Þjóðviljinn - 16.01.1980, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 16. janúar 1980.
GUDMUNDAR-OG GEIRFINNSMÁLIN FYRIR HÆSTARÉTTI
Þórður Björnsson, rikis-
saksóknari hélt i gær
áfram sóknarræðu sinni i
Guðmundarmálinu/ en í
dag hefur hann sókn í
Geirfinnsmálinu. Eins fór
hann yfir önnur mál sem
ákærðu í Guðmundar-
málinu eru ákærðir fyrir/
svo sem íkveikju/ nauðgun
og þjófnaði. Um kl. 15.30 i
gær var réttarsal Hæsta-
réttar lokað þegar fjallað
var um ákæru á hendur
Tryggva Rúnari Leifssyni
fyrir nauðgun á 18 ára
gamalli stúlku.
Þegar réttarhald hófst i gær kl.
13.30 rakti .r ikissaksóknari i stór-
um dráttum þaö sem fram heföi
komið i Guðmundarmálinu og
hann hafði fjallað um daginn áð-
ur. Hann benti á að ákærðu i
málinu hefðu allir mjög fljótlega
við yfirheyrslur viðurkennt að
hafa verið að Hamarsbraut 11
nóttina sem Guðmundi var ráðinn
bani. Eins benti hann á að þeir
hefðu allir sagt að þar hefðu átt
Nokkrir verjendur hinna ákæröu I Guömundar-og Geirfinnsmálunum. vinstri: Hilmar Ingimundarson hrl. verjandi Tryggva Rúnars,
Benedikt Blöndal hrl. verjandi Guöjóns Skarpheöinssonar, Örn Clausen hrl. verjandi Alberts Skaftasonar og Páll A Pálsson hdl. verjandi
Kristjáns Viöars. — (Ljósm. —eik —)
Akærðu ekki beittir
harðrædi af lögreglu
sér staö átök, sem leiddu til dauða
Guðmundar Einarssonar. Hann
benti á hvernig þeir Sævar,
Kristján og Tryggvi heföu æ ofan
i æ viðurkennt að hafa tekið þátt i
þessum átökum, barið Guðmund
og sparkaö I hann. Þessa játningu
heföu þeir gert bæði fyrir lögreglu
og eins fyrir dómi og það aftur og
aftur. Siöar hefðu þeir svo dregiö
framburð sinn til baka. Kristján
Viöar heföi sagt þegar hann dró
framburð sinn til baka fyrir dómi
27. sept. 1977 að lögreglumenn
heföu látið hann segja það sem
hann játaöi á sig. Sævar sagöi
þegar hann dró framburð sinn til
baka að hann hefði verið pindur
til sagna og lögreglumenn sem
rannsökuðu málið skipaö sér að
játa.
Tryggvi Rúnar heföi slðar neit-
að aö hafa verið aö Hamarsbraut
11 umrædda nótt og aldrei þangað
komiö. Þó hafði hann viö yfir-
heyrslur eftir að hann hafði
margjátaö á sig þátttöku i átök-
unum viö Guömund lýst mjög ná-
kvæmlega herbergjaskipan að
Hamarsbraut 11.
Rannsókn á
ákœru
Þórður Björnsson benti á, aö
lögreglumenn þeir sem önnuðust
sagöi ríkis-
saksóknari,
sem hélt í
gær áfram
sóknarrœðu
sinni
rannsókn málsins og yfirheyrslur,
heföu veriö yfirheyrðir fyrir
héraðsdómi um þær ásakanir
ákæröu, aö þeir heföu beitt þá
harðræði og hefði ekkert það
komið fram sem benti til þess að
ákærur á hendur lögreglumönn-
unum væru réttar.
Þá skýrði irikissaksóknari frá
þvi að Jón Oddsson, verjandi
Sævars Ciecielskis heföi beöið um
að rannsökuð væri sú fullyröing
Sævars aö hann hefði verið beitt-
ur haröræði við yfirheyrslur. ,,Ég
fullyröi að ekkert það hefur kom-
iö fram við þá rannsókn, sem
bendir til þess að Sævar hafi verið
beittur harðræði til að fá fram
játningar i fangelsinu”, sagði
Þórður.
Einkennilegur
flutningur
Þá benti .rikissaksóknari á atr-
iöi#sem hann taldi einkennilegt.
Hann sagöi að 31. janúar 1977 hafi
Sævar Ciecielski verið fluttur i
hegningarhúsið við Skólavörðu-
stig og látinn þar i næsta klefa viö
Kristján Viðar Viðarsson. Nú
vildi svo til að mjög hljóðbært er á
milli klefa i þessu húsi og þvi
hefðu þeir Kristján og Sævar get-
aö haft samband sin i milli. en
þeir drógu ekki framburöi sina til
baka fyrr en eftir að þetta geröist.
Þórður benti einnig á aö þeir
heföu á sinum tima gefið játning-
ar sjálfstætt og hver i sinu lagi án
þess aö hafa vitað hvað hinir
sögðu.
Þá var komið að þeim kafla i
ræöu rikissaksóknara sem skýrt
er frá á forsiðu Þjóðviljans i dag,
þegar Sævar bað vitni að breyta
framburði sinum og verður ekki
nánar skýrt frá þvi hér, en visað
á forsiðuna i dag.
