Þjóðviljinn - 02.12.1979, Blaðsíða 15
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. desember 1979
Úr töskum fjölþjóðahringa
# Aðferðir auðhringa til
að ná yfirráðum yfir orku-
lindum og hráefnum þjóða
eru býsna fjölbreyttar.
Lesendur Þjóðviljans
fengu smjörþefinn af
hernaðaráætlun
ALUSUISSE í frétt er birt-
ist i blaðinu þ. 29. nóvem-
ber, en þar lýsti stjórnar-
formaður auðhringsins því
yfir, að „grípa verði tæki-
færin, koma á vinsamleg-
um samböndum og styrkja
jákvætt viðmót. öðru
hverju verðum við einnig
að veita takmarkaðan
f járhagsstuðning."
• Aðferðir auðhringanna
í þessu sambandi eru
ýmislegar: Hugmynda-
fræðileg herkænska: Að
efla neysluhyggju, drepa
trú á innlenda atvinnuvegi,
styrkja trú á samvinnu
„vestrænna þjóða"
(Bilderberg, NATO) eða
með beinni tilvisun til
efnahagslegrar samvinnu
(EFTA, EBE, OECD).
Stjórnarfarsleg herkænska
auðhringanna kemur fram
í stuðningi við ákveðna
stjórnmálaf lokka, sem
trúlegastir nru til að greiða
götu þeirra.
Pólítisk itök auðhringa á
íslandi eru margvisleg. Þessi
grein er engin tæmandi skýrsla
um þau mál, en bent er á bein og
óbein itök fjölþjóðahringa i
stjórnsýslu, félagssamtökum,
fyrirtækjum og stofnunum.
Mantrust og
r
Island
Bandariski stórbankinn Manu-
facturers Hanover Trust, sem i
daglegu tali nefnist MANTRUST,
rekur veruleg viðskipti við
Island. Aðalbankast jórinn
Gabriel Hauge hefur jafnframt
verið stjórnarformaður auð-
hringsins ÁMAX (sjá grein i
Sunnudagsblaðinu þ.ll. nóv. sl.)
og stjórnarmeðlimur i Council of
Foreign Relations (CFR), öflugri
„frimúrarareglu” 1400 hvitra
Bandarikjamanna undir stjórn
David Rockefeller, bankastjóra
Chase Manhattan Bank. CFR er
maðal áhrifamestu einkastofn-
ana á utanrikisstefnu USA.
MANTRUST hefur átt veruleg
viðskipti við Island i heilan
Itök erlends
fjármagns í
íslenskum
samtökum og
stjórnsýslu
mannsaldur og starfsmenn bank- MANTRUST, Sig. S. Binder 1 við-
ans koma til Islands með nokk- tali við Morgunblaðið þ. 30. april
urra mánaða millibili, upplýsti 1977. Hann var þá hér á ferð
aðstoðar-varaforseti ásamt varaforsetanum William
Stjórnunarfélag fslands og erlendir auðhringir
FJÖLÞJÓÐA AUÐHRINGIR
IBM CORP.
(USA)
SWISS
ALUMINIUM
ELKEM-
SPIEGER
VERKET
(NORWAY)
EIMSKIP
IBM á Islandi ISAL
COLDWATER
CORP:
(USA)
SEAFOOD
CORP.
(USA)
JárnblendU
félagið
Sölumiðstöð
hraðfrysti-
húsanna
S S
Höröur
Sigurgestsson
Ottó A. Michelsen Ragnar
Haildórsson
Jón Sigurðsson
Á
Eyjólfur tsfeld
Eyjólfsson
Erlendur
Einarsson
- J 1
Framkvæmdaráð STJÓRNUNARFÉLAGS ISLANDS. Innlendir aðilar
MYND2: Yfirlitiösýnir tengsl framkvæmdaráös Stjórnunarfélags
Islands við erlenda auöhringi. Ofangreindir menn eiga aliir sæti i
framkvæmdaráðinu og eru allir æöstu yfirmenn sinna fyrirtækja.
