Þjóðviljinn - 02.12.1979, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. desember 1979
UÚÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
l igefandi: Útgáfufélag þjrtftviljans
I ramkvæindastjori: Eiöur Bergmann
Kitstjorar. Arni Bergmann. Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjdri: Vilborg HarRardóttir
l insjónarniaöur Sunnudagsblaös: Ingólfur Margeirsson
Kekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Rúnar SkarphéRinsson
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir. Einar Orn Stefánsson. Guöjón Friöriks-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson.
Erlendar fréttir: Jón Asgeir Sigurösson
Iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Jón Ólafsson
Útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson
Handiita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigriöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Olafsson.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir.
Afgreiösla: Einar Guöjónsson, Guömundur Steinsson, Kristín Péturs-
dóttir.
Sfmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir
útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Kitstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Sföumúla 6. Reykjavfk.sfmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Hœgri bylting eða
vinstri þróun
• I dag og á morgun eiga kjósendur að kveða upp dóm
sinn eftir að f lokkarnir hafa sótt og varið sitt mál í f jöl-
miðlum og á framboðsfundum. Kosningarétturinn er
helg mannréttindi sem hver og einn ætti að nota minnug-
ur þess að f yrir þessum einf öldu mannréttindum berjast
miljónir manna um allan heim.
• íslenskt þjóðfélag hefur aldrei verið auðugra en nú.
Samt hef ur söngurinn um það að „allir verði að fórna"
hljómað hærra í þessum kosningum en flest annað. Al-
þýðubandalagið eitt neitar þátttöku í þeim falska kór.
Það hefur löngum verið háttur harðdrægra fjárafla-
manna að skírskota til fórnarlundar alþýðu og vissulega
er fórn fyrir góðan málstað mikils virði. En hvort skyldi
vera meiri dyggð það að standa fast á kröfunum um
réttlátari skiptingu þjóðarauðs og þjóðartekna eða hitt
að taka undir söng peningavaldsins um að allir verði að
fórna.
• Alþýðubandalagið mun nú sem fyrr beita öllu þvi afli
sem kjósendur veita þvi til varnar kaupmætti almennra
launa. Krafa þess er sú að óhjákvæmileg herferð gegn
verðbólgunni verði fyrst og fremst kostuð af þeim sem
rakað hafa saman auðæfum í hennar skjóli. Alþýðu-
bandalagið vill ráðast að rótum verðbólgumeinsins, ekki
með því að skera niður kaup almenns launafólks eins og
hinir flokkarnir boða,heldur með verulegri millifærslu
fjármuna frá hvers kyns fjárplógsmönnum og verð-
bólgubröskurum.frá stóreignamönnum og auðfyrirtækj-
um viðskiptalífsins en til framleiðsluatvinnuveganna og
til jöfnunar lífskjara milli atvinnustétta og milli byggð-
arlaga. Án slíkrar tilfærslu fjármuna, án verulegs
hemils á f relsi f jármagnsins verður aldrei við verðbólg-
una ráðið nema stórkostleg kjaraskerðing og harðstjórn
peningavaldsins komi til.
• I kosningunum er um tvær leiðir að velja. Þær eru
vegamót, og það eru kjósendur sem vísa veginn með at-
kvæði sínu.
• Það er auðvelt að nota kjörseðilinn nú. Það er auðvelt
að nota hann til þess að panta kjaraskerðingu, til þess að
panta samdrátt i innlendum framkvæmdum, til að kalla
á erlend risafyrirtæki inn í landið, og til þess að kalla
yfir sig vaxandi misrétti undir fána hins alfrjálsa f jár-
magns.
• En það er líka hægt að nota kjörseðilinn til þess að
knýja fram aukið jafnrétti og aukinn jöfnuð undir
merkjum samhjálpar og félagshyggju. Átökin standa
milli Alþýðubandalagsins og Sjálfstæðisflokksins. Þar
eru andstæðurnar í öllum höfuðmálum. Alþýðubanda-
lagið viII alefla innlent atvinnulíf. ihaldið vill opna allar
gáttir fyrir erlent f jármagn. Alþýðubandalagið vill vax-
andi jafnrétti á öllum sviðum. Sjálfstæðisf lokkurinn vill
alræði peningavaldsins. Alþýðubandalagið vill herlaust
land. Sjálfstæðisflokkurinn vill herstöðvarog landssölu.
