Þjóðviljinn - 02.12.1979, Blaðsíða 25
Sunnudagur 2. desember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 25
Oskadraumur
Framhald af bls. 6
aukin i"hlutun erlends fjármagns
hér á íslandi. Og einmitt sli"k auk-
in ihlutun er óskadraumur ihalds-
ins. Orkuskorturinn i umheimin-
um oghin mikla ónýtta orka hér á
landi gerir þaö aö verkum aö er-
lendir auöhringar lita meö enn
meiri ágirnd til Islands en áöur.
Og þessir auöhringar eiga vini
hér á tslandi. Friörik Sofusson,
einn af aöalhöfundum leiftur-
sóknarinnar, er oftlega nefndur
sem frambjóöandi ISALS jafn-
framt þvi' aö vera frambjóöandi
Sjálfstæöisflokksins.
— 0 —
1 kosningum á allt launafólk
þessa lands sér aöeins eina
brjóstvörn: Alþýöubandalagiö. 1
öllu starfi sinu hefur þaö sýnt aö
þaö vill hlut hins almenna launa-
manns sem mestan og jafnframt
hefur þaö sýnt — eitt allra flokka
— aö þaö vill Island fyrir tslend-
inga eina.
Haukur Helgason
húsbyggjcndur
ylurinn er
" >góður
AfnrpiAiim pinannrunarnlast a
Afgreióum einangrunarplast a
Stor-Reykjavikursvxóið fra
manudegi — fostudags.
Afhendum voruna a byggingarstað.
viðskiptamonnum að kostnaðar
tausu Hagkvsmt verð og
greiðsluskilmalar
við flestra haefi.
Auglýst er eftir umsóknum um starf
röntgentæknimanns
VIÐ TÆKNIDEILD BORGARSPÍTAL-
ANS:
Starfssviö: Uppsetningar, viögeröir og eftirlit meö tækni-
búnaöi á röntgendeild.
Grunnmenntun: Rafeindavirkjun eöa raftæknifræöi.
Starfsþjálfun og undirstööukennsla viö Röntgendeild
Borgarspitalans og e.t.v. f samvinnu viö aöra spftala f
fyrstu, en síöar viöbótarnámskeiö eftir þörfum hjá erlend-
um framleiöendum eöa sjúkrahúsum.
Frekari upplýsingar um starfiö veita framkvæmdastjóri
spftalans og yfirlæknir röntgendeildar.
Umsóknir á þar til geröum eyöublööum skulu sendar
sömu aöilum fyrir 15. desember n.k.
Reykjavik, 30. nóvember 1979.
BORGARSPITALINN
BÍLEIGENDUR
Þið sem getið aðstoðað starfsmenn
Alþýðubandalagsins sem starfa við utan-
kjörstaðakosninguna með þvi að aka fólki
á kjörstað i Miðbæjarskólanum i dag og á
morgun látið heyra i ykkur i sima 17500.
Þið þurfið ekki að halda til niðri á Grettis-
götu heldur vera i viðbragðsstöðu heima
hjá ykkur og tilbúin að fara i eina og
eina ferð.
Skráið ykkur i sima 17500 á milli klukk-
an 9:00 og 22:00 i dag og frá klukkan 14:00
til klukkan 19:00 á morgun.
Alþýðubandalagið
DLAÐSÖLUÐÖRN
VÍSIR
er tvö blöð o mónudog
KOMIÐ q Qfgreiðsluno
SEUIÐ VÍSI
VINHIÐ ykkur inn vasapeninga
Galvano Della Volpe:
Critique of Taste.
Translated by Michael Caesar.
New Left Books 1978.
Critica del Gustokom fyrst út i
Milanó 1960. Höfundurinn geröist
háskólakennari í heimspeki i Bol-
ogna 1929, siöar kenndi hann
heimspekisögu Messina frá 1938.
Hann gekk i kommúnistaflokkinn
1944. Rousseau e Marx kom út
1960 og þessi bók. Mikið kvaö aö
Della Volpe sem marxista, ekki
sist i fagurfræöi og heimspeki.
