Þjóðviljinn - 16.11.1979, Blaðsíða 5
Föstudagur 16. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Kim Philby I Moskvu
Breskur
aöalsmaöur
og list-
frϚingur
játar njósnir
fyrir Sovét
London (Reuter)
Sir Anthony Blunt, listráðgjafi
Elisabetar drottningar og einn af
færustu háskólamönnum við
Cambirdge háskólannp viður-
kenndiy að hann hefði verið
njósnari fyrir Sovétrikin fyrir
heimsstyrjöldina síðari, á meðan
á henni stóð, og eftir hana — sagði
Margrét Thatcher i breska þing-
inu i gær.
A sama tima og Margrét
forsætisráðherra gaf yfirlýsingu
sina, svipti Elisabet listfræðing-
inn lávarðstigninni, svo að nú
heitir hann Anthony Blunt.
Sagnfræðingurinn Andrew
Boyle hafði i nýlegri bók sinni
„Climate of Treason” m.a. sagt
frá titluðum Englendingi sem
hefði með njósnir að gera. Þar eð
sagnfræðingurinn nefndi engin
nöfn, veltu margir vöngum yfir
við hvern væri átt. Þetta sagði
Margrét forsætisráðherra ástæðu
þess, að hún ljóstraði upp nafninu
i þinginu.
Anthony Blunt játaöi á sig
njósnir árið 1964, og kvaðst hafa
verið sá dularfulli háskólamaður
sem fékk gáfaða unga háskóla-
menn til að gerast njósnarar fyrir
Sovétrikin á fjórða áratugum.
Meðal þeirra voru hinir þekktu
Kim Philby, Guy Burgess og
Donald MacLean, sem allir flúöu
til Sovétrikjanna.
Akveðiö var að höfða ekki mál
gegn Blunt, ef hann skýrði frá
málavöxtum árið 1964. Enda voru
engar sannanir til gegn honum,
nema sú játning sem hann svo
gerði.
1 fyrradag fór Blunt frá Eng-
landi, og er ekki vitað hvert för-
inni var heitið. Húsvörðurinn,þar
sem hann býr, sagði að hann hefði
farið i fri til ítaliu.
DANSKIR BYGGINGARIÐNAÐARMENN
Epoxy veldur krabbameini
Kaupmannahöfn (Information)
90.000 verkamönnum I danska
Alþýðusambandinu erhætta bú-
in frá hinu skaðlega epoxy-efni,
og 40.000 þeirra er hætt við
krabbameini, vegna þess hve
mikið þeir umgangast þetta
efni, segir i bréfi sem Samband
byggingariðnaðarmanna i Dan-
mörku sendi nýlega til danska
atvinnumálaráðherrans, Svend
Auken.
Rannsókn bandariskra vls-
indamanna hefur sannað að
epoxy-efniö veldur krabbameini
I dýrum. Grunur hafði leikið á
aö þetta efni valdi krabbameini,
þegar i ljós kom i svonefndu
Ames-Bakteriuprófi, að efnið
veldur breytingu á erfðaeigin-
leikum tiltekinna bakteria.
Læknir danska Vinnueftirlits-
ins, Ole Sv.ane, hafði þó látið i
ljós efasemdir og sagt að gera
þyrfti tilraunir með áhrif epoxy
á dýr, 'áður en hægt væri aö
segja til um skaösemi
epoxy-efnisins. Niðurstööur
sllkra tilrauna liggja nú fyrir.
Samband danskra byggingar-
iðnaöarmanna visar Ibréfinu til
atvinnumálaráðherrans til
reynslunnar I Sviþjóð, sem hef-
ur sýnt að ógerningur er að
framfylgja öryggiseftirliti
vegna epoxy-efna. Rannsóknir i
Svíþjóð hafa sýnt að umgengni
við þessi efni er hættuleg á 90
prtísentum vinnustaða.
