Þjóðviljinn - 28.10.1979, Page 5
Sunnudagur 28. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
.Svarti þriöjudagur” á Wall Street fyrir 50 árum: Aldrei aftur?
„Svarti þriðjudagur”
nefndist 29. október fyrir
nákvæmlega 50 árum.
Þá hrundi hlutabréfa-
markaðurinn á Wall
Street i New York sam-
an i kjölfar gifurlegs
kauphallarbrasks, með
óhugnanlegum afleið-
ingum fyrir allan heim-
inn. Á þessum árum
hófst heimskreppan
mikla.
Vestrænum hagfræðingum ber
yfirleitt saman um að sagan muni
ekki endurtaka sig, annað eins
hrun og árið 1929 muni ekki eiga
sér stað aftur. Þeir segja að
bandariska hagkerfið, markaður-
inn og fjárfestingaraðilar hafi
breyst svo mjög að hrun sé ólik-
legt. Samt hafa þeir sem langa
reynslu hafa af kauphallarvið-
skiptum lært að segja aldrei
„aldrei”. Mark Sandler forstjóri
bandarisks fjárfestingarfyrir-
tækis segir að „þar sem mætast
peningar, græðgi og fólk, er ekk-
ert ömögulegt”.
Siðari hluti þriðja áratugsins
var uppgangstimabil bandarlsks
auðmagns. Bankar og fyrirtæki
réðu yfir óhemjumiklu fjár-
magni, og meginhluti þessa fjár-
magns rann til hlutabréfa-
markaðarins og olli að þvi er virt-
ist óstöövandi þenslu.
Menn urðu miljónamæringar á
einum degi með kauphallar-
braski, og allir vildu vera með.
Óheft lánafyrirgreðsla og losara-
legar reglur um kauphallar-
braskið jókst I stórum stökkum
frá árinu 1926.
En svo fór að draga ilr hag-
vextinum og sérfræöingar vöruðu
við afleiðingunum. Bandarlski
Seölabankinn gerði fálmkenndar
tilraunir til að draga úr braskinu.
Verðfall á hlutabréfum hófst, og
fimmtudaginn 24. október greip
um sig æði I kauphöllinni I New
York. Bankar og kauphallar-
braskarar reyndu að stemma
stigu við söluæðinu, en án árang-
urs. Næsta þriðjudag, 29. október,
hrundi hlutabréfamarkaðurinn
saman i æðislegri sölu með sam-
svarandi verðhruni.
Heimskreppa
Svarti þriðjudagur markaði
upphafið að dimmu tlmabili, ekki
aðeins I Bandarlkjunum heldur
um allan heim. Frá kauphöllinni
við Wall Street breiddist verð-
hrunið út til kauphallanna i Lond-
on, Parls og Berlin og til annarra
landa. Háborgir auðmagnsins
virtust hrynja saman eins og
spilaborgir. Mörg rlki biðu efna-
hagslegt skipbrot, gifurlegt at-
vinnuleysi rikti, og menn lifðu I
fátækt og neyð tugmiljónum sam-
an.
1 Bandarikjunum árið 1933 var
fjórðungur alls launafólks at-
vinnulaus, þ.e.a.s. 15 miljónir
manna. 90.000 fyrirtæki voru
gjaldþrota og 9.000 bankar með
miljarða dollara innistæður höfðu
lokað
Ekkert land fór varhluta af
kreppunni. Talið er aö um fjórð-
ungur alls launafólks hafi veriö
atvinnulaus á þessum árum.
Baráttu verkalýsðhreyfingarinn-
ar og ástandinu hér á landi á
kreppuárunum, lýsir Jón Rafns-
son i bók sinni „Vor i verum”.
Endurtekning?
Margt er likt með ástandinu I
dag og fyrir 50 árum. Bandariski
Seðlabankinn reyndi þá að draga
úr braskæðinu með þvi að hækka
vexti, en það hafði þveröfug áhrif.
Nýlega hækkaði bandariski
„Svarti
þriðju-
dagurinn”
var upphaf
heims-
kreppunnar
miklu
Seðlabankinn vexti, og litlu siðar
náðu kauphallarviðskipti algjöru
hámarki. Bankar áttu 1929 miklar
upphæðir útistandandi hjá er-
lendum skuldunautum. Einn
banki taldi Perú ótryggan skuldu-
naut, en lánaði samt 90 miljónir
dollara til landsins, og endur-
greiðslan brást. 1 dag eiga bankar
á Wall Street 48,7 miljarða doll-
ara útistandandi hjá Pérú og öðr-
um þróunarrlkjum sem ekki
framleiða oliu.
Bandariskir neytendur höfðu á
þessum timum nýlega uppgötvað
afborganakerfið og steyptu sér út
i stórskuldir við kaup á útvörp-
um, isskápum, og bilum. 1 dag
borga Bandarikjamenn með
„plastpeningum”, þ.e.a.s. taka út
vörur gegn sérstöku lánsskirteini,
og skulda með þessu móti 292,5
miljarða dollara.
En það er einnig margt ólikt
með ástandinu i dag og fyrir 50
árum. Aður þurftu menn aðeins
að leggja fram einn tiunda af
kaupverði hlutabréfa, en sam-
kvæmt núgildandi reglum Seðla-
bankans þarf að greiða a.m.k.
helming kaupverðsins strax.
Seðlabankinn getur einnig tak-
markað útlán bankanna, og hann
gerði það einmitt nýlega. Þá hef-
ur sérstök stofnun eftirlit meö
kauphallarviöskiptum, og kannar
sanngildi f járhagsreikninga
fyrirtækja, en á þriðja áratugn-
um tiðkaðist mjög að falsa reikn-
inga fyrirtækja.