I bókmenntaskrifum sfnum hélt
hann fram þeirri skoöun, aö skýr
og afdráttarlaus merking hvers
hugtaks væri óaöskiljanleg öllum
góöum skáldskap. Hann taldi aö
skáldskapurinn væri ekki aöeins
leikur aö myndrænum oröum,
heldur væru oröin tákn, bundin
þeim raunverulegu hlutum eöa
fyrirbrigöum sem þau tjá. Volpe
taldi aö allur góöur skáldskapur
væri bundinn hlutveruleika
oröanna. Hann nýtti til fullnustu
kenningar Louis Hjelmslevs um
málgeröir og uppruna og þróun
tungumála. Hann leggur höfuö-
áherslu á raunsæi i skáldskap og
notar oröiö „raunsæi” i viöari
merkingu en almennt tlökast, svo
aö hin heföbundna merking
„raunsæi” er ekki fyrir hendi hjá
Volpe. Höfundur fjallar all
nákvæmlega um nokkur höfuö-
skáld m.a. grisku harmleika-
skáldin, Hómer, Dante, Goethe,
Eliot og Majakovsky. Hann telur
aö öll þessi skáld séu fyllilega
raunsæ, samkvæmt hans skil-
greiningu á hugtakinu, og aö
raunsæi þeirra sé bundiö þeim
timum sem þau liföu og verk
þeirra séu þvi bundin samtima
þeirra, en aö jafnframt nái þau
þeim sammannlega tón sem hafi
eilift gildi i mannheimum. Rit
Della Volpes er hugvekja um til-
oröningu skáldskapar og þau rök,
sem liggja aö baki góös skáld-
skapar.
Stelton kaffikannan heldur
ekki bara heitu.
Hún vekur hvarvetna athygli
fyrir fallegt útlit og hagnýta
hönnun.
Verö:
úrstáli kr. 35.220.—
úr plasti kr. 17.700.—
/^KRISTJflíl
¥ SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870
Sænskar og íslenskar stúlkur syngja Lúsiusöngva á Lúsiukvöidinu á
Hótel Loftleiöum 9. desember.
Jólagleði á
Loftleiðum
Hótei Loftleiöir hefur jafnan
komiö gestum sinum I jóiaskap og
i ár veröur mikiö um aö vera i
Blómasal á jólaföstunni. Þar má
nefna aöventukvöld, Lúsfukvöld
og jólapakkakvöld aö ógleymdu
sælkerakvöldi og tiskusýningum.
Jóiaglögg hóteisins veröur á
boöstólum frá 1. desember og
margir þekktir listamenn koma
fram I Blómasal á jólaföstunni.
Dagskrá i desember er sem hér
segir:
Sunnudaginn 2. desember
veröur Aöventukvöldiö i Blóma-
salnum. Ólöf Haröardóttir syngur
þar viö undirleik Jóns
Stefánssonar. Verslunin Torgiö
sýnir tiskufatnaö og hinn lands-
kunni Jens Guöjónsson sýnir
nýjungar i gullsmiöi. Blóma-
salurinn veröur skreyttur
sérstaklega og sjá Blóm og
Avextir um skreytingu.
Fimmtudaginn 6. desember
veröur Sælkerakvöld og þá mun
Agnar Kofoed-Hansen flugmála-
stjóri ráöa matseöli og leiöbeina
meö val vina o.fl. Daginn eftir, 7.
des. veröur tiskusýning i
hádeginu.
Lúsiukvöld veröur svo
sunnudagskvöldiö 9. desember.
Sænskar og islenskar stúlkur
syngja Lúsiusöngva, sýndur
veröur fatnaöur frá Dömunni,
Pelsinum og Uröi og vikingaskip-
iö veröur skreytt frá Kosta Boda.
Hinn 16. desember veröur
jólapakkakvöld. Garöar Cortes
syngur jólalög og jólasálma viö
undirleik Jóns Stefánssonar. Þá
veröur ennfremur tískusýning og
veröa sýndar vörur frá Verölist-
anum, Herradeild P&ó og
Pelsinum. Ennfremur verður
gjafakynning á vegum Ramma-
geröarinnar og Islensks heimilis-
iönaöar.
Módelsamtökin undir stjórn
Unnar Arngrimsdóttur sjá um
allar tiskusýningarnar. Siguröur
Guömundsson mun leika á orgel i
Blómasal frá fimmtudags- til
sunnudagskvölda og öll þau kvöld
sem getiö er hér að framan.
* *
Fljótt, fljótt! A völlinn i einum grænum!
Ég sé ekki betur en einhver hafi kjaftaö frá flóttaáætiuninni okkar.