Þjóðviljinn - 06.11.1979, Side 15
Þriöjudagur 6. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
Fínnland og
Katalónía
Sjónvarp
kl. 22.25
Sonja Diego sér um
Umheiminnl kvöld.
Umheimurinn kemur
á skjáinn kl. 22.25 l
kvöld. Umsjónarmaður
þáttarins að þessu sinni
er Sonja Diego. Hún
sagðist ætla að byrja
þáttinn á umfjöllun um
stjórnmál og efnahags-
líf í Finnlandi.
— Það hefur svo mikiö veriö
rætt um ástandið á hinum
Norðurlöndunum að undan-
förnu, vegna kosninganna þar,
— sagði Sonja, — og mér
fannst Finnland hafa orðið
svolitið útundan. Þessvegna
notaöi ég tækifærið þegar ráö-
herrafundirnir voru haldnir
hér á dögunum, og ræddi viö
tvo finnska ráöherra, þau
Pirkko Työalajarvi, fjármála-
ráðherra, og Mauno Koivisto,
forsætisráöherra. Ég ræði lika
við Borgþór Kjærnested, og
reyndar er viðtölunum við
ráðherrana fléttað inn i
samtal okkar Borgþórs.
I seinni hluta þáttarins ætla
ég að gera nokkur skil
viöleitni ýmissa þjóðernis-
minnihluta á Spáni til sjálfs-
stjórnar eða heimastjórnar.
Ekki bara Baska, heldur llka
t.d. Katalónlumanna. Ég mun
rekja nokkuö þær sögulegu
forsendur sem eru að baki
þessari viðleitni, og loks mun
ég ræða um þessi mál við
Baltasar listmálara, sem er
frá Katalóniu. Hann mun
segja okkur frá sinni reynslu,
og einnig tala um tungumál
Katalónlumanna, sem er alls
ekki spænska, þótt margir
haldi að svo sé, — sagði Sonja
að lokum.
Saga ílugsms
Leonardo da Vlncl fékk marg-
ar geggjaðar hugmyndir um
dagana, eins og titt er um
stórmenni andans. Hann lang-
aði mikið til að fljúga, og gerði
merka tilraun til þess. Frá
þeirri tilraun segir I sjónvarp-
inu I kvöld.
Hinn franski flokkur-
inn, sem hefur göngu
sina f kvöld, er fræðslu-
myndaf lokkurinn Saga
flugsins, sem verður á
dagskrá hálfsmánaðar-
lega. Þættirnir verða sjö
talsins.
Þóröur Orn Sigurösson,
þýðandi þáttanna, sagði okkur
að I þeim væri rakin saga
flugsins allt frá þvi menn fóru
fyrst að reyna að fljúga, og
framundir slöustu tima.
— I fyrsta þættinum er sagt
frá ýmsum flugtilraunum á
fyrri öldum, og er þeirra fræg-
ust eflaust tilraun Leonardo
Da Vinci, sem ekki tókst.
Ýmsir reyndu þetta siðar,
meö litlum árangri. Svo komu
svifflugmenn til sögunnar, og
uppfrá þvl fer að koma skriður
á málið.
Sagt er frá flugi Wright-
bræðra I desember 1903. Slðan
greinir frá þróuninni i Evrópu
næstu ár á eftir, og þátturinn
endar á flugi Bleriots yfir
Ermarsund 1909.
31. maí klukkan sex
Það lítur út fyrir að
þriðjudagskvöldin verði
frönsk kvöld í
sjónvarpinu á næstunni.
I kvöld byrja tveir
franskir framhalds-
Sjónvarp
kl. 21.30
myndaf lokkar. Annar
þeirra er sakamála-
flokkurinn Hefndin
gleymir engum, i sex
þáttum.
Að sögn Björns
Baldurssonar hjá
sjónvarpinu fjallar
þessi myndaflokkur um
ungan mann, sem kem-
ur að elskunni sinni lát-
inni á stefnumótsstað
þeirra eitt kvöld, nánar
tiltekid 31. maí kl.6.
Dauði ungu stúlkunnar
viröist mjög dularfullur, en
piltinum sýnist helst að hún
hafi oröiö fyrir flösku, sem
kastað hafi verið úr flugvél.
Þetta gerist á ferðamanna-
stað, þar sem litlar flugvélar
eru tiðir gestir. Pilturinn
hyggur á hefndir. Hann fer að
afla sér upplýsinga um flug-
vélar sem átt hafa leið þarna
um þennan dag. Loks finnur
hann eina flugvél og verður
sér úti um farþegalistann. Á
honum eru fimm nöfn.Piltur-
inn ákveður að hefna sln 1
þessum fimm mönnum.
Hefndaraögerðirnar ætlarhann
að framkvæma einu sinni á
ári, 31. mai kl. 6, þangaö til
öllum fimm hefur veriö komið
fyrir kattarnef.
