt fyrir ofurefli liðs
náðu ærslaseggirnir að snúa lög-
regluna af sér við mikinn fögnuð
áhorfenda, sem höfðu gaman af
þessari aukaskemmtan. Eftir
mikil hlaup tókst lögreglusvein-
unum loks að hafa höndur i hári
mannanna, enda var þá kominn
liðsauki kvenlögreglunnar á stað-
inn, sem tók á málunum af sýnu
meiri röggsemi. Hins vegar varð
heldur Ijótt að verða vitní að þvi,
þegar þrir filefldir lögreglusvein-
ar köstuðu öðrum piltinum hand-
járnuðum á gólfið i Svörtu Marlu
eftir miklar stympingar, og má
undrum sæta að piltinum tókst að
forða andliti sinu undan meiðsl-
um. —ÖS
EITTOG
ANNAÐ
Little til Birming-
ham
Tvær stórsölur voru á
enskum knattspyrnumönn-
um á Englandi í fyrrakvöld.
Brian Little var seldur frá
Aston Villa til nágrannaliðs-
ins Birmingham fyrir 600
þús. pund. Birmingham er
þegar byr jaö að eyöa miljón-
inni sem þeir fengu fyrir
Trevor Francis.
Aston Villa lét ekki þar við
sitja ogseldi einnig miðvall-
arleikmanninn John Greg-
ory. Hann fór til Brighton og
var kaupverðið 300 þús.
pund. Villa hefur mjög
marga snjalla miðvallarspil-
ara I sinum röðum, svo aö
salan á Gregory kom ekki
mjög á óvart.
Þá var gamli jaxlinn John
Hollins seldur frá QPR
til Arsenal og má segja að sú
sala hafi komið einna mest á
óvart, þvf upphæöin var 75
þús.pund oghvernig I ósköp-
unum Hollins á að getað
styrkt lið Arsenal
Létt hjá Borg
Sænski tenniskappinn
Björn Borg tryggði sér sæti i
úrslitaleik Wimble-
ton-keppninnar með þvi að
sigra Bandarikjamanninn
Jimmy Connors 6-2, 6-3 og
6-2. Þetta kallast rótburst á
Iþróttamáli. Fyrirfram hafði
verið reiknað með hörkuleik
þvi þessir kappar mættust 1
úrslitum keppninnar I fyrra.
Bjöm Borg var þó á annarri
skoðun og stefnir að sinum 4.
sigri I Wimbledon I röö og
það hefur enginn gert fyrr.
Mótherji Borg I úrslita-
leiknum verður Bandarlkja-
maður aö nafni Tanner, en
hann vann landa sinn Dupre I
hinum undanúrslitaleiknum
6-3, 7-6 og 6-3. Þessir kappar
hafa leikið 4 sinnum áður og
hvor unnið tvisvar. Þetta er
þvi sýnd veiði en ekki gefin
fýrir Borg.
Úrslitaleikur I einliðaleik
kvenna veröur milli Martinu
Navratilova og Chris Evert.
Viti, viti, hrópuðu hörðustu stuðningsmenn Vals þegar þetta atvik átti sér stað innan vitateigs Vikings. Hvað finnst þér?
Tilþrifalítill leikur
Valsmenn tryggðu sér þátt-
tökurétt I 8-liða úrslitum bikar-
keppninnar i gærkvöldi með þvi
að leggja Vikinga að velli 1-0.
Valur fær þá að glima viö hina
grimmu KR-inga úr Vesturbæn-
um og er ekki að efa að þar verð-
ur hart barist.
Leikurinn I gærkvöldi ein-
kenndist af miklum barningi á
miðjunni og mátti vart á milli sjá
hvortliðiðheföi betur. Þá sjaldan
að færi sköpuðust var það viö
Vflúngsmarkið og má segja aö
það eitt hafi ráðiö úrslitum.
Iþautvöskipti, sem ástæða var
að opnaminnisbókina ifyrrihálf-
leiknum, voru Valsararnir á ferð-
inni. A 13. mín. skallaði
Guðmundur fyrir Vikingsmarkið,
en skot Atla fór rétt framhjá.
Nokkru siðar komst Jón Einars-
son I gott færi, en skot hans fór i
Vlking og auövitaö framhjá.
Sama baráttan á miðjunni hélt
áfram i seinni hálfleiknum og fátt
markvert gerðist. A 70. min skor-
uðu Valsmenn óvænt og var þar
að verki Ingi Björn með laglegu
skoti úr þröngri stöðu, sem fór i
varnarmann Vikings og inn, 1 - 0:
Síðar I leiknum fékk Ingi tvær
góðar stungusendingar, en fram-
hjá fór tuðran. Undir lokin var
mönnum farið að hitna I hamsi og
fengu þá nokkrir Valsarar aö sjá
gula spjaldið hjá Magnúsi, dóm-
ara.
Valsmenn voru Iviö ákveðnari i
þessum leik og það nægði þeim.
Þeir gátu leikið knettinum oftar á
millisin án þess að andstæðingur
kæmist á milli. Skástir i liði Vals
voru Dýri og Ingi Björn.
óhætt er að segja, að stórmun-
ur er á Vikingsliðinu nú og i upp-
hafi tslandsmótsins. Þeir sýna oft
á tlðum ágætt samspil og liðs-
heildin er að verða sterk.