OIl fyrirtækin eru sfðan fulltrúar eöa i eigu erlendra aðila. —
Stjórnunarfélag er ætlaö að eigin sögn að „efla og stuöia aö vis-
indalegri stjórnun, hagræðingu og almennri hagsýslu I hvers kon-
ar rekstri einstakiinga, félaga og hins opinbera.”
Geta skal þess, aö fleiri einstaklingar sem eiga aöild aö fram-
kvæmdaráöi S.t. er hér getið og eru þeir aðilar merktir á mynd-
inni sem „innlendir aöilar”.
G. Blake og aðstoðarmanni
þeirra, Lezlo Adams. Þeir félagar
sögðu ennfremur i sama viðtali:
„Við eigum hér nokkra stóra viö-
skiptavini svo sem Seölabankann,
Landsbankann, Landsvirkjun,
Loftleiðir og ísal auk annarra
smærri. Við erum viðskiptabanki
Loftleiða I Bandarikjunum og að-
stoðuðum þá í samvinnu viö
Eximbank viö kaupin á tveimur
DC-8 þotum.”
Ogeinnig: „Viö önnumst einnig
bankaviðskipti fyrir tsal, sem
stafar aðallega af þvi að við erum
helzti viöskiptabanki móöurfyrir-
tækis þess, Alusuisse, i Banda-
rikjunum”.
I við talinu segir Mr. Blake, að
MANTRUST hefði ekki lánað jafn
mikið fjármagn til neinnar þjóðar
eins og tslendinga, ef miðað
væri við höfðatölu.
Þá kemur einnig fram i viðtaí-
inu, að bankastjórinn og stjórnar-
formaðurinn i AMAX Gabriel
Hauge sé af norrænum ættum,
svo og John Waage varaforseti
bankastjórnar, og ,,sé það megin-
ástæðan fyrir þvi að MANTRUST
hafi átt mikil viðskipti við
Norðurlöndin og þá sérstaklega
tsland.”
Köngulóin
í netinu
MANTRUST á viðskipti við
Seðlabankann, Landsvirkjun,
Loftleiðir og ISAL. Stór hluti
þessara virkjana eru lánavið-
skipti. (sjá ennfremur mynd 1).
Jóahnnes Nordal er aðalbanka-
stjóri Seðlabankans. Jafnframt
er hann stjórnarformaður Lands-
virkjunar, auk annarra embætta
sem tengjast erlendu fjarmagni.
Eins og fram hefur komið i
greinaflokki Sunnudagsblaðsins
um tsland og erlenda auðhringi,
er Jóhannes sá maður sem hvað
mest hefur beitt sér fyrir þátttöku
erlendra auðhringa í islensku at-
vinnulífi.
MANTRUST fjármagnar að
hluta starfsemi ÍSALS og er helsti
viðskiptabanki ALUSUISSE i
Bandarikjunum. ÍSAL er dóttur-
fyrirtæki ALUSUISSE og kaupir
raforku af Landsvirkjun sem
er aftur lántakandi hjá
MANTRUST.
MANTRUST hefur ætíð hvatt til
aukinna virkjanaframkvæmda,
uppbyggingar erlendrar stóriðju
hérlendis og frekari alþjóðlegri
útþenslu Flugleiöa. Aukin umsvif
af fyrrgreindu tagi skapa lána-
þarfir og styrkja þarmeð fjár-
málaveldi MANTRUST.
Flugleiðir eru miklir skuldu-
nautar MANTRUST. 1 stjórn
Flugleiða situr Halldór H. Jóns-
son arkitekt, sem jafnframt er
stjórnarformaður ISALS og á sæti
i stjórn Eimskips, sem annast ál-
flutninga fyrir tsal og bandariska
herinn. Þá er Halldór ræðismaður
SVISS i Reykjavik frá 1964.
