Þjóðviljinn - 06.11.1979, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 06.11.1979, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 6. nóvember 1979 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 11 g) íþrótti!" rg íþróttirjg íþróttirg Evrópumet Gunnars áraugurs íslendinganna á heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum, bar hæst en Skúli féll úr keppni islensku kraftajötnarnir, sem kepptu á tieims- meistaramótinu í kraftlyftingum, sem haldiö var l Dayton, Ohio í Bandaríkjunum um helgina, gerðu garöinn frægan. Eyjamaðurinn Gunnar Steingrímsson setti glæsilegt Evrópumet í réttstöðulyftu í sínum þyngdarflokki, lyfti 330 kg. Þá höfnuðu óskar Sigurpáls- son, Gunnar Steingrímsson og Arthur Bogason allir í 5. sæti í sínum flokkum. Hins vegar féll Skúli óskarssoh út í sínum flokki, gerði mistök í fyrstu tilraun í hnébeygju og missti þar með taktinn. 1 67,5 kg. flokki keppti Kristján Kristjónsson, ÍBV og hafnaði hann i 10. sæti með 445 kg. sam- tals. Skúli keppti i 75 kg. flokki. 1 fyrstu tilraun I knébeygju fór hann létt með að lyfta 290 kg, en lyftan var dæmd ógild vegna þess að hann beið ekki eftir þvi að dómarinn gæfi merki. Þá reyndi hann aftur viö sömu þyngd, en nú tókst ekki betur til en svo að „stálbrækur” kappans létu sig. Nýjar brækur þurfti að útvega i snarhasti og tókst það. Þegar hér var komiö var Skúli kominn i óstuð og 290 kg reyndust honum ofviöa. Þetta er þyngd sem hann á að fara létt með að lyfta undir eðlilegum kringumstæöum. Sigurvegari i þessum flokki var Bridges, lyfti 830 kg., sem er nánast ótrúlegur árangur. Sverrir Hjaltason, KR keppti I flokki 82.5kg og kom hann mjög á óvart. Hann lyfti 260 kg i hnébeygju, 155 kg. á bekknum og i réttstöðulyftu 300 kg. Samtals varð Sverrir með 715 kg, sem er 17.5 kg betra en hann hefur áður náð. Þessi árangur nægði honum til 6. sætis. Islandsmet, Norðurlandamet og Evrópumetféllu þegar Gunnar Steingrimsson tók á lóðunum I 90 kg. flokknum. Það var í réttstöðu- lyftunni þar sem hann fór upp með 330 kg. t hnébeygju lyfti hann 300 kg. og 180 kg. I bekkpressu. Samtals gerir þetta 810 kg. og er Gunnar þar með þriðji íslending- urinn sem lyfti yfir 800 kg. Hann hafnaöi i 5. sæti. Sigurvegarinn, Campell fró Bretlandi lyfti sam- tals 870 kg. Mjög lltill munur var á 3. og 4. manni og Gunnari. óskar Sigurpálsson hafnaði I 5. sæti I sinum þyngdarflokki, lyfti samtals 820 kg, sem er nokkuð frá |P3fMJjn«LUi.^w Arthur Bogason aðstoðar hér Finnan Saanulainen á Norðuriandamótinu, sem haldið var hér á landi I haust. Saarulainen varð i 2. sæti á HM i slnum þyngdarflokki. þvi sem búist var við af honum. Engu að siður er þetta ágætis árangur. Hann lyfti 330 kg i hnébeygju, 175 kg á bekknum og 310 I réttstöðulyftu. 