Þjóðviljinn - 25.07.1979, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 25.07.1979, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 25. júli 1979. Miðvikudagur 25. júli 1979. ÞJ6ÐVILJINN — SÍÐA 9 ,,Það er eitt stórt brjálæöi að ætla að henda Burstafellinu. Það mætti sigla á þvi kringum hnöttinn”. Svo mæiir Eggert Gunnarsson. (Mynd: Leifur) Hrein fjárglæpamennska — segir Eggert Gunnarsson skipasmiður um örlög Burstafellsins Burstafell Ve. 35 liggur i Dráttarbrautinni h/f i Eyjum. Eftir aöhafa flengst um allan sjó biöa þess nú dapurleg öriög þvi innan skamms verður bátn- um sökkt i saltan mar. Samt sem áður er fjarri þvl að skipið sé ó- nýtt eða skemmt á einhvern hátt. Akvörðunin um eyðilegginguna var nefnilega tekin skömmu eftir aö það var gert upp fyrir tæpa tvo tugi miljóna króna. Astæðan fyrir þessu er hið margfræga sjóöakerfi i islenskum sjávarút- vegi. Einhver angi af þvi greiðir nefnilega Utgerðarmanninum fyrir missinn, þannigað bætturer hans skaði. Eggert Gunnarsson skipasmið- ur, sem tiöindamenn blaðsins hittu iDráttarbrautinnivar okkur sammála um, að hér væri um hneyksli aö ræða. „Þetta er ekkert annað en hel- vitis truflun, hreinasta fjárglæpa- mennska, aö henda bátaum. Ég var sjómaður í 20 vertiðir og veit vel hvort skip eru góö eða vond. Og ég þori aö fuliyrða, að það væri hægt aö fara kringum hnött- inn á Burstafellinu.” — Hversvegna á þá að henda bátaum? „Blessaður vertu, það er ein- hver sjóður sem borgar brúsann. Ég held það sé Aldurslagasjóður sem yfirtekur veðskuldirnar á svona bátum, eftir að þeir eru komnir á vissan aldur, þannig að útgerðarmaðurinn sleppur. En það er skilyröi að bátnum sé hent. A sama tima og þeir eru að for- djarfa Burstafelliðersvo verið aö smiða báta, meira að segja minni en þennan, sem kosta þetta 5 — 6 miljónir tonniö. Það er nú stóra brjálæðiö.” — Er nýsmiði i Eyjum? „Nei. Það hefur ekki verið ný- smiði i slippum hér i Eyjum i mörg ár. Fyrst og fremst var nú svo mikið að gera kringum við- haldið á þessum stóra bátaflota sem hér var alltaf, en svo vorum viö skipasmiðirnir lika fremur fá- ir. í dag er lika skortur á góðri að- stöðu fyrir nýsmiði stórra skipa. Og raunar skortir okkur aðstöðu til að taka stóru skipin hér til klösssunar og jafnvel lika minni háttar viðgeröa. Við höfum nefhilegá ekki fjár- fest I skipalyftu. Og sökina á þvi ber fyrst og fremst bærinn. Þvi bærinn á skipalyftu og hefur átt i mörgár. Húnbarakemurekki að notum, þvihúnliggurinná Eiði og ryðgar bara niður. Fyrir bragðið er allur skipaiðn- aður að geispa golunni hé i Eyj- um. Við þessir kallar sem erum meö stöðvar höfum ekki lagt út i að fjárfesta I skipalyftum, þvi kanski yrði engin þörf fjrir okk- ur, þegar nýja lyftan byrjar — ef hún verður þá einhvern timann tekin I notkun. Það var nú samþykkt i hafnarstjórninni, og ég held iika I bæjarstjórninni, að bæjarstjórinn ræddi við okkur, sem eigum gömlu slippana. Það er ekki búið enn. Á meðan röltum við um I ó- vissu. Biðin er orðin nokkuð löng finnst okkur, og búin að kosta okkur og kaupstaðinn mikið. Þvi meðan við getum ekki tekið stærstu skipin upp i slipp, erum lyftulausir, þá verða þau að fara burt með sin viðskipti. Með þeim fer náttúrlega besta greiðsluget- an. Varla fær bærinn skatt af þeim viðgerðum trúi ég. Á meðan er þetta að verða eins- og i dauös manns gröf. Við erum að verða einsog geirfuglinn — út- dauðir.” —ÖS ,,A ég ekkiaðbrosa, strákar?” sagði kappinn þegar við munduðum tól- in á hann. (Mynd: Leifur) „Æ, greyin. Farið þið nú ekki að ljúga einhverju uppá mann,” sagði Sigurjón Gunnarsson, sem dyttaði að bát uppi slipp, þegar okkur bar aö. „Hvaöa útgerö er ekki á hausn- um?” spuröi hann á móti þegar við inntum eftir ávöxtum sjó- mennskunnar. „Þaðer ekkert að hafa uppúr útgerð i dag.” Eftir þessa tölu þóttumst við vissir hvar i stétt viðmælandi vor stæði, og spurðum hvort hann væri kanski útgeröarmaður. „Æ, það veit ég ekki. Ég á þetta kvikindi sem éger að nostra viö i augnablikinu. Hann heitir Hvit- ingur. En djöfulann ætli það borgi sig að gera út núna. Þeir eru nú að fleygja ágætis sjóskipum hér i kringum mann, sem er búið aö kasta fleiri fleiri miljónum I að gera upp. Varla eru