Halldór er einnig formaður sam-
einaðra verktaka s.f. frá stofnun
1951 og sat i stjórn tslenskra
Aðalverktaka.
Óttar Möller fyrrv. forstjóri
Eimskips á einnig sæti i stjórn
Flugleiða.
Einar B. Guðmundsson lög-
fræöingur, sem nú er látinn, sat
bæði i stjórn Flugleiða og Éim-
skips. Málflutningsskrifstofa
hans átti að vera milligönguaðili
milli bandariska auðhringsins
Sunnudagur 2. desember 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
ísland og
erlendir
audhringir
4. grein
„Félaginu er ætlað að efla
áhuga á og stuðla að visindalegri
stjórnun, hagræðingu og al-
mennri hagsýslu i hvers konar
rekstri einstaklinga, félaga og
hins opinbera og vinna að sam-
vinnu þeirra, sem slikan áhuga
hafa, að bættum atvinnuháttum
og aukinni framleiðni með þróun
verklegrar menningar og vax-
andi velmegun fyrir augum”.
Hörður Sigurgestsson, fyrrv.
framkvæmdastj. fjármálasviðs
Flugleiða og núverandi forstjóri
Eimskips er formaður Stjórnun-
arfélags tslands.
Litum nánar á framkvæmda-
ráð félagsins.
(Sjá mynd 2.)
Þar sitja:
Ottó A. Micheisen eigandi og
forstjóri Skrifstofuvéla h.f., sem
er stærsti innflytjandi skrifstofu-
véla hérlendis. Hann hefur frá
1946beitt sér fyrir að teknar yrðu
i notkun hér á landi stórvirkar
vélar á sviði skrifstofu-
tækni, enda aðalumboðs-
maður IBM skýrsluvéla og
tölva til 1968. Frá þéim tima hefur
IBM á tslandi verið rekið sem úti-
bú IBM CORP. (USA) og er Ottó
A. Michelsen forstjóri útibúsins.
Ottó hefur einnig um langt skeið
verið endurskoðandi Verslunar-
ráðs.
Að undanförnu hafa verið mikil
blaðaskrif um einokun IBM á
tölvumarkaðnum hérlendis og
þeirrar óvenjulega miklu fyrir-
greiðslu sem auðhringurinn IBM
hefur fengið. Fyrirtækið hefur
þegar orðið tilefni fyrirspurna á
alþingi og hefur tillaga til þings-
ályktunar verið flutt i þessu sam-
bandi.
Úr hernum í álið
Ragnar Halldórsson forstjóri
tSALs á einnig sæti i fram-
kvæmdaráði Stjórnunarfélagsins,
og fyrrum formaður þess. Hann
er þar að auki varaformaður
Verslunarráðs og hefur verið einn
af 16 manna framkvæmdastjórn
Vinnuveitendasambands tslands
og fulltrúi tSALs á ársþingi Fé-
lags isl. iðnrekenda, en tslenska
álfélagið var tekið inn i þann fé-
lagsskap sem fullgildur aðili þótt
erlendi auðhringurinn
ALUSUISSE eigi tSAL eins og
það leggur sig. Að tala um ISAL
sem islenskt iðnfyrirtæki er grát-
broslegt, þegar haft er i huga að
öll aðföng félagsins eru flutt inn
og öll framleiðsla þess flutt út.
Ragnar Halldórsson er verk-
fræðingur að mennt, og starfaði
sem slikur hjá bandariska flug-
hernum á Keflavikurflugvelli
1956—59, yfirverkfræðingur 1959-
61 og framkvæmdastjóri verk-
fræðideildar bandariska flotans
1961-66. Hann var ráðinn tækni-
legur framkvæmdastjóri tslenska
álfélagsins frá 1. jan. 1967.
„Margur ágirnist
meira en þarf’
Jón Sigurðsson fyrrum ráðu-
neytisstjóri, núverandi forstjóri
tslenska Járnblendifélagsins, er
einnig i framkvæmdaráði Stjórn-
unarfélags tslands. Eins og
mönnum er kunnugt er Járn-
blendifélagið i 51% eigu islenska
rikisins en 49% eigu norska auð-
félagsins Elkem-Spiegerverket.