1 „tröllaflokknum” keppti Arthur Bogason frá Akureyri og hreppti hann 5. sætið i þeim átök- um. Hann lyfti 310 kg i hnébeygju, 170 kg i bekkpressu og 340 kg i réttstöðulyftu, sem jafnframt er Islandsmet. Samtals eru þetta 822.5 kg. Sigurvegarinn i þessum flokki. Kasmayer frá Bandarikj- unum setti nýtt heimsmet i samaniögðu með þvi að snara upp rúmu tonni eða 1040 kg. Hinn stæöilegi Lars Hedlund frá Sviþjóð, sem sigraði á NM hér i hausthafnaöi i 3. sæti. Hedlund er engin smásmiði og var talað um að Hreinn Halldórsson gæti staðið inni i honum. Maður þorir vart að imynda sér hvernig Kaninn Kasmayer litur út. 1 stigakeppninni hafnaöi tsland i 9. sæti, en 17 þjóöir sendu keppendur til þessa heimsmeist- aramóts. — IngH. Stefnir í jafna keppni Vertiö blakmanna hófst fyrir alvöru um helgina með fyrstu leikjunum i tslandsmótinu. Meistarar Laugdæla hófu titil- vörn sina austur á Laugarvatni þegar Vfkingur kom I helmsókn. Vikingarnir sigruðu I fyrstu hrin- unni mjög óvænt, en Laugdælirnir gerðu út um leikinn með þvl að sigra I 3 næstu hrinum, 5-11, 15-7 og 15-11. Viklngarnir voru aftur á ferð- inni á sunnudagskvöldið og þá voru mótherjar þeirra Reykja- vfkurmeistarar Þróttar. Vlkingarnir hirtu einnig eina hrinu af þeim en máttu sin annars Iitið gegn hinum sterku Þróttur- um. Þróttur sigraði I fyrstu hrin- unni 15-12, Vikingur I þeirri næstu 15-11, en Þróttur i tveimur næstu 15-5 og 15-11, 3:1 fyrir Þróttara. Stúdentar héldu norður á Akur- eyri um helgina og léku gegn Eyfirðingum. Þar var um jafna og mjög spennandi vlöureign að ræða og virðast Eyflrðingarnir koma sterkari til mótsins I ár en oft áður. 1S sigraði af öryggi I fyrstu hrinunni 15-5, en UMSE svaraði fyrir sig með sigri I þeirri næstu, 19-17, og er sjaldgæft að ieika þurfi upp I 19 til að knýja fram úrslit. Stúdentarnir sigruðu slöan I tveimur næstu hrinum, 15- 8 og 15-11 og þar með I leiknum Úr einu í annað - KR-ingargrátf leiknir I Framarar urðu sigurvegarar ■ i innanhúsknattspyrnumóti | Þróttar, sem haldið var um m helgina I tilefni af 30 ára afmæli ■ félagsins. Fram lék gegn KR i “ úrslitaleiknum og hafði algjöra I yfirburði og sigraði 6-1 eftir aö I staðan I hálfleik haföi veriö 5-1. ■ Það sem fyrst og fremst skóp | sigur Framaranna I þessum leik ■ IAsgeir Eliasson, fyrirliði Fram aranna, sem sigruðu i innan- ■ hússknattspynumóti Þróttar. var góö vörn og hættuleg skyndiupphlaup þeirra félaganna Guðmundar Steins- sonar og Péturs Ormslev. Framararnir böðluðust i gegnum A-riðil keppninnar á hagstæðari markatölu en FH. Þar kom mjög á óvart slök frammistaöa Valsmanna, sem m.a. gerðu jafntefli gegn IBK og töpuöu fyrir Fram og þaö þrátt fyrir aö Hemmi Gunn léki meö. KR sigraði I B-riðlinum með 6 stig, en Vikingur, Haukar og Þróttur fengu 4 stig. Fylkis- menn fengu 2 stig fyrir sigur gegn KR-jnffum!! Brugge á næsta leik Ekki mun neitt frekar afráðið I þvi hvenær Atli Eðvaldsson og Sigurlás Þorleifsson munu halda til Belgiu I boöi FC Brugge, en eins og skýrt var frá i Þjv. á laugardaginn fengu þeir félagar hringingu frá hinu belgiska félagi i siðustu viku. Þeir lýstu sig reiðubúna að koma og llta á aðstæður þannig að Brugge á næsta leik. Celtic beið loks ósigur Loks kom aö þvi að Celtic biði ósigur i skosku úrvalsdeildinni. Þeir léku gegn Kilmarnock á útivelli og töpuöu 0-1. Við þetta tap Celtic skaust Morton i efsta sæti úrvalsdeildarinnar. Úrslit I skosku knatt- spyrnunni um helgina urðu þéssi: Aberdeen-Dundee Utd. 0-3 Dundee-Hibernian 2-1 Kilmarnock-Celtic 2-0 Morton-St. Mirren 0-0 Rangers-Partick 2-1 Staðan er nú þannig: Morton Ceític Aberdeen Rangers Kilmarnock