Þjóðviljinn - 06.10.1979, Qupperneq 5
Laugardagur 6. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Siguröur A. Magnússon i hlutverki blaóamannsins Bouchers og Mlnas Kristlöis I hlutverki stjórn-
málaleðtogans Venizelosar.
..........
SAM lék í grískri
kvikmynd í sumar
Sigurður A. Magnússon rithöf-
undur var fararstjóri tJtsýnar I
Grikklandi á liönu sumri. Meðan
hann dvaldist þar syðra var hann
fenginn til að leika I kvikmynd
sem griski leikstjórinn Pandelis
Voulgariser að gera um frægasta
stjórnmálamann Grikkja á þess-
ari öld, Elevþeriós Venizelos,
sem var Kritverji og forsætisráð-
herra Grikklands á árunum 1910-
20 einhverjum mestu umbrotaár-
um i seinni tima sögu Grikkja.
Sigurður fer með hlutverk enska
blaðamannsins Boushers sem var
fréttaritari stórblaðsins Times i
Lundúnum I Balkanlöndum og
hafði veruleg áhrif á gang mála
þar fyrir fyrri heimsstyrjöld. Var
hann mæltur á grlska tungu og
náinn vinur og ráðgjafi Veni-
zelosar.
Pandelis Voulgaris er mörgum
tslendingum að góöu kunnur frá
þvi hann var gestur fyrstu kvik-
myndahátiðar I Reykjavik i
febrúar 1978, en þar var sýnd
mynd hans „Happy Day” um
fangabúðir herforingjastjórnar-
innar grisku á árunum 1967-74.
Kvikmyndin um Venizelos verður
þriggja tima litmynd og er mesta
stórvirki Grikkja I kvikmynda-
gerð til þessa. Var upphaflega
gert ráð fyrir aö kostnaður við
hana næmi sem svarar 300
miljónum islenskra króna, en
fyrirsjáanlegt er að hún verður
mun dýrari i framleiðslu. Fram-
leiðandinn er griski blaðaút-
gefandinn Jannis Horn.
Meðfylgjandi mynd er úr þvi
atriði kvikmyndarinnar þegar
þeir Boucher og Venizelos (leik-
inn af Minas Kristiðis) hittast á
afviknum stað fyrir utan Aþenu
árið 1909 og Boucher hvetur vinn
sinn til að fylkja liöi, ná völdum
og veita nýju blóði inn I grisk
stjórnmál.
A valdatlma Venizelosar unnu
Grikkir úr höndum Tyrkja um
helming þeirra landsvæði sem nú
heyra Grikklandi (Þessaliu,
Makedóniu, Þrakiu og Epirus) og
skipuðu sér við hliö bandamanna
I fyrri heimsstyrjöld gegn vilja
Konstantinosar konungs sem var
mágur Vilhjálms Þýskalands-
keisara og hliöhollur Þjóðverjum.
Leiddi sú miskllö til þess aö Veni-
zelos myndaöi stjórn I Þessa-
lóniku og stjórnaði baráttunni
þaöan. Við samningaborðið I Ver-
sölum 1919 vakti Venizelos
alheimsathygli fyrir frækilega
framgöngu og bætti enn við lend-
ur Grikkja, en Konstantinos
hrökklaöist frá völdum. Ari siðar
féll Venizelos og flokkur hans,
Frjálslyndi flokkurinn i þing-
kosningum, og þá dró hann sig i
hlé um sinn. Kvikmyndin fjallar
um þau tiu ár ævi Venizelosar
þegar hann stóð i mestum stór-
ræðum.
Útflutningur hafínn
á nýja dilkakjötinu
Eins og undanfarin haust þá er
útflutningur hafinn á dilkakjöti þó
að sláturtlð standi enn yfir og geri
um sinn. Meðal ástæðna fyrir þvi,
að útflutningur á kjötinu byrjar
strax að haustinu er skortur á
nægilegum frystigeymslum fyrir
það.