Jón vann einnig um árabil hjá
Alþjóöabankanum.
Jón varð þjóðfrægur maður
þegar hann var ráöuneytisstjóri
og sendi út opið bréf til undir-
manna sinna og annarra rikis-
starfsmanna haustiö 1977 þar sem
hann áminnti þá á föðurlegan hátt
að krefjast ekki hærri launa en
rikið hafði þegar boðið þeim.
Bréfið endaði með þeim frægu
orðum: „Margur ágirnist meira
en þarf.” A þeim tima var Jón
meðal hæstu embættismanna
rikisins. Ekki var unnt fyrir
blaöamenn að ná i Jón vegna um-
mæla hans á þessum tima, en
Hjörtur Torfason lögfræðingur
varð að svara fyrir hann og sagði
að bera þyrfti undir stjórnarfund
að segja frá launum Jóns sem
forstjóra Járnblendiverksmiðj-
unnar.
Hjörtur Torfason er einn af
huldumönnunum i islenskri
stjórnsýslu og viðskiptum við er-
lenda auðhringa. Hann er hæsta-
réttarlögmaður, stjórnarformað-
ur Islenska Járnblendifélagsins,
endurskoðandi IBM frá upphafi
hérlendis, endurskoðandi Kisil-
iðjunnar, sem er að hluta til er-
lent fyrirtæki i eigu Johns-Man-
ville. Hörður hefur verið ráögjafi
Jóhannesar Nordals um árabil i
samskiptum við erlend fyrirtæki
og átti sæti i samninganefnd
r i k i s s t j ó r n a r i n n a r við
ALUSUISSE á sinum tima. Til
gamans má einnig geta þess að
Hjörtur Torfason er yfirkjörstjóri
i Reykjavik.
Ítök auðhringa
fara vaxandi
Að lokum má nefna þá Eyjólf
Isfeld Eyjólfsson forstjóra Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna og
Erlend Einarsson forstjóra SIS,
en báðir sitja i framkvæmda-
nefnd Stjórnunarfélags tslands.
Ekki þarf að hafa mörg orð um
þessa þjóðkunnu menn, en minna
má á hin fjölmörgu embætti Er-
lends Einarssonar: Hann er for-
maður stjórnar Samvinnubank-
ans, formaöur stjórnar Sam-
vinnuferða, formaður stjórnar
Osta- og smjörsöiunnar og for-
maður stjórnar Lifeyrissjóðs
Sambands islenskra samvinnufé-
laga.
Þær stofnanir, félagasamtök og
einkaaðilar sem nefndir hafa ver-
ið i þessari grein eru dæmi um
tengsl erlends fjármagns og is-
lenskra aðila. Þaö er þó langt i frá
að greinin sé tæmandi. ttök er-
lends auðmagns og fjölþjóða-
hringa fara vaxandi hérlendis og
áhrifa þeirra gætir á æ fleiri svið-
um: i stjórnsýslu, félagssamtök-
um, fyrirtækjum hvort sem þau
eru opinber eða i einkaeign.
Reynsla undanfarinna ára hefur
einnig sýnt hvernig ásókn auð-
hringa breytist eftir stjórnmála-
ástandinu i landinu. Hinir afleitu
samningar voru gerðir á tima
viðreisnarinnar og þá var þrýst-
ingurinn frá hinum ýmsu fjöl-
þjóðafyrirtækjum sem mestur.
Það má þvi segja aö úrslit kosn-
inganna nú um helgina muni
móta framtiðarstefnu tslendinga
i virkjunarmálum og hvort hér
eigi aö risa erlend storiðja.
Þetta er fjórða og siðasta grein-
in um Island og erlenda auö-
hringi, en þær fyrri hafa birst i
Sunnudagsblaðinu þ. 11. nóvem-
ber, 18. nóvember og 25. nóvem-
ber.
