Þjóðviljinn - 12.01.1980, Síða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagurinn 12. janúar 1980.
er komin!
££ÍÚi£w£iiíli
IDAGMA.
Markaösráö sam-
yinnufélaganna
Á kaupf élagsstjóra-
fundinum flutti Jón M.
Sigurðsson, kaupfélags-
stjóri á Brúarlandi,
skýrslu um starfsemi
Markaðsráðs samvinnu-
félaganna frá siðasta
kaupfélagsstjóraf undi. —
Kom fram í skýrslu hans,
að ráðið hafði f jallað um
fjöldamörg mál varðandi
samvinnuverslunina, —
kerfi i samvinnuverslun-
um, tilboð kaupfélag-
anna, samkaup, svo og
m.a. afkomu smásölu-
verslunar, vandamál
smærri verslana, nám-
skeiðahald fyrir starfs-
menn í samvinnuverslun-
um, vöruval birgðastöðv-
ar, álagningu á land-
búnaðarvörur, pökkun
búvara, launahvetjandi
Lm m mmmmmmmm m mmammmmm m rnmmmmmmm m mmmmt
ýmis atriði varðandi
vöruframboð verksmiðj-
anna á Akureyri.
Þá höföu vöruvalsnefndirnar,
sem starfandi eru viö Birgða-
stöð, Búsáhaldadeild, Vefnað-
arvörudeild og Rafmagnsdeild
skilað að vanda skýrslum til
Markaðsráðs og fjöldamörg at-
riði varðandi þessar deildir
höfðu verið rædd á fundum
ráðsins.
A fundinum var kosið i vöru-
valsnefndir og Markaðsráð og
eiga nú sæti þar kaupfélags-
stjórarnir Ölafur Friðriksson,
Kópaskeri, örn Ingólfsson,
Hafnarfirði, Gisli Haraldsson,
Neskaupstað, Hermann Hans-
son, Höfn, Sigurður Jónsson,
Isafirði, og Halldór S. Magnús-
son, Stykkishólmi. Af hálfu
Sambandsins sitja i ráðinu þeir
HjaltiPálsson,framkv. stj., Jón
Þór Jóhannsson, framkv. stj.,
Kjartan P. Kjartansson, fram-
kv. stj. og Þorbergur Eysteins-
son, deildarstjóri. — mhg.
Freyr
Meðal efnis I þvi tbl. Freys,
sem okkur hefur siðast borist i
hendur er eftirfarandi:
Forystugrein ern nefnist
Landeigendaaðallinn og rjúpna-
skytturnar. Ráðlegt að búast við
gjaffelldum og köldum vetri er
yfirskrift viðtals, sem Július J.
Danielsson á við Halldór Páls-
son, búnaðarmálastjóra. Einar
Hannesson skrifar um 30 ára
veiðimálastarf i Kjósinni. Þá er
grein er nefnist Eldsneyti úr
kolum, sykurrófum og repju.
Guðmundur Jónsson, fyrr-
verandi skólastjóri á Hvanneyri
ritar grein um bændafarir.
Salmonellasýkingar nefn'ist
grein frá landlæknisembætt-
inu. Góð afkoma með 200 fjár,
Agnar Guðnason ræðir við
norskan fjárbónda. Góðar horf-
ur með loöskinnasölu, segir
Sigurjón Bláfeld, loðdýra-
ræktarráðunautur i viðtali við
JQlius J. Danielsson. Þá skýrir
Gisli Kristjánsson frá norskum
tilraunum með villta fugla og
segir fuglafréttir. Loks eru
Erlendir þættir og Molar.
— mhg
Lukkuriddarinn
mmm
99Röddin batnar með
hverju barni’
!>»
segir Sigriður Ella Magnúsdóttir, söngkona, I Helgarviðtal-
inu.
Hver er hægri hönd
brandarabankastjórans
í Stundinni okkar?
Visir fer að tjaldabaki I sjónvarpinu og ræðir m.a. við hægri
hönd bankastjórans.
99
H$mlet er ekki
ommn
ítarlegt viðtal við heimsfræga breska leikritaskáldið Harold
Pinter.
Voru mannætur aldrei til?
Bandarískur mannfræðingur afsannar kenninguna um að
mannætur hafi verið til.