Björn vildi ekkert láta uppi
um það, hvort þessi mynda-
flokkur vpri spennandi. Það
verða áhorfendur að dæma
um sjálfir. Flokkurinn er
byggöur á sögu eftir William
Irish, en leikstjóri er Claude
Grinberg. Helstu leikendur
eru Jean-Pierre Aumont,
Christine Pascal og Daniel
Auteuil.
— ih.
Hringiö í síma 8 13 33 kl 9-5 alla virka
daga eða skrifiö Þjóðviljanum
Síöumúla 6, 105 Reykjavík
ísland úr NATO, herinn burt!
Valgeir Backman sendi okkur
hugleiðingar i tilefni af lands-
ráðstefnu Samtaka herstöðva-
andstæðinga, og áttu þær að
birtast áöur en ráöstefnan
hæfist. Fyrir handvömm okkar
á rkstjórninni fórst það fyrir, og
biöjum við Valgeir og lesendur
afsökunar.
Margt I bréfi Valgeirs er þess
eölis aö það fellur ekki úr gildi
þótt ráöstefnan sé afstaöin, og
þvi birtum við nú niöurlagsorð
hans, herstöðvanandstæðingum
til umhugsunar og hvatningar.
Valgeir ræöir um nauðsyn
þess aö leiöa stjórnmálaflokk-
unum fyrir sjónir mikilvægi
þess verkefinis, aö binda endi á
40 ára yfirsetu erlends hers. Ef
ekki næst árangur með þvi að
höfða til flokkanna ,,þá sýnist
mér það eitt ráö eftir, að efla
svo vitund fólks um mikilvægi
þess, að hver einstaklingur taki
skýra afstöðu I þessu sameigin-
lega átaki landsmanna. Og sú
hreina og skýra afstaða sé þá
tekin vegna þess, að i henni felst
aðeins það lágmark
ákvörðunar, sem setja verður
hverjum einasta þegni
þjóðfélagsins. Þetta lágmark
er, að krefjast réttar sins sem
sjálfstæð vera. Og sameiginleg
krafa allra landsmanna verður
þvi, að fá aö neyta þessa réttar
sins I þjóöaratkvæöagreiöslu,
vonandi meö þeim árangri og
lokatakmarki: Allur erlendur
her af landi burt! Hið íslenska
lýðveldi friölýst um aldur og
ævi, ásamt hafinu umhverfis.
Féiagar! Inni I flokknum sem
utan. Þegar þessari ráöstefnu
lýkur, liggur eflaust skýrt fyrir
niðurstaða og ályktun. Og von-
andi verða allir aö leyfa sér
meiri bjartsýni en hingaðtil. Og
þaö er vel.
Enhvortsem þetta mikla mál
verður leyst án þingflokka eður
ei, þá er það nú svo aö stað-
reyndirnar tala, ef litið er til
baka hvað varöar markandi
stefnu þeirra og aðstoð frá
upphafi hersetunnar. Þetta
ásamt öðru veröum við að hafa i
huga þegar litiö er til þeirra
kosninga sem framundan eru.
Þ.e.a.s. að breyta stööunni inni
á Alþingi svo glæsilega her-
stöðvaandstæðingum i vil, að
þess verði ekki langt að biða að
island verði úr Nató og herinn
burt.”
Áróðurs-
útvarp
Fyrir nokkrum dögum aug-
lýstum við hér á slöunni eftir
nafni á fyrirbæriö „frjálst
útvarp”, sem nú er svo mjög I
sviðsljósinu. Þaö eru nefnilega
ekki allir á þvl aö þetta útvarp
veröi svo afskaplega frjálst, ef
þaö veröur á annaö borö leyft.
Af þessu tilefni hringdi J.G.
og stakk upp á aö fyrirbærið
yrðinefnt áróöursútvarp.
Þetta verður auðvitaö ekkert
annaöen áróöur, —sagði J.G. —
t fyrsta lagi eru það auglýs-
ingar, sem eru áróöur, og svo er
hætt viðaö annað efni á dagskrá
slíks útvarps yröi mjög áróðurs-
kennt, t.d. áróður fyrirhljóm-
plötur, osfr.
Þá vildi J.G. koma þvi á
framfæri við poppskrifara
blaösins, að hann kynnti
baráttusöngvarann Jimmy
Cliff, sem mikið hefði sungiö
gegn fhlutun Bandarikjanna i
Vletnam á slnum tima.
Aðsend vísa
Eftirfarandi vísa var okkur send, og er hún ort í til-
efni af nýlegum blaðaf réttum:
Skríður Kína Húa úr hýði,
hendist geysttil f jærsta lands,
atar Sovét narti og níði,
nálgasthatur fasismans. H.
... og nu
*
4 <
Togarar I höfn olg munurinn er æöi miklll.
frá
lesendum