Alþýðubandalagið vill samhjálp og samvinnu. Sjálf-
stæðisflokkurinn vill að lögmál einkagróðans ríki ein.
• Nú sem áður taka milliflokkarnir, Alþýðuflokkurinn
og Framsóknarf lokkurinn, þátt í kosningunum. Vinni
Sjálfstæðisflokkurinn sigur munu þeir keppast við að
komast í samstarf við hann, enda hafa kjósendur þá vís-
að þessum milliflokkum til hægri. En vilji kjósendur
vinstri þróun, og vilji þeir vísa millif lokkunum til vinstri
þá kjósa þeir Alþýðubandalagið.
• Sjálfstæðisf lokkurinn hefur boðað hægri byltingu fyrir
þessar kosningar og ætlar sér i skjóli verðbólgubarátt-
unnar að blekkja þjóðina til þess að kjósa yfir sig alræði
peningavaldsins. Alþýðubandalagið hefur hvatt til sam-
einingar vinstri manna til varnar og sóknar. Það hefur
höfðað til allra jafnaðarmanna og alls félagshyggju-
fólksaðsnúasttil varnar hægri byltingunni og því alræði
peningavaldsins sem Sjálfstæðisflokkurinn boðar. Al-
þýðubandalagið hvetur til þess að öll þjóðleg öfl sam-
einist gegn erlendri vá og innlendu auðvaldi. Þeir sem
vilja vinstri þróun gegn boðaðri hægri byltingu íhaldsins
kjósa Alþýðubandalagið sem úrslitaafl vinstri hreyfing-
ar á Islandi og siguraf I launafólks. I kosningunum i dag
og á morgun er það verkefnið að efla einn flokk gegn
íhaldi.
X-G.
# úr aimanakínu
Ég hef nú skrifaö erlendar
fréttir fyrir Þjóöviljann f tvo
mánuöi.
Þaö fyrsta sem sá sem sér um
erlendar fréttir kynnist, er hiö -
óhemjulega magn sem berst á
degi hverjum. Reuter-f jarrit-
arinn gengur nær stöðugt hálfan
sólarhringinn, og Þjóöviljinn er
áskrifandi aö mörgum dag-
blöðum og timaritum á ýmsum
tungumálum. Aöalatriöiö er aö
vera fljótur aö velja úr öllu
þessu magni, og aö reyna aö
velja rétt.
Aö velja rétt, þýöir aö frétta-
árásum Bandarikjanna skýrt og
skorinort. Prinsinn mdtmælti
loftárásunum vegna þessaö þær
kæmu einungis niöur á frB-
sömum ibúum Kampútseu,
vegna þess aö þær myndu út-
vikka striösátökin yfir i Kamp-
útseu, og vegna þess aö ótti og
andstaöa íbúanna gegn
árásunum mundu grafa undan
valdastöðu Sihanouks sjálfs.
Pol Pot
Sihanouk reyndist sannspár.
Hundruðum þúsunda saman
flýöu Kampútseubúar vestur á
bóginnundan sprengjuregninu i
átt til höfuðborgarinnar Phnom
Penh. Ekki er vitað meö neinni
vissu hve mörg hundruð þúsund
bændur og fjölskyldur þeirra
voru drepin af Bandarikja-
Svo viröist sem Kampútseu-
mönnum hafi tekist aö draga
fram li'fið næstu þrjú árin án
hungursneyðar, bandariski
blaöamaöurinn Richard Dudm-
an sem var i Kampútseu i des-
ember 1978, segist ekki hata séö
visbendingar um hungursneyö
þegar hann ferðaðist um landið.
Hins vegar segirhann aö stjórn-
völd hafi lagt ofuráherslu á
beina matvælaframleiðslu og
þvi hafi svotil ekkert veriö um
menntun, bókalestur, feröalög
og ástundun trúarbragöa.