„Við viljum ekki vera til-
raunadýrfyrir atvinnurekendur
sem einungis stefna að grtíða,
eða til að ná óvissum skyndi-
sparnaði i framleiðslukostn-
aði”, segir i bréfi byggingariðn-
aðarmanna. Og danski atvinnu- ■
malaráöherrann er spuröur: ■
„Þarftu mannslik sem sönnun-
argögn i epoxy-málinu? Ef svo
er, hve mörg?”
Bréf Sambands byggingar-
iðnaðarmanna lýkur með tísk
um að Vinnueftirlitiö breyti af-
stööu sinni og leggist gegn notk-
un epoxy-málningar I Lyn-
ette-hreinsunarstöðinni, sem
sagt var frá i Þjóðviljanum i
gær, og aö stefnt verði aö al-
gjöru banni við notkun
epoxy-efna i Danmörku.
SVIÞJOÐ:
Fjölmargir atvinnubílstjórar
hætta störfum um fertugt
Starfinu fylgja streita, atvinnusjúkdómar og þreytandi vinnutími
Margir bílstjórar hætta í
þeirri atvinnugrein áður en
þeir komast á eftirlauna-
aldur, segir í niðurstöðum
rannsóknar á vegum Sam-
bands f lutningaverka-
manna í Svíþjóð. Meiri-
hluti vörubílstjóra hættir
störfum á fertugsaldri# og
þeir sem starfa við akstur
milli landa hætta enn fyrr.
Veigamikil ástæða er hinn
óreglulegi vinnutími,
ásamt nætur- og helgi-
dagavinnu
Rannáóknin heitir „Lifnaðar-
og atvinnuaðstæður atvinnu-
bilstjóra” og var framkvæmd
sumarið 1978 meðal atvinnubil-
stjóra á Skáni og i Halland-
héraði.
Flestir sænskir atvinnubil-
stjórar eru samkvæmt þessari
könnun giftir og eiga eitt eða tvö
börn. Að tiltölu hafa fleiri leigu-
bilstjórar lokið grunnskóla- eða
menntaskólaprófi en allir strætis-
vagna- og vörubilstjórar til
samans. Nettótekjur vöru-
bilstjóra i innanlandsflutningum
eru849krónur (59.000 isl. krónur)
á viku, en nettótekjur strætis-
vagnabilstjóra 641 sænsk króna.
Leigubila- og vörubilstjórar
vinna miklu meiri yfirvinnu en
strætisvagnabilstjórar. Auk þess
vinna leigubilstjórar og vörubil-
stjórar i millirikjaflutningum oft
um helgar.
Atvinnubilstjórarnir töldu það
jákvæðasta við vinnu sina vera
sjálfstæði, hreyfanleika og marg-
breytileika. Það neikvæðasta
fannst þeim hinn óreglulegi
vinnutimi, og vildi meirihlutinn
að vinnutima yrði breytt til
batnaðar.
Yfir 70 prósent maka eða sam-
býlisfólks atvinnubilstjóranna
töldu þetta ágæta atvinnugrein,
en sami fjöldi hafði áhyggjur af
neikvæðum þáttum hennar, svo
sem streitu, mengun, umferðar-
þunga, matarvenjum og maga-
sjúkdómum. Einnig fannst þeim
að yfirvinna og helgarvinna tak-
mörkuðu mjög möguleika á sam-
gangi þeirra við fjölskylduna.
Helstu atvinnusjúkdómar
eru ýmis konar bakveiki, eink-
um meöal vöru- og strætisvagna-
bilstjóra. Strætisvagnabilstjórar
og mjög margir leigubilstjórar
kvörtuðu yfir höfuðverkjum en
þeir hafa einmitt mest að gera
þegar umferðarþunginn er mest-
ur. Fjöldinn er mismunandi eftir
starfsstéttum, en 30 til 50 prósent
atvinnubilstjóranna sögðust hafa
þurft að nota verkjatöflur á
undanförnu ári.