DundeeUtd. Partick St. Mirren Dundee Hibernian 12 7 3 2 28-16 17 12 7 3 2 24-12 17 12 5 3 4 23-16 13 12 5 3 4 19-15 13 12 5 3 4 14-20 13 12 5 2 5 20-15 12 12 4 4 4 14-16 12 12 3 4 5 18-24 10 12 4 1 7 18-31 9 12 1 2 9 11-24 4 Amór skoraði í tvígang Arnór Guðjohnsen lék loksins heilan Ieik með Lokeren I belgisku knattspyrnunni og þá var ekki að sökum að spyrjai hann skoraðl 2 mörk i 3-0 útisigri Lokeren gegn Wlnterslag og Arnór og félagar eru enn I forystu 1. deildar. Standard Liege með Ásgeir Sigurvinsson i fararbroddi vann góðan sigur gegn Molenbeek á útivelli, 1-0. Lokeren er nú með forystu með 20 stig, FC Brugge, sem er á höttunum eftir þeim Atla Eövaldssyni og Sigurlási Þorleifssyni, er i 2 sæti með 19 stig. Siðan kemur Standard á- samt CS Brugge, Beerschot og Molenbeek, en öll þessi liö eru meö 17 stig. í hollensku knattspyrnunni tókst Pétri Péturssyni og Feye- noord ekki að sigra Haarlem þrátt fyrir mikla yfirburði allan leikinn. Haarlem náði foryst- unni i leiknum á 19. mln en, Rene Notten jafnaði fyrir Feye- noord I fyrri hálfleiknum. For- ystuliðið Ajax sigraði NEC nokkuö auðveldlega, 3-0 en AZ 67 Alkamaar tapaði fyrir Ut- recht, liðinu frá menntaborginni frægu. Staða efstu liða I Hollandi er nú þessi: Ajax Feyenoord Alkmaar PSV Utrecht 11 8 2 1 24-13 18 11 6 5 0 23-9 17 12 8 1 3 26-13 17 12 6 4 2 25-13 16 12 5 5 2 19-11 15 Sovétmenn meö yfirburðalið Sovétmenn urðu sigurvegarar á Heimsmeistaramóti unglinga i handknattleik, sem lauk s.l. föstud. Þeir sigrubu Júgóslava i úrslitaleik nokkuð örugglega 30- 25. Þaö hefur þvl öngvu liði tek- ist aö komast nær Sovétmönn- um en lslandi og Júgóslaviu, sem máttu bæði sætta sig við 5 marka ósigur. I þriðja sæti keppninnar höfn- uðu Sviar eftir sigur gegn Dön- um 25-20. 1 5.sæti voru Tékkar, Ungverjar i þvi sjötta og Island i 7. sætinu. Fyrir aftan okk- ur endubu m.a.Austur- og Vestur-Þjóðverjar, Pólverjar, Frakkar, Svissarar og Norömenn. Valsmenn á toppnum Eftir leik UMFN og Fram á laugardaginn er staðan i úrvals- deildinni i körfuknattleik þannig: Valur........... 2 2 0 189:176 4 UMFN............ 3 2 1 244:229 4 IR.......... 3 2 1 244:236 4 KR ......... 2 1 1 144:146 2 1S ......... 312 240:246 2 Fram .......... 3 0 3 238:266 0 ---------------------------1 Dýrkeyptur brottrekstur Einn leikur var i 1. deild | körfuboltans um helgina og “ áttust þar við þau lib sem sigur- . stranglegust eru álitin I fyrirfram, Armann og ÍBK. ■ Armenningamir sigruðu I leikn- | um með 100 stigum gegn 91 og af ■ þessum 100 stigum skoraði hinn 1 óviðjafnanlegi Danny Shous “ aðeins 65 stig. Þjálfari IBK, Jeff ■ Walshans varstighætur I sinu ■ liði með 25 stig, en gerði það 2 glópskuverk að slá til mótherja | og vera rekinn af leikvelli fyrir ■ vikið. Þar með minnka vonir | IBK um sigur I deildinni veru- ■ lega þar sem Jeff fer væntan- | lega i leikbann. ■ Dortmund með forystuna Borussia Dortmund er enn á | toppi 1. deildarinnar vestur- ■ þýsku eftir sigur gegn Schalke | 2-0. Hamburger er i 2. sæti J deildarinnar með 2 stigum ■ minna en Dortmund, en ■ Hamburger sigraði 1860 " Munchen á útivelli um helgina | 2-0. ■

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.