menn að henda skipunum afþvi útgerðin beri sig svo vel, væni minn. Ég heid bara það borgi sig ekki að gera út nú til dags. Þegar við kvöddum Sigurjón kváðumstviðverasendir af Þjóö- viljanum. Það varð til þess að hann hætti um stund að mála, leit á okkur þungbúinn á svip og It- rekaði fyrri áminningar um sann- sögli. —ÖS „Hvaöa útgerd er ekkí á hausnum” Malbikun i Eyjum ■ Þessir kallar voru að landa og fúlsuöu við blaðamönnum (Mynd: Leifur) : Wh \%t I WmMp Wmm WÉtímí JP i Ahaldahúsinu i Vestmannaeyjakaupstað voru vaskir strákar i óðaönn að steypa þessar voldugu hellur sem sjá,st á mýndinni. En þær eiga aö fara I göngugöturnar þrjár. (Mynd: Leifur) Nýbreytni í Eyjum: Göngugötur í bígerð Viða með erlendum þjóðum setjagöngugötur geðfelldan blæ á borgir og bæi. Óskorað vald fót- gangenda yfir götum er eigi að siðurlítt þekkt á Islandi. Þó ráða þeir lögum og lofum á helmingi Austurstrætisins i Reykjavik, en þar með búiö. I Vestmannaeyj- um eru menn samt að undirbúa að koma upp nokkurs konar göngugötum I miðbæ kaupstaðar- ins. Útsendarar heimskommúnism- ans voru fyrir skömmu á ferð i Eyjum, og spurðu Má Karlsson bæjartæknifræðing ma. um þess- ar göngugötur. Már sagði okkur, að það væri ekki ein heldur þrjár götur, sem væru ætluð þau örlög að leggjast alfarið undir fætur Eyjaskeggja. Hann bætti raunar við, að ekki yrði blikkbeljunum með öllu úthýst úr þessum götum en hins vegar hefðu fótgangandi vegfarendur forgang umfram bil- ana. Göturnar sem þessi válegu ör- lög biða eru Vestmannabraut, Skólavegur og Bárugata og Már sagði okkur að þessi nýbreytni hefði sprottið upp úr samkeppni að nýju skipulagi fyrir bæinn. En tillagan sem varð hlutskörpust geröi ráð fyrir þessu fyrirkomu- lagi. Már kvaðst ekki efa, aö Vestmannaeyingar kynnu vel að meta nýjungar á borö við þessar, enda væru þeir manna minnst háðir bilum. —ÖS Óskar vitavöröur á Stórhöfða. t baksýn er vitinn. (Mynd: Leifur) Stórhöfði í Vestmannaeyjum: Mesti veðurrass á landinu Allur landslýður kannast af orðspori við Stórhöfða i Vest- mannaeyjum. t hver.jum veður- fregnum Útvarpsins er getið um veðurfar áhöfðanum, og varla er ofmælt þósagt sé, að Stórhöfði sé mesti veðrarass á gervöllu land- inu. Undir þetta sjónarmið tók vita- vörðurinn á Stórhöfða, Óskar Sig- urðsson, þegar Þjóðviljinn rudd- ist inná hann um daginn. „Þetta er nú um 120 metra ofan sjávar, svo það er von að hvessi öðru hvoru,” sagði Óskar. „Hér er starfrækt alþjóðleg veðurathug- unarstöð og niðurstööur mæling- anna sem við gerum hér, eru vist sendar vitt um heiminn. Það sér hins vegar Veðurstofan i Reykja- vik um. Við Stórhöfðabúar slepp- um við það.” Horft útá Stórhöfða. Óskar skýröi okkur frá þvi, að á þriggja tima fresti þyrfti hann að aðgæta hita, loftþrýsting, skýja- far, sjólag, skyggni og kikja eftir siritandi vindmæli, til aö kanna vindafar. „Að meðaltali mun vera mest- ur vindur hér á Stórhöfða yfir landið i heild” tjáði óskar vita- vörður okkur, „það er mælt eftir þvi hversu oft vindurinn fer yfir 9 vindstig i 10 minútna lotu sam- fleytt, en lika er stuðst við meðal- vindhraða. 1 einstakri hviðu hefur vindur farið mest i 119 hnúta. Þó ber að geta þess; að siritinn kom ekki hingað fyrren 1968, og þeir erunú ekki margir á landinu, þannig aö það er alveg ómögulegt að segja, hvað mesta vindhviðan hefur far- iö hátt. En Iþessari 119 hnúta hviðu var rokið að meðaltali um 14 vindstig og það er nokkuð mikið” segir Óskar og brosir i kamp sinn. „Tildæmisum hvað þessistóra hviða hefur veriö sterk má segja, að 12 vindstig eru ekki nema 64 hnútar. Aður höfðu mælst hér 16 vindstig árið 1963, og það var til- tölulega stöðugur hraði i þvi roki, meðan það varði. 1 slikum veðr- um er engukviku stættúti við, og allt fýkur sem fokið getur. Hæðin á mælingarstööinni eyk- ur mjög vindhraðann, en að bestu manna yfirsýn er um tveimur vindstigum meiri vindhraöi hér efst uppi en niðrá sjónum. Það finnst fyrir þvi hér efra. Okkur finnst stundum nokkuð vindótt”. — ÖS „Djöfulann eru þessir blaðasnápar alls staðar að flækjast,” gæti þessi sjóari úr Eyjum hafa hugsað um ieið og hann gaut hornauga á boðflennurnar. (Mynd: Leifur)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.