„Þessum heislufarsvanda
tengist annar, sem jafnframt
ógnar umferðaröryggi, en það er
notkun alkóhols sem róandi lyfs.
Um 5 prósent allra strætisvagna-
og leigubilstjóra nota alkóhól til
að róa taugarnar, en alls 13,4
prósent vörubilstjóra nota það”
segir i rannsðknarniðurstöðun-
um.
Alls töldu 35 prósent allra at-
vinnubilstjóra sig hafa orðið
veika af orsökum vinnunnar á
undanförnu ári.
Flestir vörubílstjórar hætta þvi
starfi á fertugsaldri, og fá sér
vinnu við lagerstörf eða læra ein-
hverja iðngreinu segir i niðurstöð-
um rannsóknarinnar á lifnaðar-
og atvinnuaöstæðum sænskra at-
vinnubilstjóra.
Umdeildur ísraelskur
hershöfdingi rekinn
ísraelskur hershöfðingi, sem
átti þátt i brottrekstri arabisks
borgarstjóra á hertekna svæðinu
á vesturbakka Jórdan, var leyst-
ur frá embætti i gær.
Dany Matt hershöfðingi hafði
yfirheyrt arabiska borgarstjór-
ann Bassam al-Shaka m.a. um af-
stöðu hans til dráps palestinskra
skæruliða á 34 Israelum á siöasta
ári.Lét hershöfðinginn það leka
til fjölmiðla I tsrael, að Shaka
hefði lýst ánægju með morðin.
Shaka var þegar I staö sviptur
völdum á hernámssvæöinu, og
hnepptur i fangelsi. Allir borgar-
stjórar á hernámssvæðinu sögðu
þá af sér, og kváðu þetta aðferð
tsraela til að losna við þá leiðtoga
Vesturbakkans sem hlýða þeim
ekki. Shaka hafði átt þátt I að
höfða mál gegn tsraelum fyrir að
stofna nýtt byggðarlag á hinum
hernumda Vesturbakka, málið
vannst fyrir hæstarétti tsrael, og
urðu israelsk yfirvöld að hætta
við þessi áform.
Siðar kom i ljós að við yfir-
heyrsluna hafði hershöfðinginn
þráspurt Shaka um afstöðu hans
til drápsins á mönnunum 34, en
borgarstjórinn alltaf svarað, að
slik dráp hlytu að eiga sér stað á
meðan Israel héldi fast við her-
nám arabiskra landsvæða.
Kortsnoj biður syni griða
Strasbourg (Reuter)
Kortsnoj skákmaðurinn Irækni,
fór I gær þess á leit við Evrópu-
þingið (Efnahagsbandalagið) að
það aðstoðaði hann við að fá son
sinn Igor leystan úr haldi og að
syninum yrði veitt ferðaleyfi.
Sósialistinn Barbara Castle
kvaðst mundu leggja fram tillögu
um sameiginlega yfirlýsingu
allra fulltrúa sósíalista i Evrópu-
þinginu. Igor Kortsnoj var hand-
tekinn nýlega fyrir að neita að
gegna herþjónustu I Sovét-
rikjunum.
Kaupgardur .ucL,s»
Höfum lokad verslun okkar aö Smiðjuvegi 9.
Opnum í dag
matvoruverslun í nýju og giæsilegu verslunarhúsnæöi v/ Engihjalla
i Kópavogi.
Bifreiðastæði eru norðan við húsið.— Ekið frá Nýbýlavegi norðan
bensínstöðvar ESSO.
Nú sem fyrr leggjum við áherslu á lágt vöruverð og góða þjónustu.
GJORID SVO VEL OG REYNIÐ VIÐSKIPTIN.
MUNIÐ að KAUPGARÐSVERÐ er KJARABÓT
Kaupgarður tl ... .. .
J — f leioinm heim
h/f v/Engihjalla