-IngH
í A og IBK lentu saman
I hálfleik I leik Vals og Vikings tBV — Þróttur
var dregiö i 8-liöa úrslit bikar- 1A — tBK
keppninnar og leika efúrtalin liö KR — Valur
saman. Þaö liö sem á undan er Fram — UBK
taliö á heimaleik.
!
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
I
■
1
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
m
I
m
I
■
I
■
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
L
Furðuleg ákvörðun þjálfara ÍBK
„Jón ólafur Jónsson hringdi i mig á mið-
vikudagskvöldið og tilkynnti að Tranter, þjálf-
ari ÍBK, hefði ekki gefið leyfi sitt fyrir þvi, að
Ragnar Margeirsson kæmi með okkur til Fær-
eyja,” sagði Lárus Loftsson, þjálfari drengja-
landsliðs íslands i knattspyrnu er Þjóðviljinn
hafði tal af honum á Reykjavikurflugvelli i
gær, en landsliðið var i þann veginn að leggja
af stað til Færeyja.
Lárus sagðiennfremur: ,,Það
er hneyksli að þessi útlenski
þjálfari skuli leyfa sér að setja
strákunum stólinn fyrir dyrnar,
ekki sist þegar þess er gætt að
hann á að leika landsleik fyrir
tsland og sá leikur stangast
ekkert á við leiki IBK.” Helgi
Danielsson, stjórnarmaður KSÍ,
sem þarna var staddur bætti
við: ,, Það er ljóst að stjórn KSI
verður að fjalla um þetta mál,
svona lagað er ekkert grin.”
Tranter segir nei
Ragnar Margeirsson er 16 ára
gamall og hefur verið fastur
maöur I hinu sigursæla liði IBK
upp á slðkastiö. Hann var þvi
einn af þeim fyrstu, sem ung-
linganefnd KSt valdi til þess að
leika fyrir tslands hönd i kom-
andi landsleikjum gegn Færey-
ingum og I byrjun ágúst á Norð-
urlandamótinu. Vitað er að
hann hafði gert allar ráðstafan-
ir til þess að fara i Færeyjaferð-
ina m.a. sent inn gjaldeyrisum-
sókn.
1. júli kom nýr þjálfari til
Keflvikinga aö nafni Tom
Tranter og tók þegar við að
þjálfa liðið. Þegar að hann frétti
um fyrirhugaða utanferð Ragn-
ars með drengjalandsliðinu,
neitaöi hann að gefa leyfi sitt
fyrir sliku og sagðist þurfa á
honum að halda á æfingum fyrir
leikinn gegn Val n.k. mánu-
dagskvöld. Þetta var siðan Lár-
usi tilkynnt daginn áður en
leggja átti upp.
Jón Ólafur Jónsson, varafor-
maður IBK og unglinganefndar-
maður, hafði þetta um máliö að
segja: „Tranter vildi ekki
missa strákinn. Hann kom fyrir
tæpri viku hingað og vill fá tima
til þess að móta liðið og að kynn-
ast strákunum. Við verðum að
lita á sjónarmið hans, en sem
unglinganefndarmanni finnst
mér slæmt að svona skuli hafa
farið.”
Reynslan i
unglingalandsliðum
undirstaðan
Ráð væri fyrir Keflvikinga að
lita sér aðeins nær i þessum efn-
um. Kjarni hins unga meistara-
flokksliðs þeirra I dag eru strák-
ar sem leikið hafa i drengja-
landsliðinu og fengið þar ómet-
anlega reynslu, reynslu sem
vafalitið á sinn stóra þátt i vel-
gengni þeirra I sumar. Nægir
þar að nefna Sigurð Björgvins-
son, Einar Asbjörn og Þóri Sig-
fússon. Ætlar stjórn IBK að láta
þjálfarann komast upp með
þetta?
Einnig má benda á það, að
KA-leikmaðurinn Asbjörn
Björnsson hefur tekiö þátt i öll-
um undirbúningi liðsins og fyrir
það missti hann af leik KA og
Fram i bikarkeppninni. Norð-
anmenn hugsuðu fyrst og
fremst um hag Asbjörns og
landsliðsins og fannst það heið-
ur að þeirra maður skyldi vera
valinn til þess að leika fyrir ts-
land.
Loks má benda stjórn ÍBK á
að svipað mál kom upp fyrir
nokkrum misserum og þá sagði
viðkomandi strákur: „Hvorkí
þjálfari né einhver stjórn bann-
ar mér að leika unglingalands-
leik. Eg er ekki gjaldgengur i
það lið nema 2 ár, en fyrir félag-
ið á ég eftir að spila i 10 til 15
ár.”
Hvað gerir KSÍ?
Það er vist óhætt að taka und-
ir orð Helga Danielssonar aö
stjórn KSÍ verði að fjalla um
þetta mál. Þvl má siðan bæta að
svona litilsvirðing gagnvart 16
ára gömlum knattspyrnuáhuga-
manni og landsliði tslands á
ekki að liðast. —IngH
Siðustu fréttir:
Þjálfarinn gaf eftir
Vegna þess að ferð drengjalandsliðsins frestaðist
um sólarhring gafst þeim Keflvíkingum og þjálfar-
anum Trenter svigrúm til að athuga málið nánar.
Jens Sumarliðason, unglinganefndarmaðury hafði
samband við þá og varð úr að Ragnar fer með til
Færeyja.
I
■
I
■
I
■
I
i
■
I
■
J