Samsekt
Þessu næst fjallaöi Þóröur
Björnsson um þann þátt málsins
að játningar hefðu verið dregnar
til baka og hvaða þýöingu það
hefði. Fór hann þar út i lögfræði-
atriði og islenskt réttarfar. Rakti
lög aftur i aldir og fram til okkar
tima og komst að þeirri niður-
stöðu að það hefði enga þýðingu i
þessum málum þótt ákærðu heföu
dregiö framburð sinn til baka.
Þessu næst fjallaði hann um
þátt hvers og eins i átökunum við
Guðmund Einarsson. Hann benti
á að þaö hefði ekki verið búiö að
ákveða það að taka Guðmund af
lifi, heldur hafi tilviljun ráðið þvi
að misþyrmingar þeirra á Guð-
mundi leiddu til dauða hans. En
hver er þá hlutur hvers? spuröi
saksóknari
Hann rakti þvi næst hvernig
þeir 3 ákærðu Sævar, Tryggvi og
Kristján, hefðu játað á sig þátt-
töku i átökunum. Þeir Tryggvi og
Kristján hefðu játað að hafa
margbariö Guðmund i höfuðiö og
bæði Sævar og Albert Skaftason
skýrt frá þvi sama. Þá hefðu
Albert.Kristján og Tryggvi skýrt
frá þvi að Sævar hefði sparkað i
höfuð Guðmundar og Sævar sjálf-
ur játað að hafa sparkaö i kjálka
hans. Það væri þvi fullkomlega
sannað lögfullri sönnun að þeir
þrir hefðu veist að Guðmundi með
þeim afleiðingum aö hann hlaut
bana af. Þá benti Þórður á að
þeim hafi öllum þremur hlotiö að
yera ljóst að misþyrmingarnar á
Guðmundi gætu leitt til dauöa
hans. Samt sem áður héldu þeir
áfram að misþyrma honum
„hrottalega” eins og Albert
Skaftason skýrði siðar frá.
Forseti Hæstaréttar hafði beðið
rikissaksóknara aö hafa 1 huga
lagagreinar sem fjalla um
manndráp af gáleysi. Þóröur kom
inná þetta, en niðurstaöa hans
varð sú að hér væri um manndráp
af ásetningi að ræða.
Þáttur Alberts
Skaftasonar
I héraði var Albert Skaftason
sýknaöur af hlutdeild i drápi Guð-
mundar, en ákærður og dæmdur
vegna likflutningsins. Þórður
Björnsson benti á að Albert
Skaftason hefði, eftir að ákæra
var lögð fram á hendur honum
um likflutninginn, játað aö hafa
verið viðstaddur þegar átökin við
Guðmund Einarsson áttu sér stað
að Hamarsbraut 11. Þetta var
sem sagt ekki vitaö.þegar ákæran
var gefin út og hefði þááttaðgefa
út framhaldsákæru, spurði Þórð-
ur. Nú, aftur á móti er hann
ákærður fyrir hlutdeild i mann-
drápi.
Þórður benti á, að enda þótt
Albert hafi ekki tekið þáttisjálf-
um átökunum, varð hann vitni að
þeim án þess að reyna að hjálpa
Guðmundi. Hann skýrði heldur
ekki lögreglu né lækni frá þvi sem
hann varð vitni að. Hann kom aft-
ur á vettvang eftir að hafa keyrt
Gunnar Jónsson heim. Lik Guð-
mundar var boriö út i bifreið, sem
hann hafði til umráða og siðan ók
hann þvi til urðunar i Hafnar-
fjarðarhrauni.
Þórður kom inná lagagrein um
ólöglega meðferð á liki. En sagði
aö einnig vaknaði sú spurning
hvort Guðmundur Einarsson
hefði i raun veriö látinn þegar
þeir fluttu hann I Hafnarfjarðar-
hraun, eða hvort þeir kviksettu
hann þar og þá væri hlutur
Alberts orðinn enn stærri, bein
aðild aö manndrápL
Þessu næst hóf Þórður flutning
smámálanna eins og hann komst
að oröi, en þaö eru allskonar
þjófnaðarákærur, ikveikjuákæra,
nauðgunarákæra og fikriiefna-
neysla.
I dag byrjar svo sóknarræða
rikissaksóknara I Geirfinns-
UTBOÐ
VST h.f. óskar eftir tilboðum i flutning á
um 4000 rúmm af vikri fyrir Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar. Flytja skal
efnið frá Mýrdal i Kolbeinsstaðahreppi að
Hesti i Andakilshreppi.
Otboðsgagna má vitja hjá VST Ármúla 4
Rvk., eða Berugötu 12, Borgarnesi, gegn
30 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð 28. jan. 1980 kl. 11.
f.h. að Berugötu 12, Borgamesi.
Verkfræðistofa Siguröar Thoroddsen hf.
Armúla 4, Reykjavik. Simi 84499
málinu.
— S.dór.
V erkamannaf élagið
Dagsbrún
TILLOGUR
uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs um
stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins
fyrir árið 1980 liggja frammi i skrifstofu
félagsins frá og með fimmtudeginum 17.
jan..
öðrum tillögum ber að skila i skrifstofu
Dagsbrúnar fyrir kl. 17.00 föstudaginn 18.
jan. 1980.
Kjörstjórn Dagsbrúnar.