Nú þegar er búið aö senda 220
lestir til Færeyja. Var þaö kjöt
allt flutt út með færeyskum skip-
um og tekið á Reyðarfiröi. Verö-
hækkun hefur nú oröið á kjötinu i
Færeyjum, sem nemur 15% frá
verðinu i fyrra, miðað við fær-
eyskar krónur. Fyrir liggur á
næstu vikum að senda einnig tvo
skipsfarma til Noregs, alls um
Tilraunasendingar
með flugi til New
York og Khafnar
1000 lestir. Verður það kjöt af-
greitt frá höfnum austanlands og
noröan.
Þá verða og, sem i fyrra haust,
sendar tilraunasendingar af
fersku kjöti til New York og
Kaupmannahafnar, I samráði við
Markaðsnefnd landbúnaðarins.
Verður það kjöt flutt með flugvél-
um. Búvörudeildin sendir þannig
vikulega 5 lestir af kældu dilka-
kjöti til New York. Veröur það
gert meöan sláturtið stendur. Er
það kjöt frá Borgarnesi. Samiö
hefur verið um sölu á 25 lestum af
kældu kjöti til Kaupmannahafn-
ar. Þar er nú i gangi kynningar-
herferð hjá verslanakeöju, sem
kaupir kjötið. Vonir standa til aö
samningar náist um meiri sölu
þangað.
Eins og undanfarin ár verða
innyfli seld til Bretlands. Gert er
ráð fyrir að eitthvert Sambands-
skipið færi Bretum þau um það bil
er sláturtið lýkur.
—mhg
Pólýfónkórinn hefur vetrarstarfid
Fær æfíngahúsnædi í Vörðuskóla
Pólyfónkórinn er nú aö hefja
vetrarstarf sitt og er þetta 23.
starfsár kórsins. Kórinn hefur
fengið nýtt æfingahúsnæöi I
Vöröuskóla, en æfingahúsnæðið
sem kórinn hafði I Vogaskóla var
orðið of lltið og ófuiinægjandi og
auk þess samrýmdust þarfir
kórsins ekki félagsstarfsemi i
skólanum, sem nú er MS.
Þá mun kórinn reka kórskóla i
vetur eins og undanfarin ár og
hefst næsta námskeiö skólans nk.
mánudag 8. okt. kl. 20.00 Kennar-
ar verða Guðrún Friöbjarnar-
dóttir , ung og vel menntuö söng-
kona, Einar Sturluson, söngvari,
Herdis Oddsdóttir, tónlistarkenn-
ari og stjórnandi kórsins Ingólfur
Guðbrandsson. Kennt veröur 2
stundir i senn og áhersla lögð á
rétta raddbeitingu, þjálfun tón-
heyrnar, taktskyns og nótnalest-
ur. Namskeiðinu lýkur fyrir jól.
Ingólfur Guðbrandsson sagði á
blm. fundi i gær, aö nú væru I
kórnum 110 manns sem starfa
myndu I vetur, sem væri nægur
fjöldi I flestum tilfellum, en samt
sem áður leitar kórinn eftir góð-
um söngröddum.
Fyrsta verkefni kórsins á þess-
um vetri veröur jólatónlist i
desember, sem mun veröa boöin
sjónvarpinu til flutnings. Ekki
hefur enn verið tekin ákvöröun
um hvaöa jólatónlist þetta verö-
ur. Þá er og ákveöiö að taka
Helgimessu eftir Rossini til flutn-
ings snemma á næsta ári, en það
er stórt verk fyrir kór, 4 ein-
söngvara og hljómsveit.
—S.dór
Hvernig spara má bertsínið
Félag Islenskra bifreiöaeig-
enda hefur gefið út þarfar
leiðbeiningar um, hvernig
spara má bensiniö viö akst-
urinn og fá sem mest útúr
hverjúm dropa.
Leiöbeiningarnar eru
myndskreyttar, einfaldar og
auöskildar og snúa bæði að
meðferð og viðhaldi bilsins
sjálfs og aksturslaginu.
