Þjóðviljinn - 02.12.1979, Page 3
Sunnudagur 2. desember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 3
okkar bækur
bregöast ekki
Ritsafn
Ólafur Jóhann Sigurðsson hefur fyrir löngu skipað sér á bekk með okkar fremstu rithöfundum. Margar af hans
bestu bókum hafa verið ófáanlegar um langt skeið, en nú með þessari nýju og glæsilegu útgáfu á ritsafni Ólafs Jó-
hanns er bætt úr brýnni þörf. Átta bækur: Fjallið og draumurinn, Vorköld jörð, Þrjár sögur, Út á þjóðveginn (sögur
1935-1940), í gestanauð (sögur 1940-1945), Margs að gæta (sögur 1945-1962), Gangvirkið og Seiður og hélog.
Verð til áramóta aðeins kr. 65.000. Eftir þann tíma verður safnið seltá kr. 94.400.
Árni Bergmann:
Miðvikudagur í
Moskvu
Fáir Islendingar hafa kynnst sovésku
samfélagi eins náið og Árni Bergmann,
sem fór ungur að árum í háskólanám til
Moskvu. Hér segir hann frá reynslu
sinni, frá kynnum af jábræðrum skipu-
lagsins, andófsmönnum og öllu þar á
milli, um leið og hann gerir úttekt á
þjóðlífi og þjoðskipulagi þar eystra. Afar
fróðleg og hreinskilin bók.
Verð kr. 9.945. Félagsverð kr. 8.455.
Kristinn E.
Andrésson:
Um íslenskar
bókmenntir II
Kristinn E. Andrésson var meðal
fremstu bókmenntafræðinga þessarar
aldar og jafnframt brautryðjandi nýrrar
bókmenntastefnu. í þessu síðara bindi
ritgerðasafnsins eru m. a. greinar og rit-
gerðir um Halldór Laxness, Þórberg
Þóröarson, Gunnar Gunnarsson, Snorra
Hjartarson og Jóhannes úr Kötlum. Sig-
fús Daðason sá um útgáfuna.
Verð kr. 10.980. Félagsverð kr. 9.335.
Magnús
Kjartansson:
Elds er þörf
Úrval af greinum og ræðum sem
Magnús hefur samið og flutt af ýmsum
tilefnum síðustu þrjá áratugi þegar hann
var í eldlínu íslenskra stjórnmála sem
ritstjóri, alþingismaður og ráðherra.
Verð kr. 11.000. Félagsverð kr. 9.435.
John Steinbeck:
Þrúgur rejðínnor #
reiðinnar
Ein af skærustu perlum heims-
bókmenntanna. Steinbeck (Nóbels-
verðlaun 1972) segir hér sögu amer-
ískrar bændafjölskyldu sem flosnar upp
í kreppunni miklu, selur búslóð sína fyrir
notaðan bílgarm og heldur af stað yfir
meginlandið, lokkuð af óprúttnum gylli-
boðum. Bókin er í snilldarþýðingu Stef-
áns Bjarman.
Verð kr. 10.005. Félagsverð kr. 8.505.
Norma E.
Samúelsdóttir:
Næstsíðasti
dagur arsins
Beta, húsmóðir í Breiðholtinu, situr við
dagbókarskriftir. Með frjálsu dagbókar-
formi, þar sem renna saman endurminn-
ingar, hugleiðingar og frásagnir frá líð-
andi stund,tekst höfundi að bregða upp
skýrri mynd persónu og umhverfis af
hispursleysi og listrænni dirfsku.
Verð kr. 9.720. Félagsverð kr. 7.880.
Anton Helgi
Jónsson:
Dropi úr
síðustu skúr
Önnur Ijóðabók Antons. Bókin skiptist í
fjóra kafla, Heimslystarsálma, Farsælda
frón, Mánudaga og Þjóðvísur. Hér
kveður við ferskan og nýstárlegan tón,
sem jafnvel höfðar til þeirra sem ekki
lesa Ijóð að staðaldri.
Verð kr. 5.855. Félagsverð kr. 4.975.
Sigurður A.
Magnússon:
Undir
kalstjörnu
Einstaklega falleg og um leið átakanleg
uppvaxtarsaga, sem fjallar um æskuár
ungs drengs í fátækra- og jaðarhverfum
Reykjavíkur á kreppuárunum. Bókin
hefur nú þegar hlotið frábærar viðtökur,
enda um að ræða einstæðan bók-
menntaviðburð.
Verð kr. 9.945. Félagsverð kr. 8.455.
William
Heinesen:
í morgun-
kulinu
Samtímasaga frá Færeyjum. Sögu-
sviðið er ofurlítiðeyjarsamfélag í Færeyj-
um milli stríða. Vmsar sviptingar ganga
yfir undir merki Mammons, Erosar og
Drottins allsherjar. Þriðja bók Heine-
sens í afburðasnjallri þýðingu Þorgeirs
Þorgeirssonar.
Verð kr. 11.285. Félagsverð kr. 9.500.
Maj Sjövall og
Per Wahlöö:
Löggan
sem hló
Tryggvi Emilsson:
Fyrir sunnan
Fjórða bókin í sagnaflokknum
„Skáldsaga um glæp“ í þýðingu Ólafs
Jónssonar. Áður eru komnar út: Morðið
á ferjunni, Maðurinn sem hvarf og Mað-
urinn á svölunum. Æsispennandi og ó-
venju raunsæjar lögreglusögur.
Verð kr. 7.440. Félagsverð kr. 6.325,
Kilja kr. 3.780.
Snorri Hjartarson:
Hauströkkrið
yfir mér
Fjórða Ijóðabók Snorra Hjartarsonar —
stærsti viðburður á íslenskum bóka-
markaði í ár. Hinn listfengasti af núlif-
andi Ijóðskáldum kveður sér hljóðs eftir
þrettán ára hlé.
Verð kr. 8.540. Félagsverð kr. 7.260.
Þriðja og síðasta bindi æviminninga
Tryggva. Hér segir hann frá því þegar
hann flyst til Reykjavíkur, lýsir harðri
lífsbaráttu í höfuðstaðnum, segirfrá ná-
grönnum, vinnufélögum og verkalýðs-
átökum. í lokin er bókarauki um syst-
kinin frá Hamarkoti. Fyrri bækur
Tryggva, Fátækt fólk og Baráttan um
brauðið vöktu fádæma hrifningu og voru
báðar tilnefndar til bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs.
Verð kr. 12.200. Félagsverð kr. 10.370.
j leirfuglar
Ingimar Júlíusson:
Leirfuglar
Fyrsta Ijóðabók Ingimars Júliussonar á
Bíldudal. Eistu kvæðin eru frá 1973. Ó-
rimuð Ijóð, sem einkennast af ferskri
náttúruskynjun og Ijóðrænni tilfinningu.
Verð kr. 5.855. Félagsverð kr. 4.975.
Mál
og menrung