Texti
Ingólfur
Margeirs-
son
Ríkisstjórn \ \
\
k
' <$f/ ► MANTRUST
Council of
Foreign
Relations
Seðla bankinn AMAX
E 1
ALUSUISSE
Lanasvirkiun
FLUGLEIÐIR
Halldór
ÍSAL
H. )
Jónsson
Þannig samtvinnast erlendar
og innlendar valdastödvar
MYND 1: Yfirlitið sýnir tengsl
erlendra og islenskra valda-
stöðva og helstu einstaklinga sem
tengjast þessum stöðvum.
Kassarnir sýna stofnanir og
fyrirtæki, hringirnir persónur.
Pilurnar með dollaramerkinu
sýna fjárflæði, tvöföldu iinurnar
bein tengsl og aðild, en brotin lína
óbein eða óljós tengsl.
Manufactures Hanover Trust,
bandariski stórbankinn sem
vanalega gengur undir nafninu
MANTRUST, er helsta lánastofn-
un tslands I USA. Bankinn veitir
Seðlabankanum, Landsvirkjun,
ÍSAL, og Flugleiðum Ián. Þar að
auki er MANTRUST helsti banki
ALUSUISSE, móðurfyrirtækis
ISALs, Gabriel Hauge aðal-
bankastjóri MANTRUST er I
stjórn CFR og hefur verið stjórn-
arformaður i auðhringnum
AMAX. Jóhannes Nordal er aöal-
bankastjóri Seðlabankans og
stjórnarformaður Landsvirkjun-
ar, Halldór H. Jónsson er stjórn-
arformaður ISALs, á sæti i stjórn
Flugleiða og Eimskips. Axel
Einarsson er lögfræðingur ISALs,
á sæti i stjórn Flugleiða og Eim-
skips, og átti að vera milligöngu-
rnaður AMAX og Jóhannesar
Nordals.
AMAX og Jóhannesar Nordals.
(sjá grein um AMAX sunnudags-
blaðinu 11. nóv. s.l.) Sonur Ein-
ars, Axel Einarsson hefur nú tek-
ið við störfum föður sins, þar á
meðal lögfræðingsstörfum fyrir
tSAL.
Verslunarráð
Fulltrúar erlends fjármagns
hérlendis eru i hinum
ýmsu félagssamtöku'm,
sem aftur eru aöilar erlendra al-
þjóðasamtaka. Þannig er það t.d.
með Verslunarráð Islands, sem
tekur þátt i margs konar alþjóð-
legri samvinnu verslunarráða og
situr t.a.m. þing Alþjóðaverslun-
arráðsins.
1 stjórn Verslunarráðs eiga sæti
meðal annarra Ragnar Halldórs-
son forstjóri tSALS, Ottó A.
Michelsen, forstjóri IBM og
Hörður Sigurgestsson fyrrum
framkvæmdastjóri hjá Flugleið-
um en núverandi forstjóri Eim-
skips.
Hver meðlimur Verslunarráðs
hefur atkvæðafjölda miðað viö
árgjald og hefur eitt atkvæöi fyrir
hverjar’þúsund krónur, sem hann
greiðir i árgjald. Það sem at-
hyglisverðara er, er að árgjaldið
er miðað við aðstöðugjöld sem
viðkomandi greiðir.
Þetta skýrir etv. valdaaðstöðu
ISALs i Verslunarráði, og þá
áráttu Verslunarráðs að gera is*
lenskt vinnuafl hagkvæmara
fyrir erlenda vinnukauDendur.
Stjórnunarfélag
íslands
Sum félagssamtök hérlendis
virðast sanka að sér fleiri fulltrú-
um erlendra aðila og auðhringa
en önnur. Gott dæmi um þetta er
Stjórnunarfélag tslands, sem
stofnað var 24. janúar 1961. Um
tilgang félagsins segir i fyrstu
grein félagslaga: