Þjóðviljinn - 06.10.1979, Blaðsíða 15
Laugardagur 6. október 1979.ÞJ6ÐVILJINN — SÍÐA 15
2 íþróttir íþróttirg) iþróttir jf)
Dómgæsla verður að batna
Á morgun verða úr-
slitaleikirnir i
Reykjavíkurmótinu i
handbolta og er þar
með lokið fyrstu lotu
þeirra handbolta-
manna í vetur. Þvi er
ekki úr vegi að lita að-
eins á gang mála, sjá
hvað vel hefur verið
gert og hvað betur
mætti fara.
Liðin vel
undirbúin
Ljóst er að flest liðin hér á
Reykjavikursvæðinu hafa æft
af miklu kappi i sumar og
koma vel undirbúin til móts-
ins. Þróunin er sú aö hand-
knattleikurinn hér er að verða
að heilsársiþrótt, þ.e.a.s.
Iþrótt sem æfð er allt árið.
Þetta verður að verasvo ef við
ætlum okkur að etja kappi við
erlendar stjórþjóðir á jafn-
ræðisgrundvelli.
Handknattleikssambandið
hefur gert nokkuð til þess að
ýta undir þessa þróun m.a.
haft reglulegar prófanir á Ut-
haldi og snerpu hjá leikmönn-
um i 1. deild og einnig hefur
unglingalandsliðið æft af
kappi, en i þvi eru margir af
bestu leikmönnum 1. og 2.
deildar. öllu mikilvægara er
að yfirburðarliðin frá siðustu
misserum, Valur og Vikingur
hafa æft yfir sumarmánuðina
og hin félögin sjá fram á það
að dragast enn lengra aftur úr
þeim, nema þau fari inn á
sömu eða svipaðar brautir.
Til Reykjavlkurmótsins i ár
koma féíögin mun betur
undirbúin en áður og nægir að
Þankar í vertíðarbyrjun handknattieiksmanna
Sigurður Gunnarsson, Vikingi, einn af fjölmörgum efnilegum handknattieiksmönnum okkar.
Frábær efniviður
fyrir hendi
nefna þar Þrótt og IR. Það
hefur verið mikill kraftur og
hraði I mörgum leikjum, en
ennskortirnokkuðáaðbúið sé
að finpussa leikatriðin s.s.
leikkerfi. Þetta er sérstaklega
áverandi hjá Fram og ÍR.
Þegar að búið verðurað kippa
þessu I liðinn má búast við
skemmtilegri og e.t.v. betri
leikjun en oftast áður.
Dómgæslan verður að
fylgja þróuninni
Eitt er það sem hefur sett
leiðinlegan svip á handknatt-
leikinn hingað til, en það er
hve dómsgæslan er slök. Hún
hefur kannski ekki versnað frá
þvi sem áður var, en agnúar
koma mun betur i ljós þegar
handboltinn verður hraðari.
Þá hreinlega ná dómarar
margir hverjir ekki að fylgj-
ast með. Einnig eru flest liðin
með ákveðnar leikaðferðir,
sem byggjast mikiö upp á
„blokkeringum” og oft getur
verið erfitt að sjá hvort lög-
lega er að þeim staðið eða
ekki.
Það er alveg ljóst að ef
handboltinn hér á landi ætlar
að snúa vörn i sókn og stefna
upp á við á nýjan leik verður
hreinlega að láta dómarana
fylgja þeirri þróun. Sú aðstoð
getur komið utanfrá, en ætti
öllu fremur aö koma frá þeim
sjálfum eða samtökum þeirra.
þjálfara á verulegan skriö.
Þetta er engin framtiðar-
lausn, en á hiklaust rétt á sér.
Varöandi innflutning leik-
manna þá er rétt að benda á
aö hér heima eigum við m arga
leikmenn I heimsklassa svo-
kölluðum og á undanförnum
árum höfum viö misst marga
góða menn til útlanda. Einnig
er vert að benda á að hér leika
margir ungir strákar, sem
myndusóma sér I hvaða ung-
lingalandsliði sem væri i
heiminum og nægir þar að
nefna stórskytturnar Sigga
Gunnars úr Vikingi og Sigga
Sveins úr Þrótti. Norðurlöndin
hafa ekki marga slika á sinum
snærum. Körfuboltinn hér
heima státar ekki af slikum
mönnum, ekki enn að minnsta
kosti.
er upphaf
Umræða
alls
Að lokum langarmig til þess
að varpa einni spurningu
fram: Hvers vegna i ósköpun-
um var tillaga um úrvalsdeild
i handknattleik ekki einu sinni
rædd á siðasta þingi HSI???
-IngH
1 vetur má búast við að
nokkuö hö-ð samkeppni verði
á milli handknattleiks og
körfuknattleiks um áhorfend-
ur og ekki séð hvernig þeirri
baráttu lyktar. Handboltinn
hefur verið nokkuð slakur
undanfarin 2-3 ár og tslands-
mótin eyðilögð. A sama tima
hefur verið mikill uppgangur i
körfunni og kemur þar margt
til m.a. erlendu leikmennirnir
og þjálfararnir.
Vænlegt er að handboltinn
reyni að næla sér i erlenda
þjálfara um stundarsakir
meðan verið er að koma
menntunarmálum innlendra-
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
■
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
ÍÞRÓTTIR UM HELGINA:
I dag fara fram siðustu leikirnir á Reykjavikurmótinu. Kl. 14 leika IS
og Fram, siðan IR og Ármann og loks stórleikur KR og Vals. Leikir
þessir fara fram i Laugardalshöllinni, vegna þess að llklegt má telja,
að Hagaskólahúsið rúmi ekki þá áhorfendur sem vilja fylgjast með
leikjunum.
Sigri Valur I leik sinum gegn KR eru þeir orðnir meistazrar, en sigri
KR-ingarnir eru þeir jafnir Valsmönnum. Fari svo koma vafalitið
Framarar einnig inn i myndina þ.e.a.s. ef þeir vinna Stúdenta.
Spennandi keppni, ekki satt?
A morgun, sunnudag leika handboltamenn úrslitaleiki Reykjavikur-
mótsins. Fylkir og 1R leika kl. 19 um 3.-4. sætið og kl. 20.15 verður út-
slitaleikurinn á milli Reykjavikurrisanna Vals og Vikings.
Valsmenn og Vikingar hafa haft töluverða yfirburði það sem af er
mótinu og má þvi búast við skemmtilegri viðureign, sérstaklega þar
sem Valsararnir eru farnir að leika hraðan handknattleik. Likt oe
Vikingarnir beita hraðaupphlaupum mikið.
Kraftur 1 KR-ingum
Mikil lægð hefur veriö I starf--
semi frjálsiþróttadeildar KR
mörg undanfarin ár, einkum
þeim þætti sem viðkemur barna-
og unglingastarfi. Nú er það ætl-
un þeirra KR-inganna að ráða bót
á þessuog hafa þeir fengið til liðs
við sig spretthlauparann fyrrver-
andi og iþróttakennarann Hösk-
uld Goða Karlsson.
A fundi með stjórnarmönnum
og nokkrum af helstu keppnis-
mönnum frjálsiþróttadeildarinn-
ar fyrir skömmu kom fram, að
starf deildarinnar undanfarið
hafi verið i mikilli félagslegri
lægð, einkum vegna þess að ein-
hvern hefur vantað til þess að
halda starfinu gangandi og sinna
yngra fólkinu. Að visu hafi KR átt
marga toppmenn á siðustu árum,
t.d. Hrein Halldórsson, Sigurð T.
Sigurðsson, Vilmund Vilhjálms-
son, Valbjörn Þorláksson o.fl., en
það er ekki nóg að eiga afreks-
menn, hyggja verður einnig að
undirstöðunni.
Þegar svo var komið var það
eins og himnasending fyrir þá
KR-ingana þegar þeir gátu nælt I
Höskuld Goða, sem hefur mikla
reynslu af félagsstarfi og þjálfun
unglinga. Með honum munu
starfa Valbjörn Þorláksson og
Vilmundur Vilhjálmsson, sem
mun aðstoða fram að áramótum.
KR-ingarnir sögðu á fundinum
að félagið ætlaði sér að verða
stórveldi á nýjan leik i frjálsum
og er þá bara að sjá hvernig til
tekst.
Docherty í steíninn
Tommy Docherty, framkvæmfastjóri enska fótboltaliðsins QPR var
handtekinn i gærdag vcgna rannsóknar á fjárreiðum Derby County.
Docerty mar um tima stjóri hjá þvi félagi og enn áður hjá Manchester
United, Aston Villa o.fl. félögum.
Furðuleg brottvísun
Fyrir skömmu var Bruno Pezzey, austur-
riskur leikmaður með vestur-þýska knatt-
spyrnuliðinu Eintracht Frankfurt, dæmdur i
leikbann vegna þess að fram kom á sjónvarps-
mynd að hann hefði sparkað viljandi i mótherja.
Þessi dómur vakti mikla athygli og ekki siður að
leikbannsdómi yfir Dave Watson, sem er enskur
landsliðsmaður og leikur með Werder Bremen,
skyldi ekki vera hnekkt eftir að sakleysi hans
sannaðist á sjónvarpskvikmynd.
Werder Bremen var að leika gegn 1860
Munchen og Watson fór upp i teig andstæðing-
anna þegar hornspyrna var tekin. A bakaleiðinni
skullu þeir saman Watson og leikmaður
Munchen, Bit að nafni og féllu báðir. Bitz reis
upp og stökk i átt að Watson, sem bar fyrir sig
hendur og ýtti honum frá. Dómarinn var ekkert
að tvinóna viö hlutina, dró upp rauða spjaldið og
Watson fékk langt leikbann.
,,Ég er viss um að ef þetta hefði skeð i Eng-
landi hefði ég ekki verið rekinn af leikvelli. Ég er
einnig sannfærður um að ef Þjóðverji hefði verið
i minum sporum hefði málið verið látið niður
falla. Viö útlendingarnir hér erum litnir horn-
auga.”
—IngH
IBK fékk Bmo
ÍBK dróst i gærkvöldi á móti tékkneska
liðinu Brno i UEFA-keppninni. Keflvik-
ingarnir leika úti 24. okt. og hér heima 7.
nóv.
Brno lék gegn danska liðinu Esbjerg i 1.
umferð og sigruöu heima 6-0, en gerðu
jafntefli i Danmörku 1-1.