Blóðug bylting
Richard Dudman segir aö
eftir tveggja vikna athuganir og
fyrirspurnirhafihannkomist aö
þeirri niöurstööu, aö byltingin i
Kampútsea í 10 ár
maðurinn reynir aö tina til þaö
markverðasta úr þvi sem býöst,
og jafnframt þarf aö taka tillit
til þess pláss sem til ráðstöfunar
er i blaöinu. Égfer ekki aö sinni
út I aö skilgreina hvaö er þaö
markveröasta, tilefni þessarar
greinar er annaö.
Smám saman kynnist maöur
einnig heimildunum. Þaö
kemur i ljós að Reuter flytur aö
mestu leyti efni um stjórnmál
og hernað, en litiö um t.d.
menningarmál og verkalýös-
mál. Oft eru Reuter-fréttirnar
greinilega litaöar, og sama er
aö segja um mörg dagblöö og
timarit.
Og þá kem ég aö tilefni þess-
arar greinar, en þaö eru atburö-
irnir i Kampútseu. Allar áöur-
nefndar fréttaheimildir fjalla
siðustu daga mikiö um Kampút-
seu. Sjónvarpiö sýndi nýlega
kvikmynd þaöan, og i vikúnni
héldu þri'r menn úr „Starfshóp
um Kampútseu” blaöamanna-
fund til að gagnrýna efni þeirrar
myndar.
StriösátiSc eru afar ólik mann-
tafli, þótt sumir séu gjarnir á aö
nota þá samlikingu. A.m.k.
sannast það hvaö snertir
Kampútseu. Þar hafa margir
aöilar komiö viö sögu, og þar
hefuraldrei veriö um tvo vel af-
markaða andstæöinga aö ræöa.
Ég rek þvi fyrst forsögu þeirra
hörmunga sem á siöustu mán-
uðum hafa duniö yfir Ibúana.
Árásarstrið
Bandarikjanna
t ársbyrjun 1969 hóf banda-
riski flugherinn gifurlegar toft-
árásir á Kampútseu. Sprengju-
magniösem dundi á landinu var
helmingi meira en allt það
magn, sem varpaö var á Japan i
seinni heimsstyrjöldinni. Um
mánaðamótin april-maí 1970
réöist svo bandariski herinn inn
i Kampútseu frá Suöur-Viet-
nam. Striðiö gegn Kampútseu
var auövitað fyrirskipaö af
Nixon þáverandi forseta, og
með i ráðum var Henry Kiss-
inger utanrlkisráöherra.
Nixon segir i æviminningum
sinum, að árásunum á Kampút-
seu hafi veriö haldiö leyndum,
til þess aö halda hlifiskildi yfir
Sihanouk prins, sem þá réöi
völdum I Kampútseu. Nixon
segir að „svo framarlega sem
loftárásirnar voru leynilegar
þurfti Sihanouk ekki aö mót-
mæla þeim opinberlega”. Aftur
á móti er það staöreynd, að á
blaðamannafundi, sem Sihan-
ouk kallaöi sjálfur saman 28.
mars 1969 mótmælti hann loft-
mönnum og i striösátökunum
sem fylgdu i kjölfariö.
Lon Nol forsætisráöherra
Sihanouks rændi völdum I
Kampútseu 18. mars 1970. Hann
var stækur and-kommúnisti, og
hófst þegar handa aö þjarma aö
Vietnömum, sem höföu á timum
Sihanouks fengiö óáreittir aö
flytja hermenn og vistir frá
Noröur-VIetnam til Þjóðfrelsis-
hersins i Suöur-Vietnam.
Eftir seinni heimsstyrjöldina
og fram eftir sjötta áratugnum
var eitthvaö um kommúniska
starfsemi i Kampútseu. Áriö
1960 héldu kommúnistar ráö-
stefnu i landinu, og þrem árum
siöar var Pol Pot kjörinn ritari
kommúnistaflokksins. Siöar á
árinu 1963 yfirgáfu Pol Pot og
margir aörir kommúnistar
Phnom Penh og fóru eftir þaö
huldu höföi. Vitað er aö Pol Pot
fór 1965 til Hanoi og dvaldi þar i
nokkra mánuöi og eftir þvi sem
best er vitaö var hann siöan eitt
ár i Kina.