Önnur efnahags-
stjórn
Fram til hrunsins i Wall Street,
réði lögum og lofum i hagstjórn
auðvaldsríkja hugmyndafræði
Adam Smith. Gekk hún út á
óhefta markaðshyggju, frjáls og
óháð lögmál markaðarins áttu að
sjá um jafnvægi i efnahagslifinu.
Kenningar John Maynard Keynes
tóku við eftir hrunið, en I þeim er
lögð áhersla á afskipti rikisins af
fjármálum, með ýmsum ráð-
stöfunum.
Bandariska rikisstjórnin reynir
nú að treysta stöðu dollarans með
vaxtahækkunum, gullsölu og lán-
tökum erlendis. Þessar ráðstaf-
anir munu að öllum likindum
draga úr hagvexti og skapa sam-
drátt i iðnaðarrikjum. Þróunar-
rikin verða fyrir barðinu á slikum
samdrætti og mega þó ekki viö
miklum skakkaföllum. Skulda-
staða þeirra er geigvænleg, eins
og nýlega kom fram i ræðu Fidel
Kastró hjá Sameinuðu þjóðunum.
Minnkandi eftirspurn iðnrikja
eftir hráefnum frá þróunarlönd-
unum (þriðja heiminum) hefur
þrýst niður verði, og neytt selj-
endur til að draga úr framboði.
Jafnframt bera þau þróunarriki
sem ekki framleiða oliu skaðann
af sihækkandi oliuverði.
Ef til vill má segja að Banda-
rikjunum og öðrum iðnrikjum
hafi tekist að vikja sér undan
alvarlegu kreppuástandi, með þvi
að láta þriðja heiminn taka af-
leiðingum yfirvofandi kreppuþró-
unar. —jás
sentimetrar
og
sekúndubrot
■ í'&ÉkjÁ,
Einstakar hópferðir til Moskvu - ævintýraferðir
aldrei gleymast 19/7 - 3/8 1980
Ailir þeir
bestu
I Moskvu verða bestu íþróttamenn hei
saman komnir. Aðeins sentimetrar oi
sekúndubrot skiija á milli þeirra sem öðlas
beimsfrægð á örskömmum tima og hinna, sem
endanlega eru dæmdir til þess að vera í skug"=»
betri iþróttamanna. Þú getur orðið vítni
gráti og hlátri. gleði og sorg. Þú getur upplifa
og séð með eigin augum þá mögnuðu spennu
sem ævinlega hefur fylgt Olympíuleikunun
stærstu og glæsilegustu íþróttakepnni al
tíma.
Aðgöngumiðar Við eigum miða á keppni í öllum íþrótta-
fvrir íslenska 9reinum °9 minnum sérstaklega á að hægt er
* . ,ö,c,,ölva að greiða aðgöngumiðana í islenskum pening-
peninga um.
Þrír
möguleikar
Hægt er að velja um þrjár mismunandi ferðir,
20. 11 og 12 daga langar. Innifalið i verði er
m.a. flug báðar leiðir (gegnum Kaupmanna-
höfn, gisting og fullt fæði, íslensk fararstjórn
o.fl.
Ödýrari en Olympíuferðin til Moskvu er ódýrari en þig
bia nrunar 9runar- Aætlað verð er kr. 337.000 - meðfullu
H a H fæði. Sparivelta Samvinnubankans getur
síðan gert ferðina enn auðveldari og er t.d.
hægt að greiða allan kostnað með reglu-
bundnum greiðslum i tólf mánuði.
Akvörðun Aðeins takmarkaður fjöldi sæta er til ráð-
strax stöfunar fyrir Islendinga. Pantið því strr'
eftir nokkrar vikur gæti það orðið of s
Ath. að 15. nóvember verður pantanaf'
endanlega lokað.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Einkaumboð á Islandi fyrir Olympíuleikana í
Moskvu
Samvinnuferóir - Landsýn
AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 & 28899
FORELDRARÁÐGJÖFIN
HVERFISGÖTU 8 10
SÍMI 11795
NY SIGUNGALEIÐ
BÆTT ÞJÓNUSTA
Við höfum hafið reglubundnar siglingar á nýrri
flutningaleið, 14 daga fastaferðir allan ársins hring milli Larvikur, Gautaborgar, Kaup-
mannahafnar og islands.
Flutt verður stykkjavara, gámar, kæli- og frystivara.
Umboðsmenn okkar á hinni nýju siglingaleió eru:
Larvik:
P.A. Johannessens Eftf.
Storgaten 50
3251 LARVIK
Cable: "SHIPSN"
Telex: 21522
Phone: (034) 85 667
Gautaborg:
Borlind, Bersén & Co.
P.O. Box 12113
Kaj 51
S-402 42 Göteborg 12
Cable: Borlinds
Telex 2341
Phone: 031/24 3422
Kaupmannahöfn:
Allfreight Ltd.
35, Amaliegade
DK-1256 Copenhagen K.
Cable: Alfragt
Telex: 19901 b Alckh
Phone: (01) 111214
Að sjálfsögðu bjöðum við áfram reglubundnar ferðir frá eftirtöldum stöðum:
Helsinki, Svendborg, Hamborg, Rotterdam, Antwerpen og Goole auk Halifax í Kanada og
Gloucester í Bandarikjunum.
Komið, hringið, skrifið — við veitum allar nánari upplýsingar fljótt og örugglega.
M
SKIPADEILD SAMBANDSINS
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SiMI 28200