Bæklingurinn er gefinn út sem
fréttabréf FIB og nefnist
„Qrkusparnaöur — þannig
sparar þú benzinið.”
—vh
Garðar Ólafsson á nýja staðnum ásamt eiginkonu
sinni, Guðlaugu Ingólfsdóttur og Borghildi Steingrlmsdóttur
afgreiðslumanni. — Ljósm.: —eik—
Úr og klukkur i þúsundatali
Garöar Olafsson úrsmiöur hefur opnað verslun og viðgerðar-
verkstæði I „Nýja smjörhúsinu” á Lækjartorgi, á sama staö og
hann stofnsetti verslun fyrir 23 árum. Hjá fyrirtækinu vinna nú
auk eiganda fjórir úrsmiöir og afgreiðslustúlkur.
Lögö er áhersla á góða viðgeröarþjónustu og fjölbreytt úrval
af úrum og klukkum auk skartgripa úr silfri og gulli, aö sögr
Garöars. Innréttingar teiknuðu arkitektar Guðmundur Kr
Guðmundsson og Olafur Sigurösson FAI. Innréttingar smiðaði
Eyjólfur Edvardsson.
Landsliðin sýna hárgreiðslu
Samband hárgreiöslu- og
hárskerameistara heldur hár-
tiskusýningu að Hótel Sögu
þriðjudaginn 9. október kl.
21.00. Landslið I báöum fögum
sýnir listir sinar. Siöastliðið
vor var valiö I landsliöiö meö
tslandskeppni i hárgreiðslu og
hárskurði, sem fram fór i
Laugardalshöllinni. Fimm
efstu þátttakendur I báöum
fögum unnu sér þar meö rétt
til að keppa i Noröurlanda-
keppni sem fer fram i Nor-
köping i Sviþjóð i næsta
mánuöi, en þar verða kepp-
endur alls 50 og dómarar viðs
vegar að ur heiminum.
Fagfólk viðs vegar af
landinu mun einnig taka þátt i
þessari sýningu ásamt nem-
endum úr hársnyrtideild Iön-
skólans i Reykjavlk sem sýna
fatnað frá tiskuversluninni
Stúdió, og hárgreiðslur unnar
af nemendum skólans. Kynnir
á sýningunni verður Heiðar
Jónsson.
Haustmót Taflfélags Seltjamarness
Haustmót Taflfélags Sel-
tjarnarness hefst 9. október
nk. kl. 7.30 sd. og verður teflt i
Félagsheimilinu á nesinu, alls
7 umferðir.
Starfsemin i haust hófst með
firmakeppni i hraöskák og
tóku 30 fyrirtæki þátt I mótinu.
Tefldar voru 9 umferðir eftir
Monrad kerfi. Sigurvegari
varð Ogmundur Kristinsson
fyrir Járnsmiðjuna 16 v., 2.
Jóhann G. Jónsson fyrir GG
Dugguvogi 15 v. og 3. Jón
Þorsteinsson fyrir Otvegs-
bankann með 13 1/2 vinning.
SNORRI STLíRLlfSON
800 AR-1179-1979
Íjc* £1» W.ihfer U*
‘í *$£**'## úí • Inijtw.
ÍSLAND 200:
Ný frímerki
Tvö ný frimerki koma út 1.
nóvember nk., annað i tilefni
800 ára afmælis Snorra Sturlu-
sonar, hitt i tilefni 100. ártiöar
Jóns Sigurðssonar og konu
hans, Ingibjargar Einars-
dóttur. Það er að verðgildi 150
kr.,djúpprentaöIFrakklandi i
svarthvitu, með mynd af þeim
hjónum. Snorramerkið er sól-
prentað I Sviss, marglitt og að
verðgildi 200 krónur. Þröstur
Magnússon hefur teiknað bæði
merkin.
Dagur frimerkisins er 6.
nóvember og verður þá sér-
stakur dagstimpill i notkun á
póststofunni I Reykjavik.