Ungu stúlkurnar og ekkjan hylla lukkuriddarann.
r
UMF Islendingur:
...og svo að sjálfsögöu Helgarpopp, Hæ krakkar, Sælkera-
siðan, Sandkassinn og margt fleira.
Tekst það eða ekki? Unnið aö
smíði ljósastjórnborðs fyrir
frumsýningu.
Á liðnu hausti hefur
Umf. íslendingur sýnt
Lukkuriddarann eftir
írska leikritaskáldið J.M.
Singe í Þýðingu Jónasar
Árnasonar.
Þetta erþriðja leikritið,
sem félagið færir upp á
jafnmörgum árum. Árið
1976 varð Leynimelur 13
fyrir valinu, árið 1978
Delerium búbónis og nú
Lukkuriddarinn. Allar
hafa þessar sýningar
vakið verðskuldaða at-
hygli og aðdáun.
Hlutverk i Lukkuriddaranum
eru 13 og fór þetta fólk með þau:
Snorri Hjálmarsson, Ragnar
Olgeirsson, Dagný Sigurðar-
dóttir, Þorbjörn Gislason, As-
geir Harðarson, Sigrún Elias-
dóttir, Finnbogi Arndal, Guð-
mundur Sigurðsson, Svava
Halldórsdóttir, Elsa Jónsdóttir,
Oddbjörg Leifsdóttir, Steinunn
Eiriksdóttir og Sturla Guð-
bjarnason. Pétur Jónsson, Hell-
um. annaðist undirleik og æfði
söng. Er ekki að orðlengja það
að allt þetta fólk skilaði hlut-
verkum sinum með mestu prýði
og sumt stórkostlega vel.
Hér fer á eftir stutt frásögn
Hauks Júliussonar formanns
Umf. Islendings, af starfi
þessu:
„Æfingar á Lukkuriddaran-
um hófust i byrjun okt. undir
Umsjön: Magnús H. Gíslason
stjórn Ragnhildar Steingrims-
dóttur. Aður hafði leiknefnd
félagsins undir forystu Sigrúnar
Eliasdóttur undirbúið starfið
heima fyrir.
Æft var i fimm vikur, sem er
óvenju skammur timi, að
meðaltali sex sinnum I viku.
Hlutverkaskipan var ráðin á
fyrstu æfingum og má fullyrða
að það hafi tekist afar vel. Alls
eru 13 hlutverk i leikniím auk
* undirleikara. Leikarar völdust
úr Andakilshreppi, Skorradal og
Lundarreykjadal.
Jafnhliða leikæfingum i okt.
unnu nokkrir menn baki brotnu
við að fullgera afar vandað
ljósastjórnborð undir stjórn
Eyjólfs Hjálmarssonar, sem
einnig teiknaði tækið, og Bjarna
Skarphéðinssonar. Þrátt fyrir
það, að unnið væri heilu og hálfu
næturnar siðustu tvær vikurnar
fyrir frumsýningu, tókst ekki að
fullgera tækið. A siðustu-stundu
var annað borð fengið að láni og
var það notaö á fyrstu sýning-
unum.
Eftir enn eina vökunótt var
„Eyjólfsborð” fullgert og það
notað á siðustu sýningunum i
Brún með afar góðum árangri
og miklum feginleik allra er i
hlut áttu.
Frumsýnt var sunnudags-
kvöldið 4. nóv. i félagsheimilinu
Brún. Alls voru 9 sýningar þar á
18 dögum. Aðsókn var ágæt á
öllum sýningunum nema einni,
er var miðdagssýning á sunnu-
degi. Stórkostlega var ánægju-
legt aö fá hópferð á vegum
Verkalýðsfélags Borgarness á
sýningu.
Að loknum sýningum i Brún
var boðað til sýningar i félags-
heimilinu Breiðabliki á Snæ-
fellsnesi og félagsheimili Sel-
tjarnarness. Sýninguna i
Breiðabliki varð þvi miður að
fella niður vegna ófærðar, en
sýningin á Seltjarnarnesi tókst
hinsvegar mjög vel. Með henni
var settur punktur aftan við
skemmtilegt starf og vel heppn-
aðar sýningar haustið 1979.”
Leikstarfsemi Umf. Islend-
ings er nú orðin árviss og
mikilvægur þáttur i menningar-
lifi héraðsins.
viö hlökkum til að sjá hvert
verður næsta verkefni. Ekki
þarf að efa að vel takist til bæði
um val og meðferð.
J.ó.