Kampútseanskir skæruliöar
efldu aö sjálfsögöu baráttuna að
mun i' kringum 1970. Þeir höfö-
ust viö i flestum héruöum
landsins og böröust gegn Lon
Nol stjórninni. Vistir og vopn
fengu skæruliöar m.a. bæöi frá
Kina og frá Vietnam. 17. april
1975 tóku þeir höfuöborgina
Phnom Penh, ogPol Pot tók viö
völdum.
Hvað skeði svo?
öllum ber saman um að Pol
Pot stjórnin hafi strax eftir fall
Lon Nol fyrirskipaö að allir
borgarbúar i Kampútseu skyldu
yfirgefa borgirnar, bæöi þeir
sem höföu flúiö inn i þær undan
sprengjuárásum Bandari"kja-
manna og striösátökunum i
kjölfariö, og þeirsem höföu búiö
þar lengur. Flestir unnu viö
landbúnað, annaöhvort hris-
grjónarækt eða verk tengd
henni. Ekki fer á milli mála aö
Pol Pot stjórnin aöhylitist
algjöran jöfnuð i samræmi viö .
hugmyndafræöi kinversku
menninarbyltingarinnar,
þ.á.m. strangan vinnuaga, og
áttu bæði héruð og landið allt aö
veraalgjörlegasjálfum sérnóg.
Jón Ásgeir
Sigurðsson
skrifar
Kampútseu hafi veriö sú blóö-
ugasta á okkar timum. Hátt-
settir embættismenn hafi gefið
skýrt til kynna aö margir hafi
veriödrepnir, en hann hafi enga
staöfestingu fengið fyrir fjöld-
anum. 1 nokkrum vinnubúöum
var honum sagt aö helmingur
ibúanna hefði átt heima i
Phnom Penh.en aldrei fékk
hann aö tala viö neinn þaöan.
John Pilger sem geröi sjón-
varpsmyndina sem sýnd var í
vikunni, segir aö Pol Pot her-
mennirnir hafi útrýmt hundr-
uðum þúsunda Kampútseubúa.
Vestur-þýska timaritiö Spiegel
segir aö Pol Pot stjórnin hafi
látiö útrýma þremur og háifri
miljón manna.
Hryllingssögurnar halda
áfram um ástandiö eftir aö nær
200.000 manna herafli Vfet-
nama hertók Kampútseu
snemma á þessu ári. Vist er aö
hungursneyö geisaöi þar fram i
október sl.
Vietnamar
Timaritiö Newsweek frá 26.
nóvember s.l. segir aö lifsmark
sé aftur aö færast yfir
Kampútseu. Matvælaaöstoöin
séfarinaö beraárangur, og þótt
allir séu enn hungraöir, séu
menn aftur farnir aö geta
brosaö. Newsweek hefur eftir
lækni, aö Pol Pot stjórnin hafi
reynt þjóöarmorö, og eftir
menntamanni er haft, aö
Kampútseubúar eigi Viet-
nömum mikiö aö þakka fyrir aö
hafa bjargað þeim frá Pol Pot.
Striösátökum i Kampútseu er
ekki lokið. Þau hafa nú staöiö I
nær eitt ár. Sumir fordæma inn-
rás Vietnama, en aörir spyrja
hversvegna innfás Tansaniu i
Uganda harðstjórans Idi Amin
hafi þá ekki jafnt veriö for-
dæmd.
Hversvegna kom til hungurs-
neyöar i hinni striðshrjáöu
Kampútseu? A rikisstjórn Heng
Samrin sem Vietnamar hafa
stutt til valda fylgi aö fagna
meöal ibúa landsins? Þvi miöur
kann ég ekki svör við þessum
spurningum. Heimildirnar eru
of hlutdrægar til aö ég trúi þvi
aö frásagnirnar séu sannar.
e.k.h.